{"id":3618,"date":"2017-12-18T18:34:13","date_gmt":"2017-12-18T18:34:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sakaria-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:13","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:13","slug":"sakaria-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sakaria-8-kafli\/","title":{"rendered":"Sakar\u00eda 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Huggun og fyrirheit a\u00f0 Jer\u00fasalem skal upp aftur byggjast\">[<\/span> So segir Drottinn Seba\u00f3t: Eg hefi veri\u00f0 mj\u00f6g vandl\u00e1tur vi\u00f0 S\u00edon og eg hefi me\u00f0 st\u00f3rri rei\u00f0i veri\u00f0 vandl\u00e1tur vi\u00f0 hana. So segir Drottinn: Eg sn\u00fd m\u00e9r aftur til S\u00edon og vil b\u00faa \u00ed Jer\u00fasalem so Jer\u00fasalem skal kallast sannleiksins sta\u00f0ur og \u00feess Drottins Seba\u00f3t fjall og eitt fjall helgid\u00f3msins.<\/p>\n<p>\tSo segir s\u00e1 Drottinn Seba\u00f3t: \u00dear skulu enn n\u00fa h\u00e9r eftir b\u00faa \u00ed Jer\u00fasalem gamlir menn og kvinnur og \u00feeir sem ganga vi\u00f0 staf af st\u00f3rri elli og str\u00e6ti sta\u00f0arins skulu vera full af piltum og st\u00falkum sem s\u00e9r skulu leika \u00e1 hennar str\u00e6tum. So segir Drottinn Seba\u00f3t: \u00deeim \u00feykir svoddan vera \u00f3m\u00f6gulegt fyrir augum \u00feessa eftirbl\u00edfna f\u00f3lks \u00ed \u00feessari t\u00ed\u00f0. Skyldi \u00fea\u00f0 \u00fear fyrir vera \u00f3m\u00f6gulegt fyrir m\u00ednum augum? segir Drottinn Seba\u00f3t. <\/p>\n<p>\tSo segir s\u00e1 Drottinn Seba\u00f3t: Sj\u00e1\u00f0u, eg vil frelsa mitt f\u00f3lk fr\u00e1 \u00fev\u00ed landi \u00ed m\u00f3t austri og fr\u00e1 \u00fev\u00ed landi \u00ed m\u00f3ti s\u00f3larinnar ni\u00f0urgangi og eg vil f\u00e6ra \u00fea\u00f0 \u00fat hinga\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal b\u00faa \u00ed Jer\u00fasalem. Og \u00feeir skulu vera mitt f\u00f3lk og eg vil vera \u00feeirra Gu\u00f0 \u00ed r\u00e9ttl\u00e6ti og sannleika. <\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn Seba\u00f3t: Styrki\u00f0 y\u00f0ar hendur, \u00fe\u00e9r sem heyri\u00f0 \u00feessi or\u00f0 \u00e1 \u00feessari t\u00ed\u00f0 fyrir munn sp\u00e1mannanna, \u00e1 \u00feeim degi sem s\u00e1 Drottinn Seba\u00f3t h\u00fass grundv\u00f6llur er lag\u00f0ur, \u00fe\u00e1 musteri\u00f0 skal uppbyggjast. \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrir \u00feessa daga var arfi\u00f0i mannanna forgefins og d\u00fdranna arfi\u00f0i til einkis og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00f6ngvan fri\u00f0 fyrir h\u00f6rmung \u00feeirra s\u00f6mu sem \u00fat og inn gengu heldur l\u00e9t eg alla menn fara hvern \u00ed m\u00f3t s\u00ednum n\u00e1unga. En n\u00fa vil eg ekki gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00feetta eftirbl\u00edfna f\u00f3lk sem \u00e1 \u00feeim fyrrum d\u00f6gum, segir Drottinn Seba\u00f3t, heldur skulu \u00feeir vera fri\u00f0arins s\u00e6\u00f0i. V\u00edntr\u00e9\u00f0 skal gefa sinn \u00e1v\u00f6xt og landi\u00f0 s\u00edna frj\u00f3vgan og himinninn skal gefa regn af s\u00e9r og eg vil l\u00e1ta \u00fe\u00e1 sem eftir eru or\u00f0nir af \u00feessu f\u00f3lki alls \u00feessa nj\u00f3ta.<\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 skal ske a\u00f0 l\u00edka sem \u00fe\u00e9r af J\u00fada h\u00fasi og af \u00cdsraels h\u00fasi voru\u00f0 eitt br\u00edgsli og b\u00f6lvan \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna so vil eg frelsa y\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera ein blessan. \u00d3ttist ekki og styrki\u00f0 y\u00f0ar hendur. So segir Drottinn Seba\u00f3t: L\u00edka sem eg \u00feenkti a\u00f0 pl\u00e1ga y\u00f0ur \u00fe\u00e1 y\u00f0ar forfe\u00f0ur reittu mig til rei\u00f0i, segir Drottinn Seba\u00f3t, og mig angra\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki, so hugsa eg n\u00fa \u00fear \u00ed m\u00f3t a\u00f0 gj\u00f6ra vel \u00e1 \u00feessum d\u00f6gum m\u00f3t Jer\u00fasalem og h\u00fasi J\u00fada. \u00dear fyrir \u00f3ttist ekki.<\/p>\n<p>\tEn \u00feetta er \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gj\u00f6ra: <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00fa r\u00e9tta og sanna gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta \/ Supra vii.\">[<\/span> Hver einn tali sannindi vi\u00f0 annan og d\u00e6mi\u00f0 r\u00e9tt og setji\u00f0 fri\u00f0 \u00ed y\u00f0rum portdyrum. Og enginn \u00feenki nokku\u00f0 vont \u00ed s\u00ednu hjarta \u00e1 m\u00f3ti s\u00ednum n\u00e1unga og elski\u00f0 ekki falska ei\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 eg hata allt soddan, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tOg or\u00f0 Drottins Seba\u00f3t ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: Svo segir Drottinn Seba\u00f3t: S\u00fa fasta fj\u00f3r\u00f0a, fimmta, sj\u00f6unda og t\u00edunda m\u00e1na\u00f0ar skal vera J\u00fada h\u00fasi til gle\u00f0i og fagna\u00f0ar og til gla\u00f0legrar \u00e1rh\u00e1t\u00ed\u00f0ar. Elski\u00f0 a\u00f0eins fri\u00f0 og sannleika.<\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn Seba\u00f3t: <span class=\"athugasemd\" title=\"Kallan hei\u00f0ingja\">[<\/span> \u00dear skal enn n\u00fa koma miki\u00f0 f\u00f3lk og margra sta\u00f0a borgarmenn og borgarmenn einnrar borgar skulu fara til \u00feeirrar annarrar og segja: &#8222;L\u00e1tum oss fara og tilbi\u00f0ja fyrir Drottni og leita \u00feess Drottins Seba\u00f3t. V\u00e9r viljum fara me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220; So skal margt f\u00f3lk og hei\u00f0ingjar koma \u00ed st\u00f3ru manntali til a\u00f0 leita Drottins Seba\u00f3t \u00ed Jer\u00fasalem a\u00f0 tilbi\u00f0ja fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn Seba\u00f3t: \u00c1 \u00feeim t\u00edma skulu t\u00edu menn af allra handa tungum\u00e1lum hei\u00f0ingjanna gr\u00edpa \u00ed stakksskaut eins \u00feess sem er af J\u00fada og segja: &#8222;V\u00e9r viljum fara me\u00f0 y\u00f0ur \u00fev\u00ed v\u00e9r heyrum a\u00f0 Gu\u00f0 er me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: [ So segir Drottinn Seba\u00f3t: Eg hefi veri\u00f0 mj\u00f6g vandl\u00e1tur vi\u00f0 S\u00edon og eg hefi me\u00f0 st\u00f3rri rei\u00f0i veri\u00f0 vandl\u00e1tur vi\u00f0 hana. So segir Drottinn: Eg sn\u00fd m\u00e9r aftur til S\u00edon og vil b\u00faa \u00ed Jer\u00fasalem so Jer\u00fasalem skal kallast sannleiksins sta\u00f0ur og \u00feess Drottins Seba\u00f3t fjall og eitt fjall helgid\u00f3msins. So segir s\u00e1 Drottinn Seba\u00f3t: \u00dear skulu enn n\u00fa h\u00e9r eftir b\u00faa \u00ed Jer\u00fasalem gamlir menn og kvinnur og \u00feeir sem ganga vi\u00f0 staf af st\u00f3rri elli og str\u00e6ti sta\u00f0arins skulu vera full af piltum og st\u00falkum sem s\u00e9r skulu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sakaria-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3618","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3618","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3618"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3618\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3618"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}