{"id":3608,"date":"2017-12-18T18:34:09","date_gmt":"2017-12-18T18:34:09","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sefania-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:09","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:09","slug":"sefania-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sefania-3-kafli\/","title":{"rendered":"Sefan\u00eda 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>Vei \u00feeirri lj\u00f3tu, saurugu <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Borg) \/ \u00dea\u00f0 var Jer\u00fasalem \u00fev\u00ed Gu\u00f0s or\u00f0 var \u00fear mest pr\u00e9dika\u00f0 en \u00fea\u00f0 var \u00fear mest forakta\u00f0\">[<\/span> v\u00edkingaborg! H\u00fan vill ekki hl\u00fd\u00f0a og ekki heldur l\u00e1ta aga sig, h\u00fan vill ekki treysta \u00e1 Drottin, eigi heldur halda s\u00e9r til s\u00edns Gu\u00f0s. Hennar h\u00f6f\u00f0ingjar \u00ed henni eru grenjandi le\u00f3nar og hennar d\u00f3mendur eru \u00falfar um kveldin \u00feeir e\u00f0 ekkert l\u00e1ta eftirbl\u00edfa til morguns. Hennar sp\u00e1menn eru g\u00e1lausir og forsm\u00e1narar, hennar prestar vanhei\u00f0ra <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Helgid\u00f3minn) \/ \u00dea\u00f0 er, Gu\u00f0s or\u00f0 sem \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra var\">[<\/span> helgid\u00f3minn og \u00fatleggja l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 ranglega. <\/p>\n<p>\tEn Drottinn sem er \u00e1 millum \u00feeirra hann kennir r\u00e9tt og gj\u00f6rir ekki neitt rangt. Hann l\u00e6tur hvern morgin kenna s\u00edn r\u00e9ttindi opinberlega og hann l\u00e6tur ekki af. En \u00fea\u00f0 vonda f\u00f3lk vill ekki l\u00e6ra a\u00f0 skammast s\u00edn. \u00dear fyrir vil eg \u00fev\u00edl\u00edkan l\u00fd\u00f0 \u00fatreka, \u00feeirra borgir ey\u00f0a og \u00feeirra str\u00e6ti t\u00f3m gj\u00f6ra so a\u00f0 enginn skal ganga \u00e1 \u00feeim. \u00deeirra sta\u00f0ir skulu ey\u00f0ileggjast so a\u00f0 enginn skal meir b\u00faa \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p>\tEg l\u00e9t segja \u00fe\u00e9r: &#8222;\u00de\u00fa skalt \u00f3ttast mig og l\u00e1ta aga \u00feig, so skal ekki \u00feeirra heimili afm\u00e1st og ekkert skal koma af \u00fev\u00ed me\u00f0 hverju eg hug\u00f0a hans a\u00f0 vitja.&#8220; En \u00feeir eru kostg\u00e6fnir til a\u00f0 fremja allra handa illsku. \u00dear fyrir, segir Drottinn, skulu \u00fe\u00e9r a\u00f0 n\u00fdju m\u00edn b\u00ed\u00f0a \u00fear til a\u00f0 eg uppr\u00eds \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00fe\u00e1 eg skal d\u00e6ma og hei\u00f0ingjunum samansafna og k\u00f3ngar\u00edki \u00ed eitt f\u00e6ra, minni rei\u00f0i yfir \u00fe\u00e1 hella, j\u00e1 allri rei\u00f0i minar grimmdar \u00fev\u00ed \u00f6ll ver\u00f6ldin skal uppey\u00f0ast fyrir minn vandl\u00e6tingareld.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 vil eg \u00f6\u00f0ruv\u00eds l\u00e1ta pr\u00e9dika fyrir f\u00f3lkinu, me\u00f0 vinsamlegum <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ V\u00f6rum \/ \u00dea\u00f0 er, pr\u00e9dikan heilags evangelii af Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0 \/ Jere. vii.\">[<\/span> v\u00f6rum so \u00feeir skulu \u00e1kalla allir nafn Drottins og \u00fej\u00f3na honum me\u00f0 sam\u00feykki. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00edki Christi\">[<\/span> Menn skulu f\u00e6ra m\u00e9r hinga\u00f0 m\u00edna tilbi\u00f0jendur til einnrar skenkingar, sem eru \u00feeir sundurdreif\u00f0u \u00e1 hina s\u00ed\u00f0u Vatsins \u00ed Bl\u00e1landi.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma skaltu ekki framar meir skammast \u00fe\u00edn vegna allra \u00feinna gj\u00f6rninga me\u00f0 hverjum \u00fe\u00fa hefur misgj\u00f6rt \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r. \u00dev\u00ed eg vil taka fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 drambl\u00e1tu heilaga so \u00fe\u00fa skalt ekki meir upphefja \u00feig fyrir s\u00f6kum m\u00edns heilaga fjalls. Eg vil l\u00e1ta eitt f\u00e1t\u00e6kt, l\u00edtilsh\u00e1ttar f\u00f3lk eftirbl\u00edfa \u00ed \u00fe\u00e9r, \u00feeir skulu vona upp \u00e1 nafni\u00f0 Drottins. \u00deeir sem eftirbl\u00edfa \u00ed \u00cdsrael skulu ekkert vont gj\u00f6ra e\u00f0ur \u00f3r\u00e9tt tala og \u00fear skal ei finnast ein sviks\u00f6m tunga \u00ed \u00feeirra munni heldur \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir f\u00e6\u00f0ast og hv\u00edlast \u00e1n alls \u00f3tta.<\/p>\n<p>\tGle\u00f0 \u00feig, \u00fe\u00fa S\u00edonsd\u00f3ttir, kalla \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, vertu gl\u00f6\u00f0 og fagna af \u00f6llu \u00fe\u00ednu hjarta, \u00fe\u00fa Jer\u00fasalemd\u00f3ttir! <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirheit og huggun\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn hefur burt teki\u00f0 \u00feitt straff og burtvernda\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00f3vinum. Drottinn Israelis k\u00f3ngur er hj\u00e1 \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fearft ekki framar meir a\u00f0 \u00f3ttast fyrir nokkri \u00f3lukku.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma skulu menn segja til Jer\u00fasalem: &#8222;\u00d3ttast \u00fe\u00fa ekki&#8220; og til S\u00edon: &#8222;L\u00e1t \u00fe\u00ednar hendur ekki m\u00e6\u00f0ast.&#8220; \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 er hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, einn styrkur frelsari. Hann skal gle\u00f0ja sig yfir \u00fe\u00e9r og vera \u00fe\u00e9r vinsamlegur og fyrirgefa \u00fe\u00e9r og hann skal gle\u00f0jast yfir \u00fe\u00e9r me\u00f0 h\u00e1hlj\u00f3\u00f0um.<\/p>\n<p>\tEg vil burtkasta \u00feeim sem pl\u00e1ga\u00f0ir voru me\u00f0 mannasetningum og \u00feeir skulu burt fr\u00e1 \u00fe\u00e9r hverjir uppsetningar a\u00f0 voru \u00feeirra byr\u00f0ar\u00feungi hvar af \u00feeir h\u00f6f\u00f0u vanvir\u00f0u. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil gj\u00f6ra einn enda \u00e1 \u00feeim \u00f6llum \u00e1 sama t\u00edma sem \u00feig pl\u00e1gu\u00f0u. Eg vil hj\u00e1lpa \u00feeim h\u00f6ltu og samansafna \u00feeim \u00fatreknu og eg vil gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 til lofs og hei\u00f0urs \u00ed \u00f6llum \u00feeirra l\u00f6ndum sem menn forsm\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1. \u00c1 \u00feeirri t\u00ed\u00f0 vil eg innlei\u00f0a y\u00f0ur hinga\u00f0 og samansafna y\u00f0ur \u00e1 \u00feeim t\u00edma. \u00dev\u00ed eg vil l\u00e1t y\u00f0ur veitast lof og pr\u00eds \u00e1 me\u00f0al alls f\u00f3lks \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 eg sn\u00fd y\u00f0ar fangelsi um fyrir y\u00f0rum augum, segir Drottinn.<\/p>\n<p>Ending prophetans Zephonie<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. Vei \u00feeirri lj\u00f3tu, saurugu [ v\u00edkingaborg! H\u00fan vill ekki hl\u00fd\u00f0a og ekki heldur l\u00e1ta aga sig, h\u00fan vill ekki treysta \u00e1 Drottin, eigi heldur halda s\u00e9r til s\u00edns Gu\u00f0s. Hennar h\u00f6f\u00f0ingjar \u00ed henni eru grenjandi le\u00f3nar og hennar d\u00f3mendur eru \u00falfar um kveldin \u00feeir e\u00f0 ekkert l\u00e1ta eftirbl\u00edfa til morguns. Hennar sp\u00e1menn eru g\u00e1lausir og forsm\u00e1narar, hennar prestar vanhei\u00f0ra [ helgid\u00f3minn og \u00fatleggja l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 ranglega. En Drottinn sem er \u00e1 millum \u00feeirra hann kennir r\u00e9tt og gj\u00f6rir ekki neitt rangt. Hann l\u00e6tur hvern morgin kenna s\u00edn r\u00e9ttindi opinberlega og hann l\u00e6tur ekki af. En \u00fea\u00f0 vonda f\u00f3lk vill ekki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sefania-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3608","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3608","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3608"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3608\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3608"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}