{"id":3603,"date":"2017-12-18T18:34:09","date_gmt":"2017-12-18T18:34:09","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/habakkuk-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:09","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:09","slug":"habakkuk-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/habakkuk-3-kafli\/","title":{"rendered":"Habakkuk 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>En v\u00edni\u00f0 prettar \u00feann drambsama so a\u00f0 hann kann ekki a\u00f0 standast, hver s\u00edna \u00f6nd \u00fat\u00feenur sem helv\u00edti og er flj\u00f3tur sem dau\u00f0inn s\u00e1 ei kann a\u00f0 se\u00f0jast heldur safnar \u00f6llum hei\u00f0ingjum til s\u00edn og safnar \u00f6llu f\u00f3lki a\u00f0 s\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Bab\u00fdlon\">[<\/span> En hva\u00f0 gildir \u00fea\u00f0 a\u00f0 allir \u00feeir inu s\u00f6mu skulu gj\u00f6ra einn m\u00e1lsh\u00e1tt um hann og eina r\u00e6\u00f0u me\u00f0 or\u00f0skvi\u00f0um og segja: <\/p>\n<p>\tVei \u00feeim sem sitt g\u00f3ss auka me\u00f0 annars au\u00f0\u00e6fum (og hversu lengi skal \u00fea\u00f0 vara?) og hle\u00f0ur \u00e1 sig miklum saur! <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00e1n\">[<\/span> \u00d3 hversu skyndilega skulu \u00feeir uppvekjast sem b\u00edta skulu \u00feig og uppvakna sem \u00fe\u00e9r skulu burt kasta og \u00fe\u00fa skalt ver\u00f0a \u00feeirra hlutskipti. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa hefur r\u00e6nt marga hei\u00f0ingja, so skulu \u00feeir n\u00fa r\u00e6na \u00feig aftur, allir \u00feeir sem eftir eru af f\u00f3lkinu, fyrir s\u00f6kum manna bl\u00f3\u00f0s og fyrir \u00fea\u00f0 ofr\u00edki sem \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir \u00ed landinu og sta\u00f0num \u00f6llum \u00feeim \u00fear inni b\u00faa.<\/p>\n<p>\tVei \u00feeim sem hann er \u00e1gjarn til \u00f3lukku s\u00edns h\u00fass til \u00feess a\u00f0 hann megi leggja sitt hrei\u00f0ur \u00ed h\u00e6\u00f0inni so hann megi komast undan \u00f3lukkunni! <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00c1girni\">[<\/span> En \u00fe\u00edn r\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0 skal ver\u00f0a til skammar \u00fe\u00ednu h\u00fasi. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa hefur deytt ofmargt f\u00f3lk og hefur syndgast me\u00f0 allsh\u00e1tta\u00f0ri illsku. \u00dev\u00ed steinarnir \u00ed m\u00farnum skulu og hr\u00f3pa og bitarnir undir sperrunni skulu svara \u00feeim.<\/p>\n<p>\tVei \u00feeim sem uppbyggir sta\u00f0inn me\u00f0 bl\u00f3\u00f0 og tilb\u00fdr borgina me\u00f0 \u00f3r\u00e9tt! <span class=\"athugasemd\" title=\"Bl\u00f3\u00f0\">[<\/span> Er \u00fea\u00f0 ekki svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal ske af Drottni Seba\u00f3t? Hva\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 hefur fyrir \u00feig unni\u00f0 \u00fea\u00f0 skal uppbrennast me\u00f0 eldi og \u00fea\u00f0 \u00e1 hverju f\u00f3lki\u00f0 \u00fereyttist \u00fea\u00f0 skal ver\u00f0a til einskis. \u00dev\u00ed a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in skal ver\u00f0a full af vi\u00f0urkenningu d\u00fdr\u00f0ar Drottins so sem vatn \u00fea\u00f0 sem hylur sj\u00f3inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. xi.\">[<\/span><\/p>\n<p>\tVei \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa sem skenkir \u00e1 fyrir \u00feinn n\u00e1unga og blandar \u00feinni grimmd \u00fear me\u00f0 og gj\u00f6rir hann drukkinn so \u00fe\u00fa megir sj\u00e1 hans sm\u00e1n! Menn skulu og metta \u00feig me\u00f0 skamm fyrir hei\u00f0ur. Svo drekk \u00fe\u00fa n\u00fa so a\u00f0 \u00fe\u00fa dettir um koll. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ofdrykkja\">[<\/span> \u00deinn kaleikur af h\u00e6gri hendi Drottins skal umkringja \u00feig og \u00fe\u00fa skalt skammarlega sp\u00fdja \u00ed sta\u00f0inn \u00feinnar vegsemdar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. xi.\">[<\/span> \u00dev\u00ed s\u00fa illskan sem \u00fe\u00fa framdir m\u00f3t L\u00edbanon h\u00fan skal falla yfir \u00feig og \u00feau ni\u00f0urslegin d\u00fdrin skulu hr\u00e6\u00f0a \u00feig fyrir s\u00f6kum bl\u00f3\u00f0s mannanna og \u00feeirra sv\u00edvir\u00f0inga sem framdar eru \u00ed landinu og vi\u00f0 alla \u00fe\u00e1 sem \u00fear inni b\u00faa.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 skal \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 b\u00edl\u00e6ti\u00f0 hj\u00e1lpa sem meistarinn hefur gj\u00f6rt og \u00fea\u00f0 falska steypta l\u00edkneski \u00e1 hvert meistarinn forl\u00e9t sig \u00fe\u00e1 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 m\u00e1llausa sk\u00fargo\u00f0? <span class=\"athugasemd\" title=\"Afgu\u00f0ad\u00fdrkan\">[<\/span> Vei \u00feeim sem segir til tr\u00e9sins: <span class=\"athugasemd\" title=\"Skurgo\u00f0ad\u00fdrkan\">[<\/span> &#8222;Vakna upp!&#8220; og til m\u00e1llausra steina: &#8222;Standi\u00f0 upp!&#8220; Hvernin skyldil \u00fea\u00f0 l\u00e6ra? Sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er me\u00f0 gulli og silfri tilb\u00fai\u00f0 en enginn andi er \u00ed \u00fev\u00ed. En Drottinn er \u00ed s\u00ednu heilaga musteri, \u00f6ll j\u00f6r\u00f0in skal vera kyrr fyrir honum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. En v\u00edni\u00f0 prettar \u00feann drambsama so a\u00f0 hann kann ekki a\u00f0 standast, hver s\u00edna \u00f6nd \u00fat\u00feenur sem helv\u00edti og er flj\u00f3tur sem dau\u00f0inn s\u00e1 ei kann a\u00f0 se\u00f0jast heldur safnar \u00f6llum hei\u00f0ingjum til s\u00edn og safnar \u00f6llu f\u00f3lki a\u00f0 s\u00e9r. [ En hva\u00f0 gildir \u00fea\u00f0 a\u00f0 allir \u00feeir inu s\u00f6mu skulu gj\u00f6ra einn m\u00e1lsh\u00e1tt um hann og eina r\u00e6\u00f0u me\u00f0 or\u00f0skvi\u00f0um og segja: Vei \u00feeim sem sitt g\u00f3ss auka me\u00f0 annars au\u00f0\u00e6fum (og hversu lengi skal \u00fea\u00f0 vara?) og hle\u00f0ur \u00e1 sig miklum saur! [ \u00d3 hversu skyndilega skulu \u00feeir uppvekjast sem b\u00edta skulu \u00feig og uppvakna sem \u00fe\u00e9r <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/habakkuk-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3603","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3603","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3603"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3603\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3603"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}