{"id":3544,"date":"2017-12-18T18:33:58","date_gmt":"2017-12-18T18:33:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-46-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:58","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:58","slug":"esekiel-46-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-46-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 46. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLVI.<\/p>\n<p>Svo segir Drottinn Drottinn: \u00dea\u00f0 porti\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed innsta fordyrinu sem er m\u00f3t austrinu skal vera tillukt \u00fe\u00e1 sex r\u00famhelga dagana en \u00e1 \u00fevottd\u00f6gunum og tunglkomunum skal \u00fea\u00f0 opi\u00f0 vera. Og h\u00f6f\u00f0inginn skal ganga utan til undir \u00fea\u00f0 lofth\u00fasi\u00f0 \u00e1 portinu og standa vi\u00f0 st\u00f3lpana \u00e1 portinu. Og prestarnir skulu offra hans brennioffri og \u00feakkl\u00e6tisoffri en hann skal tilbi\u00f0ja \u00e1 \u00fer\u00f6skuldi portsins og ganga s\u00ed\u00f0an \u00fat aftur. En porti\u00f0 skal opi\u00f0 vera til kvelds. Og f\u00f3lki\u00f0 af landinu skal eins l\u00edka so tilbi\u00f0ja fyrir Drottni \u00ed \u00feeim s\u00f6mu portdyrunum, \u00e1 \u00fevottd\u00f6gunum og tunglkomuh\u00e1t\u00ed\u00f0unum.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 brennioffri\u00f0 sem h\u00f6f\u00f0inginn skal offra fyri Drottni \u00e1 \u00fevottdeginum skal vera sex l\u00f6mb sem eru lastalaus og einn hr\u00fatur lastalaus og eitt efa mataroffurs til eins hr\u00fatsins og til mataroffursins en til lambanna so miki\u00f0 sem hans h\u00f6nd gefur til mataroffursins og eitt h\u00edn me\u00f0 oleum til eins efa.<\/p>\n<p>En \u00e1 \u00feeim tunglkomunum skal hann offra einum uxa sem er lastalaus og sex l\u00f6mbum og einum hr\u00fat lastalausum og einu efa til uxans og einu efa til hr\u00fatsins til mataroffursins en til lambanna so miki\u00f0 sem honum s\u00fdnist og einu h\u00edn oleum til eins efa.<\/p>\n<p>Og n\u00e6r e\u00f0 h\u00f6f\u00f0inginn gengur inn \u00feanga\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann ganga inn a\u00f0 portinu lofth\u00fassins og ganga so \u00feann sama veg \u00fat aftur. En \u00fea\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu sem kemur fyrir Drottin \u00e1 \u00feeim st\u00e6stu h\u00e1t\u00ed\u00f0unum a\u00f0 tilbi\u00f0ja og gengur inn a\u00f0 portinu \u00ed m\u00f3t nor\u00f0rinu \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 ganga \u00fat aftur a\u00f0 \u00fev\u00ed portinu m\u00f3t su\u00f0rinu. Og hverjir sem innganga um \u00fea\u00f0 porti\u00f0 m\u00f3ti su\u00f0rinu \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir \u00fatganga um \u00fea\u00f0 porti\u00f0 m\u00f3ti nor\u00f0rinu. Og \u00feeir skulu ekki \u00fat aftur ganga um \u00fea\u00f0 sama porti\u00f0 sem \u00feeir eru inn gengnir heldur skulu \u00feeir ganga r\u00e9tt fram og so \u00fat. En h\u00f6f\u00f0inginn skal ganga b\u00e6\u00f0i inn og \u00fat me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<p>En \u00e1 helgum d\u00f6gunum og \u00feeim st\u00e6stu h\u00e1t\u00ed\u00f0unum skal offrast til mataroffursins til eins uxa eitt efa og til hr\u00fatsins eitt efa og til lambanna eftir \u00fev\u00ed sem hans h\u00f6nd vill gefi\u00f0 hafa og eitt h\u00edn oleum til eins efa.<\/p>\n<p>En n\u00e6r e\u00f0 h\u00f6f\u00f0inginn vill f\u00f3rnf\u00e6ra Drottni eitt viljuglegt brennioffur e\u00f0ur \u00feakkl\u00e6tisoffur so skal uppl\u00fakast fyrir honum \u00fea\u00f0 porti\u00f0 m\u00f3ti austrinu a\u00f0 hann megi so offra s\u00ednu brennioffri og \u00feakkl\u00e6tisoffri l\u00edka so sem hann er vanur a\u00f0 offra \u00e1 \u00fevottd\u00f6gunum. Og n\u00e6r e\u00f0 hann gengur \u00fat aftur \u00fe\u00e1 skal porti\u00f0 l\u00e1tast aftur eftir honum.<\/p>\n<p>Og daglegana \u00fe\u00e1 skal hann f\u00f3rnf\u00e6ra Drottni eitt brennioffur, einkum sem er eitt \u00e1rsgamalt lamb lastalaust \u00fev\u00ed hann skal offra hvern morgun. Og hann skal hvern morgun leggja \u00fear upp \u00e1 einn s\u00e9ttung af einum efa til mataroffurs og einn \u00feri\u00f0jung af einum h\u00edn oleum til a\u00f0 v\u00f6kva me\u00f0 hveitimj\u00f6li\u00f0 Drottni til eins mataroffurs, \u00fea\u00f0 skal vera einn \u00e6vinlegur r\u00e9ttur um \u00fea\u00f0 hi\u00f0 daglega offri\u00f0. Og hvern morgun skulu \u00feeir offra lambinu me\u00f0 mataroffrinu og oleum til eins daglegs brennioffurs.<\/p>\n<p>So segir Drottinn Drottinn: N\u00e6r einn h\u00f6f\u00f0ingi gefur einhverjum af s\u00ednum sonum eina g\u00e1fu af sinni arfleif\u00f0, \u00feeirri hinni s\u00f6mu skulu hans synir b\u00edhalda og a\u00f0 erf\u00f0um eignast. En gefi hann nokkrum af s\u00ednum sveinum eitthva\u00f0 af sinni arfleif\u00f0 \u00fea\u00f0 skulu \u00feeir eingast til frelsunar\u00e1rsins. \u00de\u00e1 skal \u00fea\u00f0 falla til h\u00f6f\u00f0ingjans aftur \u00fev\u00ed a\u00f0 hans arfleif\u00f0 skal alleinasta erfast af hans sonum. Og h\u00f6f\u00f0inginn skal ekki neitt hafa fr\u00e1 f\u00f3lkinu af \u00feeirra arfleif\u00f0 og ekki a\u00f0 dr\u00edfa \u00fe\u00e1 af \u00feeirra eigin g\u00f3ssi heldur skal hann l\u00e1ta sitt eigi\u00f0 g\u00f3ss s\u00ednum b\u00f6rnum sj\u00e1lfs til erf\u00f0ar falla so \u00fea\u00f0 enginn af m\u00ednu f\u00f3lki skuli \u00ed burt dr\u00edfast af sinni eign og \u00e6ttleif\u00f0.<\/p>\n<p>Og hann leiddi mig undir innganginn hj\u00e1 hli\u00f0inu \u00e1 portinu \u00ed m\u00f3t nor\u00f0rinu hj\u00e1 helgid\u00f3msins herbergi sem kennim\u00f6nnunum tilheyr\u00f0i og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear var eitt r\u00fam \u00ed einni hyrningunni m\u00f3t vestrinu. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: \u00deetta er s\u00e1 sta\u00f0urinn \u00e1 hverjum prestarnir skulu sj\u00f3\u00f0a sakaroffri\u00f0 og syndaoffri\u00f0 og baka \u00fea\u00f0 mataroffri\u00f0 so a\u00f0 \u00feeir \u00feurfi ekki a\u00f0 bera \u00fea\u00f0 \u00fat um \u00fea\u00f0 hi\u00f0 y\u00f0sta porti\u00f0 til a\u00f0 helga f\u00f3lki\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dear eftir \u00e1 leiddi hann mig \u00fat til hins fordyrsins og ba\u00f0 mig a\u00f0 ganga \u00ed \u00feau fj\u00f6gur hornin \u00e1 fordyrinu. Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear voru \u00fat \u00ed hverjum af \u00feeim fj\u00f3rum hornunum \u00f6nnur sm\u00e1 fordyri til a\u00f0 veifa reykelsinu \u00fat \u00ed, fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1lna l\u00f6ng og \u00ferj\u00e1t\u00edgi \u00e1lna brei\u00f0, \u00f6ll fj\u00f6gur me\u00f0 einum skammti. Og \u00fear gekk einn l\u00edtill m\u00far utan um kring hvert eitt af \u00feeim fj\u00f3rum. \u00dear voru og gj\u00f6r\u00f0ir eldssta\u00f0ir ne\u00f0an til upp vi\u00f0 m\u00farinn. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: \u00deetta er \u00fea\u00f0 matgj\u00f6r\u00f0ah\u00fasi\u00f0 \u00ed hverju \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9narar h\u00fassins skulu matrei\u00f0a \u00fea\u00f0 sem f\u00f3lki\u00f0 offrar.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLVI. Svo segir Drottinn Drottinn: \u00dea\u00f0 porti\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed innsta fordyrinu sem er m\u00f3t austrinu skal vera tillukt \u00fe\u00e1 sex r\u00famhelga dagana en \u00e1 \u00fevottd\u00f6gunum og tunglkomunum skal \u00fea\u00f0 opi\u00f0 vera. Og h\u00f6f\u00f0inginn skal ganga utan til undir \u00fea\u00f0 lofth\u00fasi\u00f0 \u00e1 portinu og standa vi\u00f0 st\u00f3lpana \u00e1 portinu. Og prestarnir skulu offra hans brennioffri og \u00feakkl\u00e6tisoffri en hann skal tilbi\u00f0ja \u00e1 \u00fer\u00f6skuldi portsins og ganga s\u00ed\u00f0an \u00fat aftur. En porti\u00f0 skal opi\u00f0 vera til kvelds. Og f\u00f3lki\u00f0 af landinu skal eins l\u00edka so tilbi\u00f0ja fyrir Drottni \u00ed \u00feeim s\u00f6mu portdyrunum, \u00e1 \u00fevottd\u00f6gunum og tunglkomuh\u00e1t\u00ed\u00f0unum. \u00dea\u00f0 brennioffri\u00f0 sem h\u00f6f\u00f0inginn skal offra <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-46-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3544","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3544","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3544"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3544\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3544"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}