{"id":3543,"date":"2017-12-18T18:33:58","date_gmt":"2017-12-18T18:33:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-45-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:58","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:58","slug":"esekiel-45-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-45-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 45. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLV.<\/p>\n<p>N\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fatskipti\u00f0 n\u00fa landinu me\u00f0 hlutfalli \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r afskilja eitt upphafningaroffur af landinu \u00fea\u00f0 sem Drottni skal helga\u00f0 vera, fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir m\u00e6lisk\u00f6ft a\u00f0 lengd og t\u00edu \u00fe\u00fasundir a\u00f0 breidd. S\u00e1 fl\u00f6turinn skal heilagur vera so langt sem hann hr\u00f6kkur. Og \u00fear \u00fat af skulu fimm hundru\u00f0 m\u00e6lisk\u00f6ft koma til helgid\u00f3msins, ferkanta\u00f0, og \u00fear til eitt frj\u00e1lslegt r\u00fam allt um kring, fimmtigu \u00e1lna.<\/p>\n<p>Og \u00e1 \u00feeim sama fl\u00f6tnum sem er fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir m\u00e6lisk\u00f6ft a\u00f0 lengd og t\u00edu \u00fe\u00fasundir brei\u00f0ur, \u00fe\u00e1 skal helgid\u00f3murinn standa og \u00fea\u00f0 hi\u00f0 allra heilagasta. En \u00fea\u00f0 eftir ver\u00f0ur af \u00fev\u00ed landinu skal heyra kennim\u00f6nnunum til sem \u00fej\u00f3na \u00ed helgid\u00f3minum og ganga fyrir Drottni til a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum, so a\u00f0 \u00feeir hafi r\u00fam til h\u00fasanna, og \u00fea\u00f0 skal einnin heilagt vera.<\/p>\n<p>En \u00feeir Lev\u00edtarnir sem \u00fej\u00f3na fyrir h\u00fasinu skulu einnin hafa fimm og tuttugu \u00fe\u00fasund m\u00e6lisk\u00f6ft a\u00f0 lengd og t\u00edu \u00fe\u00fasundir a\u00f0 breidd \u00ed sitt hlutskipti til tuttugu herbergja.<\/p>\n<p>Og til sta\u00f0arins skulu \u00fe\u00e9r einnin l\u00e1ta einn fl\u00f6tinn fyrir allt \u00cdsraels h\u00fas, fimm \u00fe\u00fasundir m\u00e6lisk\u00f6ft \u00e1 breiddina og fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir \u00e1 lengdina, n\u00e6st \u00feeim fl\u00f6tnum sem afskildur er til helgid\u00f3msins.<\/p>\n<p>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 einnin gefa h\u00f6f\u00f0ingjanum eitt takmark hvorumegin, \u00e1 millum kennimanna fl\u00f6tsins og \u00e1 millum sta\u00f0arfl\u00f6tsins, \u00ed m\u00f3t vestrinu og \u00ed m\u00f3t austrinu, og hann skal standa jafnlangur m\u00f3t austrinu og vestrinu. \u00dea\u00f0 skal vera hans eignarskipti \u00ed \u00cdsrael so a\u00f0 m\u00ednir h\u00f6f\u00f0ingjar skulu ekki taka meira \u00fea\u00f0 m\u00ednu f\u00f3lki tilkemur heldur skulu \u00feeir l\u00e1ta \u00cdsraelsf\u00f3lk b\u00edhalda landinu til sinna kynkv\u00edsla.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed so segir Drottinn Drottinn: \u00de\u00e9r \u00cdsraels h\u00f6f\u00f0ingjar hafi\u00f0 gj\u00f6rt \u00fea\u00f0 n\u00f3gu lengi. L\u00e1ti\u00f0 af r\u00e1ni og rangindum og gj\u00f6ri\u00f0 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 gott og r\u00e9ttv\u00edslegt er og l\u00e1ti\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatdr\u00edfa mitt f\u00f3lk, segir Drottinn Drottinn.<\/p>\n<p>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 hafa r\u00e9ttar vogir og r\u00e9tt m\u00e6liker\u00f6ld og r\u00e9ttan m\u00e6lir, <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Efa) \/ Er kornm\u00e6lir\">[<\/span> efa og <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Bat) \/ Er m\u00e6lir til v\u00edns og vi\u00f0smj\u00f6rs\">[<\/span> bat skulu jafnar vera, so a\u00f0 einn bat skal halda einn t\u00edundapartinn af einum h\u00f3mer og efa einn t\u00edundapartinn af einum h\u00f3mer. \u00dev\u00ed a\u00f0 hvorttveggja skal \u00fea\u00f0 m\u00e6last eftir einum h\u00f3mer.<\/p>\n<p>En einn <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ Siclus \/ Ein m\u00edna heldur d?lx. Siclos, \u00fev\u00ed skal g?ta \u00feessa t\u00f6lu saman. En siclus heldur tvo drachmas, \u00fea\u00f0 er fj\u00f3r\u00f0ungur eyris silfurs e\u00f0ur ??? af einum Joch?imis dal\">[<\/span> siclus skal hafa t\u00edu gera, ein m\u00edna gj\u00f6rir tuttugu siclos, fimm og tuttugu siclos og fimmt\u00e1n siclos.<\/p>\n<p>\u00deetta skal n\u00fa vera upphafningaroffri\u00f0 sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 upphefja, sem er hinn s\u00e9tti parturinn af einum efa, af einum h\u00f3mer hveitis, og einn s\u00e9ttungurinn af einum efa og af einum h\u00f3mer bygg.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gefa einn bat af oleum, sem er s\u00e1 hinn t\u00edundi bat af einum k\u00f3r, og hinn t\u00edundapart af einum h\u00f3mer. \u00dev\u00ed a\u00f0 t\u00edu bat gj\u00f6rir einn h\u00f3mer.<\/p>\n<p>Og eitt lamb af tveimur hundru\u00f0um sau\u00f0a af \u00feeirri hj\u00f6r\u00f0inni sem er \u00ed \u00cdsraels grashaga til mataroffurs, brennioffurs og \u00feakkl\u00e6tisoffurs, til einnrar forl\u00edkunar fyrir \u00fe\u00e1, segir Drottinn Drottinn.<\/p>\n<p>Allt f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu skal f\u00e6ra soddan upphafningaroffur til h\u00f6f\u00f0ingjans \u00ed \u00cdsrael. Og h\u00f6f\u00f0inginn skal offra s\u00ednu brennioffri og mataroffri og drykkjaroffri \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0unum og tunglkomunum og \u00fevottd\u00f6gunum og \u00e1 \u00f6llum \u00e6\u00f0stum h\u00e1t\u00ed\u00f0um h\u00fassins \u00cdsrael. \u00dear til me\u00f0 skal hann f\u00f3rnf\u00e6ra syndaoffrinu og mataroffrinu, brennioffrinu og \u00feakkl\u00e6tisoffrinu til einnrar forl\u00edkunar fyrir \u00cdsraels h\u00fas.<\/p>\n<p>So segir Drottinn Drottinn: \u00c1 \u00feeim fyrsta deginum \u00feess fyrsta m\u00e1na\u00f0arins skalt \u00fe\u00fa taka einn ungan uxa sem er lastalaus og hreinsa helgid\u00f3minn. Og presturinn skal taka af syndaoffursins bl\u00f3\u00f0 og dreifa \u00fev\u00ed \u00e1 st\u00f3lpana \u00ed h\u00fasinu og \u00e1 \u00feau fj\u00f6gur hornin \u00e1 tr\u00f6ppunum altarisins og \u00e1 st\u00f3lpana \u00ed portinu \u00feess innsta fordyrsins. L\u00edka so skulu og einin gj\u00f6ra \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda deginum \u00ed m\u00e1na\u00f0inum ef a\u00f0 nokkur kann a\u00f0 hafa hrasa\u00f0 e\u00f0ur fors\u00e9\u00f0 sig, a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 so hreinsa h\u00fasi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feeim fj\u00f3rt\u00e1nda deginum hins fyrsta m\u00e1na\u00f0ar \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r halda p\u00e1skana og \u00ed sj\u00f6 daga heilagt halda og eta \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0. Og \u00e1 \u00feeim sama deginum skal h\u00f6f\u00f0inginn offra fyrir s\u00e9r og fyrir \u00f6llu f\u00f3lkinu \u00ed landinu einum uxa til syndaoffurs. En \u00e1 \u00feeim sj\u00f6 h\u00e1t\u00ed\u00f0isd\u00f6gunum skal hann hvern dag offra Drottni eitt brennioffur, sem eru sj\u00f6 uxar og sj\u00f6 hr\u00fatar sem lastalausir eru og einn kjarnhafur til syndaoffurs, en til mataroffursins skal hann offra einum efa til eins uxa og einum efa til eins hr\u00fatsins og eitt h\u00edn me\u00f0 oleum til hvers efa.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feeim fimmt\u00e1nda deginum hins sj\u00f6unda m\u00e1na\u00f0ar skal hann heilagt halda \u00ed sj\u00f6 daga hvern eftir annan eins so sem \u00fe\u00e1 a\u00f0ra sj\u00f6 dagana og halda \u00fe\u00e1 eins l\u00edka so me\u00f0 syndaoffri, brennioffri, mataroffri og oleum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLV. N\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fatskipti\u00f0 n\u00fa landinu me\u00f0 hlutfalli \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r afskilja eitt upphafningaroffur af landinu \u00fea\u00f0 sem Drottni skal helga\u00f0 vera, fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir m\u00e6lisk\u00f6ft a\u00f0 lengd og t\u00edu \u00fe\u00fasundir a\u00f0 breidd. S\u00e1 fl\u00f6turinn skal heilagur vera so langt sem hann hr\u00f6kkur. Og \u00fear \u00fat af skulu fimm hundru\u00f0 m\u00e6lisk\u00f6ft koma til helgid\u00f3msins, ferkanta\u00f0, og \u00fear til eitt frj\u00e1lslegt r\u00fam allt um kring, fimmtigu \u00e1lna. Og \u00e1 \u00feeim sama fl\u00f6tnum sem er fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir m\u00e6lisk\u00f6ft a\u00f0 lengd og t\u00edu \u00fe\u00fasundir brei\u00f0ur, \u00fe\u00e1 skal helgid\u00f3murinn standa og \u00fea\u00f0 hi\u00f0 allra heilagasta. En \u00fea\u00f0 eftir ver\u00f0ur af <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-45-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3543","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3543","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3543"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3543\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3543"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}