{"id":3538,"date":"2017-12-18T18:33:58","date_gmt":"2017-12-18T18:33:58","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-40-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:58","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:58","slug":"esekiel-40-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-40-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 40. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XL.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00fev\u00ed tuttugasta og fimmta voru herlei\u00f0ingar\u00e1ri, \u00feann t\u00edunda daginn \u00ed m\u00e1na\u00f0inum \u00ed upphafinu \u00e1rsins, \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 fj\u00f3rt\u00e1nda \u00e1ri\u00f0 eftir \u00fea\u00f0 e\u00f0 sta\u00f0urinn var ni\u00f0urbrotinn, \u00e1 \u00feeim sama degi kom h\u00f6nd Drottins yfir mig og flutti mig \u00feanga\u00f0 \u00ed burt fyrir gu\u00f0d\u00f3mlega s\u00fdn, sem var, \u00ed \u00cdsraelsland, og setti mig upp \u00e1 eitt mj\u00f6g ofurh\u00e1tt fjall. <span class=\"athugasemd\" title=\"Uppbygging musterisins og altarisins etc. allt \u00fat til enda sp\u00e1mannsins b\u00f3kar\">[<\/span> \u00dear upp \u00e1 var svo sem einn bygg\u00f0ur sta\u00f0ur fyrir sunnan fram.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann haf\u00f0i flutt mig \u00feanga\u00f0, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 var \u00fear einn ma\u00f0ur. Hans yfirlit var sem l\u00e1t\u00fan, hann haf\u00f0i einn l\u00ednustreng og eina m\u00e6list\u00f6ng \u00ed sinni hendi og st\u00f3\u00f0 undir portinu. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: \u00de\u00fa mannsins son, sj\u00e1 \u00fe\u00fa og heyr \u00fe\u00fa me\u00f0 athygli og hugleittu vel a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 eg vil s\u00fdna \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert \u00fear fyrir hinga\u00f0 fluttur a\u00f0 eg skuli s\u00fdna \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir kunngj\u00f6ra \u00cdsraels h\u00fasi allt \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa s\u00e9r.<\/p>\n<p>Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear gekk einn m\u00farveggur utan um h\u00fasi\u00f0 allt \u00ed kringum \u00fea\u00f0 og ma\u00f0urinn haf\u00f0i \u00fe\u00e1 m\u00e6lisst\u00f6ngina \u00ed hendinni. H\u00fan var sex \u00e1lna l\u00f6ng. Hver alin var einni \u00feverh\u00f6nd lengri en almennileg alin. Og hann m\u00e6lti breiddina \u00e1 byggingunni eina m\u00e6lisst\u00f6ng og eina m\u00e6lisst\u00f6ng \u00e1 h\u00e6\u00f0ina.<\/p>\n<p>Og hann kom til portdyranna sem horf\u00f0u m\u00f3t austrinu og hann st\u00e9 upp a\u00f0 tr\u00f6ppunum og m\u00e6lti syllarnar \u00e1 portinu. Hver dyrasyllin var einnrar m\u00e6listangar brei\u00f0. Og hann m\u00e6lti so einnin \u00feau herbergin sem voru beggja vegana hj\u00e1 portinu, a\u00f0 lengdinni eina m\u00e6lisst\u00f6ng og a\u00f0 breiddinni eina m\u00e6lisst\u00f6ng. Og \u00fea\u00f0 r\u00fami\u00f0 \u00e1 millum herbergjanna var fimm \u00e1lna breitt. Og hann m\u00e6lti einnin dyrasyllina innan til hj\u00e1 portinu upp a\u00f0 lofth\u00fasinu, eina m\u00e6list\u00f6ng.<\/p>\n<p>Og hann m\u00e6lti lofth\u00fasi\u00f0 innan til hj\u00e1 portinu, eina m\u00e6list\u00f6ng. Og hann m\u00e6lti lofth\u00fasi\u00f0 hj\u00e1 portinu, \u00e1tta \u00e1lnir, og \u00fatbroti\u00f0 \u00fear \u00e1, tv\u00e6r \u00e1lnir, og lofth\u00fasi\u00f0 innan til \u00e1 portinu. Og herbergin voru \u00ferj\u00fa \u00e1 hvora hli\u00f0 hj\u00e1 portinu \u00ed m\u00f3t austrinu, j\u00e1 \u00fea\u00f0 eina so breitt sem hitt anna\u00f0. Og \u00fear st\u00f3\u00f0u \u00fatbrot b\u00e1\u00f0umegin. \u00deau voru jafnst\u00f3r.<\/p>\n<p>\u00dear eftir \u00e1 m\u00e6lti hann v\u00edddina dyranna \u00e1 portinu, sem var t\u00edu \u00e1lna, og lengdina \u00e1 portinu, \u00ferett\u00e1n \u00e1lna. Og frammi fyrir herbergjunum voru s\u00e6ti b\u00e1\u00f0umegin \u00e1lnabrei\u00f0 en herbergin voru sex \u00e1lna \u00e1 v\u00edddina beggja vegana.<\/p>\n<p>\u00dear til m\u00e6lti hann porti\u00f0 fr\u00e1 \u00feekjunni herbergisins inn til \u00feekjunnar \u00e1 portinu, fimm \u00e1lna og tuttugu brei\u00f0, og hvorar dyrnar st\u00f3\u00f0u \u00ed gegn \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n<p>Hann gj\u00f6r\u00f0i og einnin lofth\u00fas sext\u00edgu \u00e1lna a\u00f0 h\u00e6\u00f0 og einar fordyr fyrir hverju lofth\u00fasi hj\u00e1 portinu allt um kring. Og inn til \u00feess lofth\u00fassins hj\u00e1 \u00fev\u00ed innsta portinu \u00fear inn er gengi\u00f0 \u00fe\u00e1 voru fimmt\u00edgu \u00e1lnir.<\/p>\n<p>Og \u00fear voru mj\u00f3 vindaugu innan til \u00e1 herbergjunum og lofth\u00fasinu innanvert hj\u00e1 portinu allt um kring. So voru \u00fear og innan til vindaugu \u00e1 lofth\u00fasunum og \u00fear voru \u00e1 \u00fatskorin p\u00e1lmvi\u00f0arlauf allt um kring.<\/p>\n<p>Og hann leiddi mig framvegis til hinna y\u00f0stu fordyranna og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear voru herbergi og eitt steinlagt g\u00f3lf \u00ed fordyrunum allt um kring og \u00ferj\u00e1t\u00edgu herbergi \u00e1 g\u00f3lfinu. Og \u00fear var eitt h\u00e1tt steinlagt g\u00f3lf hj\u00e1 portunum, so langt sem portin voru, hj\u00e1 \u00fev\u00ed ne\u00f0sta steinlag\u00f0a g\u00f3lfinu.<\/p>\n<p>Og hann m\u00e6lti breiddina \u00e1 \u00fev\u00ed ne\u00f0sta portinu \u00ed fr\u00e1 \u00feeim innstu portdyrunum utan til, hundra\u00f0 \u00e1lna, b\u00e6\u00f0i m\u00f3t austrinu og nor\u00f0rinu.<\/p>\n<p>So m\u00e6lti hann og einnin \u00fea\u00f0 porti\u00f0 sem horf\u00f0i m\u00f3t nor\u00f0rinu \u00ed hj\u00e1 \u00feeim y\u00f0stu fordyrunum a\u00f0 lengdinni og breiddinni. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i og einnin \u00ferj\u00fa herbergi hvorumegin og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i einnin s\u00edn \u00fatbrot og lofth\u00fas l\u00edka so st\u00f3r sem hj\u00e1 \u00fev\u00ed fyrsta portinu, fimmt\u00edgu \u00e1lna a\u00f0 lengdinni og fimm \u00e1lna og tuttugu a\u00f0 breiddinni. Og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i einnin s\u00edn vindaugu og s\u00edn lofth\u00fas og s\u00edn \u00fatskorin p\u00e1lmvi\u00f0arlauf, l\u00edka sem \u00fea\u00f0 porti\u00f0 m\u00f3t austrinu. Og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i sj\u00f6 tr\u00f6ppur \u00fear e\u00f0 upp var gengi\u00f0 og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i sitt lofth\u00fas \u00fear frammi fyrir.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 porti\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim innstu portdyrunum var gegnt \u00fev\u00ed portinu sem st\u00f3\u00f0 m\u00f3t nor\u00f0rinu og austrinu. Og hann m\u00e6lti hundra\u00f0 \u00e1lna fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00f6\u00f0ru portinu til hins annars.<\/p>\n<p>\u00dear eftir \u00e1 leiddi hann mig m\u00f3t su\u00f0rinu og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear var enn eitt porti\u00f0 \u00e1 m\u00f3t su\u00f0rinu. Og hann m\u00e6lti \u00feess \u00fatbrot og lofth\u00fas l\u00edka sem hinna annarra. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i og einnin vindaugu og lofth\u00fas allt um kring l\u00edka sem \u00feau \u00f6nnur vindaugun, fimmt\u00edgu \u00e1lna l\u00f6ng og fimm og tuttugu \u00e1lna brei\u00f0. Og \u00fear voru sj\u00f6 tr\u00f6ppur upp a\u00f0 og eitt lofth\u00fas \u00fear frammi fyrir og \u00fatskorin p\u00e1lmvi\u00f0arlauf \u00e1 \u00feess \u00fatbrotum b\u00e1\u00f0umegin.<\/p>\n<p>Og hann m\u00e6lti einnin \u00fea\u00f0 porti\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim innstu fordyrunum m\u00f3t su\u00f0rinu, sem var hundra\u00f0 \u00e1lna, fr\u00e1 \u00fev\u00ed sy\u00f0ra portinu til hins annars.<\/p>\n<p>Og hann leiddi mig enn lengra fram, \u00ed gegnum \u00fea\u00f0 sy\u00f0ra porti\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e6r innstu fordyrnar, og m\u00e6lti \u00fea\u00f0 sama port m\u00f3t su\u00f0rinu, l\u00edka so st\u00f3rt sem hin \u00f6nnur me\u00f0ur \u00feess herbergjum, \u00fatbrotum og lofth\u00fasum og me\u00f0ur vindaugum og loftsv\u00f6lum \u00fear \u00e1, l\u00edka so st\u00f3r sem hin \u00f6nnur allt um kring, fimmt\u00edgi \u00e1lna l\u00f6ng og fimm og tuttugu \u00e1lna brei\u00f0.<\/p>\n<p>Og \u00fear gekk einn loftsalur um kring, fimm og tuttugu \u00e1lna langur og fimm \u00e1lna brei\u00f0ur. Hann st\u00f3\u00f0 \u00fati fyrir \u00ed gegn \u00fev\u00ed innsta fordyrinu og hann haf\u00f0i \u00fatskorin p\u00e1lmvi\u00f0arlauf \u00e1 \u00fatbrotunum og \u00fear voru \u00e1tta tr\u00f6ppur upp a\u00f0 ganga.<\/p>\n<p>\u00dear eftir \u00e1 leiddi hann mig til \u00feess innsta portsins \u00ed m\u00f3t austrinu og m\u00e6lti \u00fea\u00f0 l\u00edka so st\u00f3rt sem hin \u00f6nnur, me\u00f0ur \u00feess herbergjum, \u00farbrotum og lofth\u00fasum og \u00feess vindaugum og loftsv\u00f6lum allt um kring, l\u00edka so st\u00f3r sem hin \u00f6nnur, fimmt\u00edgir \u00e1lna l\u00f6ng og fimm og tuttugu \u00e1lna brei\u00f0. Og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i einnin eitt lofth\u00fas gegnt \u00fev\u00ed y\u00f0sta portinu og \u00fatskorin p\u00e1lmalauf \u00e1 \u00fatbrotunum b\u00e1\u00f0umegin og \u00e1tta tr\u00f6ppur upp a\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dear eftir \u00e1 leiddi hann mig a\u00f0 \u00fev\u00ed portinu m\u00f3t nor\u00f0rinu. \u00dea\u00f0 m\u00e6lti hann l\u00edka so st\u00f3rt sem hin \u00f6nnur, me\u00f0ur \u00feess herbergjum, \u00fatbrotum og lofth\u00fasum og \u00feess vindaugum og loftsv\u00f6lum allt um kring fimmt\u00edgi \u00e1lna l\u00f6ng og fimm og tuttugu \u00e1lna brei\u00f0. Og \u00fea\u00f0 haf\u00f0i einnin eitt lofth\u00fas gegnt \u00fev\u00ed y\u00f0sta portinu, einnin \u00fatskorin p\u00e1lmalauf \u00e1 \u00fatbrotunum b\u00e1\u00f0umegin og \u00e1tta tr\u00f6ppur upp a\u00f0.<\/p>\n<p>Og ne\u00f0an til upp a\u00f0 \u00fatbrotinu hj\u00e1 hverju porti var eitt herbergi me\u00f0 einni dyrahur\u00f0 \u00ed hvert \u00feeir l\u00f6g\u00f0u brennioffri\u00f0. En \u00ed lofth\u00fasin fyrir portinu st\u00f3\u00f0u tv\u00f6 bor\u00f0 \u00e1 hvora hli\u00f0 \u00e1 hverju \u00feeir skyldu sl\u00e1tra brennioffrinu, syndaoffrinu og sakaoffrinu. Og \u00e1 hli\u00f0inni utan til \u00fear e\u00f0 gengi\u00f0 er upp a\u00f0 portinu m\u00f3t nort\u00f0inu st\u00f3\u00f0u einnin tv\u00f6 bor\u00f0 og til hinnar annarrar handar undir lofth\u00fasinu upp a\u00f0 portinu einnin tv\u00f6 \u00f6nnur bor\u00f0. So a\u00f0 \u00fear st\u00f3\u00f0u hvorumegin fj\u00f6gur bor\u00f0, \u00fea\u00f0 eru \u00e1tta bor\u00f0 til samans sem \u00feeir sl\u00e1tru\u00f0u upp \u00e1.<\/p>\n<p>Og \u00feau fj\u00f6gur bor\u00f0in sem til brennioffursins voru gj\u00f6r\u00f0 \u00fea\u00f0 voru \u00fath\u00f6ggnir steinar, h\u00e1lf \u00f6nnur alin a\u00f0 lengd og breidd og alin a\u00f0 h\u00e6\u00f0, upp \u00e1 hver \u00feeir l\u00f6g\u00f0u allra handa verkf\u00e6ri til a\u00f0 sl\u00e1tra me\u00f0 brennif\u00f3rnunum og \u00f6\u00f0ru offri. Og \u00fear voru spengur utan um kring beyg\u00f0ar inn a\u00f0, \u00feverar handar a\u00f0 h\u00e6\u00f0. Og \u00e1 \u00feau bor\u00f0in \u00e1ttu \u00feeir a\u00f0 leggja \u00fea\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 sem offrast skyldi.<\/p>\n<p>Og \u00fear voru herbergi til s\u00f6ngmannanna utan fyrir \u00fev\u00ed innsta portinu \u00ed \u00feeim innstu fordyrunum. Eitt hj\u00e1 \u00feeirri hli\u00f0inni upp a\u00f0 portinu m\u00f3ti nor\u00f0rinu, \u00fea\u00f0 horf\u00f0i vi\u00f0 su\u00f0rinu. Hitt anna\u00f0 upp a\u00f0 hli\u00f0inni m\u00f3t austrinu, \u00fea\u00f0 horf\u00f0i vi\u00f0 nor\u00f0rinu.<\/p>\n<p>Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: \u00deau herbergin m\u00f3t su\u00f0rinu heyra \u00feeim prestunum til sem \u00fej\u00f3na eiga \u00ed h\u00fasinu. En \u00feau herbergin m\u00f3t nor\u00f0rinu heyra \u00feeim prestunum til sem \u00fej\u00f3na altarinu. Og \u00feeir eru Jad\u00f3ksynir hverjir alleinasta af sonum Lev\u00ed skulu framganga fyrir Drottin til a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum.<\/p>\n<p>Og hann m\u00e6lti \u00feann fl\u00f6tinn \u00ed h\u00fasinu, sem var hundra\u00f0 \u00e1lna langur og hundra\u00f0 \u00e1lna brei\u00f0ur, ferkanta\u00f0ur. Og \u00fear st\u00f3\u00f0 eitt altari r\u00e9tt fyrir musterinu.<\/p>\n<p>Og hann leiddi mig inn \u00ed loftsalinn musterisins og m\u00e6lti lofth\u00fasi\u00f0 b\u00e1\u00f0umegin, fimm \u00e1lna breitt og portin \u00e1 hvora s\u00ed\u00f0u, \u00feriggja \u00e1lna breitt. En loftsalurinn var tuttugu \u00e1lna langur og ellefu \u00e1lna brei\u00f0ur og haf\u00f0i tr\u00f6ppur sem \u00fear gengu upp a\u00f0 og \u00fear st\u00f3\u00f0u st\u00f3lpar ne\u00f0an a\u00f0 upp a\u00f0 \u00fatbrotinu, einn \u00e1 hvera hli\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XL. \u00c1 \u00fev\u00ed tuttugasta og fimmta voru herlei\u00f0ingar\u00e1ri, \u00feann t\u00edunda daginn \u00ed m\u00e1na\u00f0inum \u00ed upphafinu \u00e1rsins, \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 fj\u00f3rt\u00e1nda \u00e1ri\u00f0 eftir \u00fea\u00f0 e\u00f0 sta\u00f0urinn var ni\u00f0urbrotinn, \u00e1 \u00feeim sama degi kom h\u00f6nd Drottins yfir mig og flutti mig \u00feanga\u00f0 \u00ed burt fyrir gu\u00f0d\u00f3mlega s\u00fdn, sem var, \u00ed \u00cdsraelsland, og setti mig upp \u00e1 eitt mj\u00f6g ofurh\u00e1tt fjall. [ \u00dear upp \u00e1 var svo sem einn bygg\u00f0ur sta\u00f0ur fyrir sunnan fram. Og \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann haf\u00f0i flutt mig \u00feanga\u00f0, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 var \u00fear einn ma\u00f0ur. Hans yfirlit var sem l\u00e1t\u00fan, hann haf\u00f0i einn l\u00ednustreng og eina m\u00e6list\u00f6ng \u00ed sinni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-40-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3538","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3538","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3538"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3538\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3538"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}