{"id":3534,"date":"2017-12-18T18:33:55","date_gmt":"2017-12-18T18:33:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-36-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:55","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:55","slug":"esekiel-36-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-36-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 36. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXVI.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00fa mannsins son, sp\u00e1\u00f0u \u00cdsraelsfj\u00f6llum og seg\u00f0u: \u00de\u00e9r \u00cdsraelsfj\u00f6ll, heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins! So segir Drottinn Drottinn: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3vinirnir hr\u00f3su\u00f0u s\u00e9r yfir y\u00f0ur: &#8222;Ha, ha! \u00de\u00e6r hinar \u00e6vinlegu h\u00e6\u00f0irnar eru n\u00fa or\u00f0nar vor arfleif\u00f0&#8220; \u00fear fyrir sp\u00e1\u00f0u og seg\u00f0u: So segir Drottinn Drottinn: Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00ed ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u og afm\u00e1\u00f0u y\u00f0ur alla vegana og \u00fe\u00e9r eru\u00f0 \u00feeim eftiror\u00f0num hei\u00f0ingjum a\u00f0 hlutskipti or\u00f0nir og eru\u00f0 komnir \u00ed f\u00f3lksins munna og eru\u00f0 or\u00f0nir a\u00f0 vondri or\u00f0hr\u00f3pan, \u00fear fyrir, heyri \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsfj\u00f6ll or\u00f0 Drottins Drottins: So segir Drottinn Drottinn, b\u00e6\u00f0i til fjallanna og til h\u00e1lsanna og til l\u00e6kjanna og dalanna og til \u00f6r\u00e6fa ey\u00f0imarkanna og \u00f3bygg\u00f0arsta\u00f0anna sem eru \u00feeim eftiror\u00f0nu hei\u00f0ingjunum a\u00f0 gripdeildum og h\u00e1\u00f0ungum or\u00f0nir allt um kring, j\u00e1 svo segir Drottinn Drottinn: Eg hefi tala\u00f0 \u00ed minni brennandi vandl\u00e6tingu m\u00f3ti \u00feeim eftiror\u00f0nu hei\u00f0ingjunum og \u00ed m\u00f3ti gj\u00f6rvallri Ed\u00f3m sem mitt land hefur a\u00f0 s\u00e9r teki\u00f0 me\u00f0 fagna\u00f0ai af \u00f6llu hjarta og me\u00f0 h\u00e1\u00f0uglegum a\u00f0hl\u00e1tri til a\u00f0 fordjarfa og \u00fatarma \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dear fyrir sp\u00e1\u00f0u um \u00cdsraelsland og seg \u00fe\u00fa til fjallanna og h\u00e1lsanna, til l\u00e6kjanna og dalanna: So segir Drottinn Drottinn: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg hefi tala\u00f0 \u00ed minni vandl\u00e6tingu og grimmd. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hlj\u00f3ti\u00f0 a\u00f0 bera soddan forsm\u00e1n af hei\u00f0ingjunum \u00fear fyrir segir Drottinn Drottinn so: <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Eg upphef m\u00edna h\u00f6nd \/ \u00dea\u00f0 er, eg sver\">[<\/span> Eg upphef m\u00edna h\u00f6nd a\u00f0 y\u00f0rir n\u00e1grannar, \u00feeir hei\u00f0ingjarnir allt um kring, skulu \u00fear igen sj\u00e1lfir bera s\u00ednar skammir. En \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsfj\u00f6ll skulu\u00f0 bl\u00f3mgast aftur og bera y\u00f0varn \u00e1v\u00f6xt m\u00ednu f\u00f3lki \u00cdsrael og \u00fea\u00f0 skal snarglegana ske.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed sj\u00e1i\u00f0, eg vil sn\u00faa m\u00e9r til y\u00f0ar aftur og g\u00e6ta a\u00f0 y\u00f0ur so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 uppbyggjast og planta\u00f0ir ver\u00f0a og eg vil fj\u00f6lga m\u00f6rgu f\u00f3lki hj\u00e1 y\u00f0ur \u00fev\u00ed gj\u00f6rv\u00f6llu \u00cdsraels h\u00fasi \u00f6llu til samans. Og sta\u00f0irnir skulu bygg\u00f0ir ver\u00f0a upp aftur, j\u00e1 eg vil fj\u00f6lga hj\u00e1 y\u00f0ur f\u00f3lki og f\u00e9na\u00f0i so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 fj\u00f6lgast og vaxa. Og eg vil innsetja y\u00f0ur aftur \u00fear \u00fe\u00e9r bjuggu\u00f0 fyrr meir. Og eg vil gj\u00f6ra y\u00f0ur meira gott heldur en nokkurn t\u00edma \u00e1\u00f0ur fyrri og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 formerkja a\u00f0 eg er Drottinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirheit og huggun\">[<\/span> Eg vil innflytja menn til y\u00f0ar sem skulu vera mitt f\u00f3lk \u00cdsrael, \u00feeir skulu \u00feig eignast og \u00fe\u00fa skalt \u00feeirra arfleif\u00f0 vera og \u00fe\u00fa skalt ekki meir vera erfingjalaus.<\/p>\n<p>So segir Drottinn Drottinn: Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir segja \u00fea\u00f0 um y\u00f0ur: &#8222;\u00de\u00fa hefur uppeti\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 og \u00fe\u00fa hefur gj\u00f6rt \u00feitt f\u00f3lk erfingjalaust&#8220; \u00fear fyrir skaltu ekki n\u00fa meir uppeta f\u00f3lki\u00f0, eigi heldur gj\u00f6ra \u00feitt f\u00f3lk arflaust, segir Drottinn Drottinn. Og eg vil ei l\u00e1ta \u00feig lengur heyra br\u00edgslin hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a og \u00fe\u00fa skalt ekki lengur heyra h\u00e1\u00f0ungar hei\u00f0ingjanna og \u00fe\u00fa skalt ekki gj\u00f6ra f\u00f3lk \u00feitt erfingjalaust lengur, segir Drottinn Drottinn.<\/p>\n<p>Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i framlei\u00f0is til m\u00edn: \u00de\u00fa mannsins son, \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00cdsraels h\u00fas bj\u00f3 \u00ed s\u00ednu landi og saurga\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0ur sinni breytni og gj\u00f6rningum svo a\u00f0 \u00feeirra breytni var fyrir m\u00e9r so sem \u00f3hreinleiki kvinnunnar \u00ed hennar kvenlegu krankd\u00e6mi \u00fe\u00e1 \u00fathellta eg minni grimmd yfir \u00fe\u00e1 fyrir \u00feess bl\u00f3\u00f0sins sakir sem \u00feeir \u00fathelltu \u00ed landinu og saurgu\u00f0u \u00fea\u00f0 sama me\u00f0 \u00feeirra afgu\u00f0um og eg \u00fatdreif\u00f0a \u00feeim \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a og eg \u00ed burt rak \u00fe\u00e1 \u00fat \u00ed l\u00f6ndin og d\u00e6mdi \u00fe\u00e1 eftir \u00feeirra breytni og gj\u00f6rningum. Og \u00feeir h\u00e9ldu sig l\u00edka svo sem hei\u00f0ingjarnir til hverra \u00feeir komu og vanhelgu\u00f0u mitt heilaga nafn so a\u00f0 \u00feeir s\u00f6g\u00f0u so af \u00feeim: &#8222;Er \u00feetta f\u00f3lk Drottins \u00fea\u00f0 hann hlaut \u00fat a\u00f0 draga af s\u00ednu landi?&#8220; En eg v\u00e6g\u00f0a fyrir m\u00edns heilaga nafns sakir hvert e\u00f0 \u00cdsraels h\u00fas \u00fea\u00f0 vanhelga\u00f0i \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a til hverra \u00feeir komu. <\/p>\n<p>\u00dear fyrir skaltu segja til \u00cdsraels h\u00fas: Svo segir Drottinn Drottinn: Eg gj\u00f6ri \u00fea\u00f0 eigi fyrir y\u00f0ar skuld, \u00fe\u00e9r af h\u00fasi \u00cdsraels, heldur fyrir m\u00edns heilaga nafns sakir hvert \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a til hverra \u00fe\u00e9r komu\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg vil helga mitt hi\u00f0 mikla nafn sem af y\u00f0ur er vanhelga\u00f0 fyrir hei\u00f0ingjum, \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. Og \u00feeir hinir hei\u00f0inu skulu formerkja a\u00f0 eg er Drottinn, segir Drottinn Drottinn, n\u00e6r a\u00f0 eg augl\u00fdsi mig \u00e1 y\u00f0ur fyrir \u00feeim \u00fea\u00f0 eg s\u00e9 heilagur.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed a\u00f0 eg vil s\u00e6kja y\u00f0ur til hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a og samansafna y\u00f0ur af \u00f6llum l\u00f6ndum og innflytja y\u00f0ur aftur \u00ed y\u00f0art land. <span class=\"athugasemd\" title=\"Huggun og fyrirheit\">[<\/span> Og eg vil st\u00f6kkva hreinu vatni \u00e1 y\u00f0ur so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ver\u00f0a hreinir af \u00f6llum y\u00f0ar saurindum og eg vil hreinsa y\u00f0ur fr\u00e1 \u00f6llum y\u00f0ar afgu\u00f0um og gefa y\u00f0ur n\u00fdtt hjarta og einn n\u00fdjan anda \u00ed y\u00f0ur og eg vil \u00ed burt taka \u00fea\u00f0 steinhjarta\u00f0 af y\u00f0ru holdi og gefa y\u00f0ur eitt kj\u00f6tlegt hjarta. Eg vil gefa minn anda \u00ed y\u00f0ur og eg vil gj\u00f6ra eitt svoddan f\u00f3lk af y\u00f0ur sem gengur \u00ed m\u00ednum bo\u00f0or\u00f0um og heldur m\u00edn r\u00e9ttindi og gj\u00f6rir \u00fear eftir. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 b\u00faa \u00ed landinu sem eg gaf y\u00f0ar forfe\u00f0rum og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera mitt f\u00f3lk og eg vil vera y\u00f0ar Gu\u00f0. Og eg vil frelsa y\u00f0ur af \u00f6llum y\u00f0ar \u00f3hreinleika og eg mun kalla korni\u00f0 og eg vil margfalda \u00fea\u00f0 og ekki neitt hall\u00e6ri vil eg l\u00e1ta koma til y\u00f0ar. Eg vil margfalda \u00e1v\u00f6xtinn \u00e1 trj\u00e1num og \u00e1v\u00f6xtinn \u00e1 akurl\u00f6ndunum so a\u00f0 hei\u00f0ingjarnir skulu ekki meir h\u00e6\u00f0a y\u00f0ur me\u00f0 \u00feeirri hall\u00e6rist\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 munu \u00fe\u00e9r huglei\u00f0a y\u00f0ar vonda breytni og y\u00f0ar gj\u00f6rninga sem eigi voru g\u00f3\u00f0ir og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 \u00fe\u00e1 i\u00f0rast y\u00f0vara synda og afgu\u00f0ad\u00fdrkunar. \u00deessu vil eg til vegar koma, ekki fyrir y\u00f0ar skuld, segir Drottinn Drottinn, so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vita \u00fea\u00f0 heldur so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 einnin skammast y\u00f0ar og bera kinnro\u00f0a, \u00fe\u00e9r af \u00cdsraels h\u00fasi, yfir y\u00f0ra vonda breytni.<\/p>\n<p>So segir Drottinn Drottinn: \u00c1 \u00feeim t\u00edma n\u00e6r e\u00f0 eg mun hreinsa y\u00f0ur af \u00f6llum y\u00f0ar syndum \u00fe\u00e1 vil eg byggja \u00feessa sta\u00f0ina aftur og \u00feeir hinir foreyddu sta\u00f0irnir skulu igen uppbygg\u00f0ir ver\u00f0a. \u00dea\u00f0 foreydda landi\u00f0 skal erjast aftur \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri fordjarfa\u00f0 so a\u00f0 allir \u00feeir sem \u00fear ganga um skulu sj\u00e1 \u00fea\u00f0 og segja: &#8222;\u00deetta land var \u00ed ey\u00f0i lagt og n\u00fa er \u00fea\u00f0 sem einn lystilegur aldingar\u00f0ur og \u00feessir sta\u00f0irnir voru ni\u00f0ur brotnir og ey\u00f0ilag\u00f0ir og ofan rifnir en n\u00fa standa \u00feeir rammlega bygg\u00f0ir.&#8220; Og \u00fe\u00e6r hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eftir eru or\u00f0nar \u00ed kringum y\u00f0ur skulu formerkja a\u00f0 eg er Drottinn, s\u00e1 sem uppbyggir \u00fea\u00f0 sem ofan er broti\u00f0 og gr\u00f3\u00f0setur \u00fea\u00f0 sem \u00ed ey\u00f0i var lagt. Eg, Drottinn, segi \u00feetta og gj\u00f6ri einnin \u00fea\u00f0 hi\u00f0 sama.<\/p>\n<p>Svo segir Drottinn Drottinn: Eg vil l\u00e1ta a\u00f0 n\u00fdju \u00cdsraels h\u00fas spyrja mig svo a\u00f0 eg megi augs\u00fdna mig \u00feeim og eg vil margfalda \u00fe\u00e1 so sem mannsins hj\u00f6r\u00f0, so sem eina heilaga hj\u00f6r\u00f0, sem eina hj\u00f6r\u00f0 til Jer\u00fasalem \u00e1 hennar h\u00e1t\u00ed\u00f0um, so skulu \u00feeir foreyddu sta\u00f0irnir fullir ver\u00f0a af mannanna hj\u00f6r\u00f0. Og \u00feeir skulu formerkja a\u00f0 eg er Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXVI. Og \u00fe\u00fa mannsins son, sp\u00e1\u00f0u \u00cdsraelsfj\u00f6llum og seg\u00f0u: \u00de\u00e9r \u00cdsraelsfj\u00f6ll, heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins! So segir Drottinn Drottinn: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3vinirnir hr\u00f3su\u00f0u s\u00e9r yfir y\u00f0ur: &#8222;Ha, ha! \u00de\u00e6r hinar \u00e6vinlegu h\u00e6\u00f0irnar eru n\u00fa or\u00f0nar vor arfleif\u00f0&#8220; \u00fear fyrir sp\u00e1\u00f0u og seg\u00f0u: So segir Drottinn Drottinn: Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00ed ey\u00f0il\u00f6g\u00f0u og afm\u00e1\u00f0u y\u00f0ur alla vegana og \u00fe\u00e9r eru\u00f0 \u00feeim eftiror\u00f0num hei\u00f0ingjum a\u00f0 hlutskipti or\u00f0nir og eru\u00f0 komnir \u00ed f\u00f3lksins munna og eru\u00f0 or\u00f0nir a\u00f0 vondri or\u00f0hr\u00f3pan, \u00fear fyrir, heyri \u00fe\u00e9r \u00cdsraelsfj\u00f6ll or\u00f0 Drottins Drottins: So segir Drottinn Drottinn, b\u00e6\u00f0i til fjallanna og til h\u00e1lsanna og til l\u00e6kjanna og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-36-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3534","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3534","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3534"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3534\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3534"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}