{"id":3525,"date":"2017-12-18T18:33:55","date_gmt":"2017-12-18T18:33:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-27-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:55","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:55","slug":"esekiel-27-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-27-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 27. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXVII.<\/p>\n<p>Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Tyrus\">[<\/span> \u00de\u00fa mannsins son, gj\u00f6r einn sorgargr\u00e1t yfir Tyrus og seg \u00fe\u00fa til Tyrus, \u00feeirrar sem liggur fram vi\u00f0 sj\u00e1varhafi\u00f0 og kaupslagar vi\u00f0 margar eyjar \u00fej\u00f3\u00f0anna: Svo segir Drottinn Drottinn: \u00d3 Tyrus! \u00de\u00fa segir: &#8222;Eg er \u00feann allra fegursti.&#8220; \u00de\u00edn landamerki eru <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Mitt \u00ed hafinu \/ svo sem a\u00f0rir h\u00f6f\u00f0ingjar h\u00f6f\u00f0u borgir, \u00feorp og akra, svo haf\u00f0i Tyrus vald \u00e1 sj\u00f3num\">[<\/span> mitt \u00ed hafinu og \u00fe\u00ednir uppbyggendur hafa tilb\u00fai\u00f0 \u00feig hi\u00f0 allra pr\u00fd\u00f0ilegasta, \u00feeir hafa allar \u00fe\u00ednar \u00feilfjalir af \u00fe\u00ednum bor\u00f0vi\u00f0 gj\u00f6r\u00f0ar af San\u00edr og l\u00e1ti\u00f0 flytja sedrustr\u00e9 af L\u00edbanon og gj\u00f6rt \u00fe\u00edn m\u00f6stur \u00fear \u00fat af og \u00fe\u00ednar \u00e1rar af eikitrj\u00e1num \u00far Basan og \u00fe\u00edna bekki af f\u00edlsbeinum og \u00fe\u00edna kostulega st\u00f3la \u00far eyjunum Kit\u00edm. \u00de\u00edn segl voru sauma\u00f0 silki af Egyptalandi og \u00fe\u00edn sigurmerki \u00fear inni teiknu\u00f0 og \u00fe\u00edn tj\u00f6ld af gulu silki og purpura \u00far \u00feeim eyjunum El\u00edsa.<\/p>\n<p>\u00deeir af S\u00eddon og Arvat voru \u00fe\u00ednir skipferjarar og \u00fe\u00fa haf\u00f0ir skynsama menn til siglinga \u00ed Tyro. <span class=\"athugasemd\" title=\"Magtarveldi Tyri\">[<\/span> \u00deeir \u00f6ldungarnir og hinir hagt\u00e6ku af Gebal hlutu a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a \u00fe\u00edn skip. \u00d6ll hafskipin og skipf\u00f3lki\u00f0 fannst hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sinn kaupsta\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e9r. \u00deeir \u00far Persia, Lydia og Lybia voru \u00fe\u00ednir str\u00ed\u00f0smenn sem s\u00edna skj\u00f6ldu og hj\u00e1lma upp festu \u00ed \u00fe\u00e9r og gj\u00f6r\u00f0u \u00feig svo pr\u00fd\u00f0ilega. \u00deeir af Arvat voru me\u00f0 \u00fe\u00ednu herli\u00f0i \u00ed kringum \u00fe\u00edna m\u00farveggi og h\u00e9ldu v\u00f6r\u00f0 upp \u00ed \u00fe\u00ednum turnum, \u00feeir festu s\u00edna skj\u00f6ldu allavegana \u00fat \u00e1 m\u00farveggina og gj\u00f6r\u00f0u \u00feig svo pr\u00fd\u00f0ilega.<\/p>\n<p>\u00de\u00fa haf\u00f0ir \u00feinn kaupsta\u00f0 \u00e1 hafinu og fluttir allsh\u00e1tta\u00f0an varning, silfur, j\u00e1rn, tin og bl\u00fd, til \u00feinnar kaupstefnu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Markna\u00f0ur Tyri\">[<\/span> Javan, T\u00fabal, Mesek kaupsl\u00f6gu\u00f0u vi\u00f0 \u00feig og fluttu \u00fe\u00e9r \u00fer\u00e6la og m\u00e1lm til \u00feinnar kaupstefnu. \u00deeir af T\u00f3garma fluttu \u00fe\u00e9r v\u00edghesta og vagna og m\u00falasna til \u00feinnar kaupstefnu. \u00deeir af Dedan voru \u00fe\u00ednir kaupmenn og alla vegana hefur \u00fe\u00fa haft \u00feinn kaupskap \u00ed eyjunum, \u00feeir seldu \u00fe\u00e9r f\u00edlabein og hebenvi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deeir af Syria s\u00f3ttu \u00feitt erfi\u00f0i hj\u00e1 \u00fe\u00e9r sem \u00fe\u00fa verka\u00f0ir og fluttu r\u00fab\u00edn, purpuratj\u00f6ld, silki og flugel og kristalla til \u00feinnar kaupstefnu. J\u00fada og \u00cdsraelsland kaupsl\u00f6gu\u00f0u einnin vi\u00f0 \u00feig og fluttu \u00fe\u00e9r hveiti og minn\u00edt og balsamum, hunang og oleum og malstix til \u00feinnar kaupstefnu. \u00dear til s\u00f3tti einnin Damascus hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00feitt erfi\u00f0i og allsh\u00e1tta\u00f0an varning fyrir sterka v\u00edn og kostulega ull.<\/p>\n<p>Dan og Javan og Meh\u00fasal flutti einnin \u00e1 \u00feitt torg j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0ar, cassia og calmus, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa kaupslaga\u00f0ir \u00fear me\u00f0. Dedan keypti vi\u00f0 \u00feig me\u00f0 tjaldavefna\u00f0i \u00fear e\u00f0 \u00e1 er seti\u00f0. Arabia og allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir af Kedar h\u00f6f\u00f0u kaupskap vi\u00f0 \u00feig me\u00f0ur sau\u00f0i, hr\u00fata og hafra. \u00deeir kaupmennirnir af Saba og Raema keyptu vi\u00f0 \u00feig og fluttu \u00fe\u00e9r allsh\u00e1tta\u00f0ar jurtrir og d\u00fdr\u00f0lega gimsteina og gull til \u00feinnar kaupstefnu. Haran og Kane og Eden me\u00f0 \u00feeim kaupm\u00f6nnunum af Seba, Ass\u00far og El\u00edmad voru \u00fe\u00ednir kaupmenn.<\/p>\n<p>\u00deeir kaupsl\u00f6gu\u00f0u allir vi\u00f0 \u00feig me\u00f0 kostulegum kl\u00e6\u00f0um, me\u00f0 silki og d\u00fdrindis vefna\u00f0i, hvern e\u00f0 \u00feeir \u00ed kostulegum kistum af sedrustrj\u00e1m sm\u00ed\u00f0\u00f6\u00f0um og vel umvendu\u00f0um fluttu til \u00feinnar kaupstefnu. En \u00feau hafskipin voru hin yppurstu \u00e1 \u00feinni kauprein. \u00deannin ertu or\u00f0in r\u00edk og t\u00edgugleg \u00ed mi\u00f0ju sj\u00e1varhafinu og \u00fe\u00ednir skipmenn hafa flutt af \u00fe\u00e9r yfir um mikilsh\u00e1ttar v\u00f6tn.<\/p>\n<p>En einn austanvindur skal \u00ed sundurbrj\u00f3ta \u00feig mitt \u00ed sj\u00f3num so a\u00f0 \u00feinn s\u00f6lueyrir, kaupmenn, kaupskapur, skipf\u00f3lk, st\u00fdrimenn og skipasmi\u00f0ir og \u00fe\u00ednir varningsmenn og allir \u00fe\u00ednir str\u00ed\u00f0smenn og allt f\u00f3lki\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e9r skal tort\u00fdnast mitt \u00ed sj\u00e1varhafinu, \u00e1 \u00feeim t\u00edma n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt ni\u00f0ur \u00ed grunn a\u00f0 hrapa svo a\u00f0 h\u00f6fnin skal og einnin skj\u00e1lfa vi\u00f0 af \u00feeim h\u00e1hlj\u00f3\u00f0unum \u00feinna st\u00fdrimanna. Og allir \u00feeir sem r\u00f3a me\u00f0 b\u00e1ts\u00e1runum \u00e1samt skipverjum og meist\u00f6rum skulu st\u00edga af skipunum upp \u00e1 landi\u00f0 og me\u00f0 h\u00e1hlj\u00f3\u00f0um \u00e6pa yfir \u00fe\u00e9r og harma \u00feig beisklegana og ausa moldu yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r og velta s\u00e9r \u00ed \u00f6sku, \u00feeir munu raka sig bersk\u00f6ll\u00f3tta yfir \u00fe\u00e9r og vefja sekkjum \u00ed kringum sig og af hjarta beisklegana gr\u00e1ta og sorga yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\u00deeirra b\u00f6rn munu og einnin harma \u00feig: &#8222;Aha! Hver hefur nokkurn t\u00edma svo kyrr or\u00f0inn \u00e1 sj\u00e1varhafinu sem \u00fe\u00fa, Tyrus?&#8220; \u00dear e\u00f0 \u00fe\u00fa framdir \u00feinn kaupskap \u00e1 sj\u00f3num. M\u00f6rg l\u00f6nd au\u00f0ga\u00f0ir \u00fe\u00fa, j\u00e1 \u00fe\u00fa au\u00f0ga\u00f0ir einnin \u00fe\u00e1 konungana \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni me\u00f0ur \u00fe\u00ednum varningi og kaupskap. En n\u00fa ertu af sj\u00e1varhafinu \u00ed burt k\u00f6stu\u00f0 \u00ed \u00fea\u00f0 mj\u00f6g dj\u00fapa vatni\u00f0 svo a\u00f0 \u00f6ll \u00fe\u00edn handt\u00e9ran og allur \u00feinn mannfj\u00f6ldi er ni\u00f0urfallin \u00ed \u00fe\u00e9r. Allir \u00feeir sem \u00ed eyjunum b\u00faa \u00fe\u00e1 skelfdust yfir \u00fe\u00e9r og \u00feeirra konungum \u00fe\u00e1 \u00f3gna\u00f0i \u00fea\u00f0 og b\u00e1ru sig h\u00f6rmulegana. \u00deeir kaupmenn \u00ed l\u00f6ndunum bl\u00edstra eftir \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa ert svo skyndilegana forgengin og kannt ekki meir upp aftur a\u00f0 komast.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXVII. Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: [ \u00de\u00fa mannsins son, gj\u00f6r einn sorgargr\u00e1t yfir Tyrus og seg \u00fe\u00fa til Tyrus, \u00feeirrar sem liggur fram vi\u00f0 sj\u00e1varhafi\u00f0 og kaupslagar vi\u00f0 margar eyjar \u00fej\u00f3\u00f0anna: Svo segir Drottinn Drottinn: \u00d3 Tyrus! \u00de\u00fa segir: &#8222;Eg er \u00feann allra fegursti.&#8220; \u00de\u00edn landamerki eru [ mitt \u00ed hafinu og \u00fe\u00ednir uppbyggendur hafa tilb\u00fai\u00f0 \u00feig hi\u00f0 allra pr\u00fd\u00f0ilegasta, \u00feeir hafa allar \u00fe\u00ednar \u00feilfjalir af \u00fe\u00ednum bor\u00f0vi\u00f0 gj\u00f6r\u00f0ar af San\u00edr og l\u00e1ti\u00f0 flytja sedrustr\u00e9 af L\u00edbanon og gj\u00f6rt \u00fe\u00edn m\u00f6stur \u00fear \u00fat af og \u00fe\u00ednar \u00e1rar af eikitrj\u00e1num \u00far Basan og \u00fe\u00edna bekki af f\u00edlsbeinum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-27-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3525","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3525","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3525"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3525\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3525"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}