{"id":3510,"date":"2017-12-18T18:33:51","date_gmt":"2017-12-18T18:33:51","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:51","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:51","slug":"esekiel-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-13-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: \u00de\u00fa mannsins son, sp\u00e1 \u00fe\u00fa \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim prophetunum \u00cdsraels og seg til \u00feeirra sem sp\u00e1 \u00fat af s\u00ednu eigin hjarta: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. Svo segir Drottinn Drottinn: Vei \u00feeim heimskusamlegum prophetunum sem eftirfylgja s\u00ednum eiginlegum anda og hafa \u00fe\u00f3 \u00f6ngva s\u00fdn. \u00d3 \u00cdsrael, \u00fe\u00ednir prophetar eru l\u00edka svo sem refar \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkum, \u00feeir st\u00edga ekki upp yfir \u00fe\u00e6r jar\u00f0holurnar og halda sig ekki til hjar\u00f0arinnar \u00ed kringum \u00cdsraels h\u00fas og \u00feeir standa ekki \u00ed str\u00ed\u00f0inu \u00e1 degi Drottins. \u00deeirra sj\u00f3nir eru h\u00e9g\u00f3mi og \u00feeirra sp\u00e1d\u00f3mar eru lygar. \u00deeri segja: &#8222;Drottinn sag\u00f0i \u00fea\u00f0&#8220; \u00fe\u00f3 a\u00f0 Drottinn \u00fatsendi \u00fe\u00e1 ekki og \u00f3maka sig svo um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir f\u00e1i s\u00ednum efnum fram haldi\u00f0. Er \u00fea\u00f0 eigi svo a\u00f0 y\u00f0ar sj\u00f3nir eru h\u00e9g\u00f3mi og y\u00f0rir sp\u00e1d\u00f3mar eru lygar? Og \u00fe\u00e9r segi\u00f0 \u00fe\u00f3 samt: &#8222;Drottinn tala\u00f0i \u00fea\u00f0&#8220; \u00fe\u00f3 hann tala\u00f0i \u00fea\u00f0 eigi.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir segir Drottinn Drottinn svo: Fyrst a\u00f0 \u00fe\u00e9r pr\u00e9diki\u00f0 \u00fea\u00f0 sem ekki er utan h\u00e9g\u00f3mi og sp\u00e1i\u00f0 fyrir lygum \u00fe\u00e1 vil eg finna y\u00f0ur, segir Drottinn Drottinn, og m\u00edn h\u00f6nd skal koma yfir \u00fe\u00e1 prophetana sem pr\u00e9dika \u00fea\u00f0 sem ekki er utan h\u00e9g\u00f3mi og sp\u00e1 ekki utan lygar. \u00deeir skulu ekki vera \u00ed samkundu m\u00edns f\u00f3lks og ekki innskrifa\u00f0ir vera \u00ed \u00fe\u00e1 t\u00f6luna h\u00fassins \u00cdsrael og eigi heldur innkoma \u00ed landi\u00f0 \u00cdsrael og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 fornema a\u00f0 eg er Drottinn Drottinn, \u00fear fyrir a\u00f0 \u00feer afvegalei\u00f0i\u00f0 mitt f\u00f3lk og segi\u00f0 fri\u00f0 \u00fear sem \u00fe\u00f3 er enginn fri\u00f0ur. F\u00f3lki\u00f0 \u00fea\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Vegg a\u00f0 byggja kallar hann a\u00f0 breyta eftir \u00fev\u00ed sem kennt er. En m\u00farvegginn a\u00f0 l\u00edma er a\u00f0 hugga og fyrirheita \u00fev\u00ed a\u00f0 allt skuli vel til ganga en hvorttveggja er \u00fe\u00f3 til einskis og ekki nema lygar\">[<\/span> uppbyggir vegginn en \u00feeir l\u00edma hann me\u00f0 haldillu kalki. Seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra m\u00farsmi\u00f0anna sem l\u00edma me\u00f0 \u00fev\u00ed haldilla kalkinu a\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli af falla \u00fea\u00f0 \u00fear skal koma ein steypid\u00f6gg og \u00fear skal koma st\u00f3rt hagl svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 hrynji ni\u00f0ur og einn hvirfilvindur skal ni\u00f0ur sl\u00e1 \u00fea\u00f0. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, so skal veggurinn ni\u00f0ur hrynja. Hva\u00f0 gildir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e1 muni svo sagt vera til y\u00f0ar: &#8222;Hvar er n\u00fa m\u00farsm\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 sm\u00ed\u00f0a\u00f0?&#8220;<\/p>\n<p>\tSvo segir Drottinn Drottinn: Eg vil l\u00e1ta einn hvirfilvind bl\u00e1sa \u00ed minni grimmd og eina steypid\u00f6gg \u00ed minni rei\u00f0i og st\u00f3rt hagl \u00ed minni heiftarbr\u00e6\u00f0i. \u00deau skulu um koll kasta \u00f6llum hlutum. \u00deannin vil eg n\u00fa um koll kasta \u00feeim veggnum sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 l\u00edmt me\u00f0 \u00fev\u00ed haldillu kalki og eg vil hrinda honum ni\u00f0ur til jar\u00f0ar svo a\u00f0 sj\u00e1 megi hans grundv\u00f6ll a\u00f0 hann liggi \u00fear og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 og einnin tort\u00fdnast \u00fear inni og reyna svo \u00fea\u00f0 eg s\u00e9 Drottinn. Svo vil eg fullkomna m\u00edna grimmd \u00e1 \u00feeim veggnum og \u00e1 \u00feeim sem hann hafa m\u00fara\u00f0 me\u00f0 haldillu kalki og segja til y\u00f0ar: H\u00e9r er hverki veggurinn n\u00e9 m\u00farsmi\u00f0urinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hverjir \u00feeir m\u00farsmi\u00f0ir eru \/ Esa. ix. \/ M\u00edk. viii.\">[<\/span> \u00dea\u00f0 eru \u00feeir \u00cdsraels prophetar hverjir a\u00f0 sp\u00e1 Jer\u00fasalem og pr\u00e9dika af fri\u00f0i \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fear s\u00e9 enginn fri\u00f0ur, segir Drottinn Drottinn.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00fa mannsins son, set \u00feitt andlit \u00e1 m\u00f3ti d\u00f3tturinni \u00fe\u00edns f\u00f3lks sem sp\u00e1r af s\u00ednu hjarta og sp\u00e1\u00f0u \u00e1 m\u00f3ti henni og seg \u00fe\u00fa: So segir Drottinn Drottinn: Vei y\u00f0ur sem gj\u00f6ri\u00f0 f\u00f3lkinu h\u00e6gindin undir handleggina og koddana undir h\u00f6fu\u00f0in, b\u00e6\u00f0i ungum og g\u00f6mlum, til a\u00f0 vei\u00f0a me\u00f0 s\u00e1lirnar! N\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 n\u00fa veitt s\u00e1lirnar \u00e1 me\u00f0al m\u00edns f\u00f3lks \u00fe\u00e1 lofi \u00fe\u00e9r \u00feeim l\u00edfinu og vanhelgi\u00f0 mig \u00e1 m\u00ednu f\u00f3lki fyrir einn hnefa byggmj\u00f6ls og eitt stykki brau\u00f0s, \u00fear me\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r d\u00e6mi\u00f0 s\u00e1lirnar til dau\u00f0a sem \u00fe\u00f3 \u00e1ttu ei a\u00f0 deyja og d\u00e6mi\u00f0 \u00feeim l\u00edfi\u00f0 sem \u00fe\u00f3 \u00e1ttu ei a\u00f0 lifa, fyrir y\u00f0ar lygar \u00e1 me\u00f0al m\u00edns f\u00f3lks sem gjarnan heyrir lygarnar.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyri rsegir Drottinn Drottinn: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil finna y\u00f0ar h\u00e6gindi me\u00f0ur hverjum \u00fe\u00e9r vei\u00f0i\u00f0 og oftreysti\u00f0 s\u00e1lirnar og eg vil \u00ed burt sl\u00edta \u00feau fr\u00e1 y\u00f0ar handleggjum og gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 lausa sem \u00fe\u00e9r vei\u00f0i\u00f0 og hughreysti\u00f0. Og eg vil \u00ed sundur r\u00edfa \u00fe\u00e1 koddana y\u00f0ar og frelsa mitt f\u00f3lk af y\u00f0vari hendi svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki meir vei\u00f0a \u00fe\u00e1 og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 fornema a\u00f0 eg er Drottinn. \u00dear fyrir a\u00f0 \u00fe\u00e9r hrelldu\u00f0 \u00feau hj\u00f6rtun r\u00e9ttfer\u00f0ugra sviksamlegana sem eg haf\u00f0i ekki hrellt og \u00fe\u00e9r styrktu\u00f0 \u00fe\u00e6r hendurnar hinna \u00f3gu\u00f0legu a\u00f0 \u00feeir sneri s\u00e9r ekki \u00ed burt fr\u00e1 s\u00ednu illskusamlega ath\u00e6fi svo e\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu lifa, \u00fear fyrir skulu \u00fe\u00e9r ekki meir pr\u00e9dika og ekki heldur sp\u00e1 fyrir \u00f3nytsamlega l\u00e6rd\u00f3ma heldur vil eg frelsa mitt f\u00f3lk \u00far y\u00f0ar h\u00f6ndum og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 fornema a\u00f0 eg er Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. Og or\u00f0 Drottins ske\u00f0i til m\u00edn og sag\u00f0i: \u00de\u00fa mannsins son, sp\u00e1 \u00fe\u00fa \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim prophetunum \u00cdsraels og seg til \u00feeirra sem sp\u00e1 \u00fat af s\u00ednu eigin hjarta: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. Svo segir Drottinn Drottinn: Vei \u00feeim heimskusamlegum prophetunum sem eftirfylgja s\u00ednum eiginlegum anda og hafa \u00fe\u00f3 \u00f6ngva s\u00fdn. \u00d3 \u00cdsrael, \u00fe\u00ednir prophetar eru l\u00edka svo sem refar \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkum, \u00feeir st\u00edga ekki upp yfir \u00fe\u00e6r jar\u00f0holurnar og halda sig ekki til hjar\u00f0arinnar \u00ed kringum \u00cdsraels h\u00fas og \u00feeir standa ekki \u00ed str\u00ed\u00f0inu \u00e1 degi Drottins. \u00deeirra sj\u00f3nir eru h\u00e9g\u00f3mi og \u00feeirra sp\u00e1d\u00f3mar eru lygar. \u00deeri segja: &#8222;Drottinn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3510","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3510","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3510"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3510\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3510"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}