{"id":3507,"date":"2017-12-18T18:33:51","date_gmt":"2017-12-18T18:33:51","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:51","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:51","slug":"esekiel-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-10-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>Og eg sko\u00f0a\u00f0i og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00e1 himninum upp yfir h\u00f6f\u00f0inu ker\u00fab\u00edm var l\u00edka \u00e1lits sem annar saphirus og \u00fear upp yfir var \u00fea\u00f0 l\u00edka svo til a\u00f0 sj\u00e1 sem einn veldisst\u00f3ll. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra ix.\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i til \u00feess mannsins \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0unum: &#8222;Gakk \u00fe\u00fa inn \u00e1 millum hj\u00f3lanna undir ker\u00fab\u00edm og tak \u00fe\u00ednar hendur fullar me\u00f0 eldsgl\u00e6\u00f0ur sem eru \u00e1 milli ker\u00fab\u00edm og dreif \u00feeim \u00fat yfir sta\u00f0inn.&#8220; Og hann gekk \u00feanga\u00f0 inn svo a\u00f0 eg s\u00e1 a\u00f0 s\u00e1 hinn sami gekk \u00fear inn. En ker\u00fab\u00edm st\u00f3\u00f0u h\u00e6gramegin \u00ed h\u00fasinu og fordyrnar ur\u00f0u innan til fullar af \u00feoku.<\/p>\n<p>\tOg d\u00fdr\u00f0in Drottins upplyfti s\u00e9r fr\u00e1 ker\u00fab\u00edm til hvolfsins \u00e1 h\u00fasinu og h\u00fasi\u00f0 var\u00f0 fullt af \u00feoku en fordyrnar fylltust me\u00f0 sk\u00ednandi geisla af d\u00fdr\u00f0inni Drottins. Og \u00feyturinn v\u00e6ngjanna \u00feeirra ker\u00fab\u00edm heyr\u00f0ist allt \u00fat yfir fordyrnar l\u00edka sem raustin alm\u00e1ttugs Gu\u00f0s n\u00e6r e\u00f0 hann talar.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim manninum \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0unum og sagt: &#8222;Tak \u00fe\u00fa eldinn \u00e1 millum hj\u00f3lanna undir ker\u00fab\u00edm&#8220; \u00fe\u00e1 gekk s\u00e1 hinn sami inn og st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 hj\u00f3lunum. Og ker\u00fab\u00edm \u00fatr\u00e9tti s\u00edna h\u00f6nd \u00e1 millum \u00feeirra ker\u00fab\u00edm til eldsins \u00feess sem var \u00e1 millum ker\u00fab\u00edm, t\u00f3k \u00fear af og f\u00e9kk \u00ed hendur manninum \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0unum. Hann t\u00f3k vi\u00f0 \u00fev\u00ed og gekk \u00fat. Og \u00fe\u00e1 s\u00fdndist \u00e1 \u00feeim ker\u00fab\u00edm l\u00edka sem ein mannsh\u00f6nd undir \u00feeirra v\u00e6ngjum.<\/p>\n<p>\tOg eg leit til og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear st\u00f3\u00f0u fj\u00f6gur hj\u00f3l hj\u00e1 ker\u00fab\u00edm, hj\u00e1 hverjum ker\u00fab\u00edm eitt hj\u00f3l og hj\u00f3lin voru til a\u00f0 sj\u00e1 l\u00edka sem einn t\u00farkis og \u00f6ll fj\u00f6gur voru \u00feau \u00fea\u00f0 eina l\u00edka sem hi\u00f0 anna\u00f0, l\u00edka svo sem hvort hj\u00f3li\u00f0 v\u00e6ri \u00ed \u00f6\u00f0ru. N\u00e6r e\u00f0 \u00feau skyldu n\u00fa ganga af sta\u00f0 \u00fe\u00e1 kunnu \u00feau \u00f6ll a\u00f0 ganga \u00ed fj\u00f3rar \u00e1ttir og \u00feurftu ekki a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0 \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feau gengu heldur hvort \u00fea\u00f0 hi\u00f0 fyrsta gekk \u00feanga\u00f0 gengu hin eftir og \u00feurftu ekki a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0 \u00e1samt me\u00f0 s\u00ednum gj\u00f6rv\u00f6llum l\u00edkama, hrygg, h\u00f6ndum og v\u00e6ngjum. Og hj\u00f3lin voru full me\u00f0 augu allt um kring \u00e1 \u00f6llum fj\u00f3rum hj\u00f3lunum. Og hann kalla\u00f0i til hj\u00f3lanna: <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Galgal) \/ Er \u00feeirrar meiningar svo sem seg\u00f0i ma\u00f0ur til hj\u00f3lsins: Sn\u00fa \u00fe\u00e9r, sn\u00fa \u00fe\u00e9r, svo sem skyldi \u00fea\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r og renna\">[<\/span> &#8222;Galgal&#8220; svo a\u00f0 eg heyr\u00f0a \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\tHvert \u00feeirra haf\u00f0i fj\u00f6gur andlit. \u00dea\u00f0 fyrsta andliti\u00f0 var eins og ker\u00fab\u00edm, \u00fea\u00f0 anna\u00f0 var eins manns, hi\u00f0 \u00feri\u00f0ja eins le\u00f3ns, fj\u00f3r\u00f0a einnrar arnar. Og \u00feeir ker\u00fab\u00edm lyftu s\u00e9r upp. \u00deetta er \u00fea\u00f0 sama d\u00fdri\u00f0 sem eg s\u00e1 hj\u00e1 vatninu Kebar. N\u00e6r e\u00f0 ker\u00fab\u00edm gengu \u00fe\u00e1 gengu og einnin hj\u00f3lin hj\u00e1 \u00feeim og n\u00e6r e\u00f0 ker\u00fab\u00edm hreyf\u00f0u s\u00ednum v\u00e6ngjum a\u00f0 \u00feeir loftu\u00f0u s\u00e9r svo fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 snerust og ekki a\u00f0 heldur hj\u00f3lin \u00ed fr\u00e1 \u00feeim. N\u00e6r e\u00f0 hinir \u00feeir st\u00f3\u00f0u \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u og einnin \u00feessir, lyftu hinir s\u00e9r upp \u00fe\u00e1 upplyftu s\u00e9r og einnin \u00feessir, \u00fea\u00f0 \u00fear var einn lifandi vindur \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p>\tOg d\u00fdr\u00f0in Drottins gekk \u00ed burt aftur \u00fea\u00f0an fr\u00e1 hvolfinu \u00e1 h\u00fasinu og setti sig yfir ker\u00fab\u00edm. \u00de\u00e1 hreyf\u00f0u ker\u00fab\u00edm s\u00ednum v\u00e6ngjum og loftu\u00f0u s\u00e9r upp fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0unni fyrir m\u00ednum augum og n\u00e6r e\u00f0 \u00feeir gengu \u00fat \u00fe\u00e1 gengu hj\u00f3lin hj\u00e1 \u00feeim og \u00feeir gengu til \u00feeirra dyranna \u00e1 h\u00fasi Drottins \u00e1 m\u00f3t austrinu og d\u00fdr\u00f0in Gu\u00f0s \u00cdsraels var upp yfir \u00feeim. <\/p>\n<p>\t\u00deetta er \u00fea\u00f0 sama d\u00fdri\u00f0 sem eg s\u00e1 undir Gu\u00f0i \u00cdsraels hj\u00e1 vatninu Kebar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra i.\">[<\/span> Og eg formerkti a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru \u00feeir ker\u00fab\u00edm sem \u00feau fj\u00f6gur andlitin h\u00f6f\u00f0u og \u00fe\u00e1 fj\u00f3ra v\u00e6ngina og undir \u00feeirra v\u00e6ngjum l\u00edka svo sem mannshendur. \u00deeirra andlitsmynd var eins l\u00edka so sem \u00fea\u00f0 eg s\u00e1 \u00ed hj\u00e1 vatninu Kebar og \u00feau gengu beinan veg fram fyrir sig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. Og eg sko\u00f0a\u00f0i og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00e1 himninum upp yfir h\u00f6f\u00f0inu ker\u00fab\u00edm var l\u00edka \u00e1lits sem annar saphirus og \u00fear upp yfir var \u00fea\u00f0 l\u00edka svo til a\u00f0 sj\u00e1 sem einn veldisst\u00f3ll. [ Og hann sag\u00f0i til \u00feess mannsins \u00ed l\u00ednkl\u00e6\u00f0unum: &#8222;Gakk \u00fe\u00fa inn \u00e1 millum hj\u00f3lanna undir ker\u00fab\u00edm og tak \u00fe\u00ednar hendur fullar me\u00f0 eldsgl\u00e6\u00f0ur sem eru \u00e1 milli ker\u00fab\u00edm og dreif \u00feeim \u00fat yfir sta\u00f0inn.&#8220; Og hann gekk \u00feanga\u00f0 inn svo a\u00f0 eg s\u00e1 a\u00f0 s\u00e1 hinn sami gekk \u00fear inn. En ker\u00fab\u00edm st\u00f3\u00f0u h\u00e6gramegin \u00ed h\u00fasinu og fordyrnar ur\u00f0u innan til fullar af \u00feoku. Og d\u00fdr\u00f0in <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3507","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3507","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3507"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3507\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3507"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}