{"id":3505,"date":"2017-12-18T18:33:51","date_gmt":"2017-12-18T18:33:51","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:51","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:51","slug":"esekiel-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-8-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 \u00fev\u00ed s\u00e9tta \u00e1rinu \u00feann fimmta daginn \u00ed \u00feeim s\u00e9tta m\u00e1na\u00f0inum a\u00f0 eg sat \u00ed m\u00ednu h\u00fasi og \u00f6ldungarnir af J\u00fada s\u00e1tu fyrir m\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra i.\">[<\/span> \u00dear f\u00e9ll h\u00f6nd Drottins Drottins \u00e1 mig. Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 eg s\u00e1 \u00fea\u00f0 sem var undir hans lendum, \u00fea\u00f0 var l\u00edka sem einn eldur. En fyrir ofan hans lendar var \u00fea\u00f0 sem sk\u00ednandi geislar. Og hann \u00fatr\u00e9tti l\u00edka sem a\u00f0ra h\u00f6nd og t\u00f3k \u00ed h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i. \u00de\u00e1 flutti einn vindur mig \u00e1 millum himins og jar\u00f0ar og flutti mig til Jer\u00fasalem \u00ed einni Gu\u00f0s s\u00fdn til \u00feeirra innstu dyranna sem standa \u00ed m\u00f3ti nor\u00f0rinu \u00fear e\u00f0 \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 eitt l\u00edkneski til mis\u00fe\u00f3knunar vi\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ H\u00fasherrann) \/ Gu\u00f0 var h\u00fasherra til Jer\u00fasalem en \u00feeir l\u00e9tu \u00f6nnur sk\u00fargo\u00f0 \u00fear inn. \u00dea\u00f0 misl\u00edka\u00f0i honum\">[<\/span> h\u00fasherrann.<\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear var d\u00fdr\u00f0in Gu\u00f0s \u00cdsraels so sem a\u00f0 eg haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 hana \u00e1\u00f0ur \u00e1 akrinum. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, upplyft \u00fe\u00ednum augum \u00e1 m\u00f3ti nor\u00f0rinu.&#8220; Og \u00fe\u00e1 e\u00f0 eg upplyfti m\u00ednum augum \u00ed m\u00f3ti nor\u00f0rinu, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 \u00fear gegnt nor\u00f0rinu \u00fea\u00f0 \u00f3\u00feokkal\u00edkneski hj\u00e1 portdyrunum altarisins, r\u00e9tt \u00fear sem inn er gengi\u00f0. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, s\u00e9r \u00fe\u00fa einnin hva\u00f0 \u00feessir \u00feeir gj\u00f6ra? Einkum \u00fe\u00e1 miklu sv\u00edvir\u00f0ingina sem h\u00fasi\u00f0 \u00cdsrael gj\u00f6rir h\u00e9r a\u00f0 \u00feeir dr\u00edfa mig langt \u00ed burt fr\u00e1 m\u00ednum helgid\u00f3mi. En \u00fe\u00fa skalt enn sj\u00e1 miklu st\u00e6rri sv\u00edvir\u00f0ingar.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann flutti mig fyrir dyrnar fordyranna og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg s\u00e1 a\u00f0 \u00fear var ein hola inn \u00ed vegginn. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, graf \u00fe\u00fa inn \u00ed gegnum vegginn.&#8220; Og \u00fe\u00e1 gr\u00f3f eg \u00ed gegnum vegginn. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 voru \u00fear einar dyr. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;Gakk \u00fe\u00fa \u00fear inn og sko\u00f0a \u00fe\u00e6r vondar sv\u00edvir\u00f0ingarnar sem \u00feeir fremja h\u00e9r.&#8220; Og sem eg kom \u00feanga\u00f0 inn og sko\u00f0a\u00f0i, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 voru \u00fear alls kyns l\u00edkneskjur orma og d\u00fdra og ekki utan sv\u00edvir\u00f0ingar og alls kyns afgu\u00f0ir h\u00fasins \u00cdsrael var \u00fear alla vegana \u00ed kringum veggina, frammi fyrir hverjum a\u00f0 st\u00f3\u00f0u sj\u00f6t\u00edgi menn af \u00f6ldungunum h\u00fassins \u00cdsraels og Jasanja Safanson st\u00f3\u00f0 einnin \u00e1 milli \u00feeirra og hver af \u00feeim haf\u00f0i sitt gl\u00f3\u00f0arker \u00ed hendi og \u00fear gekk up ein \u00feykk \u00feoka af reykelsinu.<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, s\u00e9r \u00fe\u00fa hva\u00f0 \u00f6ldungarnir h\u00fassins \u00cdsraels \u00feeir gj\u00f6ra \u00ed myrkrinu, hver \u00ed s\u00ednu pr\u00fd\u00f0ilegasta herbergi? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir segja: Drottinn hann s\u00e9r oss ekki heldur hefur Drottinn yfirgefi\u00f0 landi\u00f0.&#8220; Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa skalt enn n\u00fa sj\u00e1 miklu st\u00e6rri sv\u00edvir\u00f0ingar sem \u00feeir gj\u00f6ra.&#8220; Og hann leiddi mig inn til \u00feeirra dyranna \u00ed h\u00fas Drottins sem st\u00f3\u00f0u \u00ed m\u00f3t nor\u00f0rinu og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear s\u00e1tu konur sem gr\u00e9tu yfir <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Tam\u00fas) \/ Hefur afgu\u00f0 veri\u00f0 svo sem Venus e\u00f0ur Bakkus hj\u00e1 hei\u00f0ingjum\">[<\/span> Tam\u00fas. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, s\u00e9r \u00fe\u00fa \u00feetta? \u00de\u00f3 skaltu enn n\u00fa sj\u00e1 st\u00e6rri sv\u00edvir\u00f0ingar en \u00feessar eru.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann leiddi mig inn \u00ed \u00feann innsta gar\u00f0inn \u00e1 h\u00fasi Drottins og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 fyrir musterisins dyrum Drottins, \u00e1 millum fordyranna og altarisins, \u00fear voru n\u00e6r fimm og tuttugu menn sem sneru bakinu vi\u00f0 musteri Drottins og s\u00ednum andlitum \u00e1 m\u00f3ti austrinu og \u00feeir tilb\u00e1\u00f0u \u00ed m\u00f3ti s\u00f3larinnar uppg\u00f6ngu. Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00de\u00fa mannsins son, s\u00e9r \u00fe\u00fa \u00feetta? Hvert er h\u00fasinu J\u00fada \u00feetta enn of l\u00edti\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra h\u00e9r allar soddan sv\u00edvir\u00f0ingar? \u00dear e\u00f0 \u00feeir fremja \u00fe\u00f3 ekki utan yfirgang og \u00f3r\u00e9ttindi \u00ed \u00f6llu landinu og fara \u00feannin a\u00f0 og reita mig svo til rei\u00f0i. Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00feeir halda v\u00ednvi\u00f0arkvistum a\u00f0 n\u00f6sunum. \u00dear fyrir vil eg h\u00f6ndla vi\u00f0ur \u00fe\u00e1 me\u00f0ur hefndarrei\u00f0i og mitt auga skal ekki spara \u00fe\u00e1, eg vil og ekki v\u00e6gja \u00feeim. Og \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feeir kalli enn me\u00f0 h\u00e1rri raust fyrir m\u00ednum eyrum \u00fe\u00e1 mun eg \u00fe\u00f3 ekki b\u00e6nheyra \u00fe\u00e1.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 \u00fev\u00ed s\u00e9tta \u00e1rinu \u00feann fimmta daginn \u00ed \u00feeim s\u00e9tta m\u00e1na\u00f0inum a\u00f0 eg sat \u00ed m\u00ednu h\u00fasi og \u00f6ldungarnir af J\u00fada s\u00e1tu fyrir m\u00e9r. [ \u00dear f\u00e9ll h\u00f6nd Drottins Drottins \u00e1 mig. Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 eg s\u00e1 \u00fea\u00f0 sem var undir hans lendum, \u00fea\u00f0 var l\u00edka sem einn eldur. En fyrir ofan hans lendar var \u00fea\u00f0 sem sk\u00ednandi geislar. Og hann \u00fatr\u00e9tti l\u00edka sem a\u00f0ra h\u00f6nd og t\u00f3k \u00ed h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i. \u00de\u00e1 flutti einn vindur mig \u00e1 millum himins og jar\u00f0ar og flutti mig til Jer\u00fasalem \u00ed einni Gu\u00f0s s\u00fdn til \u00feeirra <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3505","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3505","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3505"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3505\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3505"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}