{"id":3498,"date":"2017-12-18T18:33:51","date_gmt":"2017-12-18T18:33:51","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:51","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:51","slug":"esekiel-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-1-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Prophetinn Esek\u00edel<\/p>\n<p>I.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00fev\u00ed \u00fer\u00edtugasta \u00e1rinu \u00feann fimmta daginn \u00feess fj\u00f3r\u00f0a m\u00e1na\u00f0ar \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg var \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra herteknu vi\u00f0 vatni\u00f0 Kebar opna\u00f0ist himinninn og Gu\u00f0 v\u00edsa\u00f0i m\u00e9r s\u00fdn. S\u00e1 sami fimmti dagurinn m\u00e1na\u00f0arins var r\u00e9tt l\u00edka so \u00e1 \u00fev\u00ed fimmta \u00e1rinu eftir \u00fea\u00f0 a\u00f0 J\u00f3ak\u00edm konungurinn af J\u00fada var hertekinn \u00ed burt fluttur. \u00de\u00e1 ske\u00f0i or\u00f0 Drottins til Esek\u00edel sonar B\u00fas\u00ed, kennimannsins \u00ed Kaldealandi vi\u00f0 vatni\u00f0 Kebar. \u00dear kom h\u00f6nd Drottins yfir hann.<\/p>\n<p>\tOg eg s\u00e1 og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear kom einn stormvindur af nor\u00f0rinu me\u00f0 miklum sk\u00fdfl\u00f3ka fullum af eldi so \u00fea\u00f0 l\u00fdsti allt um kring og mitt \u00ed \u00feeim sama eldinum var eitt sk\u00e6rt lj\u00f3s og \u00fear innan \u00ed ein mynd \u00fev\u00edl\u00edkast sem fj\u00f6gur d\u00fdr og myndin eins \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra var svo sem mannsmynd og hvert \u00feeirra haf\u00f0i fj\u00f3rar \u00e1sj\u00f3nur og fj\u00f3ra v\u00e6ngi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esek. x. \/ Fj\u00f6gur d\u00fdrin\">[<\/span> Og \u00feeirra f\u00f3tleggir st\u00f3\u00f0u r\u00e9ttir en \u00feeirra f\u00e6tur voru svo sem uxaf\u00e6tur og lj\u00f3mu\u00f0u svo sem anna\u00f0 sk\u00e6rt sl\u00e9ttal\u00e1t\u00fan. Og h\u00f6f\u00f0u mannshendur undir s\u00ednum v\u00e6ngjum \u00e1 \u00feeim \u00feeirra fj\u00f3rum \u00e1ttum \u00fea\u00f0 \u00feau h\u00f6f\u00f0u \u00f6ll fj\u00f6gur s\u00ednar \u00e1sj\u00f3nur og s\u00edna v\u00e6ngi og \u00feeir s\u00f6mu v\u00e6ngirnir samlimu\u00f0u sig so hver vi\u00f0 annan. Og n\u00e6r e\u00f0 \u00feau gengu \u00fe\u00e1 \u00feurftu \u00feau ekki a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r heldur hvert sem \u00feau gengu \u00fe\u00e1 gengu \u00feau beint sem \u00feau horf\u00f0u.<\/p>\n<p>\t\u00deeirra \u00e1sj\u00f3nur \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum til h\u00e6gri hli\u00f0ar voru l\u00edka sem eins manns og eins le\u00f3ns en \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum til vinstri hli\u00f0ar voru \u00feeirra \u00e1sj\u00f3nur l\u00edka so sem eins uxa og einnrar arnar. Og \u00feeirra \u00e1sj\u00f3nur og v\u00e6ngir voru ofan til a\u00f0skiljanlegir so \u00fea\u00f0 tveir v\u00e6ngirnir sl\u00f3gu til samans og me\u00f0 tveimur v\u00e6ngjunum huldu \u00feau s\u00edna l\u00edkami. Og hvert e\u00f0 \u00feau gengu \u00fe\u00e1 gengu \u00feau \u00fea\u00f0 beint fram fyrir sig. En \u00feau gengu \u00ed \u00fe\u00e1 \u00e1ttina \u00fea\u00f0an sem vindurinn var og \u00feurftu ekki a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00feau gengu. Og d\u00fdrinu voru svo \u00e1lits a\u00f0 sj\u00e1 sem logandi eldsgl\u00e6\u00f0ur og l\u00edka sem brennandi lj\u00f3slogi \u00fe\u00e1 gekk \u00e1 millum d\u00fdranna. En s\u00e1 eldurinn gaf eina birtu af s\u00e9r og \u00fat af \u00feeim eldinum gekk ein leiftran og \u00feau d\u00fdrin hlupu hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 so sem ein logandi leiftran.<\/p>\n<p>\tEn sem eg s\u00e1 n\u00fa so d\u00fdrin, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 \u00fear eitt hj\u00f3l \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00ed hj\u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum d\u00fdrum og \u00fea\u00f0 var svo a\u00f0 sj\u00e1 sem fj\u00f6gur hj\u00f3l. Og \u00feau s\u00f6mu hj\u00f3lin voru l\u00edka sem annar t\u00farkissteinn og \u00f6ll \u00feau fj\u00f6gur voru eitt \u00f6\u00f0ru l\u00edkt og \u00feau voru svo \u00e1 a\u00f0 l\u00edta l\u00edka sem \u00fea\u00f0 hvert hj\u00f3li\u00f0 v\u00e6ri innan \u00ed \u00f6\u00f0ru. N\u00e6r e\u00f0 \u00feau skyldu af sta\u00f0 ganga \u00fe\u00e1 kunnu \u00feau a\u00f0 ganga \u00ed allar fj\u00f3rar \u00e1ttirnar og \u00feau \u00feurftu ekki a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r vi\u00f0 \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feau gengu. Rendurnar og \u00feeirra h\u00e6\u00f0 voru hr\u00e6\u00f0ilegar, og svo \u00feeirra randir voru fullar me\u00f0 augu allt um kring \u00e1 \u00f6llum \u00feeim fj\u00f3rum hj\u00f3lunum. Og n\u00e6r e\u00f0 \u00feau d\u00fdrin gengu \u00fe\u00e1 gengu og einnin hj\u00f3lin hj\u00e1 \u00feeim. Og n\u00e6r e\u00f0 d\u00fdrin loftu\u00f0u s\u00e9r fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 loftu\u00f0u s\u00e9r og einnin hj\u00f3lin. Hva\u00f0an sem vindurinn st\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00fea\u00f0an gengu \u00feau og einnin og hj\u00f3lin loftu\u00f0u s\u00e9r upp hj\u00e1 \u00feeim \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 var einn lifandi vindur \u00ed hj\u00f3lunum. N\u00e6r e\u00f0 \u00feau gengu \u00fe\u00e1 gengu og einnin \u00feessi, n\u00e6r e\u00f0 \u00feau st\u00f3\u00f0u \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u og einnin \u00feessi. Og n\u00e6r e\u00f0 \u00feau loftu\u00f0u s\u00e9r upp fr\u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 loftu\u00f0u s\u00e9r og einnin hj\u00f3lin hj\u00e1 \u00feeim \u00fea\u00f0 \u00fear var einn lifandi vindur \u00ed hj\u00f3lunum.<\/p>\n<p>\tEn fyrir ofan d\u00fdrin var \u00fev\u00edl\u00edkast sem himinn v\u00e6ri so sem \u00f3gnarlegur christallus \u00fatbreiddur mitt yfir \u00feeim so a\u00f0 \u00feeirra v\u00e6ngir st\u00f3\u00f0u undir himninum, hvert r\u00e9tt \u00e1 m\u00f3ti \u00f6\u00f0ru, og tveir v\u00e6ngirnir sk\u00fdldu hvers \u00feeirra l\u00edkama. Og eg heyri\u00f0 v\u00e6ngjanna \u00feyt l\u00edka sem mikils vatsfalls og so sem gn\u00fd Hins alm\u00e1ttuga n\u00e6r e\u00f0 \u00feau gengu og so sem eitt st\u00f3rt buldur mikils mannfj\u00f6lda. En n\u00e6r e\u00f0 \u00feau st\u00f3\u00f0u kyrr \u00fe\u00e1 l\u00e9tu \u00feau v\u00e6ngina ni\u00f0ur og n\u00e6r e\u00f0 \u00feau st\u00f3\u00f0u n\u00fa kyrr og l\u00e9tu v\u00e6ngina so ni\u00f0ur \u00fe\u00e1 lj\u00f3stu\u00f0u \u00fear rei\u00f0ar\u00ferumur \u00ed himninum uppi yfir \u00feeim.<\/p>\n<p>\tOg upp yfir \u00feeim himninum sem yfir \u00feeim var \u00fe\u00e1 var \u00fear svo a\u00f0 l\u00edta sem annar saphirus, l\u00edka sem einn veldisst\u00f3ll, og \u00fear sat einn \u00e1 \u00feeim sama st\u00f3li so \u00e1lits sem ma\u00f0ur. Og eg s\u00e1 a\u00f0 hann var eins l\u00edka sem eitt sk\u00e6rt lj\u00f3s. Og \u00fea\u00f0 var innan allt um kring so a\u00f0 l\u00edta sem eldur. Upp fr\u00e1 hans lendum og ofan \u00ed fr\u00e1 s\u00e1 eg a\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00fdsti sem eldur allt \u00ed kringum hann. L\u00edka so sem \u00fea\u00f0 regnboginn er \u00e1lits \u00ed sk\u00fdjunum n\u00e6r e\u00f0 d\u00f6gg hefur veri\u00f0 eins so l\u00fdsti \u00fea\u00f0 allt um kring. \u00deessi var sj\u00f3nin \u00feeirrar d\u00fdr\u00f0ar Drottins. Og \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg haf\u00f0a \u00fea\u00f0 s\u00e9\u00f0 f\u00e9ll eg fram \u00e1 m\u00edna \u00e1sj\u00f3nu og eg heyr\u00f0i einn tala.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Prophetinn Esek\u00edel I. \u00c1 \u00fev\u00ed \u00fer\u00edtugasta \u00e1rinu \u00feann fimmta daginn \u00feess fj\u00f3r\u00f0a m\u00e1na\u00f0ar \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg var \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra herteknu vi\u00f0 vatni\u00f0 Kebar opna\u00f0ist himinninn og Gu\u00f0 v\u00edsa\u00f0i m\u00e9r s\u00fdn. S\u00e1 sami fimmti dagurinn m\u00e1na\u00f0arins var r\u00e9tt l\u00edka so \u00e1 \u00fev\u00ed fimmta \u00e1rinu eftir \u00fea\u00f0 a\u00f0 J\u00f3ak\u00edm konungurinn af J\u00fada var hertekinn \u00ed burt fluttur. \u00de\u00e1 ske\u00f0i or\u00f0 Drottins til Esek\u00edel sonar B\u00fas\u00ed, kennimannsins \u00ed Kaldealandi vi\u00f0 vatni\u00f0 Kebar. \u00dear kom h\u00f6nd Drottins yfir hann. Og eg s\u00e1 og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 \u00fear kom einn stormvindur af nor\u00f0rinu me\u00f0 miklum sk\u00fdfl\u00f3ka fullum af eldi so \u00fea\u00f0 l\u00fdsti allt um <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esekiel-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3498","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3498","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3498"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3498\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3498"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}