{"id":3494,"date":"2017-12-18T18:33:47","date_gmt":"2017-12-18T18:33:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/harmljodin-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:47","slug":"harmljodin-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/harmljodin-2-kafli\/","title":{"rendered":"Harmlj\u00f3\u00f0in 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>Hvernin hefur Drottinn yfirausi\u00f0 d\u00f3tturina S\u00edon me\u00f0 myrkrunum sinnar rei\u00f0i! Hann hefur \u00fatkasta\u00f0 \u00feeirri d\u00fdr\u00f0inni \u00cdsraels af himnum ofan \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, hann hugsa\u00f0i ekki til sinnar f\u00f3tskarar \u00e1 \u00feeim deginum sinnar rei\u00f0i.<\/p>\n<p>\tDrottinn hefur miskunnarlaust afm\u00e1\u00f0 alla b\u00fasta\u00f0ina Jakobs. Hann hefur \u00ed sinni br\u00e6\u00f0i ni\u00f0ur broti\u00f0 \u00f6ll styrktarv\u00edgi d\u00f3tturinnar J\u00fada og gj\u00f6rt \u00feau sl\u00e9tt. Hann hefur \u00f3s\u00e6mt b\u00e6\u00f0i hennar r\u00edkisstj\u00f3rn og svo hennar h\u00f6f\u00f0ingja.<\/p>\n<p>\tHann hefur \u00ed sundurbroti\u00f0 \u00f6ll \u00cdsraels <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Horn) \/ \u00dea\u00f0 er, k\u00f3ngar\u00edki, hvert hann nefnir horn\">[<\/span> horn \u00ed sinni grimmdarrei\u00f0i, hann dr\u00f3 s\u00edna h\u00e6gri h\u00f6nd \u00e1 bak vi\u00f0 sig \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00f3vinurinn kom og hefur svo uppkveikt \u00feann eld \u00ed Jakob sem ey\u00f0ir allt umhverfis.<\/p>\n<p>\tHann hefur uppspennt sinn boga sem einn \u00f3vin, hann hefur t\u00eda\u00f0 s\u00edna h\u00e6gri h\u00f6nd sem einn m\u00f3tst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur og hefur ni\u00f0urdrepi\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem lystilegt var a\u00f0 sj\u00e1 og \u00fatausi\u00f0 sinni grimmdarrei\u00f0i sem eldi \u00ed b\u00fasta\u00f0ina d\u00f3tturinnar S\u00edon.<\/p>\n<p>\tDrottinn er l\u00edka sem s\u00e9 hann \u00f3vinur, hann hefur \u00cdsrael \u00ed ey\u00f0ilagt, hann hefur afm\u00e1\u00f0 hennar herbergi og hefur fordjarfa\u00f0 hennar sterka kastala. Hann hefur gj\u00f6rt d\u00f3tturinni J\u00fada mikla sorg og harm.<\/p>\n<p>\tHann hefur um koll kasta\u00f0 sinni tjaldb\u00fa\u00f0 so sem einum gar\u00f0i og fordjarfa\u00f0 sinn b\u00fasta\u00f0. Drottinn hefur l\u00e1ti\u00f0 gleyma b\u00e6\u00f0i h\u00e1t\u00ed\u00f0um og \u00fevottdagshelgum \u00ed S\u00edon og l\u00e1ti\u00f0 so vanvir\u00f0ast \u00ed sinni grimmdarrei\u00f0i b\u00e6\u00f0i konunginn og kennimanninn.<\/p>\n<p>\tDrottinn hefur \u00ed burt kasta\u00f0 s\u00ednu altari og b\u00f6lva\u00f0 s\u00ednum helgid\u00f3mi. Hann hefur gefi\u00f0 m\u00farveggina hennar herbergja \u00fat \u00ed \u00f3vinar hendur so a\u00f0 \u00feeir hafa h\u00e1hlj\u00f3\u00f0a\u00f0 \u00ed h\u00fasi Drottins l\u00edka sem \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0ardegi.<\/p>\n<p>\tDrottinn hefur hugsa\u00f0 a\u00f0 fordjarfa \u00fe\u00e1 m\u00farveggina d\u00f3tturinnar S\u00edon. Hann hefur dregi\u00f0 \u00feann m\u00e6listrenginn \u00fear \u00fat yfir og hann sneri ekki sinni hendi \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1 fyrr en hann haf\u00f0i afm\u00e1\u00f0 hana. V\u00edgsk\u00f6r\u00f0in \u00feau standa s\u00e1rgr\u00e6tilegana og m\u00farveggirnir \u00feeir liggja h\u00f6rmulegana.<\/p>\n<p>\tHennar portdyr liggja dj\u00fapt \u00ed j\u00f6r\u00f0unni, hann \u00ed sundurbraut hennar slagbranda og gj\u00f6r\u00f0i \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00f6ngu. Hennar konungar og h\u00f6f\u00f0ingjar eru \u00ed burt \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a \u00fear e\u00f0 \u00feeir mega ekki i\u00f0ka l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og hennar prophetar hafa \u00f6ngvar sj\u00f3nir af Drottni.<\/p>\n<p>\t\u00deeir \u00f6ldungarnir d\u00f3tturinnar S\u00edon liggja \u00e1 j\u00f6r\u00f0u og eru <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Kyrrir \/ \u00dea\u00f0 er \u00fatgj\u00f6rt um \u00fe\u00e1, \u00feeir eru \u00ed burt\">[<\/span> kyrrir, \u00feeir ausa moldardufti yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r og kl\u00e6\u00f0a sig \u00ed sekkjum. Meyjarnar af Jer\u00fasalem hengja s\u00edn h\u00f6fu\u00f0 til jar\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tEg hefi so n\u00e6r \u00fatgr\u00e1ti\u00f0 m\u00edn augu so a\u00f0 mitt l\u00edf \u00fea\u00f0 tekur a\u00f0 s\u00e1rna \u00fear af. M\u00edn lifur er \u00fathellt \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina yfir eymdinni d\u00f3tturinnar m\u00edns f\u00f3lks \u00fe\u00e1 e\u00f0 brj\u00f3stmylkingarnir og sm\u00e1b\u00f6rnin hungru\u00f0u \u00e1 str\u00e6tunum \u00ed sta\u00f0num, \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feau s\u00f6g\u00f0u til sinna m\u00e6\u00f0ra: &#8222;Hvar er brau\u00f0 og v\u00edn?&#8220; \u00feann t\u00ed\u00f0 \u00feau sultu \u00e1 str\u00e6tunum \u00ed sta\u00f0num, l\u00edka sem a\u00f0 v\u00e6ri \u00feau s\u00e6r\u00f0 til \u00f3l\u00edfis og g\u00e1fu so upp aundina \u00ed fa\u00f0mi sinna m\u00e6\u00f0ra.<\/p>\n<p>\tAv\u00ed \u00fe\u00fa d\u00f3tturin Jer\u00fasalem! Vi\u00f0 hvern skal eg jafna \u00fe\u00e9r? Og fyrir hvern skal eg reikna \u00feig, \u00fe\u00fa jungfr\u00fain d\u00f3tturin S\u00edon, hverjum skal eg saml\u00edkja \u00feig hvar me\u00f0 a\u00f0 eg kynni so a\u00f0 hugsvala \u00fe\u00e9r? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feinn ska\u00f0i er so st\u00f3r sem eitt sj\u00e1varhaf, hver kann a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a \u00feig?<\/p>\n<p>\t\u00de\u00ednir prophetar hafa pr\u00e9dika\u00f0 \u00fe\u00e9r lygar og f\u00e1v\u00edslegar sj\u00f3nir og hafa ekki opinbera\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00ednar misgj\u00f6r\u00f0ir hvar me\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u m\u00e1tt fr\u00e1sn\u00faa \u00feinni herlei\u00f0ingu heldur \u00e1 hafa \u00feeir pr\u00e9dika\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r lygisamlegar pr\u00e9dikanir me\u00f0 hverjum \u00feeir hafa pr\u00e9dika\u00f0 \u00feig \u00fat af landinu.<\/p>\n<p>\tAllir \u00feeir sem ganga framhj\u00e1 klappa h\u00f6ndum til samans, bl\u00edstra a\u00f0 \u00fe\u00e9r og skaka s\u00edn h\u00f6fu\u00f0 eftir d\u00f3tturinni Jer\u00fasalem: &#8222;Er \u00fea\u00f0 s\u00e1 sta\u00f0urinn af hverjum \u00feeir s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 hann v\u00e6ri s\u00e1 hinn allra pr\u00fd\u00f0ilegasti, af hverjum \u00fea\u00f0 allt landi\u00f0 gladdi sig?&#8220;<\/p>\n<p>\tAllir \u00fe\u00ednir \u00f3vinir uppl\u00faka s\u00ednum munni \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, bl\u00edstra a\u00f0 \u00fe\u00e9r, n\u00edsta t\u00f6nnum og segja: <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. xxvi. \/ Deut. xxviii.\">[<\/span> &#8222;Hei, hei! V\u00e9r h\u00f6fum afm\u00e1\u00f0 hana! \u00dea\u00f0 er s\u00e1 dagurinn v\u00e9r h\u00f6fum eftir be\u00f0i\u00f0! V\u00e9r h\u00f6fum \u00fea\u00f0 og fengi\u00f0 og v\u00e9r h\u00f6fum \u00fea\u00f0 lifa\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tDrottinn hefur framkv\u00e6mt \u00fea\u00f0 hva\u00f0 honum bj\u00f3 \u00ed sinni, hann hefur fullkomna\u00f0 s\u00edn or\u00f0 \u00feau sem hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur fyrir langri \u00e6vi bo\u00f0a\u00f0. Miskunnarlaust hefur hann \u00ed ey\u00f0ilagt, \u00fe\u00edna \u00f3vini hefur hann glatt yfir \u00fe\u00e9r og upphafi\u00f0 \u00fea\u00f0 horni\u00f0 \u00feinna \u00f3vina.<\/p>\n<p>\t\u00deeirra hjarta kallar til Drottins og \u00fe\u00fa, m\u00farveggurinn d\u00f3tturinnar S\u00edon, l\u00e1ttu t\u00e1rin ofanrenna n\u00e1tt og dag l\u00edka sem annan l\u00e6k, l\u00e1t eigi af \u00fev\u00ed og \u00feinn augasteinn linni \u00fev\u00ed ekki.<\/p>\n<p>\tStatt upp \u00e1 n\u00e1ttar\u00feeli og kalla, \u00fathell \u00fe\u00ednu hjarta fyrir augs\u00fdn Drottins, \u00e1 \u00feeirri fyrstu eyktarv\u00f6kunni so sem vatni. Halt upp \u00fe\u00ednum h\u00f6ndum fyrir honum vegna s\u00e1lnanna \u00feinna ungbarna sem d\u00f3u af hungri frammi \u00e1 \u00f6llum str\u00e6tunum.<\/p>\n<p>\tDrottinn, sj\u00e1 \u00fe\u00fa og hygg a\u00f0 \u00fev\u00ed hvern a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur so fordjarfa\u00f0. Skyldu konurnar eta \u00e1v\u00f6xtinn s\u00edns kvi\u00f0ar, \u00feau ungu b\u00f6rnin spannarl\u00f6ng? Skyldu prophetarnir og prestarnir so ni\u00f0urdrepnir ver\u00f0a \u00ed helgid\u00f3minum Drottins?<\/p>\n<p>\t\u00dear l\u00e1gu \u00e1 str\u00e6tunum, \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, ungir og gamlir, m\u00ednar meyjar og yngismenn eru fallnir fyrir sver\u00f0i hverja \u00fe\u00fa hefur \u00ed hel slegi\u00f0 \u00e1 \u00feeim deginum \u00feinnar rei\u00f0i, \u00fe\u00fa hefur ni\u00f0urdrepi\u00f0 v\u00e6g\u00f0arlaust.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa kalla\u00f0ir m\u00edna \u00f3vini utan um kring mig so sem \u00e1 einn h\u00e1t\u00ed\u00f0ardag so a\u00f0 enginn komst undan e\u00f0a var\u00f0 eftir \u00e1 \u00feeim rei\u00f0innar degi Drottins. \u00de\u00e1 sem eg haf\u00f0i f\u00f3stra\u00f0 og uppf\u00e6tt \u00feeim hafa \u00f3vinirnir fyrirfari\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. Hvernin hefur Drottinn yfirausi\u00f0 d\u00f3tturina S\u00edon me\u00f0 myrkrunum sinnar rei\u00f0i! Hann hefur \u00fatkasta\u00f0 \u00feeirri d\u00fdr\u00f0inni \u00cdsraels af himnum ofan \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, hann hugsa\u00f0i ekki til sinnar f\u00f3tskarar \u00e1 \u00feeim deginum sinnar rei\u00f0i. Drottinn hefur miskunnarlaust afm\u00e1\u00f0 alla b\u00fasta\u00f0ina Jakobs. Hann hefur \u00ed sinni br\u00e6\u00f0i ni\u00f0ur broti\u00f0 \u00f6ll styrktarv\u00edgi d\u00f3tturinnar J\u00fada og gj\u00f6rt \u00feau sl\u00e9tt. Hann hefur \u00f3s\u00e6mt b\u00e6\u00f0i hennar r\u00edkisstj\u00f3rn og svo hennar h\u00f6f\u00f0ingja. Hann hefur \u00ed sundurbroti\u00f0 \u00f6ll \u00cdsraels [ horn \u00ed sinni grimmdarrei\u00f0i, hann dr\u00f3 s\u00edna h\u00e6gri h\u00f6nd \u00e1 bak vi\u00f0 sig \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00f3vinurinn kom og hefur svo uppkveikt \u00feann eld \u00ed Jakob sem ey\u00f0ir allt <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/harmljodin-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3494","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3494","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3494"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3494\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3494"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}