{"id":3489,"date":"2017-12-18T18:33:47","date_gmt":"2017-12-18T18:33:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-49-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:47","slug":"jeremia-49-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-49-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 49. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLIX.<\/p>\n<p>\u00c1 m\u00f3ti Amm\u00f3nsonum segir Drottinn so: <span class=\"athugasemd\" title=\"Amm\u00f3n \/ Esek. xxv.\">[<\/span> Hefur \u00cdsrael \u00fe\u00e1 ekki nein b\u00f6rn e\u00f0a hefur h\u00fan \u00f6ngvan erfingja? Hvar fyrir eignast \u00fe\u00e1 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Malk\u00f3n) \/ hefur afgu\u00f0 veri\u00f0 Amm\u00f3nssona\">[<\/span> Malk\u00f3n \u00fea\u00f0 landi\u00f0 Ga\u00f0 og hans f\u00f3lk b\u00fdr \u00ed \u00feeirra st\u00f6\u00f0um? \u00dear fyrir sj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi kemur, segir Drottinn, eg vil l\u00e1ta heyrast eitt her\u00f3p yfir Rabbat Amm\u00f3nsona \u00fea\u00f0 h\u00fan \u00ed einni hr\u00fagu skal \u00ed ey\u00f0i liggja og \u00feeirra d\u00e6tur skulu me\u00f0 eldi upptendra\u00f0ar ver\u00f0a en \u00cdsrael skal \u00fe\u00e1 eignast \u00feeirra land sem s\u00e9r til eignu\u00f0u hans, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tKveina \u00fe\u00fa h\u00e1tt, Hesbon, \u00fea\u00f0 A\u00ed er ni\u00f0urbrotin! H\u00e1stynji, \u00fe\u00e9r d\u00e6turnar Rabba, og kl\u00e6\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur \u00ed sekki, harmi\u00f0 og hlaupi\u00f0 \u00ed kringum m\u00farveggina \u00fea\u00f0 Malk\u00f3m skal hertekinn \u00ed burt flytjast me\u00f0 s\u00ednum prestum og h\u00f6f\u00f0ingjum! Hva\u00f0 treystir \u00fe\u00fa upp \u00e1 \u00fe\u00edna dali? \u00de\u00ednir dalir eru ni\u00f0ursokknir, \u00fe\u00fa hin \u00f3hl\u00fd\u00f0uga d\u00f3tturin, \u00fe\u00fa sem treystir \u00e1 \u00fe\u00edna f\u00e9sj\u00f3\u00f0u og segir \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: &#8222;Hver \u00feorir a\u00f0 koma \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r?&#8220; Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, so segir Drottinn, Drottinn Seba\u00f3t: Eg vil l\u00e1ta koma hr\u00e6\u00f0slu yfir \u00feig af \u00f6llum \u00feeim sem \u00ed kringum \u00feig b\u00faa so a\u00f0 sinn veginn skal hver \u00fatrekinn vera og \u00fear skal enginn s\u00e1 vera sem samansafni \u00feeim aftur sem \u00ed burt fl\u00fai\u00f0 hafa. En \u00fear eftir \u00e1 vil eg sn\u00faa herlei\u00f0ingunni \u00feeirra Amm\u00f3nsona, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\u00c1 m\u00f3ti Ed\u00f3m<\/p>\n<p>So segir Drottinn Seba\u00f3t: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esek. xxv. \/ S\u00e1l. xxii.\">[<\/span> Er \u00fear \u00fe\u00e1 enginn v\u00edsd\u00f3mur meiri \u00ed Teman? Er \u00fear \u00fe\u00e1 ekkert r\u00e1\u00f0 hj\u00e1 vitringunum? Er \u00feeirra v\u00edsd\u00f3mur so lauslegur? Fl\u00fdi\u00f0 undan, sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur og feli\u00f0 y\u00f0ur dj\u00fapt ni\u00f0ur, \u00fe\u00e9r innbyggjarar \u00ed Dedan, \u00fea\u00f0 eg l\u00e6t \u00f3g\u00e6fu koma yfir Esa\u00fa \u00e1 hans vitjunart\u00edma. \u00deeir sem hi\u00f0 n\u00fdja v\u00edni\u00f0 innlesa skulu koma yfir \u00feig, \u00feeir e\u00f0 ekki munu l\u00e1ta \u00feig f\u00e1 miklu inn a\u00f0 safna og \u00fej\u00f3far skulu yfir \u00feig koma \u00e1 n\u00e1ttar\u00feeli, \u00feeir skulu fordjarfa hana mj\u00f6g. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi gj\u00f6rt Esa\u00fa nakinn og hans heimuglega hluti opinsk\u00e1ra so a\u00f0 hann skal ekki kunna a\u00f0 sk\u00fdla s\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa\u00fa\">[<\/span> Hans s\u00e6\u00f0i, hans br\u00e6\u00f0ur og hans n\u00e1b\u00faar eru foreyddir svo a\u00f0 \u00fear eru \u00f6ngvir fleiri eftir af \u00feeim. En \u00fe\u00f3 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 eftir ver\u00f0ur af \u00fe\u00ednum f\u00f6\u00f0urleysingjum \u00feeim vil eg unna l\u00edfsins og \u00fe\u00ednar ekkjur skulu vona \u00e1 mig.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed so segir Drottinn: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00feeir sem \u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0u ekki ver\u00f0skulda\u00f0 a\u00f0 drekka \u00feann kaleikinn \u00feeir hlj\u00f3ta a\u00f0 drekka hann og \u00fe\u00fa skyldir hegningarlaus vera? \u00de\u00fa skalt ekki \u00f3hegndur vera heldur \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur \u00fe\u00fa og einnin a\u00f0 drekka hann. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi svari\u00f0 vi\u00f0 sj\u00e1lfan mig, segir Drottinn, \u00fea\u00f0 Basra skal ver\u00f0a ein undran, sm\u00e1n, forey\u00f0ing og b\u00f6lvan og allir hennar sta\u00f0ir ein eil\u00edfleg ey\u00f0im\u00f6rk.<\/p>\n<p>\tEg hefi heyrt af Drottni a\u00f0 \u00fear s\u00e9 einn bo\u00f0skapur \u00fatsendur \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a: <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra xxv. \/ Esek. ix.\">[<\/span> &#8222;Samansafni\u00f0 y\u00f0ur og komi\u00f0 hinga\u00f0 \u00ed m\u00f3ti henni, b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur til bardagans!&#8220; \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg hefi gj\u00f6rt \u00feig l\u00edtilsh\u00e1ttar \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a og fyrirlitna \u00e1 me\u00f0al mannanna. \u00deit fors og \u00feitt hjartans ofst\u00e6ki hefur sviki\u00f0 \u00feig af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa b\u00fdr \u00ed \u00feeim steinhellunum og hefur h\u00e1bj\u00f6rg undir \u00fe\u00e9r. \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00fa hrei\u00f0ra\u00f0ir \u00fegi so h\u00e1tt sem \u00f6rnin \u00fe\u00e1 vil eg \u00fe\u00f3 hrinda \u00fe\u00e9r ofan \u00fea\u00f0an, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tSo skal Ed\u00f3m ver\u00f0a \u00ed ey\u00f0i a\u00f0 allir \u00feeir sem ganga \u00fear framhj\u00e1 skulu undrast \u00fea\u00f0 og bl\u00edstra yfir \u00f6llum hans pl\u00e1gum, l\u00edka sem \u00fea\u00f0 S\u00f3d\u00f3ma og G\u00f3morra me\u00f0 s\u00ednum n\u00e1gr\u00f6nnum eru umveltir, segir Drottinn, so \u00fea\u00f0 enginn skal \u00fear b\u00faa n\u00e9 neinn ma\u00f0ur h\u00fas hafa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gen. xix. \/ Esa. xvii.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, hann kemur upp hinga\u00f0 sem le\u00f3n \u00ed fr\u00e1 \u00feeirri drambl\u00e1tu J\u00f3rdan, \u00ed m\u00f3ti \u00feeim sterkum hjar\u00f0arh\u00fasunum \u00fev\u00ed a\u00f0 eg vil l\u00e1ta hann snarlega \u00feanga\u00f0 hlaupa. Og hver veit hver s\u00e1 hinn <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Ungi ma\u00f0ur) \/ Alexander hinn mikli s\u00e1 sem \u00f6ll l\u00f6nd skyldi vinna\">[<\/span> ungi ma\u00f0urinn er sem eg vil \u00fatb\u00faa \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim? \u00dev\u00ed hver er m\u00e9r jafn? Hver vill fr\u00e6\u00f0a mig? Og hver er s\u00e1 hir\u00f0irinn sem sta\u00f0i\u00f0 getur vi\u00f0 m\u00e9r?<\/p>\n<p>\tSo heyri\u00f0 n\u00fa \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0 Drottins sem hann hefur yfir Ed\u00f3m og hans hugsan sem hann hefur yfir \u00feeim innbyggjurum \u00ed Teman. Hva\u00f0 gildir ef a\u00f0 \u00feeir <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ Hjar\u00f0arsveinar) \/ \u00dea\u00f0 er h\u00f6f\u00f0ingjar og h\u00f6fu\u00f0smenn f\u00f3lksins. \u00dev\u00ed hir\u00f0arar kalast h\u00e9r hvervetna h\u00f6f\u00f0ingjar, \u00feeir sem f\u00e6\u00f0a skulu g\u00f3\u00f0a menn en straffa \u00f3r\u00e1\u00f0vanda\">[<\/span> hir\u00f0sveinarnir skulu ekki undirleggja \u00fe\u00e1 og ni\u00f0urbrj\u00f3ta \u00feeirra b\u00fasta\u00f0i? So a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in skal hr\u00e6rast vi\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00feeir falla ni\u00f0ur hver um \u00feveran annan og \u00feeirra hr\u00f3pan skal heyrast \u00ed hj\u00e1 hafinu rau\u00f0a. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, hann fl\u00fdgur upp hinga\u00f0 sem ein \u00f6rn og hann mun \u00fatbrei\u00f0a s\u00edna v\u00e6ngi yfir Basra. \u00c1 \u00feeim sama t\u00edma skulu hj\u00f6rtun kappanna \u00ed Ed\u00f3m vera l\u00edka sem eitt konuhjarta \u00ed barnbur\u00f0ars\u00f3tt.<\/p>\n<p>\u00c1 m\u00f3ti Damascum<\/p>\n<p>Hemat og Arpad eru aumlega staddar, \u00feeirra menn eru duglausir. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir heyra eitt illt rykti, \u00feeir sem b\u00faa vi\u00f0 hafi\u00f0 eru so hr\u00e6ddir a\u00f0 \u00feeir kunna \u00f6ngva hv\u00edld a\u00f0 hafa. Damascus er huglaus og fl\u00fdr undan, h\u00fan skelfur og er \u00ed angist og harmkv\u00e6li sem kona \u00ed barns\u00f3tt. Hvernin \u00fe\u00e1? Er hann n\u00fa ekki yfirunninn s\u00e1 hinn nafnfr\u00e6gi og lystilegi sta\u00f0urinn? \u00dear fyrir skulu hans \u00e6skumenn \u00fear ni\u00f0urslegnir liggja \u00e1 hans str\u00e6tum og allt hans str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk skal falla \u00e1 \u00feeim sama t\u00edma, segir Drottinn Seba\u00f3t. Og eg vil setja eld \u00ed m\u00farveggina til Damascum so a\u00f0 hann skal forey\u00f0a \u00feeim herbergjunum Benhadad.<\/p>\n<p>M\u00f3ti Kedar og \u00fev\u00ed r\u00edkinu Has\u00f3r, hvert e\u00f0 Nab\u00fagodonosor konungurinn af Bab\u00fdlon sl\u00f3<\/p>\n<p>So segir Drottinn: <span class=\"athugasemd\" title=\"Kedar\">[<\/span> Standi\u00f0 upp og fari\u00f0 upp \u00ed Kedar og forey\u00f0i\u00f0 \u00feeim b\u00f6rnunum \u00e1 m\u00f3ti austrinu. \u00deeir skulu taka \u00feeirra b\u00fasta\u00f0i og f\u00e9na\u00f0, \u00feeirra landtj\u00f6ld og \u00f6ll verkf\u00e6ri og \u00feeirra \u00falfalda skulu \u00feeir \u00ed burt keyra og \u00feeir skulu hr\u00e6\u00f0ilegana kalla a\u00f0 \u00feeim allt um kring.<\/p>\n<p>\tFl\u00fdi\u00f0 undan, fl\u00fdti\u00f0 y\u00f0ur snarlega \u00fea\u00f0an og byrgi\u00f0 y\u00f0ur dj\u00fapt ni\u00f0ur, \u00fe\u00e9r Has\u00f3rs innbyggjarar, segir Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 Nab\u00fagodonosor konungurinn af Bab\u00fdlon hefur nokku\u00f0 \u00ed sinni vi\u00f0 y\u00f0ur og hann hugsar til y\u00f0ar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Has\u00f3r\">[<\/span> Fari\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur og dragi\u00f0 upp \u00feanga\u00f0 m\u00f3ti \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem n\u00f3g hefur til og ugglaust b\u00fdr, segir Drottinn. \u00deeir hafa hvorki portdyr n\u00e9 hur\u00f0arstengur og b\u00faa einir saman. \u00deeirra \u00falfaldar skulu gripnir ver\u00f0a og \u00feeirra hi\u00f0 mikla f\u00e9 \u00ed burt teki\u00f0 ver\u00f0a. Og eg vil \u00ed burt dreifa \u00feeim \u00ed allar \u00e1ttir vindanna sem b\u00faa \u00ed afkimunum og af \u00f6llum \u00e1ttum vil eg l\u00e1ta \u00feeirra \u00f3g\u00e6fu koma yfir \u00fe\u00e1, segir Drottinn, svo a\u00f0 Has\u00f3r skal vera drekab\u00e6li og ein eil\u00edfleg ey\u00f0im\u00f6rk so a\u00f0 enginn skal b\u00faa \u00fear og eigi nokkur ma\u00f0ur skal hafa \u00fear sitt heimili.<\/p>\n<p>\t\u00deetta er \u00fea\u00f0 or\u00f0 Drottins sem ske\u00f0i til Jeremiam propheta \u00e1 m\u00f3ti <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Elam) eru \u00feeir \u00ed Persialandi\">[<\/span> Elam \u00ed upphafi r\u00edkisstj\u00f3rnar Zedechia konungsins J\u00fada og sag\u00f0i: Svo segir Drottinn Seba\u00f3t: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil sundurbrj\u00f3ta Elams boga, \u00feeirra hi\u00f0 \u00e6\u00f0sta veldi, og eg vil l\u00e1ta \u00fe\u00e1 fj\u00f3ra vindana \u00far \u00feeim fj\u00f3rum \u00e1ttum himinsins koma yfir \u00fe\u00e1. Og eg vil \u00ed burt dreifa \u00feeim \u00ed alla \u00fe\u00e1 s\u00f6mu vinda so a\u00f0 \u00fear skal ekki neitt f\u00f3lk \u00fea\u00f0 til vera a\u00f0 eigi skuli \u00feanga\u00f0 koma hinir burtreknu af Elam. Og eg vil gj\u00f6ra Elam duglausan fyrir s\u00ednum \u00f3vinum og fyrir \u00feeim sem stunda eftir \u00feeirra l\u00edfi og eg vil l\u00e1ta \u00f3g\u00e6fu koma yfir \u00fe\u00e1 me\u00f0 minni grimmdarrei\u00f0i, segir Drottinn. Og eg vil senda sver\u00f0i\u00f0 \u00e1 bak til vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 eg hefi foreytt \u00feeim. Eg vil setja minn <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ St\u00f3l) \/ \u00dea\u00f0 er Alexander hinn mikli s\u00e1 sem yfirvann Elam\">[<\/span> st\u00f3l \u00ed Elam og eg vil fyrirkoma \u00fear b\u00e6\u00f0i konunginum og h\u00f6f\u00f0ingjunum, segir Drottinn. En \u00e1 eftirkomandi t\u00edmum vil eg sn\u00faa herlei\u00f0ingunni Elam, segir Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLIX. \u00c1 m\u00f3ti Amm\u00f3nsonum segir Drottinn so: [ Hefur \u00cdsrael \u00fe\u00e1 ekki nein b\u00f6rn e\u00f0a hefur h\u00fan \u00f6ngvan erfingja? Hvar fyrir eignast \u00fe\u00e1 [ Malk\u00f3n \u00fea\u00f0 landi\u00f0 Ga\u00f0 og hans f\u00f3lk b\u00fdr \u00ed \u00feeirra st\u00f6\u00f0um? \u00dear fyrir sj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi kemur, segir Drottinn, eg vil l\u00e1ta heyrast eitt her\u00f3p yfir Rabbat Amm\u00f3nsona \u00fea\u00f0 h\u00fan \u00ed einni hr\u00fagu skal \u00ed ey\u00f0i liggja og \u00feeirra d\u00e6tur skulu me\u00f0 eldi upptendra\u00f0ar ver\u00f0a en \u00cdsrael skal \u00fe\u00e1 eignast \u00feeirra land sem s\u00e9r til eignu\u00f0u hans, segir Drottinn. Kveina \u00fe\u00fa h\u00e1tt, Hesbon, \u00fea\u00f0 A\u00ed er ni\u00f0urbrotin! H\u00e1stynji, \u00fe\u00e9r d\u00e6turnar Rabba, og kl\u00e6\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur \u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-49-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3489","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3489","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3489"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3489\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3489"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}