{"id":3482,"date":"2017-12-18T18:33:47","date_gmt":"2017-12-18T18:33:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-42-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:47","slug":"jeremia-42-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-42-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 42. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLII.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 gengu allir hersh\u00f6f\u00f0ingjarnir, J\u00f3hanan Kareason og Jesanja H\u00f3sanjasonar me\u00f0 \u00f6llu f\u00f3lki, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1um og st\u00f3rum og s\u00f6g\u00f0u til Jeremiam propheta: &#8222;K\u00e6ri, l\u00e1t vora b\u00e6n gilda nokku\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r og til bi\u00f0 Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns fyrir oss vegna allra \u00feessara sem eftir eru vor\u00f0nir (\u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r erum, \u00fev\u00ed er verr, mj\u00f6g f\u00e1ir eftir vor\u00f0nir af m\u00f6rgum svo sem \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur \u00fe\u00fa s\u00e9r oss n\u00fa me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum) so \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn vildi kunngj\u00f6ra oss hvert v\u00e9r \u00e6ttum a\u00f0 fara og hva\u00f0 v\u00e9r skulum til gj\u00f6ra.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Jeremias propheti sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;N\u00fa vel, eg vil \u00feessu hl\u00fd\u00f0a og sj\u00e1i\u00f0, eg vil bi\u00f0ja Drottin Gu\u00f0 y\u00f0varn sem \u00fe\u00e9r s\u00f6g\u00f0u\u00f0 og eg vil kunngj\u00f6ra y\u00f0ur allt \u00fea\u00f0 hva\u00f0 Drottinn svarar y\u00f0ur og dylja ekki neitt fyrir y\u00f0ur.&#8220; Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til Jeremia: &#8222;Drottinn hann s\u00e9 \u00feess einn tr\u00falegur og sannarlegur vottur \u00e1 millum vor ef a\u00f0 v\u00e9r gj\u00f6rum ekki allt hva\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn sendir oss bo\u00f0 til me\u00f0 \u00fe\u00e9r; hvort \u00fea\u00f0 er heldur gott e\u00f0a illt \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r hl\u00fd\u00f0a raustinni Drottins Gu\u00f0s vors, til hans sem v\u00e9r sendum \u00feig, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi vegna oss vel \u00fear e\u00f0 v\u00e9r hl\u00fd\u00f0um raustinni Drottins Gu\u00f0s vors.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg t\u00edu d\u00f6gum \u00fear eftir ske\u00f0i or\u00f0 Drottins til Jeremia. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s fyrirheit til \u00feeirra eftiror\u00f0nu \u00ed J\u00fada\">[<\/span> \u00de\u00e1 kalla\u00f0i hann J\u00f3hanan Kareason og alla fyrirmennina hersins sem hj\u00e1 honum voru og allt f\u00f3lki\u00f0, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1 og st\u00f3ra, og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;So segir Drottinn Gu\u00f0 \u00cdsrael til hans sem \u00fe\u00e9r sendu\u00f0 mig a\u00f0 eg skylda flytja y\u00f0ra b\u00e6n fyrir hann: Ef a\u00f0 \u00fe\u00e9r bl\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00feessu landi \u00fe\u00e1 vil eg uppbyggja y\u00f0ur en ekki ni\u00f0urbrj\u00f3ta, eg vil gr\u00f3\u00f0setja y\u00f0ur en ekki uppr\u00e6ta \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda sem eg hefi gj\u00f6rt y\u00f0ur \u00fea\u00f0 angrar mig n\u00fa allt til rei\u00f0u. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki hr\u00e6ddi vera um y\u00f0ur fyrir konunginum af Bab\u00fdlon hvern \u00fe\u00e9r \u00f3ttist, segir Drottinn. Ekki skulu \u00fe\u00e9r hann hr\u00e6\u00f0ast \u00fea\u00f0 eg vil vera hj\u00e1 y\u00f0ur a\u00f0 hj\u00e1lpa og frelsa y\u00f0ur af hans hendi. Eg vil augs\u00fdna y\u00f0ur miskunnsemi og vera y\u00f0ur l\u00edknsamur og innflytja y\u00f0ur \u00ed y\u00f0vart land aftur.<\/p>\n<p>\tEn ef \u00fe\u00e9r segi\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra xxvii.\">[<\/span> V\u00e9r viljum ekki vera \u00ed \u00feessu landi, hva\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ekki hl\u00fd\u00f0a raustinni Drottins Gu\u00f0s y\u00f0vars heldur segi\u00f0: Nei, v\u00e9r viljum fara \u00ed Egyptaland so a\u00f0 v\u00e9r skulum \u00f6ngvan \u00f3fri\u00f0 sj\u00e1 n\u00e9 heyra neinn herl\u00fa\u00f0rabl\u00e1stur og \u00feurfa eigi heldur neitt hungur a\u00f0 l\u00ed\u00f0a brau\u00f0sins vegna, \u00fear viljum v\u00e9r vera, n\u00fa \u00fe\u00e1 heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins, \u00fe\u00e9r sem eftir eru\u00f0 vor\u00f0nir af J\u00fada: Svo segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsraels: \u00dear e\u00f0 \u00fe\u00e9r setji\u00f0 y\u00f0ra \u00e1sj\u00f3nu til a\u00f0 fara \u00ed Egyptaland so a\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 \u00fear vera \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 sver\u00f0i\u00f0 fyrir hverju \u00fe\u00e9r hr\u00e6ddir eru\u00f0 h\u00e6fa y\u00f0ur \u00ed Egyptalandi og \u00fea\u00f0 hungri\u00f0 fyrir hverju \u00fe\u00e9r kv\u00ed\u00f0i\u00f0 skal alla t\u00edma vera kringum y\u00f0ur \u00e1 Egyptalandi og \u00fear skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r deyja. \u00deeir s\u00e9 hverjir e\u00f0 vilja sem \u00feanga\u00f0 setja s\u00edna \u00e1sj\u00f6nu a\u00f0 fara \u00ed Egyptaland til a\u00f0 vera \u00feeir, \u00feeir hinir s\u00f6mu skulu deyja fyrir sver\u00f0i, hungri og dreps\u00f3tt so a\u00f0 \u00fear skal enginn eftir ver\u00f0a n\u00e9 \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda umfl\u00fai\u00f0 geta sem eg vil l\u00e1ta koma yfir \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 so segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsrael: L\u00edka sem m\u00edn rei\u00f0i og grimmd er gengin yfir \u00fe\u00e1 Jer\u00fasaleminnbyggjara, so skal h\u00fan og einnin ganga yfir y\u00f0ur ef a\u00f0 \u00fe\u00e9r fari\u00f0 \u00ed Egyptaland so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera til b\u00f6lvunar, til forundrunar, til bl\u00f3ts og forsm\u00e1nar og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 \u00fe\u00e1 ekki sj\u00e1 \u00feennan sta\u00f0 aftur.<\/p>\n<p>\t\u00dea\u00f0 or\u00f0 Drottins kemur y\u00f0ur til, \u00fe\u00e9r sem eftir eru\u00f0 vor\u00f0nir af J\u00fada, so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki inndraga \u00ed Egyptaland. \u00dear fyrir \u00fe\u00e1 viti\u00f0 a\u00f0 eg vitna fyrir y\u00f0ur \u00ed dag \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r munu\u00f0 \u00fe\u00e1 missa y\u00f0vart l\u00edf \u00fear. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r sendu\u00f0 mig til Drottins Gu\u00f0s y\u00f0vars og s\u00f6g\u00f0u\u00f0: Bi\u00f0 \u00fe\u00fa Drottin Gu\u00f0 vorn fyrir oss og kunngj\u00f6r oss so s\u00ed\u00f0an allt hva\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 vor hann segir, so viljum v\u00e9r og gj\u00f6ra \u00fear eftir. \u00dea\u00f0 sama hefi eg n\u00fa l\u00e1ti\u00f0 y\u00f0ur f\u00e1 a\u00f0 vita \u00ed dag. En \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ekki hl\u00fd\u00f0a raustinni Drottins Gu\u00f0s y\u00f0vars og eigi heldur neinum \u00feeim bo\u00f0um sem hann sendi mig me\u00f0 til y\u00f0ar. So skulu \u00fe\u00e9r n\u00fa \u00fea\u00f0 vita a\u00f0 \u00fe\u00e9r hlj\u00f3ti\u00f0 a\u00f0 deyja fyrir sver\u00f0i, hungri og dreps\u00f3tt \u00ed \u00feeim st\u00f6\u00f0unum til hverra \u00fe\u00e9r \u00feenki\u00f0 y\u00f0ur n\u00fa a\u00f0 fara og \u00fear a\u00f0 b\u00faa.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLII. \u00de\u00e1 gengu allir hersh\u00f6f\u00f0ingjarnir, J\u00f3hanan Kareason og Jesanja H\u00f3sanjasonar me\u00f0 \u00f6llu f\u00f3lki, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1um og st\u00f3rum og s\u00f6g\u00f0u til Jeremiam propheta: &#8222;K\u00e6ri, l\u00e1t vora b\u00e6n gilda nokku\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r og til bi\u00f0 Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns fyrir oss vegna allra \u00feessara sem eftir eru vor\u00f0nir (\u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r erum, \u00fev\u00ed er verr, mj\u00f6g f\u00e1ir eftir vor\u00f0nir af m\u00f6rgum svo sem \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur \u00fe\u00fa s\u00e9r oss n\u00fa me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum) so \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn vildi kunngj\u00f6ra oss hvert v\u00e9r \u00e6ttum a\u00f0 fara og hva\u00f0 v\u00e9r skulum til gj\u00f6ra.&#8220; Og Jeremias propheti sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;N\u00fa vel, eg vil \u00feessu hl\u00fd\u00f0a <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-42-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3482","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3482","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3482"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3482\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3482"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}