{"id":3471,"date":"2017-12-18T18:33:44","date_gmt":"2017-12-18T18:33:44","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-31-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:44","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:44","slug":"jeremia-31-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-31-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 31. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXI.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma, segir Drottinn, vil eg vera Gu\u00f0 alls \u00cdsraels slektis og \u00feeir skulu vera mitt f\u00f3lk. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hann huggar \u00fe\u00e1 herteknu Gy\u00f0inga a\u00f0 halda \u00feeim vi\u00f0 tr\u00fana og \u00feolinm\u00e6\u00f0i\">[<\/span> So segir Drottinn: \u00dea\u00f0 f\u00f3lk sem eftir er vor\u00f0i\u00f0 fyrir sver\u00f0inu \u00fea\u00f0 hefur fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00cdsrael fer burt til sinnar hv\u00edldar. Drottinn birtist m\u00e9r \u00e1lengdar: Eg hefi og alla t\u00edma elska\u00f0 \u00feig, \u00fear fyrir hefi eg la\u00f0a\u00f0 \u00feig a\u00f0 m\u00e9r af sk\u00e6rri miskunnsemi. N\u00fa vel, eg vil byggja \u00feig upp aftur so a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt heita uppbygg\u00f0. \u00de\u00fa jungfr\u00fa \u00cdsrael, \u00fe\u00fa skalt enn n\u00fa fara me\u00f0 gle\u00f0ilegan bumbusl\u00e1tt og \u00fatganga \u00ed dansinn. \u00de\u00fa skalt planta v\u00edngar\u00f0a aftur a\u00f0 n\u00fdju \u00e1 fjallbygg\u00f0unum Samarie, planta munu \u00feeir og \u00fear me\u00f0 \u00ed p\u00edpur bl\u00e1sa. \u00dev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 t\u00edmi mun enn koma a\u00f0 var\u00f0mennirnir \u00e1 Efra\u00edmsfjalli munu kalla: &#8222;T\u00f6kum oss upp og f\u00f6rum af sta\u00f0 og l\u00e1tum oss ganga upp til S\u00edon til Drottins Gu\u00f0s vors.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 so segir Drottinn: Kalli\u00f0 yfir Jakob me\u00f0 gle\u00f0i og fagni\u00f0 yfir \u00fev\u00ed h\u00f6f\u00f0inu me\u00f0al hei\u00f0ingjanna, kalli\u00f0 h\u00e1tt, hr\u00f3pi\u00f0 og segi\u00f0: &#8222;Drottinn, hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa \u00fe\u00ednu f\u00f3lki sem eftir er or\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00cdsrael.&#8220; Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil flytja \u00fe\u00e1 \u00fat af nor\u00f0urlandinu og eg vil samansafna \u00feeim \u00ed fr\u00e1 jar\u00f0arinnar enda, b\u00e6\u00f0i blindum og h\u00f6ltum, \u00f3l\u00e9ttum og s\u00e6ngarkonum, so a\u00f0 \u00feeir skulu koma hinga\u00f0 aftur me\u00f0 miklum h\u00f3pafj\u00f6lda. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. xxxii. \/ Gen. xlviii.\">[<\/span> \u00deeir munu koma gr\u00e1tandi og bi\u00f0jandi, so vil eg \u00fe\u00e1 segja \u00feeim lei\u00f0. Eg vil lei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00ed hj\u00e1 vatsl\u00e6kjunum \u00e1 sl\u00e9tta veginum so a\u00f0 \u00feeir steyti sig ei \u00fev\u00ed a\u00f0 eg er \u00cdsraels fa\u00f0ir og Efra\u00edm er minn frumgetinn son.<\/p>\n<p>\tHeyri, \u00fe\u00e9r hinir hei\u00f0nu, or\u00f0 Drottins og kunngj\u00f6ri \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feeim fjarl\u00e6gum eyjunum og segi\u00f0: S\u00e1 sem \u00ed sundurdreift hefur \u00cdsrael hann mun og einnin samansafna honum aftur og hann mun var\u00f0veita hann so sem einn hir\u00f0ir s\u00edna hj\u00f6r\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun frelsa Jakob og leysa hann \u00fat af hendi hins volduga. Og \u00feeir munu koma og gle\u00f0ja sig \u00e1 h\u00e6\u00f0unum til S\u00edon og \u00feeir munu samanflykkjast \u00ed h\u00f3pa til \u00feeirra \u00e1stgjafanna Drottins, sem er til korns, v\u00edns, vi\u00f0smj\u00f6rs og ungra sau\u00f0a og nauta, so a\u00f0 \u00feeirra s\u00e1lir munu vera l\u00edka sem einn votlendur urtragar\u00f0ur og skulu eigi meir angra\u00f0ir ver\u00f0a. \u00de\u00e1 munu meyjarnar gle\u00f0jast \u00ed dansinum, \u00fear me\u00f0 \u00e6skumennirnir, so og hinir g\u00f6mlu hver me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg vil sn\u00faa \u00feeirra sorg \u00ed gle\u00f0i og hugsvala \u00feeim og gle\u00f0ja \u00fe\u00e1 eftir \u00feeirra h\u00f6rmungar. Og eg vil gj\u00f6ra kennimannanna hjarta fullt af gle\u00f0i og mitt f\u00f3lk skal hafa alls konar n\u00e6g\u00f0 af m\u00ednum \u00e1stgj\u00f6fum, segir Drottinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Matth. ii. \/ Supra. ii.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn: Menn heyra hr\u00e6\u00f0ilegt \u00f3p og beiskan gr\u00e1t \u00e1 h\u00e6\u00f0unum. Rakel gr\u00e6tur yfir sonum s\u00ednum og vill eigi huggast l\u00e1ta yfir s\u00ednu b\u00f6rnum \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fatgj\u00f6rt um \u00feau. En so segir Drottinn: L\u00e1t \u00fe\u00edna kveinan og gr\u00e1t og t\u00e1raf\u00f6llin \u00feinna augna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feitt erfi\u00f0i skal vel launa\u00f0 ver\u00f0a, segir Drottinn. \u00deeir skulu og aftur koma af \u00fev\u00ed \u00f3vinalandinu. Og \u00fe\u00ednir eftirkomendur hafa margs g\u00f3\u00f0s a\u00f0 v\u00e6nta, segir Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00edn b\u00f6rn skulu koma aftur \u00ed \u00feetta land.<\/p>\n<p>\tEg hefi vel heyrt hvernin \u00fea\u00f0 Efra\u00edm klagar sig: &#8222;\u00de\u00fa hefur aga\u00f0 mig, eg er og einnin aga\u00f0ur so sem einn l\u00edfa\u00f0ur k\u00e1lfur. Sn\u00fa \u00fe\u00fa m\u00e9r, \u00fe\u00e1 er m\u00e9r sn\u00fai\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, ert minn Gu\u00f0. \u00de\u00e1 er eg snerunst yfirb\u00e6tta eg mig \u00fev\u00ed a\u00f0 eftir \u00fea\u00f0 eg t\u00f3k a\u00f0 gj\u00f6rast forsj\u00e1ll h\u00e9lt eg a\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"Lendum) \/ A\u00f0 lendum a\u00f0 halda er merki sorgar og harmkv\u00e6lis so sem gj\u00f6ra j\u00f3\u00f0sj\u00fakar kvinnur\">[<\/span> lend\u00f6num \u00fea\u00f0 eg em til skammar vor\u00f0inn og stend rj\u00f3\u00f0ur af \u00f3vir\u00f0ingu. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hl\u00fdt a\u00f0 l\u00ed\u00f0a \u00fe\u00e6r h\u00e1\u00f0ungar m\u00edns ungd\u00f3ms.&#8220; Er Efra\u00edm ei minn d\u00fdr\u00f0arlegur son og mitt elskulegt barn? \u00dev\u00ed a\u00f0 eg minnunst enn n\u00fa vel \u00e1 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 eg sag\u00f0a til hans. \u00dear fyrir hneigist mitt hjarta til hans svo a\u00f0 eg hl\u00fdt honum miskunnsamur a\u00f0 vera, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tReistu \u00fe\u00e9r upp minningarteikn, settu upp sorgarmerki\u00f0 og set \u00feitt hjarta \u00e1 \u00fe\u00e1 hinu tro\u00f0nu vegina sem eg hefi \u00e1gengi\u00f0. \u00de\u00fa \u00cdsrael jungfr\u00fa, sn\u00fa \u00fe\u00fa aftur, sn\u00fa \u00fe\u00e9r aftur til \u00feessara \u00feinna sta\u00f0a. Hversu lengi \u00fe\u00e1 viltu ganga \u00fe\u00e1 villuvegina, \u00fe\u00fa hin fr\u00e1horfna d\u00f3tturin? \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun skapa nokku\u00f0 n\u00fdtt \u00ed landinu: <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Kvinnan) \/ \u00deetta undirstanda \u00feeir hinir g\u00f6mlu \u00fat af Christo og Mar\u00edu, \u00fea\u00f0 Christus s\u00e9 s\u00e1 ma\u00f0ur af Maria umkringdur, \u00fea\u00f0 er getinn og f\u00e6ddur et ct.\">[<\/span> Kvinnan mun umkringja manninn.<\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsraels, a\u00f0 menn munu enn tala \u00feessi or\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju \u00ed landinu J\u00fada og \u00ed \u00feessum st\u00f6\u00f0um \u00fe\u00e1 e\u00f0 eg mun sn\u00faa \u00feeirra herlei\u00f0ingu. Drottinn hann blessi \u00feig, \u00fe\u00fa r\u00e9ttl\u00e6tisins b\u00fasta\u00f0ur, \u00fe\u00fa hi\u00f0 heilaga fjall og J\u00fada me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum st\u00f6\u00f0um skal b\u00faa \u00fear inni, \u00fear me\u00f0 einnin akurkarlar og \u00feeir sem hjar\u00f0ar g\u00e6ta. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg vil endurn\u00e6ra hinar \u00fereyttu s\u00e1lirnar og se\u00f0ja \u00fe\u00e6r hinar sorgbitnu s\u00e1lir. \u00dear fyrir \u00fe\u00e1 vakna\u00f0i eg og leit upp og haf\u00f0i sofi\u00f0 so v\u00e6rt.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi kemur, segir Drottinn, a\u00f0 eg vil yfir s\u00e1 h\u00fasi\u00f0 \u00cdsrael og h\u00fasi\u00f0 J\u00fada b\u00e6\u00f0i me\u00f0 menn og f\u00e9na\u00f0. Og l\u00edka so sem eg vakti yfir \u00feeim til a\u00f0 afm\u00e1, uppr\u00e6ta, af a\u00f0 brj\u00f3ta, fordjarfa og til a\u00f0 pl\u00e1ga \u00fe\u00e1, so vil eg og vaka yfir \u00feeim til a\u00f0 uppbyggja \u00fe\u00e1 og a\u00f0 gr\u00f3\u00f0setja \u00fe\u00e1, segir Drottinn. \u00c1 \u00feeim sama t\u00edma munu menn og eigi meir segja: &#8222;Fe\u00f0ur vorir hafa eti\u00f0 \u00fea\u00f0 beiska v\u00ednberi\u00f0 og barnanna tennur eru slj\u00f3var vor\u00f0nar&#8220; heldur skal hver og einn deyja fyrir sinna misgj\u00f6r\u00f0a sakir. Og hver ma\u00f0ur sem etur beiskt v\u00ednber hans tennur \u00fe\u00e1 skulu slj\u00f3gvast.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi kemur, segir Drottinn, \u00fea\u00f0 eg vil gj\u00f6ra einn n\u00fdjan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 \u00cdsraels h\u00fas og vi\u00f0 h\u00fasi\u00f0 J\u00fada. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ebre. x. \/ S\u00e1ttm\u00e1li \u00feess N\u00fdja testamentis\">[<\/span> Ekki so sem s\u00e1 s\u00e1ttm\u00e1linn var sem eg gj\u00f6r\u00f0a vi\u00f0 fe\u00f0ur \u00feeirra \u00fe\u00e1 e\u00f0 eg t\u00f3k \u00fe\u00e1 vi\u00f0 h\u00f6nd og leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat af Egyptalandi, hvern s\u00e1ttm\u00e1la \u00feeir hafa ekki haldi\u00f0 og eg hlaut a\u00f0 \u00fevinga \u00fe\u00e1, segir Drottinn. Heldur skal \u00feetta vera s\u00e1 s\u00e1ttm\u00e1linn sem eg vil gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00cdsraels h\u00fas h\u00e9r eftir, segir Drottinn: Eg vil gefa mitt l\u00f6gm\u00e1l \u00ed \u00feeirra hj\u00f6rtu og innskrifa \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feeirra hugskot. Og \u00feeir skulu vera mitt f\u00f3lk, so vil eg vera \u00feeirra Gu\u00f0. Og enginn mun l\u00e6ra annaun og ei einn br\u00f3\u00f0urinn annan, segjandi: &#8222;\u00deekktu Drottinn&#8220; heldur skulu \u00feeir allir, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1ir og st\u00f3rir, \u00feekkja mig, segir Drottinn, \u00fea\u00f0 eg vil fyrirgefa \u00feeim \u00feeirra misgj\u00f6rning og aldreigi meir \u00ed minni leggja \u00feeirra syndir.<\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn, s\u00e1 e\u00f0 s\u00f3lina gefur deginum til uppl\u00fdsingar og tungli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar eftir \u00feeirra gangi n\u00f3ttinni til uppbirtu, hann sem hr\u00e6rir sj\u00e1varhafi\u00f0 so a\u00f0 \u00feess bylgjur upp \u00fej\u00f3ta, Drottinn Seba\u00f3t er hans nafn: N\u00e6r e\u00f0 svoddan tilskipan leggst af fyrir m\u00e9r, segir Drottinn, \u00fe\u00e1 skal og einnin aftakast \u00cdsraels s\u00e6\u00f0i so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal ekki meir vera eitt f\u00f3lk fyrir m\u00e9r \u00e6vinlegana. So segir Drottinn: N\u00e6r e\u00f0 mann kann a\u00f0 m\u00e6la himininn \u00fear uppi og rannsaka grundv\u00f6llinn jar\u00f0arinnar \u00fe\u00e1 vil eg og burt kasta \u00f6llu \u00cdsraels s\u00e6\u00f0i fyrir allt \u00fea\u00f0 sem \u00feeir hafa gj\u00f6rt, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi skal koma, segir Drottinn, \u00fea\u00f0 s\u00e1 sta\u00f0urinn Drottins skal uppbygg\u00f0ur ver\u00f0a \u00ed fr\u00e1 turninum Hananeels allt til Hyrningarportsins og s\u00e1 m\u00e6listrengurinn skal ganga v\u00ed\u00f0ara \u00fat hj\u00e1 \u00fev\u00ed hinu sama, allt inn til Garebh\u00e6\u00f0ar og sn\u00faa s\u00e9r so til Gaat. Og allur s\u00e1 l\u00edkdalurinn og \u0096\u00f6skunnar me\u00f0 \u00f6llum akrinum allt til l\u00e6kjarins Kedron, allt inn til \u00feess hornsins \u00e1 Hestaportinu m\u00f3t austrinu, \u00fea skal vera Drottni helga\u00f0 so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal aldreigi meir ofan rifi\u00f0 elligar ni\u00f0urbroti\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXI. \u00c1 \u00feeim sama t\u00edma, segir Drottinn, vil eg vera Gu\u00f0 alls \u00cdsraels slektis og \u00feeir skulu vera mitt f\u00f3lk. [ So segir Drottinn: \u00dea\u00f0 f\u00f3lk sem eftir er vor\u00f0i\u00f0 fyrir sver\u00f0inu \u00fea\u00f0 hefur fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00cdsrael fer burt til sinnar hv\u00edldar. Drottinn birtist m\u00e9r \u00e1lengdar: Eg hefi og alla t\u00edma elska\u00f0 \u00feig, \u00fear fyrir hefi eg la\u00f0a\u00f0 \u00feig a\u00f0 m\u00e9r af sk\u00e6rri miskunnsemi. N\u00fa vel, eg vil byggja \u00feig upp aftur so a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt heita uppbygg\u00f0. \u00de\u00fa jungfr\u00fa \u00cdsrael, \u00fe\u00fa skalt enn n\u00fa fara me\u00f0 gle\u00f0ilegan bumbusl\u00e1tt og \u00fatganga \u00ed dansinn. \u00de\u00fa skalt planta v\u00edngar\u00f0a aftur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-31-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3471","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3471","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3471"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3471\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3471"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}