{"id":3453,"date":"2017-12-18T18:33:40","date_gmt":"2017-12-18T18:33:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:40","slug":"jeremia-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-13-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>So segir Drottinn til m\u00edn: <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00e9reftsbelti\">[<\/span> Gakk burt og kaup \u00fe\u00e9r einn l\u00e9reftslinda og umgyrtu \u00fe\u00ednar lendar \u00fear me\u00f0 og gj\u00f6r hann ekki votan. Og eg keypta m\u00e9r linda eftir skipan Drottins og batt hann um m\u00ednar lendar. \u00de\u00e1 ske\u00f0i or\u00f0 Drottins \u00ed anna\u00f0 sinn til m\u00edn og sag\u00f0i: Tak \u00feann lindann sem \u00fe\u00fa keyptir og battst um \u00fe\u00ednar lendar og b\u00fa \u00feig og gakk \u00ed burt til Euphrates og fel hann \u00fear \u00ed einnri bjargskoru. Eg gekk \u00feanga\u00f0 og faldi hann hj\u00e1 Euphrates so sem \u00fea\u00f0 Drottinn haf\u00f0i m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0. Og a\u00f0 li\u00f0num l\u00f6ngum t\u00edma eftir \u00fea\u00f0 sag\u00f0i Drottinn til m\u00edn: B\u00fa \u00feig og far \u00fe\u00fa \u00ed burt til Euphrates og s\u00e6k \u00fe\u00fa \u00feann linda aftur sem eg bau\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 fela \u00fear. Eg gekk \u00ed burt til Euphrates og gr\u00f3f hann upp og t\u00f3k lindann \u00far \u00feeim sta\u00f0 sem eg haf\u00f0i fali\u00f0 hann og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, a\u00f0 s\u00e1 lindinn var skemmdur og til einskis neytur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 ske\u00f0i or\u00f0 Drottins til m\u00edn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra vii.\">[<\/span> So segir Drottinn: Eins l\u00edka \u00fe\u00e1 vil eg skemma \u00fe\u00e1 hina miklu drambsemina J\u00fada og Jer\u00fasalem, \u00fe\u00e1 illu \u00fej\u00f3\u00f0 sem ekki vill heyra m\u00edn or\u00f0 heldur ganga \u00feeir eftir s\u00ednum sj\u00e1lfs hjartans hug\u00feokka og eftirfylgja annarlegum gu\u00f0um, \u00fej\u00f3na \u00feeim og tilbi\u00f0ja \u00fe\u00e1. \u00deeir hinir s\u00f6mu skulu eins so ver\u00f0a sem a\u00f0 s\u00e1 lindinn er hver a\u00f0 n\u00fa dugir ekki til neins. \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edka so sem \u00fea\u00f0 ma\u00f0urinn bindur lindann um s\u00ednar lendar, eins l\u00edka \u00fe\u00e1 hef eg, segir Drottinn, umgyrt allan \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 og \u00fea\u00f0 gj\u00f6rvallt h\u00fasi\u00f0 J\u00fada um kring mig so a\u00f0 \u00feeir skyldu vera mitt f\u00f3lk til nafnfr\u00e6g\u00f0ar, lofs og d\u00fdr\u00f0ar, en \u00feeir vilja ekki heyra.<\/p>\n<p>\tSo seg \u00fe\u00fa n\u00fa \u00feessi or\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"Legill\">[<\/span> So segir Drottinn Gu\u00f0 \u00cdsraels: Allir leglar skulu fyllast me\u00f0 v\u00edn. \u00de\u00e1 munu \u00feeir segja: &#8222;Hver er s\u00e1 a\u00f0 hann viti eigi \u00fea\u00f0 a\u00f0 leglarnir skulu me\u00f0 v\u00edni fylltir vera?&#8220; En seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra: So segir Drottinn: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil flla \u00fe\u00e1 alla sem byggja \u00ed \u00feessu landi, k\u00f3ngana sem sitja upp \u00e1 Dav\u00ed\u00f0s st\u00f3li, prestana og prophetana og alla innbyggjarana \u00ed Jer\u00fasalem so a\u00f0 \u00feeir skulu drukknir ver\u00f0a og eg vil so \u00ed sundur dreifa einum sem \u00f6\u00f0rum, fe\u00f0runum \u00e1samt me\u00f0 b\u00f6rnunum, segir Drottinn, og eg vil hverki spara e\u00f0ur v\u00e6gja n\u00e9 miskunnsamur vera yfir \u00feeirra fordj\u00f6rfun.<\/p>\n<p>\tSo heyri\u00f0 n\u00fa og hyggi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed og st\u00e6r \u00feig ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn hefur tala\u00f0 \u00fea\u00f0 sama. Gefi\u00f0 Drottni Gu\u00f0i y\u00f0rum d\u00fdr\u00f0ina fyrr en \u00fea\u00f0 myrkt ver\u00f0ur og \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 y\u00f0rir f\u00e6tur reka sig \u00e1 \u00feau <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Myrkvu bj\u00f6rg) \u00dea\u00f0 er, \u00fe\u00e9r treysti\u00f0 upp \u00e1 Egyptaland og v\u00e6nti\u00f0 y\u00f0ur lj\u00f3ss og lukku af sl\u00edkum fj\u00f6llum en y\u00f0ur bregst \u00feetta\">[<\/span> myrkvu bj\u00f6rgin. \u00dear e\u00f0 \u00fe\u00e9r v\u00e6nti\u00f0 lj\u00f3ssins \u00fe\u00e1 mun hann \u00fe\u00f3 me\u00f0 \u00f6llu gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 b\u00e6\u00f0i myrkt og dimmt. En \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ekki heyra \u00feetta \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur \u00fe\u00f3 samt m\u00edn s\u00e1la heimuglegana a\u00f0 gr\u00e1ta yfir sl\u00edkri drambsemi. M\u00edn augo \u00feau hlj\u00f3ta \u00ed t\u00e1rum a\u00f0 flj\u00f3ta \u00fea\u00f0 hj\u00f6r\u00f0in Drottins ver\u00f0ur so hertekin.<\/p>\n<p>\tSeg \u00fe\u00fa k\u00f3nginum og drottningunni: Setji\u00f0 ykkur ni\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00f3r\u00f3nan vegsemdarinnar er dottin af ykkru h\u00f6f\u00f0i. Sta\u00f0irnir \u00ed m\u00f3t su\u00f0rinu eru afturl\u00e6stir og \u00fear er s\u00e1 enginn sem uppl\u00faki \u00feeim, gj\u00f6rvallt J\u00fada er \u00ed burt flutt. Upplyfti\u00f0 y\u00f0ar augum og sj\u00e1i\u00f0, hvernin a\u00f0 \u00feeir koma hinga\u00f0 af nor\u00f0rinu. Hva\u00f0 er n\u00fa s\u00fa hj\u00f6r\u00f0in sem \u00fe\u00e9r var \u00e1 hendi f\u00f3lgin, \u00fe\u00edn herlega hj\u00f6r\u00f0? Hva\u00f0 viltu til segja n\u00e6r e\u00f0 hann mun so heims\u00e6kja \u00feig? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur vani\u00f0 \u00fe\u00e1 so \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 \u00feeir vilja vera h\u00f6f\u00f0ingjar og h\u00f6fu\u00f0smenn. Hva\u00f0 gildir \u00fea\u00f0 a\u00f0 angist mun yfir \u00feig koma so sem einnrar j\u00f3\u00f0sj\u00fakrar konu. Og n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa vilt so segja \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: &#8222;Hvar fyrir mun mig henda soddan?&#8220; Fyrir fj\u00f6lda sakir \u00feinna misgj\u00f6r\u00f0a \u00fe\u00e1 er faldur \u00fe\u00edns kl\u00e6\u00f0na\u00f0ar uppflettur og \u00fe\u00ednir f\u00f3tleggir augs\u00fdndir (me\u00f0 valdi).<\/p>\n<p>\tKann nokku\u00f0 Bl\u00e1ma\u00f0urinn a\u00f0 skipta um sinn skinnslit e\u00f0a einn pardus um s\u00edna flekka? <span class=\"athugasemd\" title=\"Bl\u00e1ma\u00f0urinn\">[<\/span> Eins l\u00edka so \u00fe\u00e1 kunni \u00fe\u00e9r ekki gott a\u00f0 gj\u00f6ra af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 vanari til hins vonda. \u00dear fyrir \u00fe\u00e1 vil eg \u00ed sundur dreifa \u00feeim so sem grasstr\u00e1um \u00feau e\u00f0 fyrir st\u00f3rvi\u00f0ri fj\u00faka af ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00dea\u00f0 skal \u00fe\u00edn laun vera og \u00fe\u00edn hlutdeild sem eg hefi \u00fe\u00e9r til m\u00e6lt, segir Drottinn. Af \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa hefur forgleymt m\u00e9r og treyst upp \u00e1 lygarnar, \u00fear fyrir vil eg l\u00e1ta einnin \u00fe\u00ednum kl\u00e6\u00f0saumum h\u00e1tt uppfletta so a\u00f0 \u00fe\u00edn blyg\u00f0an megi vel sj\u00e1st. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi s\u00e9\u00f0 \u00fe\u00edna h\u00f3rd\u00f3ma, \u00feitt lausl\u00e6ti, \u00fe\u00ednar h\u00f3ranir, j\u00e1 \u00fe\u00ednar sv\u00edvir\u00f0ingar, b\u00e6\u00f0i upp \u00e1 h\u00e6\u00f0unum og \u00e1 akurl\u00f6ndunum. Vei \u00fe\u00e9r Jer\u00fasalem, n\u00e6r viltu \u00fe\u00f3 nokkurn t\u00edma ver\u00f0a hrein?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. So segir Drottinn til m\u00edn: [ Gakk burt og kaup \u00fe\u00e9r einn l\u00e9reftslinda og umgyrtu \u00fe\u00ednar lendar \u00fear me\u00f0 og gj\u00f6r hann ekki votan. Og eg keypta m\u00e9r linda eftir skipan Drottins og batt hann um m\u00ednar lendar. \u00de\u00e1 ske\u00f0i or\u00f0 Drottins \u00ed anna\u00f0 sinn til m\u00edn og sag\u00f0i: Tak \u00feann lindann sem \u00fe\u00fa keyptir og battst um \u00fe\u00ednar lendar og b\u00fa \u00feig og gakk \u00ed burt til Euphrates og fel hann \u00fear \u00ed einnri bjargskoru. Eg gekk \u00feanga\u00f0 og faldi hann hj\u00e1 Euphrates so sem \u00fea\u00f0 Drottinn haf\u00f0i m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0. Og a\u00f0 li\u00f0num l\u00f6ngum t\u00edma eftir \u00fea\u00f0 sag\u00f0i <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3453","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3453","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3453"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3453\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3453"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}