{"id":3448,"date":"2017-12-18T18:33:40","date_gmt":"2017-12-18T18:33:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:40","slug":"jeremia-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-8-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>\u00dear fyrir seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra: So segir Drottinn: Hver er s\u00e1 sem a\u00f0 fellur a\u00f0 hann vildi ekki gjarnan upp aftur standa? Hver er s\u00e1 nokkur sem a\u00f0 villt fer a\u00f0 hann vilji ekki gjarnan komast \u00e1 \u00feann r\u00e9tta veginn aftur? En \u00feetta f\u00f3lk \u00ed Jer\u00fasalem vill \u00fe\u00f3 samt \u00e6t\u00ed\u00f0 og alla t\u00edma villt fara. \u00deeir halda so fast \u00e1 \u00feeirri falslegri gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustinni a\u00f0 \u00feeir vilja eigi l\u00e1ta sn\u00faa s\u00e9r \u00fear \u00ed fr\u00e1. Eg s\u00e9 og heyri a\u00f0 \u00feeir l\u00e6ra ekki neitt hva\u00f0 r\u00e9tt er, \u00fear er og s\u00e1 enginn sem a\u00f0 honum misl\u00edki s\u00edn illska og segi: &#8222;Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 eg gj\u00f6ri?&#8220; Allir \u00fe\u00e1 hlaupa \u00feeir sitt hlaup so sem grimmur v\u00edghestur \u00ed bardaga. Storkfuglinn undir himninum veit sinn t\u00edma, ein turtild\u00fafa, tranan og svalan formerkja og \u00feeirra t\u00edma n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e6r skulu aftur koma. En mitt f\u00f3lk \u00fea\u00f0 vill ekki vita r\u00e9ttindin Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. lv. \/ Jere. vi.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tHvernin megi \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 segja: &#8222;V\u00e9r vitum hva\u00f0 r\u00e9tt er og v\u00e9r h\u00f6fum \u00fe\u00e1 heil\u00f6gu Ritning fyrir oss&#8220;? \u00dea\u00f0 eru \u00fe\u00f3 ekki utan lygar hva\u00f0 \u00feeir hinir skriftkl\u00f3ku \u00feeir framsetja. \u00dear fyrir hlj\u00f3ta sl\u00edkir l\u00e6rendur til skammar, skelfingar og fanga\u00f0ir a\u00f0 ver\u00f0a \u00fev\u00ed hva\u00f0 kunna \u00feeir gott a\u00f0 kenna \u00e1 me\u00f0an \u00feeir forleggja \u00fea\u00f0 or\u00f0i\u00f0 Drottins? \u00dear fyrir vil eg gefa annarlegum \u00feeirra h\u00fasfreyjur og \u00feeirra akurl\u00f6nd \u00feeim sem \u00fe\u00e1 munu \u00fatreka \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru allir saman \u00e1gjarnir, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1ir og st\u00f3rir, b\u00e6\u00f0i prestarnir og prophetarnir \u00fea kenna falsklega gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu og hughreysta so mitt f\u00f3lk \u00ed \u00feeirra g\u00e6fuleysi a\u00f0 \u00feeir skulu ekki hir\u00f0a miki\u00f0 um \u00fea\u00f0 og segja: &#8222;Fri\u00f0ur, fri\u00f0ur&#8220; en \u00fear er \u00fe\u00f3 enginn fri\u00f0ur. \u00dear fyrir skulu \u00feeir til skammar ver\u00f0a a\u00f0 \u00feeir fremja svoddan sv\u00edvir\u00f0ingar \u00fe\u00f3tt a\u00f0 \u00feeir vilji \u00f3skamma\u00f0ir vera og vilja ekki sj\u00e1lfir s\u00edn skammast. \u00dear fyrir hlj\u00f3ta \u00feeir a\u00f0 falla \u00ed eina hr\u00fagu og n\u00e6r e\u00f0 eg fer \u00feeirra a\u00f0 vitja \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir falla, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tEg vil af lesa \u00fe\u00e1 alla saman, segir Drottinn, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skulu engin v\u00ednber \u00e1 v\u00ednvi\u00f0inum og \u00f6ngvar f\u00edkjur \u00e1 f\u00edkjutr\u00e9nu eftir vera, j\u00e1 \u00feau laufbl\u00f6\u00f0in skulu og einnin af falla og hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 er eg hefi gefi\u00f0 \u00feeim \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim takast. &#8222;Hvar eigum v\u00e9r \u00fe\u00e1 a\u00f0 b\u00faa? Samansafni\u00f0 y\u00f0ur \u00fe\u00e1 og l\u00e1tum oss inndraga \u00ed \u00fe\u00e6r steku borgirnar og b\u00ed\u00f0a \u00fear eftir hj\u00e1lpinni \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 vor mun hj\u00e1lpa oss me\u00f0 beiskum drykk af \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r syndgunst so mj\u00f6g \u00e1 m\u00f3ti Drottni.&#8220; J\u00e1 treysti\u00f0 \u00fear upp \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli \u00f6ngva ney\u00f0 hafa sem \u00fear er \u00fe\u00f3 ekki neitt gott fyrir h\u00f6ndum og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 heilbrig\u00f0ir ver\u00f0a sem \u00fear er \u00fe\u00f3 ekki utan ska\u00f0semi fyrir h\u00f6ndum!<\/p>\n<p>\tMenn heyra \u00fea\u00f0 \u00feeirra hestar fr\u00fdsa n\u00fa \u00feegar \u00ed Dan og \u00feeirra v\u00edghestar hneggja svo \u00fea\u00f0 allt landi\u00f0 skelfur. \u00deeir koma \u00fear fram og munu upp \u00e9ta landi\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed e\u00f0 \u00fear er inni, borgina \u00e1samt me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim er \u00fear b\u00faa inni. \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil senda h\u00f6ggorma og basilicos \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar sem ekki eru s\u00e6r\u00f0ir, \u00feeir skulu stinga y\u00f0ur, segir Drottinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. xiiij.\">[<\/span> \u00de\u00e1 mun eg endurl\u00edfga mig af minni h\u00f6rmung og hjartans sorg.  <\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, d\u00f3tturin m\u00edns f\u00f3lks mun kalla hinga\u00f0 \u00far fjarl\u00e6gu landi hvort a\u00f0 Drottinn vilji ekki lengur vera Gu\u00f0 \u00fat \u00ed S\u00edon e\u00f0a skuli h\u00fan n\u00fa \u00f6ngvan konung hafa lengur? J\u00e1, hvar fyrir hafa \u00feeir gj\u00f6rt mig so rei\u00f0an fyrir s\u00ednar l\u00edkneskjur og \u00fe\u00e1 annarlegu \u00f3n\u00fdta gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu? Hausti\u00f0 er umli\u00f0i\u00f0 og sumari\u00f0 er \u00ed burtu og oss kemur engin hj\u00e1lp. Mig angrar \u00fea\u00f0 af hjarta a\u00f0 mitt f\u00f3lk er so fordjarfa\u00f0, eg grem mig \u00feess og eg ber mig illa. Hvert eru \u00fear engin smyrsl \u00ed G\u00edlea\u00f0 e\u00f0a er \u00fear enginn gr\u00e6\u00f0ari til? Hvar fyrir er ekki d\u00f3tturin m\u00edns f\u00f3lks \u00fe\u00e1 l\u00e6knu\u00f0?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. \u00dear fyrir seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra: So segir Drottinn: Hver er s\u00e1 sem a\u00f0 fellur a\u00f0 hann vildi ekki gjarnan upp aftur standa? Hver er s\u00e1 nokkur sem a\u00f0 villt fer a\u00f0 hann vilji ekki gjarnan komast \u00e1 \u00feann r\u00e9tta veginn aftur? En \u00feetta f\u00f3lk \u00ed Jer\u00fasalem vill \u00fe\u00f3 samt \u00e6t\u00ed\u00f0 og alla t\u00edma villt fara. \u00deeir halda so fast \u00e1 \u00feeirri falslegri gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustinni a\u00f0 \u00feeir vilja eigi l\u00e1ta sn\u00faa s\u00e9r \u00fear \u00ed fr\u00e1. Eg s\u00e9 og heyri a\u00f0 \u00feeir l\u00e6ra ekki neitt hva\u00f0 r\u00e9tt er, \u00fear er og s\u00e1 enginn sem a\u00f0 honum misl\u00edki s\u00edn illska og segi: <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3448","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3448","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3448"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3448\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3448"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}