{"id":3447,"date":"2017-12-18T18:33:40","date_gmt":"2017-12-18T18:33:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:40","slug":"jeremia-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-7-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fea\u00f0 or\u00f0 hvert a\u00f0 ske\u00f0i af Drottni til Jerem\u00eda, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. xvy. xxvi.\">[<\/span> Gakk \u00fe\u00fa \u00ed dyrnar \u00e1 h\u00fasinu Drottins og pr\u00e9dika \u00fear \u00feetta hi\u00f0 sama or\u00f0 og seg: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins, \u00fe\u00e9r allir af J\u00fada sem um \u00feessar dyr inngangi\u00f0 a\u00f0 tilbi\u00f0ja Drottin.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed so segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Betri\u00f0 y\u00f0varn lifna\u00f0 og ath\u00e6fi, \u00e1 vil eg byggja hj\u00e1 y\u00f0ur \u00ed \u00feessum sta\u00f0. Treysti\u00f0 ekki upp \u00e1 lygina \u00fe\u00e1 \u00feeir segja: <span class=\"athugasemd\" title=\"Templum Domini\">[<\/span> &#8222;H\u00e9r er musteri Drottins, h\u00e9r er musteri Drottins, h\u00e9r er musteri Drottins&#8220; heldur \u00fe\u00e1 yfirb\u00e6ti\u00f0 y\u00f0varn lifna\u00f0 og ath\u00e6fi so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 r\u00e9tt hver \u00f6\u00f0rum og \u00feeim \u00f3kenndum, f\u00f6\u00f0urlausum og ekkjum \u00fe\u00e1 gj\u00f6ri\u00f0 ekki neitt ofr\u00edki og \u00fathelli\u00f0 ekki neinu saklausu bl\u00f3\u00f0i \u00ed \u00feessum sta\u00f0. Og eftirfylgi\u00f0 ekki annarlegum gu\u00f0um til y\u00f0ars eiginlegs \u00f3bata. \u00de\u00e1 vil eg um aldir og \u00e6vinlega b\u00faa hj\u00e1 y\u00f0ur \u00ed \u00feessum sta\u00f0, \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem eg gaf y\u00f0ar forfe\u00f0rum.<\/p>\n<p>\tEn n\u00fa treysti \u00fe\u00e9r upp \u00e1 lygar sem engi gagnsemi er a\u00f0. \u00dear til me\u00f0 \u00fe\u00e1 eru \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3far og manndr\u00e1parar, h\u00f3rkallar, meins\u00e6rismenn og beri\u00f0 reykelsi Baal og eftirfylgi\u00f0 annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 ekki. \u00dear eftir \u00e1 \u00fe\u00e1 komi \u00fe\u00e9r og gangi\u00f0 fyrir mig \u00ed \u00feessu h\u00fasi sem a\u00f0 nefnt er eftir m\u00ednu nafni og segi\u00f0: &#8222;\u00dea\u00f0 hefur \u00f6ngva ney\u00f0 me\u00f0 oss af \u00fev\u00ed v\u00e9r gj\u00f6rum svoddan sv\u00edvir\u00f0ing.&#8220; Hvert haldi \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 \u00feetta h\u00fasi\u00f0 sem a\u00f0 nefnt er eftir m\u00ednu nafni fyrir eitt spillvirkjab\u00e6li? <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. ij. \/ Esa. lvi.\">[<\/span> Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg s\u00e9 \u00fea\u00f0 vel, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tGangi\u00f0 burt til m\u00edns sta\u00f0ar \u00ed S\u00edl\u00f3 \u00fear sem mitt nafn hefur \u00e1\u00f0ur b\u00fai\u00f0 og hyggi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 eg hefi \u00fear gj\u00f6rt fyrir illsku sakir m\u00edns f\u00f3lks \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00edl\u00f3 \/ Josue xviij. \/ I. Reg. iiij. \/ Jere. xxvi.\">[<\/span> En eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r fremji\u00f0 allir svoddan hluti, segir Drottinn, og eg l\u00e6t alla t\u00edma pr\u00e9dika fyrir y\u00f0ur og \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ekki heyra, eg kalla og \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 ekki andsvara, \u00fe\u00e1 vil eg gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00fasi\u00f0 sem nefnist eftir m\u00ednu nafni, \u00e1 hvert \u00fe\u00e9r treysti\u00f0, og vi\u00f0 \u00feann sta\u00f0inn sem eg gaf y\u00f0ar forfe\u00f0rum eins l\u00edka so sem eg gj\u00f6r\u00f0a vi\u00f0 S\u00edl\u00f3 og eg vil \u00ed burt kasta y\u00f0ur fr\u00e1 m\u00ednu augliti l\u00edka sem a\u00f0 eg hefi \u00ed burt kasta\u00f0 \u00f6llum y\u00f0ar br\u00e6\u00f0rum, \u00fev\u00ed gj\u00f6rv\u00f6llu s\u00e6\u00f0i Efra\u00edms. <\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00fa skalt ekki bi\u00f0ja fyrir \u00feessu f\u00f3lki og \u00fe\u00fa skalt ekki neina kveinstafi n\u00e9 b\u00e6nasta\u00f0 frammi hafa fyrir \u00fev\u00ed og ekki tj\u00e1 \u00feeirra m\u00e1l fyrir m\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 eg vil ekki b\u00e6nheyra \u00feig. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. xi. xiiij.\">[<\/span> \u00dev\u00ed s\u00e9r \u00fe\u00fa ekki hva\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ra \u00ed \u00feeim st\u00f6\u00f0unum J\u00fada og \u00e1 str\u00e6tunum til Jer\u00fasalem? B\u00f6rnin \u00feau lesa vi\u00f0inn til samans, \u00fe\u00e1 uppkveikja fe\u00f0urnir eldinn og konurnar hno\u00f0a deigi\u00f0 so a\u00f0 \u00fe\u00e6r baki brau\u00f0k\u00f6kuna \u00feeirri himnesku <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Meleket) \/ \u00dear me\u00f0 undirst\u00f6ndum v\u00e9r kraft e\u00f0ur verkan himinsins \/ Jere. xliiij.\">[<\/span> Meleket og gefa \u00feeim annarlegum gu\u00f0unum drykkjaroffri\u00f0 so a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ri m\u00e9r til meins. En \u00feeir skulu ekki m\u00e9r \u00fear me\u00f0 meinsemd gj\u00f6ra, segir Drottinn, heldur \u00feeim sj\u00e1lfum og \u00feeir hlj\u00f3ta til skammar a\u00f0 ver\u00f0a. \u00dear fyrir segir Drottinn: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, m\u00edn rei\u00f0i og m\u00edn grimmd er \u00fathellt yfir \u00feennan sta\u00f0, b\u00e6\u00f0i yfir menn og f\u00e9na\u00f0, yfir tr\u00e9n \u00ed sk\u00f3ginum og yfir \u00feann \u00e1v\u00f6xtinn landsins, og h\u00fan skal brenna so \u00fea\u00f0 enginn kunni \u00fat a\u00f0 sl\u00f6kkva.<\/p>\n<p>\tSo segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Leggi\u00f0 y\u00f0art brennioffur og a\u00f0rar f\u00f3rnir til samans og eti\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi hvorki sagt n\u00e9 bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ar forfe\u00f0rum af brennioffri e\u00f0ur \u00f6\u00f0rum f\u00f3rnf\u00e6ringum \u00e1 \u00feeim degi er eg \u00fatleidda \u00fe\u00e1 af Egyptalandi. En \u00feetta bau\u00f0 eg \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 m\u00ednu or\u00f0i, so vil eg vera y\u00f0ar Gu\u00f0 og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera mitt f\u00f3lk og gangi\u00f0 \u00e1 \u00f6llum \u00feeim vegum sem eg b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli vegna y\u00f0ur vel.&#8220; En \u00feeir vildu ekki heyra n\u00e9 s\u00edn eyru \u00fear a\u00f0 hneigja heldur gengu \u00feeir eftir s\u00ednu eigin r\u00e1\u00f0i og eftir \u00feeirra sj\u00e1lfs vondslegu hjartans hugbo\u00f0i og gengu so \u00e1 bak aftur en eigi \u00e1fram.<\/p>\n<p>\tJ\u00e1, \u00ed fr\u00e1 \u00feeim degi \u00fe\u00e1 eg \u00fatleidda fe\u00f0ur y\u00f0ra af Egyptalandi og allt til \u00feess dags \u00fe\u00e1 hef eg alla t\u00edma sent til y\u00f0ar alla m\u00edna \u00fej\u00f3nustumenn, \u00fe\u00e1 prophetana. En \u00feeir vilja ekki m\u00e9r heyra n\u00e9 s\u00edn eyru \u00fear til hneigja heldur eru \u00feeir har\u00f0sv\u00edra\u00f0ir og gj\u00f6ra verra en \u00feeirra forfe\u00f0ur gj\u00f6r\u00f0u. Og \u00fe\u00f3 e\u00f0 \u00fe\u00fa segir \u00feeim allt \u00feetta \u00fe\u00e1 heyra \u00feeir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki, kallir \u00fe\u00fa til \u00feeirra \u00fe\u00e1 svara \u00feeir \u00fe\u00f3 eigi. \u00dear fyrir seg \u00fe\u00fa svo til \u00feeirra: \u00deetta er \u00fea\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 sem ekki vill heyra Drottni Gu\u00f0i s\u00ednum n\u00e9 yfirb\u00e6ta sig. <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Tr\u00fain) \/ \u00dea\u00f0 er, s\u00e1 r\u00e9tti l\u00e6rd\u00f3mur er me\u00f0 \u00f6llu \u00ed burtu\">[<\/span> Tr\u00fain er \u00ed burtu horfin og \u00fatstlitin af \u00feeirra munni.<\/p>\n<p>\tRaka \u00fe\u00fa \u00feitt h\u00f6fu\u00f0h\u00e1r \u00ed burt og kasta \u00fev\u00ed fr\u00e1 \u00fe\u00e9r og kveina s\u00e1rgr\u00e6tilegana \u00e1 \u00feeim h\u00e6\u00f0unum \u00fev\u00ed a\u00f0 Drotinn hefur \u00feessu slekti (\u00e1 hv\u00f6rt hann er rei\u00f0ur) \u00ed burt kasta\u00f0 og \u00fatsk\u00fafa\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 b\u00f6rnin J\u00fada gj\u00f6ra illt fyrir m\u00ednu augliti, segir Drottinn. \u00deeir setja s\u00edna sv\u00edvir\u00f0ing inn \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00fasi\u00f0 sem a\u00f0 nefnt er eftir m\u00ednu nafni til a\u00f0 saurga \u00fea\u00f0 og \u00feeir byggja altari T\u00f3fet \u00ed Ben-Himmondal so a\u00f0 \u00feeir uppbrenni \u00fear s\u00edna syni og d\u00e6tur, hva\u00f0 eg hefi aldregi bo\u00f0i\u00f0 og eigi hefur m\u00e9r \u00fea\u00f0 til hugar komi\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, s\u00e1 t\u00edmi kemur, segir Drottinn, a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal ekki meir kallast T\u00f3fet og Ben-Hinn\u00f6mdalur heldur Mor\u00f0dalur og \u00fear skal grafi\u00f0 vera \u00ed T\u00f3fet af \u00fev\u00ed \u00fear mun ekki f\u00e1st annars sta\u00f0ar r\u00fam til. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ben-Hinnomdalur \/ Jere. xix.\">[<\/span> Og l\u00edkamar f\u00f3lks \u00feessa skulu ver\u00f0a fuglum loftsins og d\u00fdrum jar\u00f0arinnar a\u00f0 \u00e1tu og enginn skal \u00ed burt styggja \u00feau \u00fea\u00f0an. Og eg vil \u00ed st\u00f6\u00f0um J\u00fada og \u00e1 str\u00e6tunum til Jer\u00fasalem \u00ed burt taka \u00fea\u00f0 gle\u00f0innar og fagna\u00f0arhlj\u00f3\u00f0i\u00f0 og \u00fe\u00e1 raustina br\u00fa\u00f0gumans og br\u00fa\u00f0arinnar \u00fea\u00f0 landi\u00f0 skal \u00ed ey\u00f0i vera. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ezechi. xxvi.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma, segir Drottinn, munu \u00fatk\u00f6stu\u00f0 \u00feau beinin konunganna \u00ed J\u00fada, \u00feau beinin \u00feeirra h\u00f6f\u00f0ingjanna, \u00feau beinin \u00feeirra prestanna, \u00feau beinin \u00feeirra prophetann, \u00feau beinin \u00feeirra borgarmannanna til Jer\u00faalem, \u00ed burt \u00far \u00feeirra lei\u00f0um og \u00feeir munu \u00fatdreifa \u00feeim undir s\u00f3lina, tungli\u00f0 og allar himneskar hersveitir hverjar \u00feeir elsku\u00f0u, hverjum \u00feeir \u00fej\u00f3nu\u00f0u, eftirfylgdu, vitju\u00f0u og tilb\u00e1\u00f0u. Eigi skulu \u00feau samanlesast aftur og grafin vera heldur skulu \u00feau ver\u00f0a a\u00f0 saurindum jar\u00f0arinnar. Og allir \u00feeir sem eftir munu vera af \u00feessu f\u00f3lki \u00ed hverjum helst sta\u00f0 sem \u00feeir munu staddir vera \u00feanga\u00f0 sem eg hefi \u00fe\u00e1 \u00ed burt reki\u00f0 \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir heldur vilja vera dau\u00f0ir en lifandi, segir Drottinn Seba\u00f3t.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. \u00deetta er \u00fea\u00f0 or\u00f0 hvert a\u00f0 ske\u00f0i af Drottni til Jerem\u00eda, segjandi: [ Gakk \u00fe\u00fa \u00ed dyrnar \u00e1 h\u00fasinu Drottins og pr\u00e9dika \u00fear \u00feetta hi\u00f0 sama or\u00f0 og seg: Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins, \u00fe\u00e9r allir af J\u00fada sem um \u00feessar dyr inngangi\u00f0 a\u00f0 tilbi\u00f0ja Drottin. \u00dev\u00ed so segir Drottinn Seba\u00f3t, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Betri\u00f0 y\u00f0varn lifna\u00f0 og ath\u00e6fi, \u00e1 vil eg byggja hj\u00e1 y\u00f0ur \u00ed \u00feessum sta\u00f0. Treysti\u00f0 ekki upp \u00e1 lygina \u00fe\u00e1 \u00feeir segja: [ &#8222;H\u00e9r er musteri Drottins, h\u00e9r er musteri Drottins, h\u00e9r er musteri Drottins&#8220; heldur \u00fe\u00e1 yfirb\u00e6ti\u00f0 y\u00f0varn lifna\u00f0 og ath\u00e6fi so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 r\u00e9tt hver <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3447","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3447","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3447"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3447\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3447"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}