{"id":3443,"date":"2017-12-18T18:33:40","date_gmt":"2017-12-18T18:33:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:40","slug":"jeremia-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-3-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>Og Drottinn sag\u00f0i til m\u00edn \u00e1 d\u00f6gum k\u00f3ngsins J\u00f3s\u00eda: <span class=\"athugasemd\" title=\"Hann straffar sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkan\">[<\/span> Hefur \u00fe\u00fa og s\u00e9\u00f0 hva\u00f0 s\u00fa hin fr\u00e1horfna \u00cdsrael gj\u00f6r\u00f0i? H\u00fan gekk \u00ed burt upp \u00e1 allar hinar h\u00e6\u00f0stu h\u00e6\u00f0ir og undir \u00f6ll bl\u00f3mgu\u00f0 tr\u00e9 og dr\u00fdg\u00f0i \u00fear h\u00f3ranir. Og eg sag\u00f0a, \u00fe\u00e1 e\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i gj\u00f6rt allt \u00feetta: &#8222;Sn\u00fa \u00fe\u00e9r til m\u00edn&#8220; en h\u00fan sneri s\u00e9r ekki.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00f3tt a\u00f0 hennar hin forhar\u00f0na\u00f0a systir J\u00fada s\u00e6i hv\u00f6rsu a\u00f0 eg straffa\u00f0i \u00fe\u00e6r h\u00f3ranir hinnar fr\u00e1horfnu \u00cdsrael og \u00fea\u00f0 eg forl\u00e9t hana og gaf henni skilna\u00f0arskr\u00e1 \u00fe\u00f3 hr\u00e6ddist hennar hin forhar\u00f0na\u00f0a systir J\u00fada \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 heldur heldur gekk h\u00fan \u00ed burt og dr\u00fdg\u00f0i einnin l\u00edka h\u00f3ranir. Og \u00fat af hennar h\u00f3runarh\u00e1hlj\u00f3\u00f0an er landi\u00f0 saurga\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan dr\u00fdg\u00f0i h\u00f3ranir vi\u00f0 stokka og steina. Og \u00ed \u00f6llu \u00feessu \u00fe\u00e1 sneri s\u00e9r ekki hennar hin forhar\u00f0na\u00f0a systir J\u00fada til m\u00edn af \u00f6llu hjarta heldur voru \u00fea\u00f0 ekki utan l\u00e6ti hennar, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn sag\u00f0i til m\u00edn: Hin fr\u00e1horfna \u00cdsrael er betri en s\u00fa hin forhar\u00f0na\u00f0a J\u00fada. Far burt og pr\u00e9dika \u00ed m\u00f3t nor\u00f0rinu og seg so: Sn\u00fa \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa hin fr\u00e1horfna \u00cdsrael, segir Drottinn, \u00fe\u00e1 vil eg ekki l\u00e1ta m\u00edna rei\u00f0i koma yfir y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em miskunnsamur, segir Drottinn, og vil ekki rei\u00f0ast \u00e6vinlega. Vi\u00f0urkenn \u00fe\u00fa a\u00f0eins \u00feinn misgj\u00f6rning a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir syndgast \u00e1 m\u00f3ti Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum og hlaupi\u00f0 hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 til annarlegra afgu\u00f0a, undir \u00f6ll bl\u00f3mgu\u00f0 tr\u00e9, og \u00fe\u00fa hefur ekki vilja\u00f0 heyra m\u00edna raust, segir Drottinn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r hin fr\u00e1horfnu b\u00f6rn, sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur, segir Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 eg vil tr\u00falofa mig y\u00f0ur og eg vil s\u00e6kja y\u00f0ur so a\u00f0 einn skal lei\u00f0a heilan sta\u00f0 og tveir eitt gj\u00f6rvallt land og eg vil innlei\u00f0a y\u00f0ur til S\u00edon. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00c1minning til i\u00f0ranar yfirb\u00f3tar\">[<\/span> Og eg vil gefa y\u00f0ur hir\u00f0ara eftir m\u00ednu hjarta sem y\u00f0ur skulu f\u00e6\u00f0a me\u00f0 kenningum og v\u00edsd\u00f3mi. Og \u00fea\u00f0 skal ske \u00fe\u00e1 n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 uppvaxnir og margir vor\u00f0nir \u00ed landinu \u00fe\u00e1 skal \u00ed \u00feann t\u00edma (segir Drottinn) ekki meir sagt vera af s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rkinni Drottins og menn munu hana ekki meir huglei\u00f0a n\u00e9 \u00fear af pr\u00e9dika n\u00e9 hennar vitja og ekki lengur \u00fear f\u00f3rnir f\u00e6ra heldur \u00ed \u00feann sama t\u00edma \u00fe\u00e1 skal Jer\u00fasalem kallast tignars\u00e6ti\u00f0 Drottins og allar hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir skulu samansafna s\u00e9r \u00feanga\u00f0 til Jer\u00fasalem fyrir sakir \u00feess nafnsins Drottins. Og \u00feeir munu ekki lengur ganga eftir \u00feeirra sj\u00e1lfs vondum hjartans hugrenningum.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim t\u00edma mun h\u00fasi\u00f0 J\u00fada ganga til h\u00fassins \u00cdsrael og munu so koma hvert me\u00f0 \u00f6\u00f0ru af nor\u00f0rinu inn \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem eg gaf y\u00f0ar forfe\u00f0rum til arft\u00f6ku. Og eg tilsegi \u00fe\u00e9r hvernin vil eg gefa \u00fe\u00e9r svo m\u00f6rg b\u00f6rn og \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a landi\u00f0, \u00fe\u00e1 f\u00f6gru arfleif\u00f0ina sem er s\u00e1 fj\u00f6ldinn hei\u00f0ingjanna, og eg tilsegi \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt \u00fe\u00e1 kalla mig lj\u00fafan f\u00f6\u00f0ur og \u00ed burt v\u00edkja ekki fr\u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 h\u00fasi\u00f0 \u00cdsrael skeytir m\u00e9r ekki, l\u00edka sem s\u00fa kvinna sem ekki s\u00e6tir s\u00ednum \u00e1stmanni lengur, segir Drottinn. \u00dear fyrir munu menn heyra aumlega kveinan og s\u00e1ran gr\u00e1t \u00cdsraelessona \u00e1 \u00feeim upph\u00e6\u00f0unum fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u so illa og forgleymdu Drottni Gu\u00f0i s\u00ednum. So sn\u00faist n\u00fa aftur, \u00fe\u00e9r hin fr\u00e1horfnu b\u00f6rn, \u00fe\u00e1 vil eg og l\u00e6kna y\u00f0ur \u00fat af y\u00f0varri \u00f3hl\u00fd\u00f0ni.<\/p>\n<p>\t&#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, v\u00e9r komum til \u00fe\u00edn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert Drottinn Gu\u00f0 vor. Sannarlega, \u00fea\u00f0 er ekki utan svikr\u00e6\u00f0i me\u00f0 \u00fe\u00e6r h\u00e6\u00f0irnar og me\u00f0 \u00feau \u00f6ll h\u00e1fj\u00f6llin. Sannarlega \u00fe\u00e1 hefur \u00cdsrael \u00f6ngva hj\u00e1lp utan alleinasta af Drottni vorum Gu\u00f0i og \u00fea\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Erfi\u00f0i\u00f0) \/ \u00dea\u00f0 er, sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkan og \u00feeirra \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0 hvar upp \u00e1 \u00feeir erfi\u00f0u\u00f0u miki\u00f0\">[<\/span> erfi\u00f0i\u00f0 fe\u00f0ra vorra \u00fea\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum haldi\u00f0 \u00ed fr\u00e1 barnd\u00f3mi vorum \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur me\u00f0 vanvir\u00f0u af a\u00f0 leggjast \u00e1samt me\u00f0ur \u00feeirra sau\u00f0um, nautum, sonum og d\u00e6trum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 v\u00e9r vonu\u00f0um upp \u00e1 \u00fea\u00f0 er oss n\u00fa til skammarinnar einnrar og \u00e1 \u00fev\u00ed hverju v\u00e9r h\u00f6f\u00f0um vort traust \u00feess hlj\u00f3tum v\u00e9r n\u00fa a\u00f0 skammast vor. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r syndgu\u00f0ust \u00fear me\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti Drottni Gu\u00f0i vorum, b\u00e6\u00f0i v\u00e9r og vorir forfe\u00f0ur, \u00ed fr\u00e1 barnd\u00f3mi vorum allt inn til \u00feessa dags og hl\u00fdddum ekki raustinni Drottins Gu\u00f0s vors.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. Og Drottinn sag\u00f0i til m\u00edn \u00e1 d\u00f6gum k\u00f3ngsins J\u00f3s\u00eda: [ Hefur \u00fe\u00fa og s\u00e9\u00f0 hva\u00f0 s\u00fa hin fr\u00e1horfna \u00cdsrael gj\u00f6r\u00f0i? H\u00fan gekk \u00ed burt upp \u00e1 allar hinar h\u00e6\u00f0stu h\u00e6\u00f0ir og undir \u00f6ll bl\u00f3mgu\u00f0 tr\u00e9 og dr\u00fdg\u00f0i \u00fear h\u00f3ranir. Og eg sag\u00f0a, \u00fe\u00e1 e\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i gj\u00f6rt allt \u00feetta: &#8222;Sn\u00fa \u00fe\u00e9r til m\u00edn&#8220; en h\u00fan sneri s\u00e9r ekki. Og \u00fe\u00f3tt a\u00f0 hennar hin forhar\u00f0na\u00f0a systir J\u00fada s\u00e6i hv\u00f6rsu a\u00f0 eg straffa\u00f0i \u00fe\u00e6r h\u00f3ranir hinnar fr\u00e1horfnu \u00cdsrael og \u00fea\u00f0 eg forl\u00e9t hana og gaf henni skilna\u00f0arskr\u00e1 \u00fe\u00f3 hr\u00e6ddist hennar hin forhar\u00f0na\u00f0a systir J\u00fada \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 heldur heldur gekk h\u00fan <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jeremia-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3443","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3443","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3443"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3443\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3443"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}