{"id":3439,"date":"2017-12-18T18:33:40","date_gmt":"2017-12-18T18:33:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-65-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:40","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:40","slug":"jesaja-65-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-65-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 65. kafli"},"content":{"rendered":"<p>LXV.<\/p>\n<p>M\u00edn ver\u00f0ur leita\u00f0 af \u00feeim sem ekki spur\u00f0u eftir m\u00e9r, eg ver\u00f0 fundinn af \u00feeim sem ekki leitu\u00f0u a\u00f0 m\u00e9r og til \u00feeirra hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a sem ekki kalla mitt nafn segi eg: H\u00e9r em eg, h\u00e9r em eg. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg \u00fatr\u00e9tti m\u00ednar hendur allan daginn til eins \u00f3hl\u00fd\u00f0ugs f\u00f3lks hvert e\u00f0 gengur eftir s\u00ednum hugrenningum, \u00e1 \u00feeim veginum sem ekki er g\u00f3\u00f0ur. \u00dea\u00f0 f\u00f3lk sem mig til rei\u00f0i reitir er jafnan fyrir minni augs\u00fdn og byggir \u00ed hj\u00e1 dau\u00f0ra manna lei\u00f0um og halda sig \u00ed jar\u00f0hreysunum, eta sv\u00ednakj\u00f6t og hafa herfilegt jukk \u00ed s\u00ednum eldsg\u00f6gnum og segja so: &#8222;Vertu heima, \u00e1hr\u00e6r mig ekki \u00fea\u00f0 eg skal helga \u00feig.&#8220;<\/p>\n<p>\tSl\u00edkur skulu ver\u00f0a reykur \u00ed minni rei\u00f0i, s\u00e1 seldur sem allan daginn brennur. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fea\u00f0 stendur skrifa\u00f0 fyrir m\u00e9r, eg mun ei \u00feegja heldur endurgjalda, j\u00e1 eg mun gjalda \u00feeim \u00fea\u00f0 aftur \u00ed \u00feeirra eigin barm, b\u00e6\u00f0i \u00feeirra sj\u00e1lfs misgj\u00f6r\u00f0ir og so misgj\u00f6r\u00f0irnar fe\u00f0ra \u00feeirra, allar til samans, segir Drottinn, \u00feeirra sem upp \u00e1 fj\u00f6llunum hafa f\u00f3rnf\u00e6rt og mig hafa vanvirt upp \u00e1 h\u00e6\u00f0unum. Eg mun m\u00e6la \u00feeim \u00fea\u00f0 aftur \u00fea\u00f0 fyrra ath\u00e6fi\u00f0 \u00ed \u00feeirra eigin barm.\t<\/p>\n<p>\tSvo segir Drottinn: L\u00edka so sem \u00fe\u00e1 n\u00e6r e\u00f0 laugurinn finnst \u00ed v\u00ednberinu og sagt ver\u00f0ur: &#8222;Spreng \u00fea\u00f0 ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er blessan inni&#8220; svo mun eg og einnin l\u00edka gj\u00f6ra vegna minna \u00fej\u00f3nustumanna a\u00f0 eg fordjarfa \u00fea\u00f0 ekki allt saman heldur mun eg \u00fat af Jakob l\u00e1ta s\u00e6\u00f0i uppvaxa og \u00fat af J\u00fada \u00fea\u00f0 sem eignast mun mitt fjall. \u00dev\u00ed a\u00f0 m\u00ednir hinir \u00fatv\u00f6ldu skulu \u00fea\u00f0 erfa og m\u00ednir \u00fej\u00f3nustumenn skulu \u00fear byggja. Og Saron skal ver\u00f0a eitt hjar\u00f0arh\u00fas og s\u00e1 dalurinn Akor a\u00f0 fj\u00e1rskj\u00f3li m\u00ednu f\u00f3lki \u00feess sem m\u00edn leitar.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e9r hverjir e\u00f0 yfirgefi\u00f0 Drottin og forgleymi\u00f0 m\u00ednu heil\u00f6gu fjalli og tilrei\u00f0i\u00f0 \u00feeim Gaa\u00f0 matbor\u00f0 og skenki\u00f0 fullt \u00e1 \u00feeim Men\u00ed af drykkjaroffrinu \u0096 n\u00fa vel, eg mun telja y\u00f0ur til sver\u00f0sins so a\u00f0 \u00fe\u00e9r hlj\u00f3ti\u00f0 allir a\u00f0 beygja y\u00f0ur til sl\u00e1trunar. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 eg kalla\u00f0i og \u00fe\u00e9r g\u00e1fu\u00f0 ei svar og eg tala\u00f0i og \u00fe\u00e9r heyr\u00f0u\u00f0 ekki heldur gj\u00f6r\u00f0u\u00f0 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 m\u00e9r l\u00edka\u00f0i illa og \u00fatv\u00f6ldu\u00f0 \u00fea\u00f0 hva\u00f0 m\u00e9r mis\u00fe\u00f3kna\u00f0ist.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir segir Drottinn Drottinn so: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, m\u00ednir \u00fej\u00f3nar skulu eta en \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 hungra. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, m\u00ednir \u00fej\u00f3nar skulu gla\u00f0ir vera en \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 til skammar ver\u00f0a. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, m\u00ednir \u00fej\u00f3nar skulu drekka en \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 \u00feyrstir vera. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, m\u00ednir \u00fej\u00f3nar skulu af g\u00f3\u00f0u ge\u00f0i lofsyngja en \u00fe\u00e9r skuli\u00f0 af hjartans angri h\u00e1tt gr\u00e1ta og af vesaldar eymd \u00e6pa. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 l\u00e1ta y\u00f0vart nafn m\u00ednum \u00fatv\u00f6ldum eftir til a\u00f0 sverja vi\u00f0. Og Drottinn Drottinn mun svipta \u00feig l\u00edfinu og nefna s\u00edna \u00fej\u00f3na me\u00f0 \u00f6r\u00f0u nafni so \u00fea\u00f0 hver e\u00f0 sig mun blessa \u00e1 j\u00f6r\u00f0u s\u00e1 mun velsigna sig \u00ed \u00feeim sannarlegum Gu\u00f0i og hann hver e\u00f0 sverja mun \u00e1 j\u00f6r\u00f0u s\u00e1 mun sverja vi\u00f0 \u00feann sannarlega Gu\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r hinar fyrri \u00e1nau\u00f0irnar eru forgleymdar og eru byrg\u00f0ar fyrir m\u00ednum augum.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg mun skapa n\u00fdjan himin og j\u00f6r\u00f0 so a\u00f0 \u00fea\u00f0 hi\u00f0 fyrra skal ei lengur minnst vera n\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00ed hug koma. Heldur munu \u00feeir gle\u00f0ja sig el\u00edflegana og gla\u00f0ir vera yfir \u00fev\u00ed sem eg skapa. \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg mun gj\u00f6ra Jer\u00fasalem til una\u00f0semdar og hennar f\u00f3lk til fagna\u00f0ar og eg mun gla\u00f0ur vera yfir Jer\u00fasalem og gle\u00f0ja mig yfir m\u00ednu f\u00f3lki og \u00fear skal ekki lengur inni heyrt ver\u00f0a raustin gr\u00e1tursins n\u00e9 hlj\u00f3\u00f0in hrygg\u00f0arinnar. \u00dear skulu ekki meir \u00feau b\u00f6rn vera sem ekki \u00fatlifa s\u00edna \u00e6vi e\u00f0ur \u00feeir gamlir menn sem ekki fullkomna s\u00edna \u00e1rat\u00f6lu heldur skulu \u00feeir \u00e6skumenn dyeja sem eru hundra\u00f0 vetra og \u00feeir syndugir sem eru hundra\u00f0 \u00e1ra skulu b\u00f6lva\u00f0ir vera.<\/p>\n<p>\t\u00deeir munu h\u00fasin uppbyggja og \u00fear inni b\u00faa, \u00feeir munu planta v\u00edngar\u00f0a og eta \u00feeirra \u00e1v\u00f6xtu. \u00deeir skulu ekki uppbyggja sem annar skal \u00e1 b\u00faa og ekki \u00fea\u00f0 r\u00f3tsetja sem annar mun upp eta. \u00dev\u00ed a\u00f0 dagar m\u00edns f\u00f3lks skulu vera so sem dagarnir einnrar eikar og verkin \u00feeirra handa mun gamalt ver\u00f0a hj\u00e1 m\u00ednum \u00fatv\u00f6ldum. \u00deeir skulu ekki erfi\u00f0a forgefins n\u00e9 \u00f3t\u00edmab\u00e6ra bur\u00f0i f\u00e6\u00f0a. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru s\u00e6\u00f0i\u00f0 hinna blessu\u00f0u Drottins og \u00feeirra eftirkomendur me\u00f0 \u00feeim. Og \u00fea\u00f0 skal ske a\u00f0 fyrr en \u00feeir kalla \u00fe\u00e1 mun eg svara, \u00e1 me\u00f0an \u00feeir tala \u00fe\u00e1 mun eg heyra. \u00dalfurinn og lambi\u00f0 skulu til samans s\u00e9r f\u00e6\u00f0slu leita, le\u00f3ni\u00f0 mun gras b\u00edta sem naut og h\u00f6ggormurinn skal jar\u00f0ardufti\u00f0 \u00e9ta. \u00de\u00e1 mun ekki neitt ska\u00f0a n\u00e9 \u00feeim granda upp \u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli, segir Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>LXV. M\u00edn ver\u00f0ur leita\u00f0 af \u00feeim sem ekki spur\u00f0u eftir m\u00e9r, eg ver\u00f0 fundinn af \u00feeim sem ekki leitu\u00f0u a\u00f0 m\u00e9r og til \u00feeirra hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a sem ekki kalla mitt nafn segi eg: H\u00e9r em eg, h\u00e9r em eg. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg \u00fatr\u00e9tti m\u00ednar hendur allan daginn til eins \u00f3hl\u00fd\u00f0ugs f\u00f3lks hvert e\u00f0 gengur eftir s\u00ednum hugrenningum, \u00e1 \u00feeim veginum sem ekki er g\u00f3\u00f0ur. \u00dea\u00f0 f\u00f3lk sem mig til rei\u00f0i reitir er jafnan fyrir minni augs\u00fdn og byggir \u00ed hj\u00e1 dau\u00f0ra manna lei\u00f0um og halda sig \u00ed jar\u00f0hreysunum, eta sv\u00ednakj\u00f6t og hafa herfilegt jukk \u00ed s\u00ednum eldsg\u00f6gnum og segja so: <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-65-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3439","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3439","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3439"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3439\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3439"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}