{"id":3434,"date":"2017-12-18T18:33:36","date_gmt":"2017-12-18T18:33:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-60-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:36","slug":"jesaja-60-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-60-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 60. kafli"},"content":{"rendered":"<p>LX.<\/p>\n<p>Gj\u00f6r \u00feig rei\u00f0ub\u00fana, Jer\u00fasalem, og ver bj\u00f6rt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feitt lj\u00f3s kemur og d\u00fdr\u00f0 Drottins upprennur yfir \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sp\u00e1d\u00f3mur af r\u00edki Christi og lj\u00f3si heilags evangelii\">[<\/span> \u00dev\u00ed sj\u00e1 \u00fe\u00fa, myrkrin hylja j\u00f6r\u00f0ina og dimmu\u00feokan \u00fej\u00f3\u00f0irnar en yfir \u00fe\u00e9r upprennur Drottinn og hans d\u00fdr\u00f0 s\u00e9st yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tOg hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir munu ganga \u00ed \u00fe\u00ednu lj\u00f3si og k\u00f3ngarnir \u00ed \u00feeirri birtunni sem yfir \u00fe\u00e9r upprennur. Lyft upp \u00fe\u00ednum augum og l\u00edt umhverfis kringum \u00feig: \u00deessir allir samansafna\u00f0ir koma til \u00fe\u00edn. Synir \u00fe\u00ednir munu koma \u00far fjarl\u00e6g\u00f0 og d\u00e6tur \u00fe\u00ednar munu hj\u00e1 hli\u00f0inni uppf\u00f3strast. \u00de\u00e1 muntu sj\u00e1 \u00fe\u00edna lysting og \u00fatbrj\u00f3tast og \u00feitt hjarta mun undrast og <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ \u00datbrei\u00f0a) so sem \u00fe\u00e1 st\u00f3r vatsf\u00f6ll \u00fatbrei\u00f0ast \u00fe\u00e1 \u00feau eru mikil\">[<\/span> \u00fatbrei\u00f0a sig n\u00e6r e\u00f0 s\u00e1 m\u00fagafj\u00f6ldinn vi\u00f0 sj\u00f3inn mun sn\u00faast til \u00fe\u00edn og \u00fe\u00e1 e\u00f0 s\u00fa magtin hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a kemur til \u00fe\u00edn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. xlix.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 fj\u00f6ldinn \u00falfaldanna mun hylja \u00feig, \u00feeir hlauparar \u00far Madian og Efa, allir af Saba munu koma, f\u00e6randi gull og reykelsi og kunngj\u00f6randi lof Drottins. Allar hjar\u00f0ir \u00ed Kedar skulu til \u00fe\u00edn safna\u00f0ar ver\u00f0a og hr\u00fatarnir Nebaj\u00f3t skulu \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3na. \u00deeir skulu upp \u00e1 m\u00ednu \u00fe\u00e6gilegu altari offra\u00f0ir ver\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 eg mun pr\u00fd\u00f0a h\u00fasi\u00f0 minnar vegsemdar.<\/p>\n<p>\tHverjir eru \u00feeir e\u00f0 flj\u00faga sem sk\u00fdin og so sem d\u00fafurnar til sinna vindglugga? <span class=\"athugasemd\" title=\"Christi postular\">[<\/span> \u00de\u00e6r eyjarnar v\u00e6ntu m\u00edn og skipin sj\u00e1varins fyrir langri \u00e6vi so a\u00f0 \u00feeir f\u00e6ri hinga\u00f0 \u00fe\u00edn b\u00f6rn \u00far fjarl\u00e6g\u00f0 me\u00f0ur \u00feeirra gulli og silfri, nafninu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns og \u00feeim heilaga \u00ed \u00cdsrael sem \u00feig hefur vegsamlega gj\u00f6rt. Framandi munu uppbyggja \u00fe\u00edna m\u00farveggi og \u00feeirra k\u00f3ngar munu \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3na. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed minni rei\u00f0i hefi eg slegi\u00f0 \u00feig og \u00ed minni l\u00edknsemi em eg \u00fe\u00e9r miskunnsamur. Og \u00fe\u00ednar dyr skulu me\u00f0 jafna\u00f0i opnar standa og hverki um daga n\u00e9 n\u00e6tur afturl\u00e1tnar ver\u00f0a so \u00fea\u00f0 magtin hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a s\u00e9 til \u00fe\u00edn h\u00f6f\u00f0 og \u00fea\u00f0 \u00feeirra k\u00f3ngar ver\u00f0i hinga\u00f0 leiddir. \u00dev\u00ed a\u00f0 hverjar \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir e\u00f0ur \u00feau k\u00f3ngar\u00edki sem ekki vilja \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e1 skulu fyrirfarast og \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir foreyddar ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. xxxv.\">[<\/span> Fegur\u00f0in L\u00edbanons skal \u00ed \u00feig koma, greni\u00f0, beyki\u00f0, bosbumit, eitt me\u00f0 \u00f6\u00f0ru til a\u00f0 pr\u00fd\u00f0a \u00feann sta\u00f0inn m\u00edns helgid\u00f3ms. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg mun \u00feann sta\u00f0inn minna f\u00f3ta vegsamlegan gj\u00f6ra.<\/p>\n<p>\tSo l\u00edka einnin skulu \u00feeir bj\u00fagir til \u00fe\u00edn koma sem \u00fe\u00e9r hafa ni\u00f0ur\u00ferykkt og \u00feeir allir sem \u00feig hafa lasta\u00f0 munu krj\u00fapa til \u00feinna f\u00f3ta og munu kalla \u00feig borg Drottins, \u00fe\u00e1 S\u00edon Hins heilaga \u00ed \u00cdsrael. \u00dev\u00ed \u00fear fyrir a\u00f0 \u00fe\u00fa varst yfirgefin og a\u00f0 hatri h\u00f6f\u00f0 og \u00fear var enginn s\u00e1 a\u00f0 gengi um \u00feig \u00fe\u00e1 mun eg \u00feig a\u00f0 fegur\u00f0arskrauti gj\u00f6ra eil\u00edflegana og til fagna\u00f0argle\u00f0i um aldur og \u00e6vi so a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt mj\u00f3lkina \u00fatsj\u00faga af hei\u00f0num \u00fej\u00f3\u00f0um og k\u00f3nganna brj\u00f3st skulu \u00fe\u00e9r mj\u00f3lk gefa so a\u00f0 \u00fe\u00fa vitir \u00fea\u00f0 eg em Drottinn, \u00feinn frelsari, og eg s\u00e1 Hinn voldugi \u00ed Jakob s\u00e9 \u00feinn endurlausnari.<\/p>\n<p>\tEg mun l\u00e1ta koma gull \u00ed sta\u00f0inn l\u00e1t\u00fansins og silfur \u00ed sta\u00f0inn j\u00e1rnsins og messing \u00ed sta\u00f0inn tr\u00e9sins og j\u00e1rn \u00ed sta\u00f0inn grj\u00f3tsins. Og eg mun gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00ednir forstj\u00f3rar skulu fri\u00f0inn kenna og \u00fe\u00ednir fyrirsj\u00f3narmenn r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 pr\u00e9dika. \u00dear skulu engin rangindi lengur heyrast \u00ed \u00feinni landeign og engin ska\u00f0semd n\u00e9 fordj\u00f6rfun \u00ed \u00fe\u00ednum takm\u00f6rkum heldur skulu \u00fe\u00ednir m\u00farveggir hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i\u00f0 og \u00fe\u00ednar dyr forpr\u00eds kallast.<\/p>\n<p>\tS\u00f3lin skal ekki sk\u00edna \u00fe\u00e9r daginn lengur og birtan tunglsins skal ekki l\u00fdsa \u00fe\u00e9r heldur mun Drottinn sj\u00e1lfur vera \u00feitt eil\u00edft lj\u00f3s og \u00feinn Gu\u00f0 hann mun vera \u00fe\u00edn vegsemd. <span class=\"athugasemd\" title=\"Apoc. xxy.\">[<\/span> \u00de\u00edn s\u00f3l mun ekki meir undirganga n\u00e9 \u00feitt tungl birtuna missa \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun vera \u00feitt eil\u00edflegt lj\u00f3s og dagarnir \u00feinnar h\u00f6rmungar skulu einn enda hafa. Og \u00feitt f\u00f3lk skal allt vera r\u00e9ttfer\u00f0ugt og mun jar\u00f0r\u00edki\u00f0 eignast eil\u00edflegana svo sem a\u00f0alkvistir minnar r\u00f3tfestingar og verk minna handa, m\u00e9r til d\u00fdr\u00f0ar. \u00dat af \u00feeim minnsta skulu \u00fe\u00fasund ver\u00f0a og \u00fat af \u00feeim sm\u00e6stu eitt voldugt f\u00f3lk. Eg Drottinn mun sl\u00edku \u00e1 s\u00ednum t\u00edma snarleg til vegar koma.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>LX. Gj\u00f6r \u00feig rei\u00f0ub\u00fana, Jer\u00fasalem, og ver bj\u00f6rt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feitt lj\u00f3s kemur og d\u00fdr\u00f0 Drottins upprennur yfir \u00fe\u00e9r. [ \u00dev\u00ed sj\u00e1 \u00fe\u00fa, myrkrin hylja j\u00f6r\u00f0ina og dimmu\u00feokan \u00fej\u00f3\u00f0irnar en yfir \u00fe\u00e9r upprennur Drottinn og hans d\u00fdr\u00f0 s\u00e9st yfir \u00fe\u00e9r. Og hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir munu ganga \u00ed \u00fe\u00ednu lj\u00f3si og k\u00f3ngarnir \u00ed \u00feeirri birtunni sem yfir \u00fe\u00e9r upprennur. Lyft upp \u00fe\u00ednum augum og l\u00edt umhverfis kringum \u00feig: \u00deessir allir samansafna\u00f0ir koma til \u00fe\u00edn. Synir \u00fe\u00ednir munu koma \u00far fjarl\u00e6g\u00f0 og d\u00e6tur \u00fe\u00ednar munu hj\u00e1 hli\u00f0inni uppf\u00f3strast. \u00de\u00e1 muntu sj\u00e1 \u00fe\u00edna lysting og \u00fatbrj\u00f3tast og \u00feitt hjarta mun undrast og [ \u00fatbrei\u00f0a <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-60-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3434","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3434","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3434"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3434\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3434"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}