{"id":3414,"date":"2017-12-18T18:33:36","date_gmt":"2017-12-18T18:33:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-41-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:36","slug":"jesaja-41-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-41-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 41. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLI.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eyjarnar fyrir m\u00e9r \u00feegja og f\u00f3lki\u00f0 styrki sig. L\u00e1t \u00fe\u00e1 ganga h\u00e9r fram og tala n\u00fa og h\u00f6fum d\u00f3m til samans. Hver hefur hinn <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ R\u00e9ttfer\u00f0uga) \/ \u00dea\u00f0 er, Abraham \/ Gen. xy. xiiy.\">[<\/span> r\u00e9ttfer\u00f0uga \u00ed fr\u00e1 uppg\u00f6ngu s\u00f3larinnar uppvaki\u00f0? Hver kalla\u00f0i hann \u00fea\u00f0 hann gengi? Hver yfirgaf hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir og k\u00f3nga fyrir honum so a\u00f0 hann var\u00f0 \u00feeim yfirm\u00e1ttugur og gaf \u00fe\u00e1 hans sver\u00f0i l\u00edka sem jar\u00f0arduft og hans boga sem \u00ed burtfeykt grasstr\u00e1, so \u00fea\u00f0 hann veitti \u00feeim eftirf\u00f6r og dr\u00f3 \u00fear \u00ed gegnum me\u00f0 fri\u00f0i og hann m\u00e6ddist aldrei \u00e1 \u00feeim vegi? Hver verkar \u00feetta? Hver gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 og kallar alla menn, hvern eftir \u00f6\u00f0rum, \u00ed fr\u00e1 fyrsta upphafi? Eg, Drottinn, eg em hann, b\u00e6\u00f0i hinn fyrsti og s\u00ed\u00f0asti.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 e\u00f0 eyjarnar s\u00e1u \u00fea\u00f0 hr\u00e6ddust \u00fe\u00e6r og endim\u00f6rkin jar\u00f0arinnar skelfdust vi\u00f0 \u00fea\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hann spottar hei\u00f0ingja\">[<\/span> \u00deeir n\u00e1l\u00e6g\u00f0u sig og komu hinga\u00f0, hver einn hj\u00e1lpa\u00f0i \u00f6\u00f0rum og sag\u00f0i til s\u00edns n\u00e1unga: Vert me\u00f0 g\u00f3\u00f0u ge\u00f0i. Timburma\u00f0urinn t\u00f3k gullsmi\u00f0inn til s\u00edn og gj\u00f6r\u00f0i me\u00f0 hamrinum pj\u00e1tri\u00f0 sl\u00e9tt \u00e1 ste\u00f0janum og sag\u00f0i: \u00dea\u00f0 skal fara vel, og \u00feeir festu \u00fea\u00f0 me\u00f0 n\u00f6glum so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi ekki skeika.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, minn \u00fej\u00f3n, Jakob \u00feann eg hefi \u00fatvali\u00f0, \u00fe\u00fa s\u00e6\u00f0i\u00f0 Abrahams m\u00edns hins elskulega, eg sem \u00feig hefi styrkt allt fr\u00e1 veraldarinnar endim\u00f6rku og hefi kalla\u00f0 \u00feig \u00ed burt fr\u00e1 hennar <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Volduga) \/ \u00dea\u00f0 er, h\u00f6f\u00f0inginn Egyptalands\">[<\/span> voldugum og sag\u00f0i til \u00fe\u00edn: <span class=\"athugasemd\" title=\"Huggun\">[<\/span> \u00de\u00fa skalt minn \u00fej\u00f3n vera \u00fea\u00f0 eg \u00fatvel \u00feig og forlegg \u00feig ekki: \u00d3ttast ekki, eg em me\u00f0 \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Huggunarfyrirheit\">[<\/span> V\u00edktu ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em \u00feinn Gu\u00f0. Eg styrki \u00feig, eg hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r einnin, eg held \u00fe\u00e9r vi\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 h\u00e6gri h\u00f6ndina m\u00edns r\u00e9ttl\u00e6tis. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00feeir skulu til h\u00e1\u00f0ungar og til skammar ver\u00f0a, allir \u00feeir sem \u00fe\u00e9r eru rei\u00f0ir, \u00feeir skulu a\u00f0 \u00f6ngu ver\u00f0a. Og \u00feeir menn sem deila \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r skulu fyrirfarast so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir spyrja eftir \u00feeim og muntu ekki \u00fe\u00e1 finna. \u00deeir menn sem \u00fer\u00e6ta vi\u00f0 \u00feig skulu ver\u00f0a sem ekki neitt pari\u00f0 og \u00feeir sem str\u00ed\u00f0a \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r skulu hafa einn enda. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg em Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn sem styrkir \u00fe\u00edna h\u00e6gri h\u00f6nd og til \u00fe\u00edn segir: \u00d3ttast ekki, eg hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tVert ei hr\u00e6ddur, \u00fe\u00fa ma\u00f0kurinn Jakob, \u00fe\u00fa f\u00e1t\u00e6kur flokkur \u00cdsrael! <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00edki\u00f0 Christi\">[<\/span> Eg hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r, segir Drottinn, og \u00feinn frelsari s\u00e1 heilagi \u00cdsrael. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa a\u00f0 eg hefi gj\u00f6rt \u00feig a\u00f0 hv\u00f6ssum n\u00fdjum \u00fereskivagni sem agn\u00faa hefur so a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt fj\u00f6llin \u00ed sundur\u00fereskja og \u00ed sm\u00e1tt mola og h\u00e6\u00f0irnar gj\u00f6ra sem agnir. \u00de\u00fa skalt \u00ed sundurdreifa \u00feeim so a\u00f0 vindurinn bl\u00e1si \u00feeim \u00ed burt og hvirfilvindurinn feyki \u00feeim h\u00e9\u00f0an. En \u00fe\u00fa munt gla\u00f0v\u00e6r vera \u00ed Drottni og munt hr\u00f3sa \u00fe\u00e9r Hins heilaga \u00ed \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tF\u00e1t\u00e6kir og vola\u00f0ir leita a\u00f0 vatni og \u00fear er ekki neitt, \u00feeirra tunga \u00feornar upp af \u00feorsta. En eg, Drottinn, vil b\u00e6nheyra \u00fe\u00e1, eg Gu\u00f0 \u00cdsraels vil ekki yfirgefa \u00fe\u00e1 heldur vil eg vatnsr\u00e1sir opna \u00e1 h\u00e6\u00f0um uppi og vatnsbrunna \u00e1 mi\u00f0ju sl\u00e9ttlendinu. Eg mun gj\u00f6ra ey\u00f0im\u00f6rkina a\u00f0 st\u00f6\u00f0uv\u00f6tnum og \u00feurrlendi\u00f0 a\u00f0 uppsprettubrunnum, eg mun gefa \u00ed \u00f3bygg\u00f0inni sedrusvi\u00f0, furu, myrru og ol\u00edutr\u00e9, eg mun gefa \u00e1 sl\u00e9ttlendinu grenitr\u00e9n, beykivi\u00f0inn og bosbumi hvert me\u00f0 \u00f6\u00f0ru so a\u00f0 \u00feeir til l\u00edka sj\u00e1i, viti, formerki og skilji \u00fea\u00f0 a\u00f0 h\u00f6nd Drottins hafi \u00fev\u00edl\u00edkt gj\u00f6rt og s\u00e1 Hinn heilagi \u00ed \u00cdsrael hafi skapa\u00f0 sl\u00edkt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Myrru\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo l\u00e1ti\u00f0 y\u00f0var m\u00e1lefni hinga\u00f0 koma, segir Drottinn. Hafi\u00f0 \u00fea\u00f0 hinga\u00f0 hvar \u00fe\u00e9r stnadi\u00f0 upp \u00e1, segir s\u00e1 k\u00f3ngurinn \u00ed Jakob. L\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 h\u00e9r fram ganga og kunngj\u00f6ra \u00fea\u00f0 fyrir oss hva\u00f0 eftirkomandi er, kunngj\u00f6ri\u00f0 oss og sp\u00e1i\u00f0 eitthva\u00f0 fyrir. L\u00e1ti\u00f0 oss me\u00f0 vorum hj\u00f6rtum hafa \u00fear vakt upp \u00e1 og formerkja hvernin \u00fea\u00f0 skal h\u00e9r seinna meir til ganga e\u00f0ur l\u00e1ti\u00f0 oss heyra hva\u00f0 eftirkomandi er. Kunngj\u00f6ri\u00f0 oss \u00fea\u00f0 hva\u00f0 h\u00e9r eftir \u00e1 koma mun, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r formerkja \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 gu\u00f0ir. Gj\u00f6ri\u00f0 anna\u00f0 hvort gott e\u00f0ur ska\u00f0semi, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r segja \u00fear \u00fat af og sj\u00e1 til samans ypp \u00e1 \u00fea\u00f0. Sj\u00e1i\u00f0, \u00fe\u00e9r eru\u00f0 \u00fat af \u00f6ngu og y\u00f0var gj\u00f6rningur er og af \u00f6ngu og a\u00f0 \u00fatvelja y\u00f0ur er andstyggilegt.<\/p>\n<p>\tEn eg uppvek einn \u00fat af nor\u00f0rinu og kemur af uppg\u00f6ngu s\u00f3larinnar. Hann mun \u00ed m\u00ednu nafni pr\u00e9dika og hann mun ganga yfir hina voldugu sem yfir annan jar\u00f0arleir og hann mun ni\u00f0urtro\u00f0a \u00feann saurinn l\u00edka sem annar leirkerasmi\u00f0ur. Hver kann nokku\u00f0 a\u00f0 kunngj\u00f6ra \u00fat af upphafinu, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r skilja \u00fea\u00f0, e\u00f0ur sp\u00e1 fyrir fram, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r segja: \u00de\u00fa segir r\u00e9tt. En \u00fear er s\u00e1 enginn e\u00f0 kunngj\u00f6rir og eigi s\u00e1 neinn sem n\u00f6kku\u00f0 l\u00e6tur heyra. Eg em fyrstur sem til S\u00edon segir: Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fea\u00f0 sama er \u00fea\u00f0, og eg gef Jer\u00fasalem pr\u00e9dikara. En eg l\u00edt \u00feanga\u00f0 og \u00fear er enginn og eg s\u00e1 \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra en \u00fear er enginn r\u00e1\u00f0gjafari. Eg a\u00f0 spyr \u00feeirra gj\u00f6rningum en \u00feeir andsvara \u00f6ngu. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fea\u00f0 er allt saman ekki utan arm\u00e6\u00f0i og \u00f6ngu neytt me\u00f0 \u00feeirra gj\u00f6rningum, \u00feeirra afgu\u00f0ir eru vindur og h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLI. \u00dea\u00f0 eyjarnar fyrir m\u00e9r \u00feegja og f\u00f3lki\u00f0 styrki sig. L\u00e1t \u00fe\u00e1 ganga h\u00e9r fram og tala n\u00fa og h\u00f6fum d\u00f3m til samans. Hver hefur hinn [ r\u00e9ttfer\u00f0uga \u00ed fr\u00e1 uppg\u00f6ngu s\u00f3larinnar uppvaki\u00f0? Hver kalla\u00f0i hann \u00fea\u00f0 hann gengi? Hver yfirgaf hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir og k\u00f3nga fyrir honum so a\u00f0 hann var\u00f0 \u00feeim yfirm\u00e1ttugur og gaf \u00fe\u00e1 hans sver\u00f0i l\u00edka sem jar\u00f0arduft og hans boga sem \u00ed burtfeykt grasstr\u00e1, so \u00fea\u00f0 hann veitti \u00feeim eftirf\u00f6r og dr\u00f3 \u00fear \u00ed gegnum me\u00f0 fri\u00f0i og hann m\u00e6ddist aldrei \u00e1 \u00feeim vegi? Hver verkar \u00feetta? Hver gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 og kallar alla menn, hvern eftir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-41-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3414","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3414","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3414"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3414\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3414"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}