{"id":3386,"date":"2017-12-18T18:33:29","date_gmt":"2017-12-18T18:33:29","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:29","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:29","slug":"jesaja-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-13-kafli\/","title":{"rendered":"Jesaja 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>\u00deessi er byr\u00f0ar\u00feunginn yfir Bab\u00fdlon hvern Esaias sonur Amos hefir s\u00e9\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"Bab\u00fdlon \/ Jerem. lii. \/ Sp\u00e1d\u00f3mur \u00fat af hefndarstraffi \u00fev\u00ed sem koma skyldi yfir hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir\">[<\/span> Setji\u00f0 merki\u00f0 upp \u00e1 h\u00e1fj\u00f6llunum. Kalli\u00f0 fast \u00ed m\u00f3ti henni, sl\u00e1i\u00f0 upp hendinni, l\u00e1ti\u00f0 inndraga um hli\u00f0in h\u00f6f\u00f0ingjana. Eg hefi m\u00ednum heil\u00f6gum bo\u00f0i\u00f0 og m\u00edna \u00f6fluga kalla\u00f0 til minnar rei\u00f0i, \u00feeir e\u00f0 gla\u00f0v\u00e6rir eru \u00ed minni vegsemd. \u00dear er eitt kall mikils fj\u00f6lda \u00e1 fj\u00f6llunum, l\u00edka sem v\u00e6ri \u00fear gr\u00faa f\u00f3lk, eitt kall l\u00edka sem mikillar styrj\u00f6ldar \u00fear e\u00f0 samans\u00f6fnu\u00f0 eru k\u00f3ngar\u00edkin \u00fej\u00f3\u00f0anna. Drottinn Seba\u00f3t b\u00fdr einn her \u00fat til bardaga hver e\u00f0 \u00fat af fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum mun koma \u00ed fr\u00e1 y\u00f0sta enda heimsins, j\u00e1 Drottinn sj\u00e1lfur me\u00f0ur kerum sinnar rei\u00f0i til a\u00f0 fordjarfa allt landi\u00f0.<\/p>\n<p>\tKveini\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 dagur Drottins er n\u00e1l\u00e6gur, hann kemur l\u00edka sem forey\u00f0sla af Hinum alm\u00e1ttuga. \u00dear fyrir tregast upp allra hendur og allra manna hj\u00f6rtu munu huglaus vera. Skelfing, angist og harmkv\u00e6li mun yfir \u00fe\u00e1 koma, \u00feeir munu hugsj\u00fakir vera l\u00edka sem h\u00fan e\u00f0 f\u00e6\u00f0a skal, hver \u00feeirra mun hr\u00e6\u00f0ast annan, \u00feeirra andlit mun svo rau\u00f0 ver\u00f0a sem eldur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Job ix. \/ Amos v.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, dagur Drottins kemur, \u00f3gurlegur, rei\u00f0uglegur og grimmlegur til a\u00f0 forey\u00f0a landi\u00f0 og a\u00f0 afm\u00e1 hina syndugu \u00fat \u00fea\u00f0an, \u00fea\u00f0 stj\u00f6rnur himins og s\u00e1 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ \u00d3r\u00edon) er Sydus, \u00fea\u00f0 er eitt stj\u00f6rnumerki. Af \u00fev\u00ed eru \u00fe\u00e6r stj\u00f6rnur er menn kalla fiskikall\">[<\/span> \u00d3r\u00edon sk\u00edn ei sk\u00e6rt, s\u00f3lin gengur myrk upp og tungli\u00f0 hefur ekki sitt lj\u00f3s. Eg vil \u00feeirrar jar\u00f0arkringlunnar vitja vegna sinnar illgirni og \u00feeirra \u00f3gu\u00f0legu fyrir sinnar mannillsku sakir og eg vil einn enda gj\u00f6ra metna\u00f0arins hinna r\u00edkil\u00e1tra og drambl\u00e6ti\u00f0 hinna voldugra ni\u00f0url\u00e6gja so \u00fea\u00f0 einn karlma\u00f0ur skal d\u00fdrkeyptari vera heldur en kostulegt gull og einn ma\u00f0ur meira <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ ver\u00f0ur) \u00fea\u00f0 er so mikil f\u00e6\u00f0a mun vera \u00e1 m\u00f6nnum \u00ed landinu so sem \u00e1 gulli\">[<\/span> ver\u00f0ur en eitt stykki gulls \u00fat af \u00d3f\u00edr.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir vil eg himininn skelfa so \u00fea\u00f0 j\u00f6r\u00f0in skal \u00far s\u00ednum sta\u00f0 hr\u00e6rast, af \u00feeirri grimmdarbr\u00e6\u00f0i Drottins Seba\u00f3t og fyrir \u00feeim deginum hans rei\u00f0i. Og h\u00fan skal vera sem ein j\u00f6gu\u00f0 sk\u00f3gargeit og sem \u00feeir sau\u00f0ir e\u00f0 \u00f6ngvan hafa hir\u00f0ir so \u00fea\u00f0 hver einn sn\u00fai aftur til s\u00edns f\u00f3lks og \u00fea\u00f0 hver einn fl\u00fdi aftur \u00ed sitt land. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 hver sem \u00fear finnst mun \u00ed hel sleginn ver\u00f0a og hver hann er \u00fear \u00ed hj\u00e1 s\u00e1 mun fyrir sver\u00f0i falla. \u00deeirra b\u00f6rn skulu einin \u00feeim \u00e1sj\u00e1andi sundurmarinn ver\u00f0a, \u00feeirra heimili r\u00e6nt og \u00feeirra kvinnur skamma\u00f0ar. \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg vil \u00fear \u00far Medi uppvekja yfir \u00feeim hverjir a\u00f0 \u00f6ngu silfri leita n\u00e9 eftir neinu gulli spyrja heldur \u00feeirra yngismenn me\u00f0 skeytum \u00ed hel a\u00f0 skj\u00f3ta og vi\u00f0ur \u00feeirra l\u00edfs\u00e1vexti miskunnarlausir a\u00f0 vera og \u00feeirra ungb\u00f6rnum \u00f6ngum a\u00f0 v\u00e6gja.<\/p>\n<p>\t\u00deannin skal Bab\u00fdlon, hin fegursta me\u00f0al k\u00f3ngar\u00edkjanna, hin d\u00fdr\u00f0lega veldistignin \u00ed Kaldea, umturnu\u00f0 ver\u00f0a af Drottni, l\u00edka so sem S\u00f3d\u00f3ma og G\u00f3morra, so a\u00f0 \u00fear skal ei lengur b\u00fai\u00f0 vera n\u00e9 n\u00f6kkur \u00fear bl\u00edfa a\u00f0 eil\u00edfu so \u00fea\u00f0 einnin \u00feeir \u00far Arabia gj\u00f6ri \u00fear engin h\u00fas og \u00f6ngvir hjar\u00f0argeymslumenn hafi \u00fear nein hreysi, heldur munu <span class=\"athugasemd\" title=\"d \/ S\u00edh\u00edm) allra handa villufuglar\">[<\/span> s\u00edh\u00edm hrei\u00f0ra sig \u00fear og \u00feeirra h\u00fas af <span class=\"athugasemd\" title=\"e \/ \u00d3h\u00edm) eru allsh\u00e1ttu\u00f0 d\u00fdr og kvikindi \u00feau sem eru ferf\u00e6tt\">[<\/span> \u00f3h\u00edm full vera og str\u00fassfuglar munu \u00fear byggja og draugar munu \u00fear dansa og n\u00e1ttuglur munu syngja \u00ed \u00feeirra herbergjum og eiturdrekar \u00ed \u00feeirra lystilegum loftst\u00f6fum. \u00deeirra t\u00edmi mun a\u00f0 mestu kominn og \u00feeirra dagar skulu ekki undandraga.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun Jakob miskunnsamur vera og \u00cdsrael enn n\u00fa framvegis \u00fatvelja og \u00fe\u00e1 innsetja \u00ed \u00feeirra land og hinir framandi munu n\u00e1l\u00e6gja sig til \u00feeirra og samtengja sig \u00fev\u00ed h\u00fasi Jakobs. Og f\u00f3lki\u00f0 mun halda me\u00f0 \u00feeim og f\u00e6ra \u00fe\u00e1 til sinna sta\u00f0a so \u00fea\u00f0 h\u00fas \u00cdsrael mun eignast \u00fe\u00e1 \u00ed landi Drottins s\u00e9r til \u00fer\u00e6la og amb\u00e1tta og munu \u00fe\u00e1 hertekna halda af hverjum e\u00f0 \u00feeir herteknir voru og drottna yfir \u00feeim sem \u00fe\u00e1 \u00fej\u00e1\u00f0u.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. \u00deessi er byr\u00f0ar\u00feunginn yfir Bab\u00fdlon hvern Esaias sonur Amos hefir s\u00e9\u00f0: [ Setji\u00f0 merki\u00f0 upp \u00e1 h\u00e1fj\u00f6llunum. Kalli\u00f0 fast \u00ed m\u00f3ti henni, sl\u00e1i\u00f0 upp hendinni, l\u00e1ti\u00f0 inndraga um hli\u00f0in h\u00f6f\u00f0ingjana. Eg hefi m\u00ednum heil\u00f6gum bo\u00f0i\u00f0 og m\u00edna \u00f6fluga kalla\u00f0 til minnar rei\u00f0i, \u00feeir e\u00f0 gla\u00f0v\u00e6rir eru \u00ed minni vegsemd. \u00dear er eitt kall mikils fj\u00f6lda \u00e1 fj\u00f6llunum, l\u00edka sem v\u00e6ri \u00fear gr\u00faa f\u00f3lk, eitt kall l\u00edka sem mikillar styrj\u00f6ldar \u00fear e\u00f0 samans\u00f6fnu\u00f0 eru k\u00f3ngar\u00edkin \u00fej\u00f3\u00f0anna. Drottinn Seba\u00f3t b\u00fdr einn her \u00fat til bardaga hver e\u00f0 \u00fat af fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum mun koma \u00ed fr\u00e1 y\u00f0sta enda heimsins, j\u00e1 Drottinn sj\u00e1lfur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jesaja-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3386","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3386","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3386"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3386\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3386"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}