{"id":3360,"date":"2017-12-18T18:33:26","date_gmt":"2017-12-18T18:33:26","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:26","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:26","slug":"predikarinn-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-7-kafli\/","title":{"rendered":"Pr\u00e9dikarinn 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>Hver veit hva\u00f0 manninum er nytsamlegt \u00ed l\u00edfinu svo lengi sem hann lifir \u00ed s\u00ednum h\u00e9g\u00f3ma, hva\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00ed burtu hverfur sem einn skuggi? E\u00f0a hver kann a\u00f0 segja nokkrum manni hva\u00f0 eftir hans daga mun koma undir s\u00f3lunni?<\/p>\n<p>\tEitt gott rykti er betra en g\u00f3\u00f0 smyrsl og dau\u00f0ans dagur er betri f\u00e6\u00f0ingardegi. \u00dea\u00f0 er betra a\u00f0 ganga \u00ed sorgarh\u00fas en \u00ed drykkjuh\u00fas, \u00ed hinu er allra manna endatekt og hinir lif\u00f6ndu setja \u00fea\u00f0 s\u00e9r \u00ed hjarta. Betri er hrygg\u00f0 en hl\u00e1tur \u00fev\u00ed a\u00f0 hjarta\u00f0 forbetrast vi\u00f0 hrygg\u00f0ina. Vitra manna hj\u00f6rtu eru \u00ed sorgarh\u00fasi en f\u00e1v\u00edsra hj\u00f6rtu \u00ed gle\u00f0ih\u00fasi. Betra er a\u00f0 heyra \u00e1v\u00edtan hins hyggna heldur en lofs\u00f6ng ins heimska. \u00dev\u00ed a\u00f0 f\u00e1v\u00edss manns hl\u00e1tur er l\u00edka sem \u00fe\u00e1 \u00feyrnir brestur \u00ed eldi undir katli. Og \u00fea\u00f0 er og svo h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n<p>\tEinn \u00feverbrotinn gj\u00f6rir hygginn mann \u00f3viljugan og fordjarfar gjafmilt hjarta. Endir \u00e1 einum hlut er betri en upphafi\u00f0. \u00deolinm\u00e6\u00f0i er betri en metna\u00f0arandi. Ver ekki flj\u00f3tur \u00ed \u00fe\u00ednu sinni a\u00f0 ver\u00f0a rei\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 rei\u00f0in hv\u00edlist \u00ed hjarta f\u00e1v\u00edsra. Seg \u00fe\u00fa ekki: Hva\u00f0 veldur a\u00f0 \u00feeir li\u00f0nu dagar eru betri en \u00feessir? \u00dev\u00ed svoddan er ei vitmannleg spurn. Viskan er g\u00f3\u00f0 me\u00f0 erf\u00f0ag\u00f3ssinu og hj\u00e1lpar til a\u00f0 einn kann gle\u00f0ja sig af s\u00f3lunni. \u00dev\u00ed a\u00f0 svo sem viskan verndar svo vernda au\u00f0\u00e6fin en viskan gefur l\u00edfi\u00f0 \u00feeim hana hefur. Huglei\u00f0 \u00fe\u00fa Gu\u00f0s gj\u00f6rninga \u00fev\u00ed hver kann a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 r\u00e9tt sem hann gj\u00f6rir bogi\u00f0? Gj\u00f6r \u00feig gla\u00f0an \u00e1 \u00f6llum \u00fe\u00ednum gle\u00f0id\u00f6gum og tak \u00fe\u00e1 hina vondu daga og til \u00feakka. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 skikkar \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0a hvern me\u00f0 \u00f6\u00f0rum svo ma\u00f0urinn skal ekki vita af \u00fev\u00ed hva\u00f0 eftir hann mun ske.<\/p>\n<p>\tAllsh\u00e1tta\u00f0 hefi eg s\u00e9\u00f0 \u00ed minni h\u00e9g\u00f3mat\u00ed\u00f0. \u00dear til var einn r\u00e9ttl\u00e1tur og fyrirf\u00f3rst \u00ed s\u00ednu r\u00e9ttl\u00e6ti og \u00fear var einn \u00f3gu\u00f0legur hver lengi lif\u00f0i \u00ed sinni illsku. Vertu eigi of r\u00e9ttl\u00e1tur og eigi of v\u00eds svo \u00fe\u00fa fordjarfir \u00feig ekki. Vert ekki of mj\u00f6g \u00f3gu\u00f0legur e\u00f0a svo mj\u00f6g heimskur so a\u00f0 \u00fe\u00fa deyir \u00ed \u00f3t\u00edma. Gott er \u00fe\u00e9r a\u00f0 h\u00f6ndla \u00feetta en l\u00e1t hitt anna\u00f0 \u00fe\u00f3 eigi sleppa \u00fe\u00e9r \u00far hendi \u00fev\u00ed hver e\u00f0 \u00f3ttast Gu\u00f0 s\u00e1 umfl\u00fdr \u00feetta allt.<\/p>\n<p>\tV\u00edsd\u00f3murinn styrkir \u00feann hyggna meir en t\u00edu voldugir \u00ed sta\u00f0num. Enginn ma\u00f0ur \u00e1 jar\u00f0r\u00edki er so r\u00e9ttl\u00e1tur a\u00f0 hann syndgist ekki. Legg ekki \u00e1 hjarta\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sagt er so a\u00f0 \u00feinn \u00fej\u00f3n b\u00f6lvi \u00fe\u00e9r ekki. \u00dev\u00ed \u00feitt hjarta veit a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur oft \u00f6\u00f0rum b\u00f6lva\u00f0.<\/p>\n<p>\tAllt svoddan hef eg me\u00f0 visku reynt. Eg sag\u00f0a: Eg vil ver\u00f0a hygginn, en h\u00fan fyrtist mig. H\u00fan er langt \u00ed burt, hva\u00f0 skal \u00fea\u00f0 ver\u00f0a? Og er mj\u00f6g dj\u00fapt ni\u00f0ur, hver vill hana finna?<\/p>\n<p>\tEg snera m\u00ednu hjarta til a\u00f0 rannsaka og a\u00f0 spyrja og a\u00f0 leita eftir v\u00edsd\u00f3mi og listum og a\u00f0 reyna heimsku \u00f3gu\u00f0hr\u00e6ddra og villur \u00feeirra f\u00e1v\u00edsu. Og eg fann a\u00f0 svoddan ein kvinna var beiskari en dau\u00f0inn hverrar hjarta b\u00e6\u00f0i var net og snara og hennar hendur sem eitt band. Hver Gu\u00f0i \u00fe\u00f3knast s\u00e1 kemur fr\u00e1 henni en s\u00e1 hinn syndugi skal fanginn ver\u00f0a af henni.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fev\u00edl\u00edkt hefi eg fundi\u00f0, segir pr\u00e9dikarinn, eitt eftir anna\u00f0 svo eg m\u00e6tta nema kunn\u00e1ttu. Og m\u00edn s\u00e1la leitar enn og hefur ekki fundi\u00f0. \u00c1 me\u00f0al \u00fe\u00fasunda fann eg einn mann en \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra allra fann eg \u00f6ngva kvinnu. En sj\u00e1 \u00fe\u00fa a\u00f0eins, \u00fea\u00f0 hefi eg fundi\u00f0 a\u00f0 Gu\u00f0 skapti manninn r\u00e9ttan en \u00feeir leita mikillar kunn\u00e1ttu. Hver er svo hygginn og hver kann a\u00f0 \u00fatleggja \u00fea\u00f0?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. Hver veit hva\u00f0 manninum er nytsamlegt \u00ed l\u00edfinu svo lengi sem hann lifir \u00ed s\u00ednum h\u00e9g\u00f3ma, hva\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00ed burtu hverfur sem einn skuggi? E\u00f0a hver kann a\u00f0 segja nokkrum manni hva\u00f0 eftir hans daga mun koma undir s\u00f3lunni? Eitt gott rykti er betra en g\u00f3\u00f0 smyrsl og dau\u00f0ans dagur er betri f\u00e6\u00f0ingardegi. \u00dea\u00f0 er betra a\u00f0 ganga \u00ed sorgarh\u00fas en \u00ed drykkjuh\u00fas, \u00ed hinu er allra manna endatekt og hinir lif\u00f6ndu setja \u00fea\u00f0 s\u00e9r \u00ed hjarta. Betri er hrygg\u00f0 en hl\u00e1tur \u00fev\u00ed a\u00f0 hjarta\u00f0 forbetrast vi\u00f0 hrygg\u00f0ina. Vitra manna hj\u00f6rtu eru \u00ed sorgarh\u00fasi en f\u00e1v\u00edsra hj\u00f6rtu \u00ed gle\u00f0ih\u00fasi. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3360","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3360","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3360"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3360\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3360"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}