{"id":3355,"date":"2017-12-18T18:33:26","date_gmt":"2017-12-18T18:33:26","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:26","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:26","slug":"predikarinn-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-2-kafli\/","title":{"rendered":"Pr\u00e9dikarinn 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>Eg sag\u00f0a \u00ed m\u00ednu hjarta: &#8222;N\u00fa vel, eg vil lifa me\u00f0 lyst og hafa g\u00f3\u00f0a daga.&#8220; En sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fea\u00f0 var og einnin h\u00e9g\u00f3mi. Eg sag\u00f0a til hl\u00e1tursins: &#8222;\u00de\u00fa ert galinn&#8220; og til gle\u00f0innar: &#8222;Hva\u00f0 gj\u00f6rir \u00fe\u00fa?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hugsa\u00f0i eg \u00ed m\u00ednu hjarta a\u00f0 draga minn l\u00edkama fr\u00e1 v\u00edni en venja mitt sinni til v\u00edsd\u00f3ms svo eg kynni a\u00f0 vita hva\u00f0 heimskan v\u00e6ri \u00fear til a\u00f0 eg g\u00e6ti l\u00e6rt hva\u00f0 manninum v\u00e6ri nytsamt a\u00f0 gj\u00f6ra me\u00f0an hann lif\u00f0i \u00ed \u00feessum heimi.<\/p>\n<p>\tEg gj\u00f6r\u00f0i mikla hluti: Eg bygg\u00f0a upp h\u00fas og planta\u00f0i v\u00edngar\u00f0a, eg gj\u00f6r\u00f0a m\u00e9r aldingar\u00f0a og grasgar\u00f0a og planta\u00f0i \u00fear allra handa frj\u00f3samleg tr\u00e9, eg gj\u00f6r\u00f0a m\u00e9r fiskiv\u00f6tn til a\u00f0 d\u00f6ggva me\u00f0 \u00feau gr\u00e6nu aldintr\u00e9 \u00ed m\u00ednum sk\u00f3gi, eg haf\u00f0a \u00fer\u00e6la, amb\u00e1ttir og n\u00f3g anna\u00f0 undirf\u00f3lk, eg var vellau\u00f0igur a\u00f0 nautum og sau\u00f0um, meir en allir \u00feeir sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u fyrir m\u00e9r \u00ed Jer\u00fasalem. Eg safna\u00f0i m\u00e9r silfri og gulli og miklum liggjandi fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0um af k\u00f3ngum og l\u00f6ndum, eg skikka\u00f0i m\u00e9r s\u00f6ngmenn og s\u00f6ngkvinnur og mannanna b\u00edl\u00edfi me\u00f0 allsh\u00e1ttu\u00f0um hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleik og eg var megtugasti yfir \u00fe\u00e1 alla sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur en eg \u00ed Jer\u00fasalem og v\u00edsd\u00f3murinn var me\u00f0 m\u00e9r. Og allt hva\u00f0 m\u00edn augu girntust \u00fea\u00f0 l\u00e9t eg \u00feau f\u00e1 og eg varna\u00f0i m\u00ednu hjarta \u00f6ngrar gle\u00f0i svo \u00fea\u00f0 haf\u00f0i skemmtun af \u00f6llu m\u00ednu arfi\u00f0i og \u00fea\u00f0 h\u00e9lt eg fyrir mitt hlutskipti af \u00f6llu m\u00ednu erfi\u00f0i. En sem eg s\u00e1 til allra minna verka sem m\u00edn h\u00f6nd gj\u00f6rt haf\u00f0i og eg hugleidda \u00fe\u00e1 m\u00e6\u00f0u sem eg haf\u00f0i haft, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 allt saman h\u00e9g\u00f3mi og h\u00f6rmung og ekkert anna\u00f0 undir s\u00f3lunni.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 snera eg m\u00e9r til a\u00f0 sko\u00f0a v\u00edsd\u00f3m og speki og heimsku \u00fev\u00ed hver veit hva\u00f0 s\u00e1 skal bl\u00edfa fyrir einn mann eftir k\u00f3nginn sem \u00feeir alla rei\u00f0u gj\u00f6rt hafa? \u00de\u00e1 s\u00e1 eg v\u00edsd\u00f3murinn gekk yfir f\u00e1viskuna sem lj\u00f3si\u00f0 yfir myrkri\u00f0 og a\u00f0 hyggins manns augu standa st\u00f6\u00f0ug \u00ed hans h\u00f6f\u00f0i en heimskur gengur \u00ed myrkri. Og eg merkta \u00fe\u00f3 a\u00f0 so gengur einum sem \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hugsa\u00f0i eg \u00ed m\u00ednu hjarta: &#8222;Fyrst a\u00f0 \u00feeim heimska gengur l\u00edka sem m\u00e9r, \u00fev\u00ed mun eg \u00fe\u00e1 hafa s\u00f3tt eftir viskunni?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i eg \u00ed m\u00ednu hjarta a\u00f0 svoddan var ei annars en h\u00e9g\u00f3mi. \u00dev\u00ed a\u00f0 menn minnast ekki a\u00f0 ald\u00f6\u00f0li \u00feess hyggna en \u00fe\u00f3 s\u00ed\u00f0ur \u00feess ins heimska og \u00feeir eftirkomandi dagar gleyma \u00f6llum hlutum. Og l\u00edka sem s\u00e1 hyggni deyr svo deyr og hinn heimski. \u00dear fyrir leiddist m\u00e9r a\u00f0 lifa \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 haga\u00f0i m\u00e9r illa sem ske\u00f0i undir s\u00f3lunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00f6ldungis ekki utan arm\u00e6\u00f0i og h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n<p>\tOg mig angra\u00f0i allt mitt erfi\u00f0i sem eg haf\u00f0a undir s\u00f3lunni a\u00f0 eg skyldi eftirl\u00e1ta \u00fea\u00f0 einum manni sem koma skyldi eftir mig. \u00dev\u00ed hver veit hvert hann skal ver\u00f0a hygginn e\u00f0a heimskur? Og hann skal \u00fe\u00f3 r\u00e1\u00f0a yfir allt mitt arfi\u00f0i sem eg haf\u00f0i v\u00edslega gj\u00f6rt undir s\u00f3lunni. \u00dea\u00f0 er og h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyri snera eg m\u00e9r a\u00f0 mitt hjarta skyldi l\u00e1ta af \u00f6llu erfi\u00f0i sem eg haf\u00f0a gj\u00f6rt undir s\u00f3lunni. \u00dev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 ma\u00f0ur sem erfi\u00f0a\u00f0 hefur me\u00f0 visku, skynsemi og snilld, hann hl\u00fdtur a\u00f0 l\u00e1ta annan \u00fea\u00f0 eftir sig erfa sem ekki neitt \u00fear til erfi\u00f0a\u00f0i. \u00dea\u00f0 er og einn h\u00e9g\u00f3mi og st\u00f3r \u00f3lukka. \u00dev\u00ed hva\u00f0 hefur ma\u00f0urinn af \u00f6llu \u00fev\u00ed erfi\u00f0i og s\u00ednu hjartans hugarangri sem hann haf\u00f0i undir s\u00f3lunni utan harm og sorg og trega alla s\u00edna daga svo hans hjarta hefur \u00f6ngva n\u00e6turhv\u00edld? \u00dea\u00f0 er og h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n<p>\tEr \u00fea\u00f0 n\u00fa ekki manninum betra a\u00f0 eta og drekka og l\u00e1ta s\u00edna s\u00e1l gle\u00f0jast \u00ed s\u00ednu erfi\u00f0i? \u00deetta s\u00e1 eg a\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkt kemur af Gy\u00f0s hendi. \u00dev\u00ed hver hefur gla\u00f0legar eti\u00f0 og n\u00e6rt sig en eg? \u00dev\u00ed hann gefur \u00feeim manni v\u00edsd\u00f3m, forstand og gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 sem honum \u00fe\u00f3knast en \u00feeim synduga gefur hann \u00f3lukku, a\u00f0 hann safni og samandragi og \u00fe\u00f3 mun \u00fea\u00f0 gefast \u00feeim sem Gu\u00f0i \u00fe\u00f3knast. \u00dev\u00ed er \u00fea\u00f0 ekki utan eymd og h\u00e9g\u00f3mi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. Eg sag\u00f0a \u00ed m\u00ednu hjarta: &#8222;N\u00fa vel, eg vil lifa me\u00f0 lyst og hafa g\u00f3\u00f0a daga.&#8220; En sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fea\u00f0 var og einnin h\u00e9g\u00f3mi. Eg sag\u00f0a til hl\u00e1tursins: &#8222;\u00de\u00fa ert galinn&#8220; og til gle\u00f0innar: &#8222;Hva\u00f0 gj\u00f6rir \u00fe\u00fa?&#8220; \u00de\u00e1 hugsa\u00f0i eg \u00ed m\u00ednu hjarta a\u00f0 draga minn l\u00edkama fr\u00e1 v\u00edni en venja mitt sinni til v\u00edsd\u00f3ms svo eg kynni a\u00f0 vita hva\u00f0 heimskan v\u00e6ri \u00fear til a\u00f0 eg g\u00e6ti l\u00e6rt hva\u00f0 manninum v\u00e6ri nytsamt a\u00f0 gj\u00f6ra me\u00f0an hann lif\u00f0i \u00ed \u00feessum heimi. Eg gj\u00f6r\u00f0i mikla hluti: Eg bygg\u00f0a upp h\u00fas og planta\u00f0i v\u00edngar\u00f0a, eg gj\u00f6r\u00f0a m\u00e9r aldingar\u00f0a og grasgar\u00f0a og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/predikarinn-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3355","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3355","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3355"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3355\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3355"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}