{"id":3352,"date":"2017-12-18T18:33:22","date_gmt":"2017-12-18T18:33:22","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-30-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:22","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:22","slug":"ordskvidirnir-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-30-kafli\/","title":{"rendered":"Or\u00f0skvi\u00f0irnir 30. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXX.<\/p>\n<p>\t\u00deessi eru or\u00f0 Ag\u00far sonar Jake, kenning og r\u00e6\u00f0a Lit\u00edel, Lat\u00edel og \u00dakal: <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deetta er a\u00f0 sj\u00e1 so sem s\u00e9 \u00feetta vi\u00f0aukning af einhverjum v\u00edsum manni auki\u00f0 vi\u00f0 Salomonis or\u00f0skvi\u00f0i\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEg em <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Heimskastur) \/ Hyggnir menn vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00feeirra v\u00edsd\u00f3mur er einskisver\u00f0ur en heimskir l\u00e1tast allt vita og ekki kunna villt a\u00f0 fara\">[<\/span> heimskastur allra manna og mannleg speki er ekki me\u00f0 m\u00e9r, eg hefi \u00f6ngva visku numi\u00f0 og eg veit ei hva\u00f0 heilagt er.<\/p>\n<p>\tHver uppst\u00edgur \u00ed himininn og ni\u00f0urst\u00edgur? Hver heldur vindinum \u00ed s\u00ednum h\u00f6ndum? Hver samandbindur v\u00f6tnin \u00ed eitt kl\u00e6\u00f0i? Hver hefur sett \u00f6ll jar\u00f0arinnar endim\u00f6rk? Hva\u00f0 heitir hann? Hva\u00f0 heitir sonur hans? Veistu \u00fea\u00f0?<\/p>\n<p>\t\u00d6ll Gu\u00f0s or\u00f0 eru sk\u00e6r og eru skj\u00f6ldur fyrir \u00feeim sem \u00e1 hann treysta. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1l. 18. 12\">[<\/span> Auk \u00fe\u00fa ekki vi\u00f0 hans or\u00f0 par a\u00f0 hann straffi \u00feig ekki og ver\u00f0ir \u00fe\u00fa lj\u00fagari fundinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 4 \/ Apoc. 22\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tTveggja hluta bi\u00f0 eg \u00feig, a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir ekki synja m\u00e9r \u00e1\u00f0ur en eg dey: <span class=\"athugasemd\" title=\"Ein f\u00edn b\u00e6n. Hann bi\u00f0ur um Gu\u00f0s or\u00f0 og daglega n\u00e6ring so hann megi lifa b\u00e6\u00f0i h\u00e9r og annars heims\">[<\/span> Sk\u00fargo\u00f0avillu og lygar l\u00e1ttu vera langt fr\u00e1 m\u00e9r, f\u00e1t\u00e6kt og au\u00f0\u00e6fi gef \u00fe\u00fa m\u00e9r ekki en l\u00e1ttu mig hafa minn deildan ver\u00f0. Annars kynna eg (n\u00e6r eg er of saddur) a\u00f0 afneita \u00fe\u00e9r og segja: &#8222;Hvar er Drottinn?&#8220; E\u00f0a n\u00e6r eg er of f\u00e1t\u00e6kur hlj\u00f3ti eg a\u00f0 stela og mig \u00e1 m\u00edns Drottins nafni a\u00f0 forgr\u00edpa.<\/p>\n<p>\tR\u00e6g\u00f0u ekki \u00fer\u00e6linn vi\u00f0 sinn l\u00e1nadrottin a\u00f0 hann b\u00f6lvi \u00fe\u00e9r ekki og hlj\u00f3tir \u00fe\u00fa a\u00f0 bera s\u00f6kina.<\/p>\n<p>\t\u00dear er \u00fea\u00f0 kyn sem b\u00f6lvar s\u00ednum f\u00f6\u00f0ur og ekki blessar sinni m\u00f3\u00f0ur,<\/p>\n<p>\teitt kyn sem \u00feykist hreint vera og er \u00fe\u00f3 ekki \u00fevegi\u00f0 af s\u00ednum sauri,<\/p>\n<p>\teitt kyn sem h\u00e1tt ber s\u00edn augu og h\u00e1tt upplyftir s\u00ednum augnabr\u00e1m,<\/p>\n<p>\teitt kyn sem hefur sver\u00f0 fyrir tennur, \u00fea\u00f0 sem \u00e9tur me\u00f0 s\u00ednum j\u00f6xlum og upp\u00e9tur \u00fe\u00e1 l\u00edtilmegnu \u00ed landinu og hina f\u00e1t\u00e6ku \u00e1 me\u00f0al l\u00fd\u00f0sins.<\/p>\n<p>\tBl\u00f3\u00f0sugan hefur tv\u00e6r d\u00e6tur sem svo segja: &#8222;F\u00e1 m\u00e9r, f\u00e1 m\u00e9r!&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00der\u00edr hlutir eru \u00f3se\u00f0janlegir og hinn fj\u00f3r\u00f0i segir ei: &#8222;\u00dea\u00f0 n\u00e6gir&#8220;: Helv\u00edti, konunnar kvi\u00f0ur, j\u00f6r\u00f0in se\u00f0st ekki af vatninu og eldurinn segir aldrei a\u00f0 n\u00f3g s\u00e9.<\/p>\n<p>\t\u00dea\u00f0 auga sem spottar sinn f\u00f6\u00f0ur og forsm\u00e1ir s\u00edna m\u00f3\u00f0ur henni a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ta <span class=\"athugasemd\" title=\"sword \u00dea\u00f0 kallast a\u00f0 koma \u00ed g\u00e1lga\">[<\/span> hrafnar \u00fat a\u00f0 kroppa og arnarungar upp a\u00f0 \u00e9ta.<\/p>\n<p>\t\u00der\u00edr hlutir \u00feykja m\u00e9r undarlegir og hinn fj\u00f3r\u00f0a veit eg ekki: Arnarinnar vegur \u00ed loftinu, h\u00f6ggormsins skri\u00f0ur \u00e1 bjarginu, skipsins farvegur \u00ed mi\u00f0ju hafinu og vegur mannsins til ungrar <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ \u00dea\u00f0 er, \u00e1stin er \u00f3rannsakanleg og \u00f3segjanleg\">[<\/span> p\u00edku.<\/p>\n<p>\tL\u00edka svo er h\u00f3rkonunnar vegur, h\u00fan svelgir og \u00feurrkar sinn munn og segir: &#8222;Eg hefi ekki neitt illt gj\u00f6rt.&#8220;<\/p>\n<p>\tEitt land \u00fea\u00f0 ruglast af \u00feremur hlutum og hinn fj\u00f3r\u00f0a \u00feolir \u00fea\u00f0 ekki: N\u00e6r e\u00f0 nokkur \u00fer\u00e6ll ver\u00f0ur til k\u00f3ngs tekinn, \u00feegar f\u00e1v\u00eds ma\u00f0ur er of saddur, \u00feegar ill kona ver\u00f0ur tekin til hj\u00faskapar og n\u00e6r ein amb\u00e1tt ver\u00f0ur erfingi sinnar fr\u00far.<\/p>\n<p>\tFj\u00f3rir hlutir eru vesalir \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og \u00feeir eru hyggnum vitrari: Maurinn er s\u00e1 veiki l\u00fd\u00f0ur, \u00fe\u00f3 \u00fatvega \u00feeir s\u00edna f\u00e6\u00f0slu um sumart\u00edma, k\u00fan\u00edsinn s\u00e1 veikur l\u00fd\u00f0ur, \u00fe\u00f3 sem \u00e1\u00f0ur \u00fe\u00e1 setja \u00feeir sitt h\u00fas \u00ed steinunum, grashoppurnar hafa \u00f6ngvan k\u00f3ng, \u00fe\u00f3 ganga \u00fe\u00e6r \u00fat me\u00f0 s\u00ednum h\u00f3p, g\u00f6ngur\u00f3furnar vinna me\u00f0 s\u00ednum h\u00f6ndum og eru \u00ed k\u00f3nganna h\u00f6llum.<\/p>\n<p>\t\u00der\u00edr hlutir hafa f\u00ednan gang og \u00fea\u00f0 fj\u00f3r\u00f0a gengur vel: Le\u00f3n \u00fea\u00f0 sterkasta me\u00f0al d\u00fdranna og sn\u00fdr fyrir \u00f6ngvum aftur, vei\u00f0ihundur me\u00f0 \u00feykkvum lendum og einn hr\u00fatur og einn k\u00f3ngur \u00ed m\u00f3ti hverjum enginn \u00feorir a\u00f0 r\u00edsa.<\/p>\n<p>\tHafir \u00fe\u00fa <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ (Heimskast) \/ Skammast \u00fe\u00fa ei n\u00e6r \u00fe\u00fa \u00ed nokkru vilt fari\u00f0 hefur og forsvara \u00fea\u00f0 ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 villt a\u00f0 fara er mannlegt en s\u00edna villu a\u00f0 forsvara er dj\u00f6fullegt\">[<\/span> heimskast og of h\u00e1tt fari\u00f0 og nokku\u00f0 vont \u00ed frammi haft svo legg \u00fe\u00fa h\u00f6nd \u00e1 munn \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\t\u00deegar menn skekja mj\u00f3lkina \u00fe\u00e1 gj\u00f6rist \u00fear af smj\u00f6r og hver sem hann sn\u00fdtir fast nasirnar hann \u00fevingar \u00fear bl\u00f3\u00f0 \u00fat og hver hann egnir til rei\u00f0i hann kemur sundur\u00feykki af sta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXX. \u00deessi eru or\u00f0 Ag\u00far sonar Jake, kenning og r\u00e6\u00f0a Lit\u00edel, Lat\u00edel og \u00dakal: [ Eg em [ heimskastur allra manna og mannleg speki er ekki me\u00f0 m\u00e9r, eg hefi \u00f6ngva visku numi\u00f0 og eg veit ei hva\u00f0 heilagt er. Hver uppst\u00edgur \u00ed himininn og ni\u00f0urst\u00edgur? Hver heldur vindinum \u00ed s\u00ednum h\u00f6ndum? Hver samandbindur v\u00f6tnin \u00ed eitt kl\u00e6\u00f0i? Hver hefur sett \u00f6ll jar\u00f0arinnar endim\u00f6rk? Hva\u00f0 heitir hann? Hva\u00f0 heitir sonur hans? Veistu \u00fea\u00f0? \u00d6ll Gu\u00f0s or\u00f0 eru sk\u00e6r og eru skj\u00f6ldur fyrir \u00feeim sem \u00e1 hann treysta. [ Auk \u00fe\u00fa ekki vi\u00f0 hans or\u00f0 par a\u00f0 hann straffi \u00feig ekki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3352","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3352","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3352"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3352\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3352"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}