{"id":3345,"date":"2017-12-18T18:33:22","date_gmt":"2017-12-18T18:33:22","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-23-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:22","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:22","slug":"ordskvidirnir-23-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-23-kafli\/","title":{"rendered":"Or\u00f0skvi\u00f0irnir 23. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXIII.<\/p>\n<p>N\u00e6r \u00fe\u00fa situr til bor\u00f0s me\u00f0 n\u00f6kkrum h\u00f6f\u00f0ingjum, so athuga gaumg\u00e6filega hvern \u00fe\u00fa fyrir \u00fe\u00e9r hefur og set <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Kn\u00edf) \/ \u00dea\u00f0 er svo miki\u00f0: Geym \u00fe\u00edna tungu svo \u00fe\u00fa talir ekki of margt og komir \u00fear fyrir \u00ed h\u00e1ska. \u00dev\u00ed a\u00f0 hans r\u00e9ttir eru \u00f3tr\u00fair, svo er \u00ed hofg\u00f6r\u00f0um falskt brau\u00f0, \u00fear l\u00fdgur hver \u00e1 annan og hr\u00e6snar me\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00fear til hann kemur honum undir en s\u00e9r upp yfir hann\">[<\/span> kn\u00edf \u00e1 barka \u00fe\u00e9r viljir \u00fe\u00fa l\u00edfi \u00fe\u00ednu halda.<\/p>\n<p>\tGirnstu ekki fyrir hans f\u00e6\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er falskt brau\u00f0.<\/p>\n<p>\tKeppstu ekki vi\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a r\u00edkur og h\u00e6ttu af \u00fe\u00ednum fundningum.<\/p>\n<p>\tL\u00e1t augu \u00fe\u00edn ei \u00feanga\u00f0 flj\u00faga sem \u00fe\u00fa kannt ei af a\u00f0 f\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sama gj\u00f6rir s\u00e9r v\u00e6ngi svo sem ernur og fl\u00fdgur upp a\u00f0 himni.<\/p>\n<p>\tNeyttu ekki matar me\u00f0 \u00f6fundsj\u00fakum manni og \u00e6sk \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r ekki hans f\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed l\u00edka sem ein <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00dea\u00f0 er, \u00fea\u00f0 er \u00f3sta\u00f0fast so sem gl\u00e6ringar \u00e1 \u00f3ttu flj\u00faga, hvar upp \u00e1 ei m\u00e1 treysta, so l\u00e6st \u00f6fundsj\u00fakur g\u00f3\u00f0gjarn vera en er \u00fe\u00f3 ekki\">[<\/span> forynja er hann fyrir innan, hann segir: &#8222;Et og drekk&#8220; en hjarta hans er \u00fe\u00f3 ekki \u00fe\u00e9r me\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00edna bita sem \u00fe\u00fa hefur eti\u00f0 hl\u00fdtur \u00fe\u00fa upp a\u00f0 gefa og tapa \u00fe\u00ednum vinsamlegum vi\u00f0r\u00e6\u00f0um.<\/p>\n<p>\tTala \u00fe\u00fa ekki fyrir eyrum hins heimska \u00fev\u00ed a\u00f0 hann fyrirl\u00edtur hyggindi \u00feinnar r\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>\tF\u00e6r\u00f0u ekki \u00far sta\u00f0 \u00feau g\u00f6mlu landamerki og gakk ei yfir akra f\u00f6\u00f0urlausra<\/p>\n<p>\t\u00fev\u00ed a\u00f0 voldugur er \u00feeirra frelsari, hann mun r\u00e9tta \u00feeirra s\u00f6k \u00fe\u00e9r \u00ed m\u00f3ti. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sup. 22 \/ Deut. 27\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tGef \u00feitt hjarta til l\u00e6rd\u00f3ms og eyra \u00feitt til skynsemdarr\u00e6\u00f0u. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. 30\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tL\u00e1t ekki af a\u00f0 hirta ungmenni\u00f0 \u00fev\u00ed ef \u00fe\u00fa sl\u00e6r \u00fea\u00f0 me\u00f0 vendinum \u00fearf \u00fea\u00f0 ekki <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Str\u00fdkir \u00fe\u00fa hann \u00fe\u00e1 \u00fearf ekki b\u00f6\u00f0ullinn a\u00f0 str\u00fdkja hann. \u00dear hl\u00fdtur hirtingaraginn a\u00f0 vera. Agi fa\u00f0irinn ekki \u00fe\u00e1 gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 b\u00f6\u00f0ullinn v\u00edst, \u00far hans h\u00f6ndum sleppur enginn \u00fev\u00ed \u00feetta er Gu\u00f0s d\u00f3mur\">[<\/span> drepi\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sup. 13. 19\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa flengir \u00fea\u00f0 me\u00f0 vendinum en \u00fe\u00fa frelsar \u00f6nd \u00feess fr\u00e1 helv\u00edti.<\/p>\n<p>\tSon minn, ef \u00fe\u00fa ert hygginn \u00fe\u00e1 gle\u00f0st mitt hjarta og m\u00edn n\u00fdru fagna \u00feegar varir \u00fe\u00ednar tala \u00fea\u00f0 hva\u00f0 r\u00e9tt er.<\/p>\n<p>\tL\u00e1t ekki \u00feitt hjarta eftirfylgja syndunum, vertu heldur daglega \u00ed Drottins \u00f3tta \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun \u00fe\u00e9r s\u00ed\u00f0ar meir gott vera og von \u00fe\u00edn mun ekki breg\u00f0ast.<\/p>\n<p>\tHeyr \u00fe\u00fa, son minn, og vertu hygginn og haga vel hjarta \u00fe\u00ednu \u00e1 veginum.<\/p>\n<p>\tVertu ekki me\u00f0 \u00f6lsvelgjurum og gr\u00e1\u00f0ugum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6lsvelgjarar og gr\u00e1\u00f0ugir \u00fatarmast og svefnugur ma\u00f0ur hl\u00fdtur a\u00f0 bera t\u00f6trug f\u00f6t.<\/p>\n<p>\tHl\u00fd\u00f0 \u00fe\u00fa f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00ednum sem \u00feig hefur geti\u00f0 og forsm\u00e1 ekki m\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00edna \u00feegar h\u00fan eldist.<\/p>\n<p>\tKaup \u00fe\u00fa sannindi og sel ekki, visku, l\u00e6rd\u00f3m og skilning.<\/p>\n<p>\tFa\u00f0ir hins r\u00e9ttl\u00e1ta fagnar og s\u00e1 sem vitran son hefur geti\u00f0 gle\u00f0st \u00fear af.<\/p>\n<p>\tL\u00e1ttu f\u00f6\u00f0ur \u00feinn og m\u00f3\u00f0ur fagna sem \u00feig geti\u00f0 hafa.<\/p>\n<p>\tGef m\u00e9r, son minn, hjarta \u00feitt og l\u00e1t \u00fe\u00ednum augum vel \u00fe\u00f3knast m\u00edna vegu.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed ein sk\u00e6kja er dj\u00fap gr\u00f6f og ein h\u00f3rkona \u00fer\u00f6ngur pyttur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sup. 20\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tH\u00fan umsitur so sem einn reyfari og \u00fe\u00e1 inu dj\u00f6rfu \u00e1 me\u00f0al mannanna dregur h\u00fan a\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tHvar er vei? <span class=\"athugasemd\" title=\"Sup. 29. 21. 23\">[<\/span> Hvar er harmur? Hvar eru deilur? Hvar eru \u00e1k\u00e6rur? Hvar eru \u00e1verkar fyrir utan tilverkna\u00f0? Hvar eru rau\u00f0 augu?<\/p>\n<p>\tEinkum \u00fear sem menn sitja til samans vi\u00f0 v\u00edndrykkju og koma til samans af a\u00f0 drekka \u00fea\u00f0 sem \u00e1 er skenkt.<\/p>\n<p>\tL\u00edttu ekki \u00e1 v\u00edni\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 er rautt og \u00feess litur er svo sk\u00e6r \u00ed glasinu, \u00fea\u00f0 rennur s\u00e6tlega ni\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tEn eftir \u00e1 b\u00edtur \u00fea\u00f0 sem h\u00f6ggormur og stingur sem ein na\u00f0ra.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 munu augu \u00fe\u00edn l\u00edta eftir annarlegum konum og hjarta \u00feitt tala ranghverfa hluti<\/p>\n<p>\tog munt vera sem nokkur s\u00e1 er sefur \u00ed mi\u00f0ju hafi og l\u00edka sem s\u00e1 e\u00f0 ofan upp \u00e1 mastrinu sefur (\u00ed skipinu og segir): <\/p>\n<p>\t&#8222;\u00deeir sl\u00e1 mig en m\u00e9r er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 ekki s\u00e1rt, \u00feeir berja mig en eg kenni ekki til \u00feess. N\u00e6r mun eg vakna so a\u00f0 eg \u00feetta oftar fremji?&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXIII. N\u00e6r \u00fe\u00fa situr til bor\u00f0s me\u00f0 n\u00f6kkrum h\u00f6f\u00f0ingjum, so athuga gaumg\u00e6filega hvern \u00fe\u00fa fyrir \u00fe\u00e9r hefur og set [ kn\u00edf \u00e1 barka \u00fe\u00e9r viljir \u00fe\u00fa l\u00edfi \u00fe\u00ednu halda. Girnstu ekki fyrir hans f\u00e6\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er falskt brau\u00f0. Keppstu ekki vi\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a r\u00edkur og h\u00e6ttu af \u00fe\u00ednum fundningum. L\u00e1t augu \u00fe\u00edn ei \u00feanga\u00f0 flj\u00faga sem \u00fe\u00fa kannt ei af a\u00f0 f\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sama gj\u00f6rir s\u00e9r v\u00e6ngi svo sem ernur og fl\u00fdgur upp a\u00f0 himni. Neyttu ekki matar me\u00f0 \u00f6fundsj\u00fakum manni og \u00e6sk \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r ekki hans f\u00e6\u00f0u. \u00dev\u00ed l\u00edka sem ein [ forynja er hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/ordskvidirnir-23-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3345","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3345","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3345"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3345\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3345"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}