{"id":3261,"date":"2017-12-18T18:33:08","date_gmt":"2017-12-18T18:33:08","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-89-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:33:08","modified_gmt":"2017-12-18T18:33:08","slug":"salmarnir-89-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-89-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00e1lmarnir 89. kafli"},"content":{"rendered":"<p>LXXXIX.<\/p>\n<p>Menntanarfr\u00e6\u00f0i Etan Efrahiter.<\/p>\n<p>Eg vil syngja af miskunn Drottins eil\u00edflegana og \u00feinn sannleik kunngj\u00f6ra me\u00f0 m\u00ednum munni um aldur og \u00e6vi.<\/p>\n<p>\tOg eg segi svo: Ein eil\u00edfleg <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ J\u00f3h. i. N\u00e1\u00f0 og sannleikur er fyrir Jes\u00fam Christum or\u00f0inn\">[<\/span> n\u00e1\u00f0 mun uppkoma og a\u00f0 \u00fe\u00fa munir \u00feinn sannleik tryggilega halda \u00e1 himnum.<\/p>\n<p>\tS\u00e1ttam\u00e1la hefi eg gj\u00f6rt vi\u00f0 m\u00edna \u00fatvalda, eg hefi svari\u00f0 m\u00ednum \u00fej\u00f3n Dav\u00ed\u00f0<\/p>\n<p>\ta\u00f0 eg vil \u00fe\u00e9r s\u00e6\u00f0i tilrei\u00f0a eil\u00edflegana og \u00feitt tignars\u00e6ti uppbyggja um aldur og \u00e6vi. Sela. <\/p>\n<p>\tOg himnarnir munu, Drottinn, \u00fe\u00ednar d\u00e1semdir pr\u00edsa og \u00feinn sannleik \u00ed samkundum heilagra.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 hver m\u00e1 \u00ed <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ \u00dev\u00ed a\u00f0 r\u00edki\u00f0 Christi er ekki eitt jar\u00f0neskt r\u00edki heldur himneskt og \u00ed sk\u00fdjunum, \u00fea\u00f0 er, ekki \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni\">[<\/span> sk\u00fdjunum Drottni samjafnast og \u00e1 me\u00f0al gu\u00f0anna sona Drottni saml\u00edkur vera?<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 hann er mj\u00f6g m\u00e1ttugur yfir \u00f6llum \u00feeim sem \u00ed kringum hann eru.<\/p>\n<p>\tDrottinn Gu\u00f0 allsherjar, hver er s\u00e1 e\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9 l\u00edkur? So v\u00f6ldugur Gu\u00f0? Og \u00feinn sannleikur er \u00ed kringum \u00feig.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa drottnar yfir sj\u00e1var \u00e6\u00f0igangi, \u00fe\u00fa h\u00e6gir hans bylgjur n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e6r upphefja sig.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa ni\u00f0ursl\u00e6r <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ Rahab er Egiptus, \u00fat supra\">[<\/span> Rahab til dau\u00f0s, \u00fe\u00fa \u00ed sundurdreifir \u00fe\u00ednum \u00f3vinum me\u00f0 \u00fe\u00ednum styrktararmlegg.<\/p>\n<p>\tHiminninn og j\u00f6r\u00f0in eru \u00fe\u00edn, jar\u00f0arkringluna hefur \u00fe\u00fa grundvalla\u00f0 og allt hva\u00f0 \u00fear er inni.<\/p>\n<p>\tNor\u00f0ri\u00f0 og su\u00f0ri\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur \u00fe\u00fa skapa\u00f0, Tab\u00f3r og Hermon <span class=\"athugasemd\" title=\"d \/ \u00dea\u00f0 er, allt landi\u00f0 bl\u00f3mgast og er fagurt a\u00f0 sj\u00e1\">[<\/span> bl\u00f3mgast \u00ed \u00fe\u00ednu nafni.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa hefur volduglegan armlegg, \u00f6flug er \u00fe\u00edn h\u00f6nd og h\u00e1 er \u00fe\u00edn h\u00e6gri h\u00f6nd.<\/p>\n<p>\tR\u00e9ttv\u00edsi og d\u00f3mur eru \u00fe\u00edns s\u00e6tis sta\u00f0festing, miskunn og sannleikur eru fyrir \u00fe\u00ednu augliti.<\/p>\n<p>\tS\u00e6ll er s\u00e1 l\u00fd\u00f0ur sem \u00fe\u00e1 <span class=\"athugasemd\" title=\"e \/ \u00dea\u00f0 er, hver e\u00f0 hefur \u00fea\u00f0 fagna\u00f0arsamlega Gu\u00f0s or\u00f0\">[<\/span> gle\u00f0innar skemmtun kann, Drottinn, \u00ed lj\u00f3si \u00fe\u00edns andlits munu \u00feeir ganga.<\/p>\n<p>\tYfir \u00fe\u00ednu nafni munu \u00feeir gle\u00f0ja sig daglegana og \u00ed \u00fe\u00ednni r\u00e9ttv\u00edsi d\u00fdrlegir vera.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 hr\u00f3san \u00feeirra styrkleiks ert \u00fe\u00fa og fyrir \u00fe\u00edna mildi munt \u00fe\u00fa vort horn upp hefja.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn er vor skj\u00f6ldur og s\u00e1 Hinn heilagi \u00cdsraels er vor konungur.<\/p>\n<p>\t\u00cd \u00feinn t\u00edma tala\u00f0ir \u00fe\u00fa fyrir sj\u00f3nir til \u00feinna heilagra og sag\u00f0ir: &#8222;Eg hefi einn voldugan kappa uppvaki\u00f0 s\u00e1 e\u00f0 hj\u00e1lpa skal, einn \u00fatvaldan af f\u00f3lkinu hefi eg upphafi\u00f0. <\/p>\n<p>\tEg hefi fundi\u00f0 minn \u00fej\u00f3n Dav\u00ed\u00f0, hann smur\u00f0a eg me\u00f0 m\u00ednu heil\u00f6gu vi\u00f0smj\u00f6ri. <span class=\"athugasemd\" title=\"1. Reg. 16 \/ Act. 13\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tM\u00edn h\u00f6nd skal honum fullting veita og minn armlegg skal styrkja hann.<\/p>\n<p>\t\u00d3vinirnir skulu ei geta yfirbuga\u00f0 hann og hinir rangl\u00e1tu skulu ekki ni\u00f0urkefja hann<\/p>\n<p>\theldur \u00fe\u00e1 skal eg hans m\u00f3tst\u00f6\u00f0umenn ni\u00f0ursl\u00e1 og \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann hata vil eg pl\u00e1ga.<\/p>\n<p>\tEn minn sannleikur og miskunnsemi skal \u00ed hj\u00e1 honum vera og hans horn skal \u00ed m\u00ednu nafni upphafi\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n<p>\tHans h\u00f6nd vil eg \u00ed sj\u00f3inn setja og hans h\u00e6gri h\u00f6nd \u00ed v\u00f6tnin.<\/p>\n<p>\tHann mun nefna mig so: <span class=\"athugasemd\" title=\"Ebre. 1 \/ Act. 13 \/ 2. Reg. 7\">[<\/span> \u00de\u00fa ert minn fa\u00f0ir, minn Gu\u00f0 og styrkur, s\u00e1 e\u00f0 m\u00e9r hj\u00e1lpar.<\/p>\n<p>\tOg eg vil setja hann fyrir frumgetinn son, allra h\u00e6\u00f0stan me\u00f0al konunganna \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n<p>\tM\u00edna miskunnsemi vil eg eil\u00edflega halda vi\u00f0 hann og minn s\u00e1ttm\u00e1li skal honum sta\u00f0fastur vera.<\/p>\n<p>\tEil\u00edflega vil eg honum s\u00e6\u00f0i gefa og hans veldisst\u00f3l styrkja \u00e6 me\u00f0an himinninn varir.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00f3 hans b\u00f6rn yfirgefi mitt l\u00f6gm\u00e1l og gangi ekki \u00ed m\u00ednum r\u00e9ttindum,<\/p>\n<p>\t\u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00feau vanhelgi m\u00ednar r\u00e9ttl\u00e6tingar og haldi ekki m\u00edn bo\u00f0or\u00f0<\/p>\n<p>\t\u00fe\u00e1 vil eg \u00feeirra synda vitja me\u00f0 hirtingarvendi og \u00feeirra misgj\u00f6r\u00f0a me\u00f0 refsingum<\/p>\n<p>\ten minni miskunn vil eg ekki fr\u00e1 \u00feeim sn\u00faa og \u00e1 m\u00ednum sannleika \u00f6ngvan brest vera l\u00e1ta.<\/p>\n<p>\tMinn s\u00e1ttm\u00e1la vil eg ekki vanhelga og ekki \u00fea\u00f0 \u00f3n\u00fdtt gj\u00f6ra sem framgengi\u00f0 er af m\u00ednum munni.<\/p>\n<p>\tEitt sinn hefi eg svari\u00f0 vi\u00f0 minn heilagleik: Eg vil ei lj\u00faga a\u00f0 Dav\u00ed\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Reg. 23; 7; 1 Par. 18\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tHans s\u00e6\u00f0i skal eil\u00edft vera og hans veldisst\u00f3ll l\u00edka sem s\u00f3lin fyrir minni augs\u00fdn.<\/p>\n<p>\tSvo sem tungli\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann sta\u00f0fastur bl\u00edfa eil\u00edflegana og l\u00edka so sem <span class=\"athugasemd\" title=\"f \/ Regnboginn hvern Gu\u00f0 hefur sett vott \u00feess s\u00e1ttm\u00e1ls vi\u00f0 N\u00f3a \/ Gen. 9\">[<\/span> votturinn \u00ed sk\u00fdjunum sannarlegur vera.&#8220; Sela.<\/p>\n<p>\tEn n\u00fa vanr\u00e6kir \u00fe\u00fa og fyrir \u00f3\u00f0al leggur og rei\u00f0ur ert vi\u00f0 \u00feinn hinn smur\u00f0a.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa afr\u00e6kir s\u00e1ttm\u00e1la \u00fe\u00edns \u00fej\u00f3ns og f\u00f3ttre\u00f0ur hans k\u00f3r\u00f3nu ni\u00f0ur til jar\u00f0ar.\t<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa ni\u00f0urbr\u00fdtur alla hans m\u00farveggi og l\u00e6tur hans hervirki ni\u00f0ur hrynja.<\/p>\n<p>\tHann r\u00e6na allir \u00feeir sem framhj\u00e1 ganga, s\u00ednum n\u00e1gr\u00f6nnum er hann a\u00f0 h\u00e1\u00f0i vor\u00f0inn.<\/p>\n<p>\tH\u00e6gri h\u00f6nd hans m\u00f3tst\u00f6\u00f0umanna upphefur \u00fe\u00fa og gle\u00f0ur alla hans \u00f3vini.<\/p>\n<p>\tsvo hefur \u00fe\u00fa einnin hans sver\u00f0sins kraft \u00ed burt teki\u00f0 og l\u00e6tur hann ekki f\u00e1 sigur \u00ed str\u00ed\u00f0inu.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa ni\u00f0urbr\u00fdtur hans <span class=\"athugasemd\" title=\"g \/ Alla hans pr\u00fd\u00f0i og fegur\u00f0 Gu\u00f0s \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0ar\">[<\/span> hreinl\u00e6ti og fleygir hans tignars\u00e6ti til jar\u00f0ar.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa styttir t\u00edmann hans ungd\u00f3msaldurs og ni\u00f0ri byrgir hann me\u00f0 forsm\u00e1n. Sela.<\/p>\n<p>\tDrottinn, hversu lengi vilt \u00fe\u00fa \u00feannin me\u00f0 \u00f6llu hulinn vera og \u00fe\u00edna heiftarrei\u00f0i sem eld brenna l\u00e1ta?<\/p>\n<p>\tHuglei\u00f0 \u00fe\u00fa hversu skammvinnt mitt l\u00edf er, hvar fyrir viltu alla menn til einskis skapa\u00f0 hafa?<\/p>\n<p>\tHver er s\u00e1 ma\u00f0ur sem \u00e1 l\u00edfi er a\u00f0 hann sj\u00e1i ei dau\u00f0ann e\u00f0ur s\u00edna s\u00e1lu frelsi \u00fat af helv\u00edtis hendi? <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1l. 90 \/ 2. Reg. 7\">[<\/span> Sela.<\/p>\n<p>\tDrottinn, hvar er n\u00fa \u00fe\u00edn fyrri miskunn sem \u00fe\u00fa hefur svari\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednum sannleik?<\/p>\n<p>\tMinnstu, Drottinn, \u00e1 ni\u00f0ran \u00feinna \u00fej\u00f3nustumanna hverja e\u00f0 eg ber \u00ed m\u00ednum barmi af \u00f6llu so m\u00f6rgu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>\tHvar me\u00f0 \u00fe\u00ednir \u00f3vinir ni\u00f0ra \u00fe\u00e9r, Drottinn, \u00fear me\u00f0 \u00feeir n\u00ed\u00f0a f\u00f3tspor \u00fe\u00edns hins smur\u00f0a.<\/p>\n<p>\tLofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn eil\u00edflegana. Amen. Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>LXXXIX. Menntanarfr\u00e6\u00f0i Etan Efrahiter. Eg vil syngja af miskunn Drottins eil\u00edflegana og \u00feinn sannleik kunngj\u00f6ra me\u00f0 m\u00ednum munni um aldur og \u00e6vi. Og eg segi svo: Ein eil\u00edfleg [ n\u00e1\u00f0 mun uppkoma og a\u00f0 \u00fe\u00fa munir \u00feinn sannleik tryggilega halda \u00e1 himnum. S\u00e1ttam\u00e1la hefi eg gj\u00f6rt vi\u00f0 m\u00edna \u00fatvalda, eg hefi svari\u00f0 m\u00ednum \u00fej\u00f3n Dav\u00ed\u00f0 a\u00f0 eg vil \u00fe\u00e9r s\u00e6\u00f0i tilrei\u00f0a eil\u00edflegana og \u00feitt tignars\u00e6ti uppbyggja um aldur og \u00e6vi. Sela. Og himnarnir munu, Drottinn, \u00fe\u00ednar d\u00e1semdir pr\u00edsa og \u00feinn sannleik \u00ed samkundum heilagra. \u00dev\u00ed a\u00f0 hver m\u00e1 \u00ed [ sk\u00fdjunum Drottni samjafnast og \u00e1 me\u00f0al gu\u00f0anna sona Drottni saml\u00edkur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-89-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3261","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3261","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3261"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3261\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3261"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}