{"id":3193,"date":"2017-12-18T18:32:57","date_gmt":"2017-12-18T18:32:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:57","slug":"salmarnir-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-22-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00e1lmarnir 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXII.<\/p>\n<p>S\u00e1lmur Dav\u00ed\u00f0s fyr a\u00f0 syngja. \u00dat af hindinni sem \u00e1rla var veidd.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 minn, Gu\u00f0 minn, hvar fyrir hefur \u00fe\u00fa yfirgefi\u00f0 mig? Eg veina en m\u00edn hj\u00e1lp er fjarl\u00e6g.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 minn, \u00e1 daginn kalla eg og \u00fe\u00fa gefur ekki andsvar og \u00e1 n\u00f3ttinni \u00feegi eg ekki einnin heldur.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00fa ert heilagur, \u00fe\u00fa sem b\u00fdr me\u00f0al <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Lofgj\u00f6r\u00f0ar \/ \u00dea\u00f0 er, me\u00f0al \u00feess heilaga f\u00f3lks \u00cdsraels hvar \u00fe\u00edn lofgj\u00f6r\u00f0 jafnan er\">[<\/span> lofgj\u00f6r\u00f0ar \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tVorir fe\u00f0ur vonu\u00f0u \u00e1 \u00feig og \u00fe\u00e1 er \u00feeir vonu\u00f0u \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpa\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00feeim.<\/p>\n<p>\tTil \u00fe\u00edn k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir og ur\u00f0u frelsa\u00f0ir, \u00feeir vonu\u00f0u \u00e1 \u00feig og ur\u00f0u ekki til skammar.<\/p>\n<p>\tEn eg em ma\u00f0kur en ei ma\u00f0ur, br\u00edgsli mannanna og fyrirlitning f\u00f3lksins.<\/p>\n<p>\tAllir \u00feeir er mig s\u00e1u h\u00e6ddu a\u00f0 m\u00e9r, opnu\u00f0u sinn munn og sk\u00f3ku h\u00f6fu\u00f0in:<\/p>\n<p>\t&#8222;Klagi hann \u00fea\u00f0 fyrir Drottni, hj\u00e1lpi hann honum og hann frelsi hann, hafi hann annars vilja til hans!&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fatleiddir mig af minnar m\u00f3\u00f0ur kvi\u00f0i, \u00fe\u00fa vart mitt hj\u00e1lpartraust \u00fe\u00e1 e\u00f0 eg var enn n\u00fa \u00e1 minnar m\u00f3\u00f0ur brj\u00f3stum.<\/p>\n<p>\tTil \u00fe\u00edn er m\u00e9r kasta\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00ed fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i, \u00fe\u00fa ert minn Gu\u00f0 allt s\u00ed\u00f0an \u00ed fr\u00e1 minnar m\u00f3\u00f0ur kvi\u00f0i.<\/p>\n<p>\tVert ekki fjarri m\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6rmungin er n\u00e1l\u00e6g, af \u00fev\u00ed h\u00e9r er s\u00e1 enginn e\u00f0 hj\u00e1lpar.<\/p>\n<p>\tSt\u00f3r naut umkringdu mig, feitir uxar ums\u00e1tu mig,<\/p>\n<p>\t\u00feeirra gin opnu\u00f0u \u00feeir upp \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r, l\u00edka sem grenjanda og glefsanda le\u00f3n.<\/p>\n<p>\tSvo sem anna\u00f0 vatn em eg \u00fathelltur og \u00f6ll m\u00edn bein eru \u00ed sundur skilin, mitt hjarta er \u00ed m\u00ednum kvi\u00f0i sem kl\u00f6kkt vaxt.<\/p>\n<p>\tM\u00ednir kraftar eru upp\u00feorna\u00f0ir sem \u00f6nnur skurn og m\u00edn tunga lo\u00f0ir vi\u00f0 m\u00edna g\u00f3ma og \u00fe\u00fa lag\u00f0ir mig \u00ed dau\u00f0ans dj\u00fap.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 hundar hafa umkringt mig og hinir \u00f3mildu samt\u00f3ku s\u00edn r\u00e1\u00f0 yfir m\u00e9r, m\u00ednar hendur og m\u00ednar f\u00e6tur hafa \u00feeir \u00ed gegnum grafi\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00d6ll m\u00edn bein m\u00e1tta eg telja en \u00feeir horf\u00f0u \u00e1 \u00fea\u00f0 og s\u00e1u s\u00edna <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ \u00deeir k\u00e6ldu hugarge\u00f0 sitt \u00e1 m\u00e9r\">[<\/span> vild \u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>\t\u00deeir skiptu me\u00f0 s\u00e9r m\u00ednum kl\u00e6\u00f0um og um mitt fat v\u00f6rpu\u00f0u \u00feeir hlutkasti. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 27 \/ Marc. 15 \/ Luc. 23 \/ J\u00f3h. 19\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00fa, Drottinn, vert ekki fjarl\u00e6gur, minn styrkur, skunda \u00fe\u00fa m\u00e9r til hj\u00e1lpar.<\/p>\n<p>\tFrelsa \u00fe\u00fa s\u00e1l m\u00edna \u00ed fr\u00e1 sve\u00f0rinu og m\u00edna \u00fe\u00e1 hina eins\u00f6mu \u00ed fr\u00e1 hundunum.<\/p>\n<p>\tFrelsa \u00fe\u00fa mig \u00fata f gini le\u00f3nsins og hj\u00e1lpa m\u00e9r \u00ed burt fr\u00e1 einhyrninginum.<\/p>\n<p>\t\u00deitt nafn vil eg kunnigt gj\u00f6ra m\u00ednum br\u00e6\u00f0rum, \u00ed mi\u00f0ri samkundunni vil eg \u00feig vegsama. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3h. 20 \/ Ebre. 2\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tLofi\u00f0 Drottin, \u00fe\u00e9r sem \u00f3ttist hann, allt s\u00e6\u00f0i Jakobs d\u00fdrki hann og allt \u00cdsraels s\u00e6\u00f0i \u00f3ttist hann.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 hann hefur hverki forsm\u00e1\u00f0 n\u00e9 fyrirliti\u00f0 eymd hins f\u00e1t\u00e6ka og ekki s\u00ednu andliti \u00ed burt sn\u00fai\u00f0 fr\u00e1 honum og \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann kalla\u00f0i til hans \u00fe\u00e1 heyr\u00f0i hann \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00deig vil eg lofa \u00ed \u00feeirra hinni miklu samkundu, m\u00edn heit vil eg gjalda \u00ed augs\u00fdn \u00feeirra sem hann \u00f3ttast.<\/p>\n<p>\tHinir volu\u00f0u skulu neyta so a\u00f0 \u00feeir saddir ver\u00f0a og \u00feeir sem a\u00f0 Drottni leita munu lofa hann, y\u00f0ar hj\u00f6rtu skulu lifa a\u00f0 eil\u00edfu.<\/p>\n<p>\t\u00deess munu geta allar \u00e1ttir veraldarinnar og sn\u00faast til Drottins og fyrir hans augs\u00fdn tilbi\u00f0ja allar kynkv\u00edslir hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottins er r\u00edki\u00f0 og hann drottnar me\u00f0al hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>\tAllir <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ \u00dea\u00f0 eru \u00feeir r\u00edku og voldugu. \u00deeir sem e\u00f0 \u00ed duftinu liggja eru \u00feeir l\u00edtilm\u00f3tlegu og f\u00e1t\u00e6ku sem a\u00f0 lifa \u00ed eymd og ves\u00f6ld e\u00f0ur a\u00f0 dau\u00f0anum eru komnir. Allir \u00feessir \u00e1kalla Christum\">[<\/span> feitingjar \u00e1 j\u00f6r\u00f0u munu neyta og tilbi\u00f0ja, fyrir honum munu framfalla allir \u00feeir sem liggja \u00ed dufti jar\u00f0ar og \u00feeir e\u00f0 aumlega lifa.<\/p>\n<p>\tHann mun \u00fea\u00f0 s\u00e6\u00f0i hafa sem honum \u00fej\u00f3nar, af Drottni mun \u00fea\u00f0 kunngj\u00f6rt ver\u00f0a \u00ed fr\u00e1 slekti til slektis.<\/p>\n<p>\t\u00deeir munu koma og hans r\u00e9ttv\u00edsi pr\u00e9dika \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem f\u00e6tt ver\u00f0ur, \u00fea\u00f0 hann mun gj\u00f6ra.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXII. S\u00e1lmur Dav\u00ed\u00f0s fyr a\u00f0 syngja. \u00dat af hindinni sem \u00e1rla var veidd. Gu\u00f0 minn, Gu\u00f0 minn, hvar fyrir hefur \u00fe\u00fa yfirgefi\u00f0 mig? Eg veina en m\u00edn hj\u00e1lp er fjarl\u00e6g. Gu\u00f0 minn, \u00e1 daginn kalla eg og \u00fe\u00fa gefur ekki andsvar og \u00e1 n\u00f3ttinni \u00feegi eg ekki einnin heldur. En \u00fe\u00fa ert heilagur, \u00fe\u00fa sem b\u00fdr me\u00f0al [ lofgj\u00f6r\u00f0ar \u00cdsrael. Vorir fe\u00f0ur vonu\u00f0u \u00e1 \u00feig og \u00fe\u00e1 er \u00feeir vonu\u00f0u \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpa\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00feeim. Til \u00fe\u00edn k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir og ur\u00f0u frelsa\u00f0ir, \u00feeir vonu\u00f0u \u00e1 \u00feig og ur\u00f0u ekki til skammar. En eg em ma\u00f0kur en ei ma\u00f0ur, br\u00edgsli mannanna og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/salmarnir-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3193","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3193","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3193"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3193\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3193"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}