{"id":3171,"date":"2017-12-18T18:32:50","date_gmt":"2017-12-18T18:32:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-42-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:50","slug":"jobsbok-42-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-42-kafli\/","title":{"rendered":"Jobsb\u00f3k 42. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLII.<\/p>\n<p>Og Job svara\u00f0i Drottni og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Job\">[<\/span> &#8222;Eg me\u00f0kenni a\u00f0 \u00fe\u00fa form\u00e1tt alla hluti og a\u00f0 \u00fear er enginn \u00feanki f\u00f3lginn fyrir \u00fe\u00e9r. S\u00e1 er einn f\u00e1v\u00eds mann sem \u00fea\u00f0 \u00feenkir a\u00f0 hann geti huli\u00f0 sitt r\u00e1\u00f0. \u00dear fyrir \u00fe\u00e1 me\u00f0kenni eg a\u00f0 eg tala\u00f0i f\u00e1v\u00edslegana um \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r er forh\u00e1tt og eg skil ekki. Svo heyr \u00fe\u00fa n\u00fa, leyf \u00fe\u00fa m\u00e9r a\u00f0 m\u00e6la. Eg vil spyrja \u00feig a\u00f0, l\u00e6r \u00fe\u00fa mig. Eg hefi heyrt \u00feig me\u00f0 eyrunum og m\u00edn augu \u00feau sj\u00e1 \u00feig n\u00fa einnin. \u00dear fyrir j\u00e1ta eg mig n\u00fa saka\u00f0an vera og eg vil i\u00f0ran gj\u00f6ra \u00ed \u00f6sku og dufti.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 e\u00f0 Drottinn haf\u00f0i tala\u00f0 \u00feessi or\u00f0 vi\u00f0 Job \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til El\u00edfas af Teman: <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0\">[<\/span> &#8222;M\u00edn rei\u00f0i er heiftug or\u00f0in yfir \u00fe\u00e9r og \u00feeim tveimur \u00fe\u00ednum vinum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekki tala\u00f0 r\u00e9ttv\u00edslega um mig svo sem minn \u00fe\u00e9nari Job. Svo taki\u00f0 n\u00fa sj\u00f6 uxa og sj\u00f6 hr\u00fata og gangi\u00f0 burt til m\u00edns \u00fe\u00e9nara Job og offri\u00f0 brennif\u00f3rnum fyrir y\u00f0ur og l\u00e1ti\u00f0 Job minn \u00fe\u00e9nara bi\u00f0ja fyrir y\u00f0ur. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann vil eg \u00e1l\u00edta svo a\u00f0 eg l\u00e1ti ekki sj\u00e1 hversu f\u00e1v\u00edslega a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 gj\u00f6rt. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekki tala\u00f0 r\u00e9tt um mig so sem minn \u00fe\u00e9nari Job.&#8220; Svo f\u00f3ru \u00feeir El\u00edfas af Teman, Bildad af S\u00faa og S\u00f3far af Naema og gj\u00f6r\u00f0u svo sem Drottinn haf\u00f0i \u00feeim sagt. Og Drottinn \u00e1leit Job.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn sneri Jobs fj\u00f6trum \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann ba\u00f0 fyrir vinum s\u00ednum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Job f\u00e6r aftur tvefalt \u00ed sta\u00f0inn alls \u00feess sem hann missti\">[<\/span> Og Drottinn gaf Job tvefalt svo miki\u00f0 sem hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur haft. Og allir hans br\u00e6\u00f0ur og allar hans systur og allir \u00feeir e\u00f0 \u00e1\u00f0ur voru hans kunningjar \u00fe\u00e1 komu til hans og \u00e1tu me\u00f0 honum \u00ed hans h\u00fasi og snerust til hans og hugsv\u00f6lu\u00f0u honum yfir \u00f6llum \u00feeim h\u00f6rmungum sem Drottinn haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 yfir hann koma. Og hver einn \u00feeirra gaf honum fagran silfurpening og eitt gullhla\u00f0. Og Drottinn blessa\u00f0i Job eftir \u00fea\u00f0 meir en \u00e1\u00f0ur fyrri, so a\u00f0 hann \u00e1tti fj\u00f3rt\u00e1n \u00fe\u00fasundir sau\u00f0a og sex \u00fe\u00fasund \u00falfalda og \u00fe\u00fasund p\u00f6r uxa og \u00fe\u00fasund asna. Og hann f\u00e9kk sj\u00f6 sonu og \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur. Og hann kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 hinu fyrstu Jem\u00edma, hina a\u00f0ra Kes\u00eda og \u00fe\u00e1 hina \u00feri\u00f0ju Keren Hap\u00fak. Og \u00fear fundust ekki so fr\u00ed\u00f0ar kvinnur \u00ed \u00f6llu landinu sem a\u00f0 voru \u00fe\u00e6r d\u00e6tur Job. Og fa\u00f0ir \u00feeirra gaf \u00feeim arft\u00f6ku \u00e1 me\u00f0al br\u00e6\u00f0ra sinna.<\/p>\n<p>\tOg Job lif\u00f0i eftir \u00fea\u00f0 \u00ed hundra\u00f0 og fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r svo a\u00f0 hann s\u00e1 b\u00f6rn og barnab\u00f6rn s\u00edn allt \u00ed fj\u00f3r\u00f0u \u00e6ttkv\u00edsl. Og Job anda\u00f0ist gamall og saddur l\u00edfdaganna.<\/p>\n<p>Endir b\u00f3karinnar Job.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLII. Og Job svara\u00f0i Drottni og sag\u00f0i: [ &#8222;Eg me\u00f0kenni a\u00f0 \u00fe\u00fa form\u00e1tt alla hluti og a\u00f0 \u00fear er enginn \u00feanki f\u00f3lginn fyrir \u00fe\u00e9r. S\u00e1 er einn f\u00e1v\u00eds mann sem \u00fea\u00f0 \u00feenkir a\u00f0 hann geti huli\u00f0 sitt r\u00e1\u00f0. \u00dear fyrir \u00fe\u00e1 me\u00f0kenni eg a\u00f0 eg tala\u00f0i f\u00e1v\u00edslegana um \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r er forh\u00e1tt og eg skil ekki. Svo heyr \u00fe\u00fa n\u00fa, leyf \u00fe\u00fa m\u00e9r a\u00f0 m\u00e6la. Eg vil spyrja \u00feig a\u00f0, l\u00e6r \u00fe\u00fa mig. Eg hefi heyrt \u00feig me\u00f0 eyrunum og m\u00edn augu \u00feau sj\u00e1 \u00feig n\u00fa einnin. \u00dear fyrir j\u00e1ta eg mig n\u00fa saka\u00f0an vera og eg vil i\u00f0ran <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-42-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3171","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3171","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3171"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3171\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3171"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}