{"id":3166,"date":"2017-12-18T18:32:50","date_gmt":"2017-12-18T18:32:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-37-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:50","slug":"jobsbok-37-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-37-kafli\/","title":{"rendered":"Jobsb\u00f3k 37. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXVII.<\/p>\n<p>Vi\u00f0ur \u00fev\u00ed \u00f3gnar m\u00ednu hjarta og \u00fea\u00f0 skelfist \u00fear vi\u00f0. K\u00e6ri, heyri\u00f0 \u00fe\u00f3 hver s\u00fa rei\u00f0 a\u00f0 hans rei\u00f0ar\u00feruma er h\u00fan er og hva\u00f0a m\u00e1l \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 \u00fear \u00fat fara af hans munni. Hann s\u00e9r undir alla himna og lj\u00f3s hans sk\u00edn yfir \u00f6ll endim\u00f6rk jar\u00f0ar. Eftir honum \u00f6skrar rei\u00f0ar\u00feruman og hann l\u00e6tur skruggur koma me\u00f0 s\u00ednum miklum hlj\u00f3\u00f0um og n\u00e6r e\u00f0 hans rei\u00f0ar\u00feruma h\u00fan heyrist \u00fe\u00e1 f\u00e6r henni enginn afturhaldi\u00f0. Gu\u00f0 hann hlj\u00f3\u00f0ar \u00f3gurlega me\u00f0 sinni rei\u00f0ar\u00ferumu og gj\u00f6rir mikla hluti og ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 ekki \u00feekktur. Hann m\u00e6lir til snj\u00f3arins, \u00fe\u00e1 kemur hann jafnsnart \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, og til daggarinnar, so og kemur \u00fear n\u00f3glegt regn. Alla menn hefur hann \u00ed sinni hendi svo sem innilukta svo al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lki\u00f0 skal l\u00e6ra hva\u00f0 hann kann a\u00f0 gj\u00f6ra. \u00dea\u00f0 villud\u00fdri\u00f0 gengur inn \u00ed sitt hreysi og bl\u00edfur svo \u00ed sinni holu. Af su\u00f0rinu kemur \u00feeyrinn og af nor\u00f0rinu kuldinn. Og \u00fat af Gu\u00f0s vindbl\u00e6stri kemur frosti\u00f0 og miki\u00f0 vatn n\u00e6r e\u00f0 hann l\u00e6tur \u00fea\u00f0 hl\u00e1na aftur. \u00deau hinu \u00feykkvu sk\u00fdin a\u00f0skilja sig svo a\u00f0 hei\u00f0bjart ver\u00f0ur og hans lj\u00f3s sk\u00edn \u00ed gegnum \u00fe\u00e1 \u00feokuna. Hann sn\u00fdr sk\u00fdjunum hvert hann vill svo \u00feau fullgj\u00f6ra \u00e1 jar\u00f0r\u00edki allt \u00fea\u00f0 hann b\u00fd\u00f0ur \u00feeim, hvert heldur \u00fea\u00f0 er yfir kynslekti e\u00f0ur yfir einu landi \u00fear sem hann finnst miskunnsamur.<\/p>\n<p>\tJob, merk \u00feetta, statt \u00fe\u00fa st\u00f6\u00f0ugur og hygg a\u00f0 Gu\u00f0s d\u00e1semdarverkum. Veist \u00fe\u00fa n\u00e6r e\u00f0 Gu\u00f0 sendir svoddan yfir \u00fe\u00e1 og n\u00e6r e\u00f0 hann l\u00e6tur \u00fea\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 sinna sk\u00fdja brj\u00f3tast h\u00e9r fram? veistu hvernin a\u00f0 sk\u00fdin \u00fatdreifast? Hver d\u00e1semdarverk \u00feau fullkomnu\u00f0 vita, svo a\u00f0 \u00fe\u00edn kl\u00e6\u00f0i eru \u00fe\u00e1 v\u00f6rm n\u00e6r e\u00f0 landi\u00f0 er kyrrt af sunnanve\u00f0ri. J\u00e1, muntu nokku\u00f0 \u00fatbrei\u00f0a sk\u00fdin me\u00f0 honum \u00feau sem f\u00f6st eru sem annar steyptur sj\u00f3narspegill? Seg \u00fe\u00fa oss hva\u00f0 v\u00e9r eigum honum a\u00f0 segja \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r kunnum ekki a\u00f0 n\u00e1 alla gutu \u00feanga\u00f0 fyrir myrkrinu. Hver vill telja upp fyri honum \u00fea\u00f0 eg tala? Ef nokkur talar \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 uppsvelgist hann. N\u00fa s\u00e9st ekki \u00fea\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 sem sk\u00e6rt sk\u00edn \u00ed sk\u00fdjunum en n\u00e6r e\u00f0 vindurinn bl\u00e6s \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 bjart ve\u00f0ur. Af nor\u00f0rinu kemur <span class=\"athugasemd\" title=\"sword (Gulli\u00f0) \/ \u00dea\u00f0 er, sk\u00e6rt ve\u00f0ur sem kl\u00e1rt gull\">[<\/span> gulli\u00f0, \u00feeim \u00f3gurlega Gu\u00f0i til lofs. En \u00feeir kunna ekki a\u00f0 h\u00f6ndla Hinn alm\u00e1ttuga sem svo er mikill af kraftinum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann mun \u00f6ngvan reikningsskap standa af s\u00ednu r\u00e9ttd\u00e6mi og g\u00f3\u00f0u m\u00e1lefni. \u00dear fyrir skulu menn \u00f3ttast hann og hann hr\u00e6\u00f0ist \u00f6ngvan, hversu v\u00edsir sem \u00feeir eru.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXVII. Vi\u00f0ur \u00fev\u00ed \u00f3gnar m\u00ednu hjarta og \u00fea\u00f0 skelfist \u00fear vi\u00f0. K\u00e6ri, heyri\u00f0 \u00fe\u00f3 hver s\u00fa rei\u00f0 a\u00f0 hans rei\u00f0ar\u00feruma er h\u00fan er og hva\u00f0a m\u00e1l \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 \u00fear \u00fat fara af hans munni. Hann s\u00e9r undir alla himna og lj\u00f3s hans sk\u00edn yfir \u00f6ll endim\u00f6rk jar\u00f0ar. Eftir honum \u00f6skrar rei\u00f0ar\u00feruman og hann l\u00e6tur skruggur koma me\u00f0 s\u00ednum miklum hlj\u00f3\u00f0um og n\u00e6r e\u00f0 hans rei\u00f0ar\u00feruma h\u00fan heyrist \u00fe\u00e1 f\u00e6r henni enginn afturhaldi\u00f0. Gu\u00f0 hann hlj\u00f3\u00f0ar \u00f3gurlega me\u00f0 sinni rei\u00f0ar\u00ferumu og gj\u00f6rir mikla hluti og ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 ekki \u00feekktur. Hann m\u00e6lir til snj\u00f3arins, \u00fe\u00e1 kemur hann jafnsnart \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, og til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-37-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3166","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3166","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3166"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3166\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3166"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}