{"id":3156,"date":"2017-12-18T18:32:50","date_gmt":"2017-12-18T18:32:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-27-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:50","slug":"jobsbok-27-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-27-kafli\/","title":{"rendered":"Jobsb\u00f3k 27. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXVII.<\/p>\n<p>Og Job tala\u00f0i enn framar og h\u00f3f upp s\u00edna m\u00e1lsh\u00e1ttu og sag\u00f0i: &#8222;So sannarlega sem Gu\u00f0 lifir hver e\u00f0 minn r\u00e9tt l\u00e6tur ekki undan ganga og s\u00e1 Hinn alm\u00e1ttugi hver e\u00f0 hrygg\u00f0i m\u00edna s\u00e1lu, so lengi sem \u00fea\u00f0 minn andi er \u00ed m\u00e9r og \u00fea\u00f0 s\u00e1 andardr\u00e1tturinn af Gu\u00f0i er \u00ed m\u00ednum n\u00f6sum \u00fe\u00e1 skulu m\u00ednar varir ekki tala \u00f3r\u00e9ttindi og m\u00edn tunga skal engin svikr\u00e6\u00f0i m\u00e6la. \u00dea\u00f0 s\u00e9 langt fr\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 eg gefi y\u00f0ur r\u00e9tt \u00ed \u00feessu, eg vil og ekki \u00ed burt v\u00edkja fr\u00e1 m\u00ednu sakleysi fyrr en \u00fea\u00f0 m\u00edn \u00e6vilok koma. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00e9ttl\u00e6ti einnrar g\u00f3\u00f0rar samvisku\">[<\/span> Eg l\u00e6t ekki af \u00fev\u00ed r\u00e9ttl\u00e6ti sem eg hefi, m\u00edn samviska b\u00edtur mig ekki fyrir alls m\u00edns lifna\u00f0ar sakir. <\/p>\n<p>\tEn minn \u00f3vinur mun \u00f3gu\u00f0legur finnast og hann rangl\u00e1tur sem setur sig upp \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r. \u00dev\u00ed hva\u00f0 er vonin <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Hr\u00e6snarar) \/ kallast \u00ed allri \u00feessari b\u00f3k falskir menn svo sem eru alir \u00feeir fyrir Gu\u00f0i sem eru \u00e1n tr\u00faarinnar\">[<\/span> hr\u00e6snarans \u00fea\u00f0 hann er so f\u00e9gjarn en Gu\u00f0 hann \u00ed burt sviptir \u00fe\u00f3 hans s\u00e1lu? \u00deenkir \u00fe\u00fa a\u00f0 Gu\u00f0 mun heyra hans \u00e1kall n\u00e6r e\u00f0 angist kemur yfir hann? Hvernin kann hann a\u00f0 hafa lyst til Hins alm\u00e1ttuga og nokkurn t\u00edma a\u00f0 \u00e1kalla Gu\u00f0?<\/p>\n<p>\tEg vil l\u00e6ra y\u00f0ur af Gu\u00f0s hendi og \u00fea\u00f0 hva\u00f0 e\u00f0 dugir \u00ed hj\u00e1 \u00feeim Hinum alm\u00e1ttuga, \u00fea\u00f0 vil eg ekki dylja fyrir y\u00f0ur. Sj\u00e1, \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 y\u00f0ur alla a\u00f0 vera forhyggna en hvar fyri \u00fe\u00e1 framsegi \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3 so \u00f3nytsamlega hluti? \u00dea\u00f0 hi\u00f0 sama er ver\u00f0kaupi\u00f0 eins \u00f3gu\u00f0legs manns hj\u00e1 Gu\u00f0i og \u00fea\u00f0 er arftakan \u00feeirra v\u00edkinganna hverja \u00feeir skulu f\u00e1 af Hinum alm\u00e1ttuga. \u00de\u00f3 hann hafi m\u00f6rg b\u00f6rn \u00fe\u00e1 munu \u00feau fyrir sver\u00f0i deyja og hans eftirkomendur munu eigi f\u00e1 n\u00f3glega f\u00e6\u00f0slu. Hans hinir eftirbl\u00edfnu munu greftrast \u00ed dau\u00f0anum og hans ekkjur munu \u00fea\u00f0 ekki <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ \u00de\u00e6r munu fagna a\u00f0 hann er dau\u00f0ur\">[<\/span> syrgja. \u00de\u00f3 hann samanraki svo peningum sem jar\u00f0ardufti og d\u00fdrindiskl\u00e6\u00f0um sem moldarleiri, \u00fe\u00f3 hann tilrei\u00f0i \u00feau vel \u00fe\u00e1 mun \u00fe\u00f3 hinn r\u00e9ttl\u00e1ti \u00edkl\u00e6\u00f0a sig \u00feeim og s\u00e1 hinn saklausi mun \u00fatskipta \u00feeim peningum. Hann uppbyggir sitt h\u00fas sem \u00f6nnur gaungur\u00f3fa og l\u00edka sem einn g\u00e6sluv\u00f6r\u00f0ur gj\u00f6rir s\u00e9r eitt forskyggni.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r hinn r\u00edki leggur sig \u00fat af \u00fe\u00e1 mun hann \u00fev\u00ed ekki me\u00f0 s\u00e9r \u00ed burt s\u00f3pa, hann mun uppl\u00faka s\u00ednum augum og \u00fear mun ekki neitt par vera. Hr\u00e6\u00f0sla mun yfir hann falla sem anna\u00f0 vatn, stormvi\u00f0ri\u00f0 \u00e1 n\u00e1ttart\u00edmanum mun \u00ed burt svipta honum. S\u00e1 austanvindurinn mun \u00ed burt flytja hann svo hann fari h\u00e9\u00f0an og hr\u00ed\u00f0vi\u00f0ri\u00f0 mun hrinda honum \u00far s\u00ednum sta\u00f0. Hann mun senda sj\u00e1lfur svoddan yfir hann og v\u00e6gja honum ekki. Allir hlutir munu burt fl\u00fdja \u00far hans h\u00f6ndum, yfir honum munu \u00feeir klappa h\u00f6ndum til samans og bl\u00edstra eftir honum \u00fear e\u00f0 hann var.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXVII. Og Job tala\u00f0i enn framar og h\u00f3f upp s\u00edna m\u00e1lsh\u00e1ttu og sag\u00f0i: &#8222;So sannarlega sem Gu\u00f0 lifir hver e\u00f0 minn r\u00e9tt l\u00e6tur ekki undan ganga og s\u00e1 Hinn alm\u00e1ttugi hver e\u00f0 hrygg\u00f0i m\u00edna s\u00e1lu, so lengi sem \u00fea\u00f0 minn andi er \u00ed m\u00e9r og \u00fea\u00f0 s\u00e1 andardr\u00e1tturinn af Gu\u00f0i er \u00ed m\u00ednum n\u00f6sum \u00fe\u00e1 skulu m\u00ednar varir ekki tala \u00f3r\u00e9ttindi og m\u00edn tunga skal engin svikr\u00e6\u00f0i m\u00e6la. \u00dea\u00f0 s\u00e9 langt fr\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 eg gefi y\u00f0ur r\u00e9tt \u00ed \u00feessu, eg vil og ekki \u00ed burt v\u00edkja fr\u00e1 m\u00ednu sakleysi fyrr en \u00fea\u00f0 m\u00edn \u00e6vilok koma. [ Eg l\u00e6t ekki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-27-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3156","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3156","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3156"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3156\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3156"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}