{"id":3138,"date":"2017-12-18T18:32:46","date_gmt":"2017-12-18T18:32:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:46","slug":"jobsbok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Jobsb\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IX.<\/p>\n<p>Job svara\u00f0i og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Job\">[<\/span> &#8222;J\u00e1, eg veit \u00fea\u00f0 n\u00e6sta vel a\u00f0 \u00fea\u00f0 er so a\u00f0 ma\u00f0urinn kann ekki r\u00e9ttfer\u00f0uglega a\u00f0 standa \u00e1 m\u00f3ti Gu\u00f0i. Hafi hann lysting til a\u00f0 \u00fer\u00e1tta vi\u00f0 hann \u00fe\u00e1 kann hann ekki a\u00f0 svara honum einu \u00ed m\u00f3t \u00fe\u00fasund. Hann er vitur og megtugur, hverjum lukka\u00f0ist \u00fea\u00f0 nokkurn t\u00edma vel sem setti sig \u00e1 m\u00f3ti honum? Hann f\u00e6r\u00f0i fj\u00f6llin \u00far sta\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00feau ver\u00f0a v\u00f6r vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00feeim e\u00f0 hann umturnar \u00ed sinni rei\u00f0i. Hann hr\u00e6rir landi\u00f0 \u00far s\u00ednum sta\u00f0 svo a\u00f0 \u00feess st\u00f3lpar hristast. Hann segir til s\u00f3larinnar \u00fe\u00e1 h\u00fan kemur eigi upp og h\u00fan innsiglar stj\u00f6rnurnar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Amos 5\">[<\/span> Hann alleina \u00fatbrei\u00f0ir himininn og gengur \u00e1 bylgjum sj\u00e1varins. Hann gj\u00f6rir \u00feann Vagninn \u00e1 himninum, \u00feann <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (\u00d3r\u00edon) \/ \u00dea\u00f0 bjarta himinteikn, stjarna su\u00f0ur \u00e1 himninum, sumir kalla fiskikall\">[<\/span> \u00d3r\u00edon og Sj\u00f6stj\u00f6rnurnar \u00ed m\u00f3ti su\u00f0rinu. Hann gj\u00f6rir mikla hluti og \u00f3rannsakanlega og \u00f3teljanlegar d\u00e1semdir.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, hann gengur fram yfir mig fyrr en eg var\u00f0 \u00feess v\u00eds og umskiptir s\u00e9r fyrr en eg formerki \u00fea\u00f0. Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, n\u00e6r e\u00f0 hann l\u00ed\u00f0ur skyndilega \u00ed burt, hver f\u00e6r s\u00f3tt hann aftur? Hver vill segja til hans: Hva\u00f0 hefst \u00fe\u00fa a\u00f0? Hann er Gu\u00f0, enginn kann a\u00f0 stilla hans rei\u00f0i, hinir <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ (Stoltu) \/ \u00deeir stoltu jungherrar \u00feeir e\u00f0 treysta upp \u00e1 s\u00edna magt og hverjum manni geta hj\u00e1lpa\u00f0\">[<\/span> stoltu herrarnir hlj\u00f3ta a\u00f0 l\u00fata undir hann. Hvernin skyldi eg \u00fe\u00e1 svara honum e\u00f0ur finna or\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti honum? Einnin \u00fe\u00f3 eg hef\u00f0a r\u00e9tt \u00fe\u00e1 kann eg \u00fe\u00f3 ekki heldur honum svar a\u00f0 gefa, utan eg hl\u00fdt a\u00f0 bi\u00f0ja um minn r\u00e9tt. En \u00fe\u00f3 eg kalli til hans og hann heyri \u00fe\u00e1 tr\u00fai eg \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann heyri ekki m\u00edna raust. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann fer yfir m\u00e9r me\u00f0 stormvi\u00f0ri og veitir m\u00e9r marga \u00e1komu fyrir sakleysi. Hann l\u00e6tur minn anda ei n\u00e1 a\u00f0 endurn\u00e6ra sig heldur uppfyllir hann mig af harmkv\u00e6lum.<\/p>\n<p>\tVer\u00f0i magtarinnar leita\u00f0 \u00fe\u00e1 er hann megtugur, ver\u00f0i r\u00e9ttarins krafi\u00f0, hver vill vera minn vitnisma\u00f0ur? Segi eg \u00fea\u00f0 a\u00f0 eg s\u00e9 r\u00e9ttv\u00eds \u00fe\u00e1 ford\u00e6mir hann mig \u00fe\u00f3 samt. s\u00e9 eg meinlaus \u00fe\u00e1 gj\u00f6rir hann mig \u00fe\u00f3 saka\u00f0an. S\u00e9 eg r\u00e9ttl\u00e1tur \u00fe\u00e1 \u00feorir \u00fe\u00f3 m\u00edn s\u00e1la ekki a\u00f0 taka s\u00e9r \u00fea\u00f0 til. Eg hir\u00f0i ekki um a\u00f0 lifa lengur. \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 eina sem eg hefi sagt: Hann forey\u00f0ir b\u00e6\u00f0i saklausum og s\u00f6ku\u00f0um. N\u00e6r e\u00f0 hann tekur til a\u00f0 h\u00fa\u00f0str\u00fdkja \u00fe\u00e1 \u00ferengir hann jafnsnart fram til dau\u00f0ans og hl\u00e6r a\u00f0 freistingum hinna meinlausu. En landi\u00f0 ver\u00f0ur gefi\u00f0 \u00ed hendur hins \u00f3milda a\u00f0 hann vilji ni\u00f0ur\u00ferykkja \u00feeirra d\u00f3mendur. Er \u00fea\u00f0 eigi svo hvernin skyldi \u00fea\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi vera?<\/p>\n<p>\tM\u00ednir dagar hafa veri\u00f0 flj\u00f3tari en nokkur hlaupari, \u00feeir eru \u00ed burt fl\u00fa\u00f0ir og hafa einskis g\u00f3\u00f0s \u00e1skynja or\u00f0i\u00f0. \u00deeir eru \u00ed burt gengnir l\u00edka sem \u00feau sterku skipin, l\u00edka sem \u00fea\u00f0 \u00f6rnin burt fl\u00fdgur til br\u00e1\u00f0ar. N\u00e6r eg \u00feenkti a\u00f0 eg vilji gleyma m\u00ednum harmi og l\u00e1ta m\u00edna breytni uml\u00ed\u00f0a og endurl\u00edfga mig \u00fe\u00e1 kv\u00ed\u00f0i eg samt vi\u00f0 \u00f6llu m\u00ednu kvalr\u00e6\u00f0i af \u00fev\u00ed a\u00f0 eg veit \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa heldur mig ekki saklausan. Ef eg er \u00f3gu\u00f0legur, hvar fyrir hefi eg \u00fe\u00e1 \u00feessa pl\u00e1gu til forgefins? \u00de\u00f3 a\u00f0 eg \u00fev\u00e6gi mig upp \u00ed snj\u00f3vatni og hreinar gj\u00f6r\u00f0i m\u00ednar hendur \u00ed brunninum, \u00fe\u00e1 d\u00fdfir \u00fe\u00fa m\u00e9r mitt ni\u00f0ur \u00ed saurinn og m\u00edn <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ (F\u00f6t) \/ Kostir og manndygg\u00f0ir\">[<\/span> f\u00f6t munu \u00fe\u00e1 fara m\u00e9r sv\u00edvir\u00f0ilega. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann er ekki minn l\u00edki \u00feeim eg m\u00e6tti svara svo a\u00f0 v\u00e9r k\u00e6mum saman fyrir d\u00f3minn. \u00dear er enginn s\u00e1 ma\u00f0ur oss kunni skilja, eigi heldur s\u00e1 sem kann a\u00f0 leggja s\u00edna h\u00f6nd \u00e1 millum okkar beggja. Hann taki sinn v\u00f6nd af m\u00e9r og \u00ed burt l\u00e1ti af m\u00e9r s\u00edna hrelling svo a\u00f0 eg megi tala og \u00feurfi ekki a\u00f0 hr\u00e6\u00f0ast fyrir honum, elligar kann eg ekki fyrir mig nokku\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IX. Job svara\u00f0i og sag\u00f0i: [ &#8222;J\u00e1, eg veit \u00fea\u00f0 n\u00e6sta vel a\u00f0 \u00fea\u00f0 er so a\u00f0 ma\u00f0urinn kann ekki r\u00e9ttfer\u00f0uglega a\u00f0 standa \u00e1 m\u00f3ti Gu\u00f0i. Hafi hann lysting til a\u00f0 \u00fer\u00e1tta vi\u00f0 hann \u00fe\u00e1 kann hann ekki a\u00f0 svara honum einu \u00ed m\u00f3t \u00fe\u00fasund. Hann er vitur og megtugur, hverjum lukka\u00f0ist \u00fea\u00f0 nokkurn t\u00edma vel sem setti sig \u00e1 m\u00f3ti honum? Hann f\u00e6r\u00f0i fj\u00f6llin \u00far sta\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00feau ver\u00f0a v\u00f6r vi\u00f0 \u00fea\u00f0, \u00feeim e\u00f0 hann umturnar \u00ed sinni rei\u00f0i. Hann hr\u00e6rir landi\u00f0 \u00far s\u00ednum sta\u00f0 svo a\u00f0 \u00feess st\u00f3lpar hristast. Hann segir til s\u00f3larinnar \u00fe\u00e1 h\u00fan kemur eigi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3138","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3138","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3138"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3138\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3138"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}