{"id":3130,"date":"2017-12-18T18:32:43","date_gmt":"2017-12-18T18:32:43","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:43","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:43","slug":"jobsbok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-1-kafli\/","title":{"rendered":"Jobsb\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>B\u00f3kin Job<\/p>\n<p>I. <\/p>\n<p>Job er ma\u00f0ur nefndur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Job er J\u00f3bab k\u00f3ngur Ed\u00f3m (Gen. xxxvi.) hj\u00e1 Arabiar\u00edki \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00edkingar af Saba falla yfir hann.\">[<\/span> Hann var \u00ed landi \u00das. S\u00e1 sami ma\u00f0ur var einfaldur, r\u00e9ttl\u00e1tur, gu\u00f0hr\u00e6ddur og for\u00f0a\u00f0ist hi\u00f0 vonda. Hann \u00e1tti sj\u00f6 sonu og \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur. Og hans kvikf\u00e9 var sj\u00f6 \u00fe\u00fasundir sau\u00f0a, \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir \u00falfalda, fimm hundru\u00f0 ardur uxa, fimm hundru\u00f0 \u00f6snur og mj\u00f6g m\u00f6rg hj\u00fa. Og hann var <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Ei vegna r\u00edkd\u00f3ms n\u00e9 magtar, heldur fyrir sakir v\u00edsd\u00f3ms, skilnings, gu\u00f0hr\u00e6\u00f0slu, \u00fe\u00e1 hefur hann veglegri og \u00e1g\u00e6ari haldinn veri\u00f0 en a\u00f0rir\">[<\/span> \u00e1g\u00e6tari en allir \u00feeir a\u00f0rir sem bjuggu \u00ed austur\u00e1lfunni.<\/p>\n<p>\tOg hans synir f\u00f3ru til og gj\u00f6r\u00f0u gestabo\u00f0, hver \u00ed s\u00ednu h\u00fasi, s\u00e9rhver \u00e1 s\u00ednum degi. Og \u00feeir sendu \u00fat og l\u00e9tu bj\u00f3\u00f0a systrum s\u00ednum \u00feremur til a\u00f0 eta og drekka me\u00f0 s\u00e9r. Og \u00fe\u00e1 einn gestabo\u00f0sdagurinn var umli\u00f0inn sendi Job burt og helga\u00f0i \u00fe\u00e1 og st\u00f3\u00f0 upp mj\u00f6g snemma og offra\u00f0i brennif\u00f3rnum fyrir s\u00e9rhverjum \u00feeirra. \u00dev\u00ed a\u00f0 Job hugsa\u00f0i svo: &#8222;Ske m\u00e1 a\u00f0 synir m\u00ednir hafi syndgast og blessa\u00f0 Gu\u00f0 \u00ed s\u00ednum hj\u00f6rtum.&#8220; So gj\u00f6r\u00f0i Job alla daga.<\/p>\n<p>\tSo bar til einn dag a\u00f0 Gu\u00f0s b\u00f6rn komu og st\u00f3\u00f0u fyrir Drottni. \u00de\u00e1 kom og Satan og st\u00f3\u00f0 \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. Og Drottinn sag\u00f0i til Satan: &#8222;Hva\u00f0an komstu?&#8220; Satan svara\u00f0i Drottni og sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi fari\u00f0 \u00ed kringum j\u00f6r\u00f0ina og gengi\u00f0 um hana.&#8220; Drottinn sag\u00f0i til Satan: &#8222;G\u00e6ttir \u00fe\u00fa ekki a\u00f0 m\u00ednum \u00fe\u00e9nara Job? \u00dev\u00ed a\u00f0 hans l\u00edki er ekki \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, einfaldlegur, r\u00e9ttl\u00e1tur, gu\u00f0hr\u00e6ddur og for\u00f0ast hi\u00f0 vonda.&#8220;<\/p>\n<p>\tSatan svara\u00f0i Drottni og sag\u00f0i: &#8222;Hv\u00f6rt meinar \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 a\u00f0 Job \u00f3ttist Gu\u00f0 fyrir ekkert? Hefur \u00fe\u00fa ekki vernda\u00f0 hans heimili og allt \u00fea\u00f0 hann hefur umhverfis sig? \u00de\u00fa hefur og blessa\u00f0 hans handaverk og hans g\u00f3ss hefur \u00fatbreitt sig \u00ed landinu. En r\u00e9tt \u00fe\u00fa \u00fe\u00edna h\u00f6nd \u00fat og svipt til alls \u00feess sem hann hefur. Hva\u00f0 gildir hann mun blessa \u00feig undir augun.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Blessa) \/ Merkir h\u00e9r a\u00f0 b\u00f6lva, form\u00e6la og gu\u00f0lasta\">[<\/span> Drottinn sag\u00f0i til Satan: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, allt \u00fea\u00f0 e\u00f0 hann hefur, \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e9r \u00ed hendi, utan \u00fea\u00f0 einasta a\u00f0 \u00fe\u00fa legg ekki \u00fe\u00edna h\u00f6nd \u00e1 hann sj\u00e1lfan.&#8220; \u00de\u00e1 gekk Satan \u00fat fr\u00e1 Drottni.<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 \u00feeim degi \u00fe\u00e1 hans synir og d\u00e6tur \u00e1tu og drukku v\u00edn \u00ed h\u00fasi s\u00edns frumgetna br\u00f3\u00f0urs \u00fe\u00e1 kom einn sendibo\u00f0i til Job og sag\u00f0i: &#8222;Ar\u00f0uruxarnir pl\u00e6g\u00f0u og \u00f6snurnar voru \u00fear \u00ed haganum hj\u00e1 \u00feeim. \u00de\u00e1 f\u00e9llu \u00feeir af r\u00edki Arabia yfir \u00fe\u00e1 og t\u00f3ku \u00fe\u00e1 \u00ed burt og \u00ed hel sl\u00f3gu \u00fej\u00f3nustumennina me\u00f0 sver\u00f0seggjum og eg komst einn undan a\u00f0 kunngj\u00f6ra \u00fe\u00e9r \u00feetta.&#8220; <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann var a\u00f0 tala \u00feetta \u00fe\u00e1 kom einn annar og sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0s eldur f\u00e9ll af himnum ofan og brenndi b\u00e6\u00f0i sau\u00f0ina og \u00fej\u00f3nustumennina og uppbrenndi \u00fe\u00e1 og eg komst einn undan a\u00f0 undirv\u00edsa \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0.&#8220; \u00de\u00e1 hann enn so tala\u00f0i kom einn annar og sag\u00f0i: &#8222;\u00deeir Caldei gj\u00f6r\u00f0u \u00ferj\u00e1r fyllkingar og hlupu a\u00f0 \u00falf\u00f6ldum og \u00ed burt t\u00f3ku \u00fe\u00e1 og \u00ed hel sl\u00f3gu \u00fej\u00f3nustumennina me\u00f0 sver\u00f0i og eg einn komst undan a\u00f0 kunngj\u00f6ra \u00fe\u00e9r \u00feetta.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann var \u00feetta a\u00f0 segja \u00fe\u00e1 kom einn annar og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00ednir synir og d\u00e6tur \u00e1tu og drukku \u00ed h\u00fasi s\u00edns frumgetna br\u00f3\u00f0urs. Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear kom mikill stormvindur af ey\u00f0im\u00f6rkinni og steytti upp \u00e1 \u00feau fj\u00f6gur hornin h\u00fassins og fleyg\u00f0i \u00fev\u00ed ni\u00f0ur yfir \u00fe\u00edn b\u00f6rn so a\u00f0 \u00feau dr\u00e1pust og eg komst einn undan a\u00f0 eg undirv\u00edsa\u00f0i \u00fe\u00e9r \u00feetta.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 Job upp og \u00ed sundur reif s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og reytti sitt h\u00e1r og f\u00e9ll til jar\u00f0ar, tilba\u00f0 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deolinm\u00e6\u00f0i Job\">[<\/span> &#8222;Nakinn kom eg \u00fat af minnar m\u00f3\u00f0ur kvi\u00f0i, nakinn mun eg og \u00feanga\u00f0 aftur hverfa. Drottinn gaf \u00fea\u00f0, Drottinn \u00ed burt t\u00f3k \u00fea\u00f0. Blessa\u00f0 s\u00e9 nafni\u00f0 Drottins.&#8220; \u00cd \u00f6llu \u00feessu syndga\u00f0ist ekki Job og eigi tala\u00f0i hann neitt f\u00e1v\u00edslegt \u00ed gegn Gu\u00f0i.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00f3kin Job I. Job er ma\u00f0ur nefndur. [ Hann var \u00ed landi \u00das. S\u00e1 sami ma\u00f0ur var einfaldur, r\u00e9ttl\u00e1tur, gu\u00f0hr\u00e6ddur og for\u00f0a\u00f0ist hi\u00f0 vonda. Hann \u00e1tti sj\u00f6 sonu og \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur. Og hans kvikf\u00e9 var sj\u00f6 \u00fe\u00fasundir sau\u00f0a, \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir \u00falfalda, fimm hundru\u00f0 ardur uxa, fimm hundru\u00f0 \u00f6snur og mj\u00f6g m\u00f6rg hj\u00fa. Og hann var [ \u00e1g\u00e6tari en allir \u00feeir a\u00f0rir sem bjuggu \u00ed austur\u00e1lfunni. Og hans synir f\u00f3ru til og gj\u00f6r\u00f0u gestabo\u00f0, hver \u00ed s\u00ednu h\u00fasi, s\u00e9rhver \u00e1 s\u00ednum degi. Og \u00feeir sendu \u00fat og l\u00e9tu bj\u00f3\u00f0a systrum s\u00ednum \u00feremur til a\u00f0 eta og drekka me\u00f0 s\u00e9r. Og \u00fe\u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/jobsbok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3130","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3130","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3130"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3130\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3130"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}