{"id":3119,"date":"2017-12-18T18:32:43","date_gmt":"2017-12-18T18:32:43","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/nehemiabok-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:43","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:43","slug":"nehemiabok-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/nehemiabok-13-kafli\/","title":{"rendered":"Nehem\u00edab\u00f3k 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>Og \u00e1 \u00feessum t\u00edma var lesin M\u00f3sesb\u00f3k fyrir f\u00f3lksins eyrum og \u00fear fannst skrifa\u00f0 inni a\u00f0 Ammoniter og Moabiter skyldu aldrei koma \u00ed Gu\u00f0s samkundu s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feeir komu ekki \u00ed m\u00f3ti sonum \u00cdsrael me\u00f0 brau\u00f0um og vatn og \u00fear fyrir a\u00f0 \u00feeir til fengu Balaam m\u00f3t \u00feeim a\u00f0 hann skyldi b\u00f6lva \u00feeim en vor Gu\u00f0 sneri \u00feeirri b\u00f6lvan \u00ed blessan. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3sesb\u00f3k lesin \/ Num. 22\">[<\/span> En sem \u00feeir heyr\u00f0u svoddan l\u00f6gm\u00e1l skildu \u00feeir alla framandi menn fr\u00e1 \u00cdsrael. Og \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i Eljas\u00edb kennima\u00f0ur lagt \u00ed f\u00e9hirsluna h\u00fass Drottins offur Tob\u00eda. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eljas\u00edb\">[<\/span> \u00dev\u00ed hann haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00feeim eina st\u00f3ra hirslu hvar \u00fat \u00ed \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00e1\u00f0ur lagt matoffur, reykelsi\u00f0, kerin og t\u00edundirnar af korninu, v\u00edninu og vi\u00f0smj\u00f6rinu eftir bo\u00f0i Lev\u00edtanna, s\u00f6ngvaranna og dyrav\u00f6rslumannanna og \u00fear me\u00f0 og einnin prestanna upplyftingar.<\/p>\n<p>\tEn um \u00feetta bil var eg ekki \u00ed Jer\u00fasalem \u00fe\u00e1 \u00feeir fr\u00f6mdu \u00fev\u00edl\u00edkt. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed t\u00f3lfta og tuttugasta \u00e1ri Artaxerxes k\u00f3ngs af Bab\u00fdlon kom eg til k\u00f3ngsins og eftir nokkra daga f\u00e9kk eg m\u00edna b\u00f3n af k\u00f3nginum a\u00f0 fara til Jer\u00fasalem. Og eg merkta a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki gott sem Eljas\u00edb haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 Tob\u00eda a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i honum eina hirslu \u00ed gar\u00f0inum hj\u00e1 Gu\u00f0s h\u00fasi og \u00fea\u00f0 misl\u00edka\u00f0i m\u00e9r mj\u00f6g. Og eg kasta\u00f0i \u00f6llum kerum Tobie h\u00fass \u00fat \u00far kistunni og bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 hreinsa hana. Og eg l\u00e9t \u00feanga\u00f0 aftur kerin Gu\u00f0s h\u00fass, matoffur og reykelsi.<\/p>\n<p>\tOg eg fornam a\u00f0 Lev\u00edtanna partur var \u00feeim ekki gefin og \u00fev\u00ed voru Lev\u00edtarnir og s\u00f6ngvararnir \u00ed burt fl\u00fd\u00f0ir hver til s\u00edns akurs og arfi\u00f0is. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lev\u00edtar f\u00e1 ekki s\u00ednar skyldur\">[<\/span> \u00de\u00e1 \u00e1v\u00edta\u00f0i eg \u00fe\u00e1 yppustu og sag\u00f0i: &#8222;\u00dev\u00ed yfirgefum v\u00e9r Gu\u00f0s h\u00fas?&#8220; En eg heimti \u00fe\u00e1 saman og skikka\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed s\u00ednar st\u00f6\u00f0ur. \u00de\u00e1 f\u00e6r\u00f0i allur J\u00fada \u00feeim t\u00edundir af korni, v\u00edni og vi\u00f0smj\u00f6ri \u00ed kornhl\u00f6\u00f0urnar. Og eg setta yfir kornh\u00fasin Selemja kennimann og Sad\u00f3k \u00feann skriftl\u00e6r\u00f0a og af Lev\u00edtunum Pedaja og undir \u00feeirra h\u00f6nd Hanan son Sak\u00far, sonar Matanja, \u00fev\u00ed \u00feeir voru reyndir a\u00f0 tr\u00fa. Og \u00feeim var b\u00edfala\u00f0 a\u00f0 \u00fatskipta \u00fev\u00ed me\u00f0 \u00feeirra br\u00e6\u00f0rum. Minn Gu\u00f0, minnst \u00fe\u00fa m\u00edn fyrir \u00fea\u00f0 og afm\u00e1 ekki m\u00edn miskunnarverk sem eg hefi gj\u00f6rt vi\u00f0 m\u00edns Gu\u00f0s h\u00fas og vi\u00f0 hans var\u00f0veitingar.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma s\u00e1 eg \u00ed J\u00fada a\u00f0 \u00feeir tr\u00e1\u00f0u v\u00edn\u00fer\u00fagur um sabbatsdaginn og innf\u00e6r\u00f0u bindini og asna klyfja\u00f0a me\u00f0 v\u00edn, v\u00ednber, f\u00edkjur og allsh\u00e1tta\u00f0ar byr\u00f0ir og fluttu \u00feetta til Jer\u00fasalem \u00e1 sabbatsdeginum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sabbatsdagurinn var ekki haldinn\">[<\/span> Og eg vitna\u00f0i fyrir \u00feeim \u00e1 \u00feeim sama degi \u00fe\u00e1 \u00feeir seldu f\u00e6\u00f0slurnar. \u00dear bjuggu og nokkrir af Tyro. \u00deeir fluttu \u00feanga\u00f0 fisk og allsh\u00e1tta\u00f0a v\u00f6ru og seldu \u00fea\u00f0 sonum J\u00fada og Jer\u00fasalem um \u00fevottdaginn. \u00de\u00e1 straffa\u00f0i eg og \u00e1saka\u00f0i \u00fe\u00e1 yppurstu \u00ed J\u00fada og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hver er illska \u00feessi sem \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r brj\u00f3ti\u00f0 sabbatsdaginn? Gj\u00f6r\u00f0u eigi vorir fe\u00f0ur svo og vor Gu\u00f0 leiddi alla \u00feessa \u00f3lukku fir oss og yfir \u00feennan sta\u00f0? Og \u00fe\u00e9r auki\u00f0 enn meiri rei\u00f0i yfir \u00cdsrael \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r brj\u00f3ti\u00f0 \u00fevottdaginn.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00feegar portin \u00ed Jer\u00fasalem voru uppl\u00e1tin um \u00fevottdaginn \u00fe\u00e1 bau\u00f0 eg a\u00f0 l\u00e1ta \u00feau aftur og b\u00edfala\u00f0i a\u00f0 \u00feeim skyldi ekki upploki\u00f0 fyrr en eftir sabatsdaginn. Og eg skikka\u00f0i nokkra af m\u00ednum \u00fe\u00e9nurum til sta\u00f0arportanna a\u00f0 \u00fear skyldu \u00f6ngvar byr\u00f0ar berast inn um sabatsdagana. \u00de\u00e1 voru kramararnir og kaupmennirnir um n\u00f3ttina utan fyrir Jer\u00fasalem me\u00f0 allra handa v\u00f6ru og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i eitt sinn e\u00f0a tvisvar. \u00de\u00e1 vitna\u00f0i eg fyrir \u00feeim og eg sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00dev\u00ed eru \u00fe\u00e9r \u00e1 n\u00e1ttar\u00feeli \u00ed kringum m\u00farana? Ef \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 \u00fea\u00f0 enn eitt sinn \u00fe\u00e1 skal eg leggja hendur \u00e1 y\u00f0ur.&#8220; Og fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma komu \u00feeir ekki \u00e1 \u00fevottd\u00f6gum. Og eg sag\u00f0a til Lev\u00edtanna sem voru hreinir a\u00f0 \u00feeir skyldu koma og geyma portin og helga sabatsdaginn. Minn Gu\u00f0, minnst \u00fe\u00fa m\u00edn fyrir \u00feetta og \u00feyrm m\u00e9r eftir \u00feinni mikilli miskunn.<\/p>\n<p>\tEg s\u00e1 og \u00e1 \u00feeim sama t\u00edma a\u00f0 Gy\u00f0ingarnir t\u00f3ku s\u00e9r eiginkonur af Asd\u00f3d, Amm\u00f3n og M\u00f3ab. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gy\u00f0ingar taka \u00fatlenskar kvinnur\">[<\/span> Og \u00feeirra synir t\u00f6lu\u00f0u a\u00f0 helmingi tungum\u00e1l \u00feeirra \u00ed Asd\u00f3d en kunnu ekki a\u00f0 tala Gy\u00f0ingam\u00e1l heldur t\u00f6lu\u00f0u \u00feeir hvers f\u00f3lks m\u00e1lt\u00e6ki. Og eg \u00e1v\u00edta\u00f0i \u00fe\u00e1 og b\u00f6lva\u00f0i \u00feeim og sl\u00f3 nokkra af \u00feeim og f\u00f3ttra\u00f0 \u00fe\u00e1. Og eg l\u00e9t \u00fe\u00e1 sverja m\u00e9r ei\u00f0 vi\u00f0 Gu\u00f0: &#8222;\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki gefa y\u00f0ar d\u00e6tur \u00feeirra sonum e\u00f0a taka \u00feeirra d\u00e6tur til y\u00f0vara sona e\u00f0ur til y\u00f0ar sj\u00e1lfra. Hefur ekki Sal\u00f3mon Israelisk\u00f3ngur syngast \u00ed \u00feessu? Og \u00fear var \u00fe\u00f3 enginn k\u00f3ngur honum l\u00edkur \u00e1 millum margra hei\u00f0ingja og hann var k\u00e6r s\u00ednum Gu\u00f0i og Gu\u00f0 setti hann til eins k\u00f3ngs yfir allan \u00cdsrael. \u00de\u00f3 komu \u00fe\u00e6r \u00fatlensku kvinnur honum til a\u00f0 syndgast.<\/p>\n<p>\tHafi \u00fe\u00e9r ekki \u00fea\u00f0 heyrt a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 mikla vonsku og \u00fe\u00e9r misgj\u00f6ri\u00f0 vi\u00f0 vorn Gu\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r taki\u00f0 \u00fatlenskar kvinnur?&#8220; Og einn af sonum J\u00f3jada sonar Eljas\u00edb ypparsta kennimanns, hann haf\u00f0i gj\u00f6rt tengdir vi\u00f0 Senaballat Horoniter. En eg rak hann fr\u00e1 m\u00e9r. Minnst \u00fe\u00fa \u00feeirra, minn Gu\u00f0, sem a\u00f0 saurga kennimannskapinn og prestanna s\u00e1ttm\u00e1lann og Lev\u00edtanna. So hreinsa\u00f0i eg \u00fe\u00e1 af \u00f6llum \u00fatlendingum og setti var\u00f0hald presta og Lev\u00edta, hvern til sinnar \u00fej\u00f3nustu, til a\u00f0 offra vi\u00f0inum \u00ed tilsettan t\u00edma og frumf\u00f3rnum. Minnst \u00fe\u00fa \u00e1 mig, minn Gu\u00f0, til hins g\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>Endir \u00e1 b\u00f3k Nehem\u00eda.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. Og \u00e1 \u00feessum t\u00edma var lesin M\u00f3sesb\u00f3k fyrir f\u00f3lksins eyrum og \u00fear fannst skrifa\u00f0 inni a\u00f0 Ammoniter og Moabiter skyldu aldrei koma \u00ed Gu\u00f0s samkundu s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feeir komu ekki \u00ed m\u00f3ti sonum \u00cdsrael me\u00f0 brau\u00f0um og vatn og \u00fear fyrir a\u00f0 \u00feeir til fengu Balaam m\u00f3t \u00feeim a\u00f0 hann skyldi b\u00f6lva \u00feeim en vor Gu\u00f0 sneri \u00feeirri b\u00f6lvan \u00ed blessan. [ En sem \u00feeir heyr\u00f0u svoddan l\u00f6gm\u00e1l skildu \u00feeir alla framandi menn fr\u00e1 \u00cdsrael. Og \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i Eljas\u00edb kennima\u00f0ur lagt \u00ed f\u00e9hirsluna h\u00fass Drottins offur Tob\u00eda. [ \u00dev\u00ed hann haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00feeim eina st\u00f3ra hirslu hvar \u00fat <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/nehemiabok-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3119","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3119","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3119"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3119\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3119"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}