{"id":3100,"date":"2017-12-18T18:32:39","date_gmt":"2017-12-18T18:32:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esrabok-4-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:39","slug":"esrabok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esrabok-4-kafli\/","title":{"rendered":"Esrab\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IIII.<\/p>\n<p>N\u00fa sem \u00f3vinir \u00feeirra J\u00fada og Benjam\u00edn heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 herlei\u00f0ingarinnar synir uppbygg\u00f0u Drottins Gu\u00f0s Israelis musteri \u00fe\u00e1 komu \u00feeir til S\u00f3r\u00f3babel og til \u00feeirra yppustu fe\u00f0ra og s\u00f6g\u00f0u svo til \u00feeirra: &#8222;V\u00e9r viljum og byggja me\u00f0 y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r leitum y\u00f0vars Gu\u00f0s svo sem \u00fe\u00e9r og v\u00e9r h\u00f6fum ei honum offra\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 Assarhaddon k\u00f3ngurinn af Assyria f\u00e6r\u00f0i oss hinga\u00f0.&#8220; En S\u00f3r\u00f3babel og Jes\u00faa og \u00feeir a\u00f0rir yppustu fe\u00f0ur yfir \u00cdsrael sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeim: <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 19\">[<\/span> &#8222;Ekki h\u00e6fir \u00fea\u00f0 oss og y\u00f0ur a\u00f0 byggja vors Gu\u00f0s h\u00fas heldur viljum v\u00e9r alleina byggja h\u00fas Drottins \u00cdsraels Gu\u00f0s svo sem Cyrus k\u00f3ngur af Persia bau\u00f0 oss.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hamla\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu J\u00fadaf\u00f3lks hendi og skelfdi \u00fe\u00e1 fr\u00e1 uppbyggingunni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Musterisins uppbygging hindrast \/ J\u00f3h. 2\">[<\/span> Og \u00feeir leig\u00f0u r\u00e1\u00f0gjafara \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim svo \u00feeir hindru\u00f0u \u00feeirra r\u00e1\u00f0 svo lengi sem Cyrus k\u00f3ngur af Persia lif\u00f0i, allt til \u00feess a\u00f0 Dar\u00edus k\u00f3ngur r\u00edkti \u00ed Persia. \u00dev\u00ed \u00fe\u00e1 Assverus var k\u00f3ngur, \u00ed upphafi hans k\u00f3ngd\u00f3ms, skrifu\u00f0u \u00feeir eina \u00e1k\u00e6ru \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem. <\/p>\n<p>\tOg \u00e1 d\u00f6gum Artaxerxes skrifa\u00f0i B\u00edslam, Mitirdates, Tabeel og \u00feeir a\u00f0rir af \u00feeirra r\u00e1\u00f0aneyti til Artaxerxis k\u00f3ngs af Persialandi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Artahasta e\u00f0ur Artaxerxes e\u00f0ur Aassverus eiginma\u00f0ur Ester\">[<\/span> Og br\u00e9fi\u00f0 var skrifa\u00f0 \u00e1 s\u00fdrlensku og var so \u00fatlagt \u00e1 s\u00fdrlensku. Reh\u00fam canzeler og Simsa\u00ed skrifari skrifu\u00f0u sama br\u00e9f m\u00f3t Jer\u00fasalem til Artaxerxes k\u00f3ngs: &#8222;V\u00e9r R\u00e9hum canzeler og Simsa\u00ed skrifari og a\u00f0rir \u00feess r\u00e1\u00f0uneytis af D\u00edna, af Aparsak, af Tarplat, af Persem, af Arak, af Bab\u00fdlon, af S\u00fasan, af D\u00edha og af Elam og \u00fea\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk sem s\u00e1 mikli nafnkunnugi Assnafar hinga\u00f0 f\u00e6r\u00f0i og setti h\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed Samariaborgum og \u00ed \u00f6\u00f0rum h\u00e9ru\u00f0um \u00feessumegin vatsins og \u00ed Kanaan.&#8220; Og br\u00e9fi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feeir sendu til Artaxerxes k\u00f3ngs hl\u00fdddi svo:<\/p>\n<p>\t&#8222;\u00de\u00ednir \u00fe\u00e9narar og \u00feeir menn sem eru hinumegin vatsins og \u00ed Kanaan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Br\u00e9f Reh\u00fam til Artaxerxes m\u00f3t Gy\u00f0ingum\">[<\/span> \u00dea\u00f0 s\u00e9 k\u00f3nginum viturlegt a\u00f0 Gy\u00f0ingarnir \u00feeir sem komnir eru hinga\u00f0 til vor fr\u00e1 \u00fe\u00e9r til Jer\u00fasalem, \u00ed \u00feann styrjaldarfulla og vonda sta\u00f0, \u00feeir byggja upp \u00feann sama sta\u00f0 og reisa hans m\u00farveggi og f\u00e6ra \u00fe\u00e1 upp af grundvelli. \u00de\u00e1 s\u00e9 \u00fea\u00f0 n\u00fa k\u00f3nginum viturlegt a\u00f0 ef \u00feessi sta\u00f0ur ver\u00f0ur uppbygg\u00f0ur og a\u00f0 n\u00fdju me\u00f0 m\u00farveggjum gj\u00f6r\u00f0ur \u00fe\u00e1 munu \u00feeir hverki gefa \u00fe\u00e9r skatt n\u00e9 skyldur n\u00e9 \u00e1rlega rentu og \u00feeirra \u00e1form mun k\u00f3nginum ekki ska\u00f0laust vera. Og fyrir \u00feessa grein, v\u00e9r allir sem fyrr me\u00f0 vorum ni\u00f0ur a\u00f0 brj\u00f3ta \u00feetta musteri, \u00fe\u00e1 h\u00f6fum v\u00e9r ekki lengur vilja\u00f0 sj\u00e1 upp \u00e1 k\u00f3ngsins ska\u00f0a og \u00fev\u00ed sendum v\u00e9r h\u00e9\u00f0an a\u00f0 k\u00f3ngurinn f\u00e1i a\u00f0 vita \u00fea\u00f0 og a\u00f0 menn leiti \u00ed ann\u00e1lum \u00feinna fe\u00f0ra, svo munt \u00fe\u00fa finna \u00ed \u00feeim s\u00f6mu ann\u00e1lum a\u00f0 \u00feessi sta\u00f0ur hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 upphlaupsamur, k\u00f3nginum og landinu ska\u00f0samur og hefur fyrir langri \u00e6vi svo \u00e6t\u00ed\u00f0 ske\u00f0 a\u00f0 hann hefur og so komi\u00f0 \u00f6\u00f0rum til affalls og \u00fev\u00ed hefur og \u00feessi sta\u00f0ur veri\u00f0 ey\u00f0ilag\u00f0ur. \u00deess vegna gj\u00f6rum v\u00e9r k\u00f3ngi \u00fea\u00f0 vitanlegt: Ef \u00feessi sta\u00f0ur ver\u00f0ur uppbygg\u00f0ur og hans m\u00farveggir reistir \u00fe\u00e1 heldur \u00fe\u00fa \u00f6ngvu eftir fyrir \u00feeim \u00feessumegin vatsins.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn svar aftur til Reh\u00fam canzeler og Simsa\u00ed skrifara og til \u00feeirra annarra sem voru \u00ed \u00feeirra r\u00e1\u00f0i og \u00ed Samaria bjuggu og til hinna annarra sem hinumegin vatsins voru: <span class=\"athugasemd\" title=\"K\u00f3ngsins andsvar\">[<\/span> &#8222;Fri\u00f0ur og heilsan. \u00dea\u00f0 br\u00e9f sem \u00fe\u00e9r sendu\u00f0 oss \u00fea\u00f0 var opinberlega lesi\u00f0 fyrir m\u00e9r. Svo og er af m\u00e9r b\u00edfala\u00f0 a\u00f0 leitast skyldi (\u00ed ann\u00e1lab\u00f3kum). Og menn hafa so fundi\u00f0 a\u00f0 \u00feessi sta\u00f0ur hefur af gamalli t\u00ed\u00f0 upsett sig \u00e1 m\u00f3ti k\u00f3ngunum, \u00feeir hafa og \u00e6t\u00ed\u00f0 gj\u00f6rt uppreist og affall \u00fear inni. Og svo hafa \u00fear veri\u00f0 megtugir k\u00f3ngar \u00ed Jer\u00fasalem hverjir r\u00edkt hafa yfir \u00f6llu \u00fev\u00ed sem hinumegin vatsins veri\u00f0 hefur og hafa uppbori\u00f0 skatta og skyldur, skenkingar og \u00e1rlegar inntektir. \u00dear fyrir gj\u00f6ri\u00f0 n\u00fa eftir \u00feessari b\u00edfalningu: Hamli\u00f0 \u00feessum m\u00f6nnum so a\u00f0 \u00feessi sta\u00f0ur ver\u00f0i ekki uppbygg\u00f0ur \u00fear til a\u00f0 \u00fea\u00f0 er af m\u00e9r b\u00edfala\u00f0. Svo sj\u00e1i\u00f0 n\u00fa til a\u00f0 \u00fe\u00e9r fors\u00f3mi\u00f0 y\u00f0ur ekki h\u00e9r \u00fat \u00ed svo a\u00f0 k\u00f3ngurinn f\u00e1i \u00f6ngvan ska\u00f0a.&#8220;<\/p>\n<p>\tN\u00fa sem br\u00e9f Artaxerxes k\u00f3ngs var lesi\u00f0 fyrir Reh\u00fam og Simsa skrifara og \u00feeirra r\u00e1\u00f0gj\u00f6fum \u00fe\u00e1 f\u00f3ru \u00feeir jafnsnart upp til Jer\u00fasalem til Gy\u00f0inganna og t\u00e1lmu\u00f0u \u00feeim me\u00f0 magt og valdi. Svo forhindra\u00f0ist byggingin \u00e1 Gu\u00f0s h\u00fasi \u00ed Jer\u00fasalem svo \u00fear gj\u00f6r\u00f0ist ekki par a\u00f0 inn til \u00feess annars \u00e1rs Darii k\u00f3ngs af Persia.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IIII. N\u00fa sem \u00f3vinir \u00feeirra J\u00fada og Benjam\u00edn heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 herlei\u00f0ingarinnar synir uppbygg\u00f0u Drottins Gu\u00f0s Israelis musteri \u00fe\u00e1 komu \u00feeir til S\u00f3r\u00f3babel og til \u00feeirra yppustu fe\u00f0ra og s\u00f6g\u00f0u svo til \u00feeirra: &#8222;V\u00e9r viljum og byggja me\u00f0 y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r leitum y\u00f0vars Gu\u00f0s svo sem \u00fe\u00e9r og v\u00e9r h\u00f6fum ei honum offra\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 Assarhaddon k\u00f3ngurinn af Assyria f\u00e6r\u00f0i oss hinga\u00f0.&#8220; En S\u00f3r\u00f3babel og Jes\u00faa og \u00feeir a\u00f0rir yppustu fe\u00f0ur yfir \u00cdsrael sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeim: [ &#8222;Ekki h\u00e6fir \u00fea\u00f0 oss og y\u00f0ur a\u00f0 byggja vors Gu\u00f0s h\u00fas heldur viljum v\u00e9r alleina byggja h\u00fas Drottins \u00cdsraels Gu\u00f0s svo <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esrabok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3100","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3100","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3100"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3100\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3100"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}