{"id":3093,"date":"2017-12-18T18:32:39","date_gmt":"2017-12-18T18:32:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-33-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:39","slug":"sidari-kronikubok-33-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-33-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 33. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXIII.<\/p>\n<p>Manasses var t\u00f3lf vetra gamall \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti fimm og fimmt\u00edgi \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem og gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i, eftir hei\u00f0ingjanna sv\u00edvir\u00f0ingum hverja a\u00f0 Drottinn \u00fatrak fyrir Israelissonum. <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 25 \/ Manasses lv \u00e1r k\u00f3ngur\">[<\/span> Og hann senri s\u00e9r svo a\u00f0 hann uppbygg\u00f0i \u00fe\u00e6r h\u00e6\u00f0ir aftur sem hans fa\u00f0ir Esek\u00edas haf\u00f0i ni\u00f0urbroti\u00f0. Hann reisti Baal altari, gj\u00f6r\u00f0i lunda og tilba\u00f0 allan himinsins her og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. Hann reisti og altari \u00ed h\u00fasi Drottins, um hvert a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i tala\u00f0: &#8222;\u00cd Jer\u00fasalem skal mitt nafn vera \u00e6vinlega.&#8220; Hann bygg\u00f0i og \u00f6lturi \u00ed b\u00e1\u00f0um Drottins h\u00fass forg\u00f6r\u00f0um til allsh\u00e1tta\u00f0s himins hers og l\u00e9t s\u00edna syni ganga \u00ed gegnum eld \u00ed dalnum Ben Hinnom. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3gu\u00f0legt ath\u00e6fi Manasses\">[<\/span> Hann \u00fatvaldi s\u00e9rdeilis daga og gaf g\u00e6tur a\u00f0 fuglam\u00e1li og haf\u00f0i hj\u00e1 s\u00e9r galdra- og fj\u00f6lkynngismenn og gj\u00f6r\u00f0i margt \u00fea\u00f0esm Drottni illa l\u00edka\u00f0i, honum til stygg\u00f0ar. <\/p>\n<p>\tHann setti sk\u00fargo\u00f0 og l\u00edkneski sem hann haf\u00f0i gj\u00f6ra l\u00e1ti\u00f0 \u00ed Gu\u00f0s h\u00fas, um hva\u00f0 a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i sagt til Dav\u00ed\u00f0s og Sal\u00f3mon hans sonar: &#8222;\u00cd \u00feessu h\u00fasi til Jer\u00fasalem hverja eg hefi \u00fatvali\u00f0 af \u00f6llum Israelis knkv\u00edslum vil eg setja mitt nafn \u00e6vinlega. Og eg vil eigi framar meir l\u00e1ta \u00cdsrael v\u00edkja s\u00ednum f\u00e6ti af landinu hv\u00f6rt eg gaf fe\u00f0rum \u00feeirra, svo framt sem \u00feeir halda s\u00e9r til a\u00f0 gj\u00f6ra allt \u00fea\u00f0 sem eg hefi bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim vi\u00f0 Mosen \u00ed \u00f6llu l\u00f6gm\u00e1linu, bo\u00f0um og r\u00e9ttindum.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Par. 7 \/ 3. Reg. 8\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn Manasses villti Judam og Jer\u00fasalem og gj\u00f6r\u00f0i enn verr en \u00feeir hei\u00f0ingjar sem Drottinn haf\u00f0i \u00ed ey\u00f0i lagt fyrir Israelissonum. Og \u00fe\u00e1 Drottinn l\u00e9t tala vi\u00f0 Manasses og hans f\u00f3lk \u00fe\u00e1 g\u00e1fu \u00feeir \u00f6ngvar g\u00e6tur a\u00f0 \u00fev\u00ed. \u00dear fyrir l\u00e9t Drottinn koma yfir \u00fe\u00e1 k\u00f3ngsins hersh\u00f6f\u00f0ingja af Assyria. \u00deeir settu Manassen \u00ed fj\u00f6tur og bundu hann me\u00f0 vi\u00f0jum og fluttu hann til Bab\u00fdlon. <span class=\"athugasemd\" title=\"Manasses fanga\u00f0ur og f\u00e6r\u00f0ur \u00ed Bab\u00fdlon\">[<\/span> En sem hann var kominn \u00ed \u00fe\u00e1 angist \u00fe\u00e1 ba\u00f0 hann til Drottins s\u00edns Gu\u00f0s og au\u00f0m\u00fdkti sig mj\u00f6g fyrir Gu\u00f0i sinna fe\u00f0ra og \u00e1kalla\u00f0i og ba\u00f0 hann. Og Gu\u00f0 heyr\u00f0i b\u00e6n hans og f\u00e6r\u00f0i hann aftur \u00ed Jer\u00fasalem \u00ed sitt r\u00edki. \u00de\u00e1 me\u00f0kenndi Manasses a\u00f0 Drottinn v\u00e6ri Gu\u00f0. <\/p>\n<p>\tEftir \u00fea\u00f0 l\u00e9t hann uppbyggja \u00feann ysta steinvegg hj\u00e1 Dav\u00ed\u00f0ssta\u00f0 vestan fr\u00e1 G\u00ed\u00f3n \u00fear gengi\u00f0 er a\u00f0 Fiskaporti og all um kring til \u00d3fel og gj\u00f6r\u00f0\u00ed hann mj\u00f6g h\u00e1van og skikka\u00f0i h\u00f6fu\u00f0smenn \u00ed fasta sta\u00f0i \u00ed J\u00fada og l\u00e9t \u00ed burt taka \u00fe\u00e1 annarlega gu\u00f0i og \u00feau sk\u00fargo\u00f0 \u00far h\u00fasi Drottins og \u00f6ll altari \u00feau hann haf\u00f0i byggt \u00e1 Drottins h\u00fass fjalli og \u00ed Jer\u00fasalem og kasta\u00f0i \u00feeim \u00fat fyrir borgina. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 2\">[<\/span> En altari Drottins endurb\u00e6tti hann og offra\u00f0i \u00fear \u00e1 \u00feakkaroffri og lofgj\u00f6r\u00f0aroffri og bau\u00f0 J\u00fada a\u00f0 \u00feeir skyldu \u00fej\u00f3na Drottni Israelis Gu\u00f0i. En \u00fe\u00f3 offra\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 \u00e1 h\u00e6\u00f0unum samt, \u00fe\u00f3 Drottni Gu\u00f0i s\u00ednum.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 sem meira er a\u00f0 segja um Manasses og um hans b\u00e6n til Gu\u00f0s og um or\u00f0 \u00feeirra sj\u00e1andanna sem t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 hann \u00ed nafni Drottins \u00cdsraels Gu\u00f0s, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsk\u00f3nga Gj\u00f6rninga. Og l\u00edka hans b\u00e6n og \u00e1kall og hans allar syndir og misgj\u00f6rningar og \u00feeir sta\u00f0ir \u00e1 hverjum hann bygg\u00f0i \u00fe\u00e6r h\u00e6\u00f0ir og setti \u00fe\u00e1 lunda og afgu\u00f0i fyrr en hann gj\u00f6r\u00f0i i\u00f0ran, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er allt skrifa\u00f0 \u00ed Gj\u00f6rningum sj\u00e1ndanna. Og Manasses sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og \u00feeir j\u00f6r\u00f0u\u00f0u hann \u00ed hans h\u00fasi. En Am\u00f3n hans son var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n<p>\tAm\u00f3n haf\u00f0i tvo um tv\u00edtugt \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti tv\u00f6 \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. Og hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni illa \u00fe\u00f3kna\u00f0ist eins sem hans fa\u00f0ir Manasses haf\u00f0i gj\u00f6rt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Am\u00f3n 2 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada \/ 4. Reg. 21; 23\">[<\/span> Og Am\u00f3n f\u00e6r\u00f0i f\u00f3rnir til allra afgu\u00f0a \u00feeirra sem hans fa\u00f0ir haf\u00f0i gj\u00f6ra l\u00e1ti\u00f0 og \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00feeim. Eigi au\u00f0m\u00fdkti hann sig fyrir Drottni svo sem hans fa\u00f0ir Manasses au\u00f0m\u00fdkti sig \u00fev\u00ed a\u00f0 hann j\u00f3k syndum og misgj\u00f6r\u00f0um. Og hans eigin \u00fe\u00e9narar bundu r\u00e1\u00f0 saman \u00e1 m\u00f3ti honum og dr\u00e1pu hann \u00ed hans eigin h\u00fasi. En landsf\u00f3lki\u00f0 drap \u00fe\u00e1 alla sem \u00ed \u00feeim r\u00e1\u00f0um h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti Am\u00f3n k\u00f3ngi. Og landsf\u00f3lki\u00f0 t\u00f3k J\u00f3s\u00edam hans son til k\u00f3ngs \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXIII. Manasses var t\u00f3lf vetra gamall \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti fimm og fimmt\u00edgi \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem og gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i, eftir hei\u00f0ingjanna sv\u00edvir\u00f0ingum hverja a\u00f0 Drottinn \u00fatrak fyrir Israelissonum. [ Og hann senri s\u00e9r svo a\u00f0 hann uppbygg\u00f0i \u00fe\u00e6r h\u00e6\u00f0ir aftur sem hans fa\u00f0ir Esek\u00edas haf\u00f0i ni\u00f0urbroti\u00f0. Hann reisti Baal altari, gj\u00f6r\u00f0i lunda og tilba\u00f0 allan himinsins her og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. Hann reisti og altari \u00ed h\u00fasi Drottins, um hvert a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i tala\u00f0: &#8222;\u00cd Jer\u00fasalem skal mitt nafn vera \u00e6vinlega.&#8220; Hann bygg\u00f0i og \u00f6lturi \u00ed b\u00e1\u00f0um Drottins h\u00fass forg\u00f6r\u00f0um til allsh\u00e1tta\u00f0s himins hers <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-33-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3093","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3093","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3093"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3093\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3093"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}