{"id":3090,"date":"2017-12-18T18:32:36","date_gmt":"2017-12-18T18:32:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-30-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:36","slug":"sidari-kronikubok-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-30-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 30. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXX.<\/p>\n<p>Og Esek\u00edas sendi til alls \u00cdsraels og J\u00fada og skrifa\u00f0i br\u00e9f til Efra\u00edm og Manasse a\u00f0 \u00feeir skyldu koma til Drottins h\u00fass \u00ed Jer\u00fasalem til a\u00f0 halda p\u00e1ska Drottni Israelis Gu\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esek\u00edas \u00e1minnir allan \u00cdsrael a\u00f0 halda p\u00e1ska\">[<\/span><\/p>\n<p>\tK\u00f3ngurinn h\u00e9lt og eitt r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 s\u00edna h\u00f6f\u00f0ingja og vi\u00f0 allan s\u00f6fnu\u00f0inn \u00ed Jer\u00fasalem og kom \u00fea\u00f0 \u00e1samt me\u00f0 \u00feeim a\u00f0 \u00feeir skyldu halda p\u00e1ska \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i \u00fev\u00ed \u00feeir \u00fe\u00f3ttust ekki geta haldi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feeirri s\u00f6mu t\u00ed\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kennimennirnir voru ekki svo margir helga\u00f0ir sem vera \u00e1ttu, svo og var ekki f\u00f3lki\u00f0 komi\u00f0 saman til Jer\u00fasalem. \u00deetta l\u00edka\u00f0i k\u00f3nginum vel og \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum. Og \u00feeim kom \u00fea\u00f0 saman a\u00f0 l\u00e1ta sl\u00edkt \u00fat berast um allan \u00cdsrael fr\u00e1 Berseba og allt til Dan a\u00f0 \u00feeir skyldu koma og halda Drottins \u00cdsraels Gu\u00f0s p\u00e1ska \u00ed Jer\u00fasalem. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekki \u00ed langa t\u00edma p\u00e1ska haldi\u00f0 so sem skrifa\u00f0 stendur (\u00ed l\u00f6gm\u00e1linu).<\/p>\n<p>\tOg sendibo\u00f0arnir hlupu me\u00f0 fl\u00fdti me\u00f0 br\u00e9fum fr\u00e1 k\u00f3nginum og hans hersh\u00f6f\u00f0ingjum um allan \u00cdsrael og J\u00fada eftir k\u00f3ngsins skipan og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"Ein hjartn\u00e6m \u00e1minning Ezechie til \u00cdsrael\">[<\/span> &#8222;\u00de\u00e9r \u00cdsraelssynir, sn\u00fai\u00f0 aftur til Drottins Gu\u00f0s Abrahams, \u00cdsaks og \u00cdsraels, so mun hann sn\u00faa s\u00e9r til \u00feeirra sem eftir eru, \u00feeir sem enn eru eftir undan k\u00f3ngsins h\u00f6ndum \u00ed Assyria. Veri\u00f0 ekki sem y\u00f0ar fe\u00f0ur og br\u00e6\u00f0ur hverjir a\u00f0 s\u00e9r sneru fr\u00e1 Drottni \u00feeirra fe\u00f0ra Gu\u00f0i og hann gaf \u00fe\u00e1 \u00ed gl\u00f6tun so sem \u00fe\u00e9r sj\u00e1lfir sj\u00e1i\u00f0. Veri\u00f0 n\u00fa eigi svo har\u00f0hnakka\u00f0ir svo sem y\u00f0ar forfe\u00f0ur heldur gefi\u00f0 Drottni y\u00f0ar h\u00f6nd og komi\u00f0 til hans helgid\u00f3ms sem hann hefur helga\u00f0 \u00e6vinlega og \u00fej\u00f3ni\u00f0 Drottni y\u00f0rum Gu\u00f0i, \u00fe\u00e1 mun hans grimmdarrei\u00f0i l\u00e9tta af y\u00f0ur. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur til Drottins \u00fe\u00e1 mun y\u00f0ar br\u00e6\u00f0ur og b\u00f6rn f\u00e1 miskunnsemd af \u00feeim sem \u00fe\u00e1 halda hertekna og munu koma aftur \u00ed sitt land. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 er n\u00e1\u00f0igur og miskunnsamur og mun ekki sn\u00faa s\u00ednu augliti fr\u00e1 y\u00f0ur ef \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur til hans.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir hlauparar gengu fr\u00e1 einum sta\u00f0 og til annars \u00ed \u00f6llu landi Efra\u00edm og Manasse og allt til Seb\u00falon. En \u00feeir h\u00e6ddu og spottu\u00f0u \u00fe\u00e1. \u00de\u00f3 voru \u00feeir nokkrir sem sig au\u00f0m\u00fdktu af Asser, Manasse og Seb\u00falon og komu til Jer\u00fasalem. En \u00ed J\u00fada var Gu\u00f0s h\u00f6nd svo hann gaf \u00feeim eitt samhuga\u00f0 hjarta a\u00f0 gj\u00f6ra eftir k\u00f3ngsins bo\u00f0i og h\u00f6f\u00f0ingjanna \u00fat af Drottins or\u00f0i. Og \u00fear kom ofurmargt f\u00f3lk til samans \u00ed Jer\u00fasalem a\u00f0 halda \u00fe\u00e1 s\u00e6tubrau\u00f0sh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed \u00feeim \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i, einn mj\u00f6g mikill f\u00f3lksfj\u00f6ldi. <span class=\"athugasemd\" title=\"P\u00e1skar h\u00e9ldust \u00ed Ezechie t\u00ed\u00f0\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg \u00feeir f\u00f3ru til og ni\u00f0urbrutu \u00feau altari sem voru \u00ed Jer\u00fasalem og \u00f6ll \u00feau altari yfir hverjum reykelsi var offra\u00f0 og k\u00f6stu\u00f0u \u00feeim \u00f6llum \u00ed l\u00e6kinn Kedron. Og \u00feeir s\u00e6f\u00f0u <span class=\"athugasemd\" title=\"sword P\u00e1skalamb\">[<\/span> p\u00e1skana \u00feann fj\u00f3rtanda dag \u00ed \u00feeim \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i. Og prestarnir og Lev\u00edtarnir me\u00f0kenndu s\u00ednar skammir og helgu\u00f0u sig b\u00e1ru brennif\u00f3rnir \u00ed Drottins h\u00fas. Og \u00feeir st\u00f3\u00f0u \u00ed sinni skipan svo sem \u00feeim heyr\u00f0i eftir M\u00f3se gu\u00f0smanns l\u00f6gm\u00e1li. Og prestarnir t\u00f3ku bl\u00f3\u00f0i\u00f0 af Lev\u00edtanna h\u00f6ndum og \u00feeir st\u00f6kktu \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed \u00feeir voru margir \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum sem ekki h\u00f6f\u00f0u helga\u00f0 sig. \u00dev\u00ed sl\u00e1tru\u00f0u Lev\u00edtarnir p\u00e1skunum fyrir alla \u00fe\u00e1 sem ekki voru hreinir a\u00f0 \u00feeir skyldu ver\u00f0a helga\u00f0ir fyrir Drottni<\/p>\n<p>\t\u00dear var og margt f\u00f3lk af Efra\u00edm, Manasse, \u00cdsaskar og Seb\u00falon \u00feeir sem ekki voru hreinir og \u00feeir \u00e1tu p\u00e1skalambi\u00f0 ekki svo sem skrifa\u00f0 stendur. \u00dev\u00ed a\u00f0 Esek\u00edas ba\u00f0 fyrir \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn s\u00e1 sem g\u00f3\u00f0ur er hann mun miskunna sig yfir alla \u00fe\u00e1 sem af \u00f6llu hjarta leita Drottins \u00feeirra fe\u00f0ra Gu\u00f0s en eigi fyrir heilagleik . <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Hreinsan) \/ \u00dea\u00f0 er, Gu\u00f0 \u00e1l\u00edtur hjartans \u00feel. \u00deegar hjarta\u00f0 er hreint \u00fe\u00e1 hir\u00f0ir Gu\u00f0 ekki um \u00fe\u00e1 ytri hreinsanina hver e\u00f0 fyrir l\u00f6gm\u00e1linu er heil\u00f6g\">[<\/span> hreinsunarinnar.&#8220; Og Drottinn b\u00e6nheyr\u00f0i Ezechiam og helga\u00f0i f\u00f3lki\u00f0. Svo h\u00e9ldu Israelissynir, \u00feeir sem fundnir voru \u00ed Jer\u00fasalem, \u00fe\u00e1 s\u00e6tubrau\u00f0sh\u00e1t\u00ed\u00f0 me\u00f0 miklum f\u00f6gnu\u00f0i. En prestarnir og Lev\u00edtarnir lofu\u00f0u Drottin alla daga, magt Drottins me\u00f0 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rum. <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Par. 35\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg Esek\u00edas tala\u00f0i hjartn\u00e6milega vi\u00f0 alla Lev\u00edtana hverjir skilning h\u00f6f\u00f0u \u00e1 Drottni og \u00feeir \u00e1tu sj\u00f6 daga h\u00e1t\u00ed\u00f0arhaldsf\u00f3rnirnar og offru\u00f0u \u00feakkaroffri og \u00fe\u00f6kku\u00f0u Drottni \u00feeirra fe\u00f0ra Gu\u00f0i. Og \u00f6llum alm\u00faga kom \u00fea\u00f0 \u00e1samt a\u00f0 halda skyldi enn a\u00f0ra sj\u00f6 daga og \u00feeir h\u00e9ldu a\u00f0ra sj\u00f6 daga me\u00f0 fagna\u00f0i. \u00dev\u00ed Esek\u00edas k\u00f3ngur J\u00fada gaf alm\u00faganum \u00fe\u00fasund uxa og sj\u00f6 \u00fe\u00fasund sau\u00f0a en h\u00f6f\u00f0ingjarnir g\u00e1fu alm\u00faganum \u00fe\u00fasund uxa og t\u00edu \u00fe\u00fasund sau\u00f0a. Svo helga\u00f0i sig mikill fj\u00f6ldi kennimanna.<\/p>\n<p>\tAllur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00ed J\u00fada gladdist af fagna\u00f0i, prestarnir og Lev\u00edtarnir og s\u00e1 allur alm\u00fagi sem kominn var af \u00cdsrael og \u00feeir \u00fatlendu sem komnir voru af \u00cdsraelslandi og \u00feeir sem bjuggu \u00ed J\u00fada. Og \u00fear var einn st\u00f3r f\u00f6gnu\u00f0ur \u00ed Jer\u00fasalem hv\u00edl\u00edkur ekki veri\u00f0 haf\u00f0i allt \u00ed fr\u00e1 d\u00f6gum Sal\u00f3mon k\u00f3ngs sonar Dav\u00ed\u00f0s \u00ed Jer\u00fasalem. En prestarnir og Lev\u00edtarnir st\u00f3\u00f0u upp og blessu\u00f0u f\u00f3lki\u00f0 og \u00feeirra r\u00f6dd b\u00e6nheyr\u00f0ist og \u00feeirra b\u00e6n kom inn fyrir hans heil\u00f6gu tjaldb\u00fa\u00f0 \u00ed himninum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXX. Og Esek\u00edas sendi til alls \u00cdsraels og J\u00fada og skrifa\u00f0i br\u00e9f til Efra\u00edm og Manasse a\u00f0 \u00feeir skyldu koma til Drottins h\u00fass \u00ed Jer\u00fasalem til a\u00f0 halda p\u00e1ska Drottni Israelis Gu\u00f0i. [ K\u00f3ngurinn h\u00e9lt og eitt r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 s\u00edna h\u00f6f\u00f0ingja og vi\u00f0 allan s\u00f6fnu\u00f0inn \u00ed Jer\u00fasalem og kom \u00fea\u00f0 \u00e1samt me\u00f0 \u00feeim a\u00f0 \u00feeir skyldu halda p\u00e1ska \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i \u00fev\u00ed \u00feeir \u00fe\u00f3ttust ekki geta haldi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feeirri s\u00f6mu t\u00ed\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kennimennirnir voru ekki svo margir helga\u00f0ir sem vera \u00e1ttu, svo og var ekki f\u00f3lki\u00f0 komi\u00f0 saman til Jer\u00fasalem. \u00deetta l\u00edka\u00f0i k\u00f3nginum vel og \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum. Og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3090","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3090","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3090"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3090\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3090"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}