{"id":3088,"date":"2017-12-18T18:32:36","date_gmt":"2017-12-18T18:32:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-28-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:36","slug":"sidari-kronikubok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-28-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXVIII.<\/p>\n<p>Akas var tv\u00edtugur a\u00f0 aldri \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti sext\u00e1n \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"Akas 16 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada\">[<\/span> Hann gj\u00f6r\u00f0i ekki hva\u00f0 r\u00e9tt var \u00ed augliti Drottins so sem Dav\u00ed\u00f0 hans fa\u00f0ir haf\u00f0i gj\u00f6rt heldur gekk hann \u00e1 \u00cdsraelsk\u00f3nga vegum. H\u00e9r a\u00f0 auk steypti hann s\u00e9r Baalsmyndir og hann offra\u00f0i reykelsi fyrir Baal\u00edm \u00ed dal sona Hinnom og hann brenndi s\u00edna syni \u00ed eldi eftir hei\u00f0ingjanna sv\u00edvir\u00f0ilegum si\u00f0, hverja Drottinn haf\u00f0i \u00fatreki\u00f0 fyrir Israelissonum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 18\">[<\/span> Hann f\u00e6r\u00f0i f\u00f3rnir og reykelsi \u00e1 h\u00e6\u00f0um og undir \u00f6llum bl\u00f3mgu\u00f0um eikum.  <\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir gaf Drottinn Gu\u00f0 hann \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6nd af Syria og \u00feeir sl\u00f3gu hann og fluttu burt mikinn fj\u00f6lda af hans f\u00f6ngurum og h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e1 til Damascum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 7\">[<\/span> Hann var og gefinn undir k\u00f3ngsins h\u00f6nd af \u00cdsrael so hann veitti honum eitt st\u00f3rt slag. \u00dev\u00ed a\u00f0 Peka son Remalja sl\u00f3 \u00ed J\u00fada hundra\u00f0 og tuttugu \u00fe\u00fasundir \u00e1 einum degi, alla hrausta str\u00ed\u00f0smenn, fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir fyrirl\u00e9tu Drottin \u00feeirra fe\u00f0ra Gu\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hryggileg eymd \u00ed J\u00fada vegna sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkanar Akas \u00e1 hans d\u00f6gum\">[<\/span> Og \u00e1 \u00feeim t\u00edma drap Sikr\u00ed, einn voldugur ma\u00f0ur af Efra\u00edm, Maesja son k\u00f3ngsins og Asr\u00edkam \u00feann yppasta h\u00f6f\u00f0ingja fyrir k\u00f3ngsins h\u00fasi og Elkana \u00feann sem n\u00e6stur var k\u00f3nginum. Og Israelissynir hert\u00f3ku tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund kvinnur, syni og d\u00e6tur og t\u00f3ku \u00fear me\u00f0 \u00f3grynni fj\u00e1r fr\u00e1 \u00feeim og fluttu \u00fea\u00f0 herfang til Samariam.<\/p>\n<p>\tOg \u00fear var \u00ed \u00fea\u00f0 sinn Gu\u00f0s sp\u00e1ma\u00f0ur sem h\u00e9t \u00d3be\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3be\u00f0\">[<\/span> Hann gekk \u00fat \u00ed m\u00f3ti \u00feeim sama her sem kom til Samaria og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, fyrst a\u00f0 Drottinn y\u00f0ra fe\u00f0ra Gu\u00f0 er or\u00f0inn rei\u00f0ur yfir J\u00fada \u00fe\u00e1 gaf hann \u00fe\u00e1 \u00ed y\u00f0ar hendur. En \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 svo gimmrlega drepi\u00f0 \u00fe\u00e1 svo \u00fea\u00f0 tekur upp \u00ed himininn. N\u00fa hugsi \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00ferykkja undir y\u00f0ur syni J\u00fada og Jer\u00fasalem til \u00fer\u00e6la og amb\u00e1tta. Eru \u00fe\u00e9r nokku\u00f0 saklausir fyrir Drottni y\u00f0rum Gu\u00f0i? \u00dear fyrir hl\u00fd\u00f0i\u00f0 m\u00e9r n\u00fa og f\u00e6ri\u00f0 \u00fe\u00e1 herteknu aftur \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 burtleitt fr\u00e1 y\u00f0rum br\u00e6\u00f0rum. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottins rei\u00f0i hangir yfir y\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f3ku sig upp nokkrir af \u00feeim yppustu af sonum Efra\u00edm, Asarja son J\u00f3hanan, Berek\u00eda son Mesillam\u00f3t, Jehisk\u00eda son Sall\u00fam og Amasa son Hadla\u00ed, \u00ed m\u00f3ti \u00feeim sem komu fr\u00e1 bardaganum og s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: &#8222;Eigi skulu \u00fe\u00e9r f\u00e6ra \u00fe\u00e1 herteknu hinga\u00f0 \u00fev\u00ed vilji \u00fe\u00e9r koma skuldu yfir oss fyrir Drottni svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 vorar syndir \u00feess st\u00e6rri? \u00dev\u00ed a\u00f0 vor synd er \u00e1\u00f0ur n\u00f3gu st\u00f3r og rei\u00f0in hangir yfir \u00cdsrael.&#8220; \u00de\u00e1 l\u00e9t str\u00ed\u00f0sf\u00f3lki\u00f0 alla fangana lausa en l\u00f6g\u00f0u herfangi\u00f0 fram fyrir h\u00f6f\u00f0ingjana og fyrir allan s\u00f6fnu\u00f0inn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 uppst\u00f3\u00f0u \u00feeir menn sem fyrr voru nefndir og t\u00f3ku \u00fe\u00e1 fangana og \u00fe\u00e1 alla sem naktir voru af \u00feeim, kl\u00e6ddu \u00fe\u00e1 af herfanginu og sk\u00e6ddu \u00fe\u00e1 og g\u00e1fu \u00feeim b\u00e6\u00f0i mat og drykk og smur\u00f0u \u00fe\u00e1 og alla \u00fe\u00e1 sem veikir voru settu \u00feeir \u00e1 asna og f\u00e6r\u00f0u \u00fe\u00e1 til Jer\u00edk\u00f3, til \u00feess p\u00e1lmvi\u00f0arsta\u00f0ar, hj\u00e1 \u00feeirra br\u00e6\u00f0rum og \u00feeir komu aftur \u00ed Samariam.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma sendi Akas k\u00f3ngur til k\u00f3ngsins af Ass\u00far a\u00f0 hann skyldi veita honum li\u00f0. Og \u00feeir Edomiter komu enn einu sinni aftur og sl\u00f3gu Judam og hert\u00f3ku nokkra. Og Philistei f\u00e9llu \u00ed sta\u00f0ina sunnan til \u00e1 m\u00f3ti J\u00fada og unnu Bet Semes, Ajalon, Geder\u00f3t og S\u00f3k\u00f3 me\u00f0 \u00feeirra d\u00e6trum og Timna me\u00f0 hennar d\u00e6trum og Gims\u00f3 me\u00f0 hennar d\u00e6trum og bjuggu \u00fear. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn ni\u00f0ur\u00ferykkti J\u00fada fyrir skuld Akas <span class=\"athugasemd\" title=\"sword \u00cdsrael\">[<\/span> J\u00fadak\u00f3ngs s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i J\u00fada <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ \u00deessi nakleiki var \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 lif\u00f0i ekki undir Gu\u00f0i eftir hans or\u00f0i heldur d\u00fdrka\u00f0i Gu\u00f0 eftir sj\u00e1lfs s\u00ednum \u00fe\u00f3tta so sem Aron gj\u00f6r\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 naki\u00f0. Exod. xxxy.\">[<\/span> nakinn og hann misgj\u00f6r\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti Drottni. Og T\u00edglat Pilnesser k\u00f3ngurinn af Ass\u00far kom \u00ed m\u00f3ti honum, settist um hann og veitti honum eki styrk. \u00dev\u00ed t\u00e6mdi Akas h\u00fas Drottins og k\u00f3ngsins h\u00fas og h\u00f6f\u00f0ingjanna og gaf g\u00e1fur k\u00f3nginum af Ass\u00far en \u00fea\u00f0 hj\u00e1lpa\u00f0i honum ekki par.<\/p>\n<p>\tH\u00e9r a\u00f0 auk \u00ed ney\u00f0inni j\u00f3k Akas yfirtro\u00f0slur s\u00ednar fyrir Drottni og offra\u00f0i til sk\u00fargo\u00f0a \u00ed Damasco sem hann h\u00f6f\u00f0u slegi\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;K\u00f3ngsins gu\u00f0ir af Syria hj\u00e1lpu\u00f0u \u00feeim, \u00fev\u00ed vil eg \u00feeim offra so \u00feeir hj\u00e1lpi m\u00e9r.&#8220; \u00dear \u00feeir \u00fe\u00f3 voru honum og \u00f6llum \u00cdsrael til falls. Og Akas samansafna\u00f0i \u00f6llum kerum sem voru \u00ed Gu\u00f0s h\u00fasi og sl\u00f3 \u00feau \u00ed sundur og lukti dyrnar \u00e1 h\u00fasi Drottins og gj\u00f6r\u00f0i s\u00e9r altari \u00e1 hverri hyrningu \u00ed Jer\u00fasalem. Og \u00ed borgum J\u00fada gj\u00f6r\u00f0i hann h\u00e6\u00f0ir h\u00e9r og hvar til a\u00f0 offra annarlegum gu\u00f0um og reitti svo til rei\u00f0i Drottin Gu\u00f0 sinna fe\u00f0ra.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 sem n\u00fa meira er a\u00f0 segja um hann og um alla hans vegu, b\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1 fyrstu og s\u00ed\u00f0ustu, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed J\u00fada- og \u00cdsraelsk\u00f3nga b\u00f3k. Og Akas sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og \u00feeir gr\u00f3fu hann \u00ed borg Jer\u00fasalem en eigi \u00ed gr\u00f6fum Israelisk\u00f3nga. Og hans son Esek\u00edas var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXVIII. Akas var tv\u00edtugur a\u00f0 aldri \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti sext\u00e1n \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. [ Hann gj\u00f6r\u00f0i ekki hva\u00f0 r\u00e9tt var \u00ed augliti Drottins so sem Dav\u00ed\u00f0 hans fa\u00f0ir haf\u00f0i gj\u00f6rt heldur gekk hann \u00e1 \u00cdsraelsk\u00f3nga vegum. H\u00e9r a\u00f0 auk steypti hann s\u00e9r Baalsmyndir og hann offra\u00f0i reykelsi fyrir Baal\u00edm \u00ed dal sona Hinnom og hann brenndi s\u00edna syni \u00ed eldi eftir hei\u00f0ingjanna sv\u00edvir\u00f0ilegum si\u00f0, hverja Drottinn haf\u00f0i \u00fatreki\u00f0 fyrir Israelissonum. [ Hann f\u00e6r\u00f0i f\u00f3rnir og reykelsi \u00e1 h\u00e6\u00f0um og undir \u00f6llum bl\u00f3mgu\u00f0um eikum. \u00dear fyrir gaf Drottinn Gu\u00f0 hann \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6nd af Syria og \u00feeir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3088","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3088","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3088"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3088\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3088"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}