{"id":3084,"date":"2017-12-18T18:32:36","date_gmt":"2017-12-18T18:32:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-24-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:36","slug":"sidari-kronikubok-24-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-24-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 24. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXIIII.<\/p>\n<p>J\u00f3as var sj\u00f6 \u00e1ra \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3as 14 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada \/ 4. Reg. 12\">[<\/span> Hans m\u00f3\u00f0ir h\u00e9t S\u00edbja af Berseba. Og J\u00f3as gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni vel \u00fe\u00f3kna\u00f0ist so lengi sem J\u00f3jada prestur lif\u00f0i. Og J\u00f3jada konvga\u00f0i hann tveimur kvinnum svo hann \u00e1tti b\u00e6\u00f0i syni og d\u00e6tur.<\/p>\n<p>\t\u00dear eftir t\u00f3k J\u00f3as til a\u00f0 endurb\u00e6ta Drottins h\u00fas, safna\u00f0i saman prestum og Lev\u00edtum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Fari\u00f0 \u00fat til allra sta\u00f0a J\u00fada og samansafni\u00f0 peningum af \u00f6llum \u00cdsrael til a\u00f0 endurb\u00e6ta y\u00f0vars Drottins h\u00fas \u00e1rlega og fl\u00fdti\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0.&#8220; En Lev\u00edtarnir h\u00f6f\u00f0u \u00f6ngvan fl\u00fdtir. \u00de\u00e1 l\u00e9t k\u00f3ngurinn kalla \u00e1 J\u00f3jada prestah\u00f6f\u00f0ingja og sag\u00f0i: &#8222;\u00dev\u00ed g\u00e6ti \u00fe\u00e9r ekki a\u00f0 Lev\u00edtunum a\u00f0 \u00feeir innf\u00e6ri skattinn af J\u00fada og Jer\u00fasalem svo sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari skikka\u00f0i a\u00f0 mann skyldi samansafna \u00ed \u00cdsrael til vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0arinnar? \u00dev\u00ed a\u00f0 s\u00fa \u00f3gu\u00f0lega Atal\u00eda og hennar synir hafa ofanrifi\u00f0 Gu\u00f0s h\u00fas og allt \u00fea\u00f0 sem helga\u00f0 var \u00ed h\u00fasi Drottins. Me\u00f0 \u00fev\u00ed hafa \u00feeir pr\u00fdtt hof Baals.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 bau\u00f0 k\u00f3ngurinn a\u00f0 \u00fear skyldi gj\u00f6rast ein \u00f6rk og h\u00fan skyldi setjast \u00ed dyrnar utan fyrir h\u00fasi Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 12\">[<\/span> Og \u00feeir l\u00e9tu \u00fathr\u00f3pa \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem a\u00f0 inn skyldi leggjast s\u00e1 Gu\u00f0s skattur sem \u00cdsrael var upp \u00e1 lag\u00f0ur \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkunni af M\u00f3se Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nara. \u00de\u00e1 gl\u00f6ddust allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir og allt f\u00f3lki\u00f0 f\u00e6r\u00f0i og bar skattinn til erkurinnar \u00fear til h\u00fan var full. En sem s\u00e1 t\u00edmi kom a\u00f0 Lev\u00edtarnir skyldu \u00f6rkina frambera eftir k\u00f3ngsins skipan \u00fe\u00e1 \u00feeir s\u00e1u a\u00f0 \u00fear voru miklir peningar \u00ed kom k\u00f3ngsins skrifari og s\u00e1 sem haf\u00f0i b\u00edfalning af \u00feeim ypparsta presti og helltu f\u00e9nu \u00far \u00f6rkinni, b\u00e1ru hana s\u00ed\u00f0an aftur \u00ed sinn sta\u00f0. Sl\u00edkt gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir alla daga og \u00ed sl\u00edkan m\u00e1ta safna\u00f0ist saman \u00f3grynni fj\u00e1r.<\/p>\n<p>\tEn k\u00f3ngurinn og J\u00f3jada g\u00e1fu f\u00e9\u00f0 verkstj\u00f3rum sem settir voru fyrir arfi\u00f0i \u00ed Drottins h\u00fasi. \u00deeir leig\u00f0u steinh\u00f6ggvara og tr\u00e9smi\u00f0i til a\u00f0 endurb\u00e6ta Gu\u00f0s h\u00fas og meistara \u00e1 j\u00e1rn og kopar a\u00f0 endurb\u00e6ta h\u00fas Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s musteri endurb\u00e6tist\">[<\/span> Og erfi\u00f0ismennirnir erfi\u00f0u\u00f0u svo a\u00f0 h\u00fasb\u00f3tin gekk vel fram fyrir \u00feeirr ah\u00f6nd og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u Gu\u00f0s h\u00fas me\u00f0 \u00f6llu fer\u00f0ugt og vel til reika. En sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00fea\u00f0 fullkomna\u00f0 f\u00e6r\u00f0u \u00feeir k\u00f3nginum peninga og J\u00f3jada, \u00fe\u00e1 sem af gengu. Af hverjum \u00feeir l\u00e9tu gj\u00f6ra ker \u00ed h\u00fas Drottins, ker til \u00fe\u00e9nustunnar og til brennioffursins, skei\u00f0ir, gullker og silfurker. Og \u00feeir offru\u00f0u brennif\u00f3rnum allan t\u00edma \u00ed Drottins h\u00fasi so lengi sem J\u00f3jada lif\u00f0i. <\/p>\n<p>\tEn sem J\u00f3jada var or\u00f0inn mj\u00f6g gamall \u00fe\u00e1 anda\u00f0ist hann \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i hundra\u00f0 \u00e1r og \u00ferj\u00e1t\u00edgi betur. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3as 130 \u00e1ra gamall\">[<\/span> Og \u00feeir j\u00f6r\u00f0u\u00f0u hann \u00ed Dav\u00ed\u00f0ssta\u00f0 me\u00f0al k\u00f3nganna \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i ver\u00f0skulda\u00f0 gott vi\u00f0 \u00cdsrael, vi\u00f0 Gu\u00f0 og hans h\u00fas.<\/p>\n<p>\tEn sem J\u00f3jada kennima\u00f0ur var anda\u00f0ur \u00fe\u00e1 komu h\u00f6f\u00f0ingjar af J\u00fada og tilb\u00e1\u00f0u k\u00f3nginn og hann hl\u00fdddi \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirlitning Gu\u00f0s og hans sp\u00e1manna\">[<\/span> Og \u00feeir yfirg\u00e1fu h\u00fas Drottins Gu\u00f0s \u00feeirra fe\u00f0ra og \u00fej\u00f3nu\u00f0u lundum og afgu\u00f0um. \u00de\u00e1 f\u00e9ll rei\u00f0i yfir J\u00fada og Jer\u00fasalem s\u00f6kum \u00feessarar syndar. Og hann sendi sp\u00e1menn til \u00feeirra svo \u00feeir skyldu sn\u00faa s\u00e9r aftur til Drottins og \u00feeir vitnu\u00f0u fyrir \u00feeim en \u00feeir vildu ekki heyra \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>\tOg Gu\u00f0s andi kom yfir Sakar\u00edam son J\u00f3jada kennimanns. Hann gekk upp fyrir f\u00f3lki\u00f0 og sag\u00f0i til \u00feess: &#8222;Svo segir Gu\u00f0: \u00dev\u00ed ofurtro\u00f0i \u00fe\u00e9r Drottins bo\u00f0or\u00f0 hva\u00f0 ekki lukkast y\u00f0ur? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 yfirgefi\u00f0 Drottin, so mun hann og yfirgefa y\u00f0ur.&#8220; En \u00feeir veittu honum \u00e1r\u00e1s og gr\u00fdttu hann \u00ed hel eftir k\u00f3ngsins skipan \u00ed Drottins h\u00fass gar\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sakar\u00edas gr\u00fdttur \u00ed hel \/ Math. 23\">[<\/span> Og k\u00f3ng J\u00f3as minntist eigi \u00e1 \u00fe\u00e1 miskunn sem J\u00f3jada hans fa\u00f0ir veitti honum heldur l\u00e9t hann n\u00fa drepa hans son. En sem hann dey\u00f0i \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann: &#8222;Drottinn sj\u00e1i \u00feetta og \u00fatkrefji \u00feess!&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem \u00fea\u00f0 \u00e1r var \u00fati \u00fe\u00e1 kom str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk af Syria og f\u00e9ll inn \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem og fordj\u00f6rfu\u00f0u \u00fe\u00e1 yppustu h\u00f6f\u00f0ingja \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lksins en sendu allt \u00feeirra herfang til k\u00f3ngsins \u00ed Damasco. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir af Syria h\u00f6f\u00f0u l\u00edti\u00f0 li\u00f0. \u00de\u00f3 gaf Drottinn mikinn her \u00ed \u00feeirra hendur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u yfirgefi\u00f0 Drottin Gu\u00f0 sinna fe\u00f0ra og \u00feeir str\u00f6ffu\u00f0u mj\u00f6g J\u00f3as. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0 straffar J\u00fada fyrir \u00fe\u00e1 Syros\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 \u00feeir f\u00f3ru fr\u00e1 honum l\u00e9tu \u00feeir hann eftir vera me\u00f0 miklum sj\u00fakd\u00f3mi.<\/p>\n<p>\tOg hans eigin \u00fe\u00e9narar bundu s\u00edn r\u00e1\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti honum til hefndar bl\u00f3\u00f0sins sona J\u00f3jada kennimanns og dr\u00e1pu hann \u00ed sinni eigin s\u00e6ng. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3as drepinn\">[<\/span> Og hann d\u00f3 og var jar\u00f0a\u00f0ur \u00ed Dav\u00ed\u00f0ssta\u00f0 en \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 me\u00f0al k\u00f3nganna. En \u00feessir voru \u00feeir sem samanb\u00e1ru r\u00e1\u00f0in m\u00f3ti honum: Sabad son S\u00edmeat af Amm\u00f3n og J\u00f3sabad son Simr\u00edt af M\u00f3ab. En hans synir og \u00fea\u00f0 f\u00e9 sem saman var safna\u00f0 \u00e1 hans d\u00f6gum og Gu\u00f0s h\u00fass endurb\u00e6ting, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed K\u00f3nganna historiub\u00f3k. Og hans son Amas\u00eda var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXIIII. J\u00f3as var sj\u00f6 \u00e1ra \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur og hann r\u00edkti fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. [ Hans m\u00f3\u00f0ir h\u00e9t S\u00edbja af Berseba. Og J\u00f3as gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni vel \u00fe\u00f3kna\u00f0ist so lengi sem J\u00f3jada prestur lif\u00f0i. Og J\u00f3jada konvga\u00f0i hann tveimur kvinnum svo hann \u00e1tti b\u00e6\u00f0i syni og d\u00e6tur. \u00dear eftir t\u00f3k J\u00f3as til a\u00f0 endurb\u00e6ta Drottins h\u00fas, safna\u00f0i saman prestum og Lev\u00edtum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Fari\u00f0 \u00fat til allra sta\u00f0a J\u00fada og samansafni\u00f0 peningum af \u00f6llum \u00cdsrael til a\u00f0 endurb\u00e6ta y\u00f0vars Drottins h\u00fas \u00e1rlega og fl\u00fdti\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0.&#8220; En Lev\u00edtarnir h\u00f6f\u00f0u \u00f6ngvan fl\u00fdtir. \u00de\u00e1 l\u00e9t <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-24-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3084","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3084","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3084"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3084\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3084"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}