{"id":3080,"date":"2017-12-18T18:32:36","date_gmt":"2017-12-18T18:32:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-20-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:36","slug":"sidari-kronikubok-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-20-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 20. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XX.<\/p>\n<p>Eftir \u00feetta t\u00f3ku sig saman synir M\u00f3abs og synir Amm\u00f3n og \u00feeir af Amm\u00fan\u00edm me\u00f0 \u00feeim til a\u00f0 str\u00ed\u00f0a \u00ed m\u00f3t J\u00f3safat. <span class=\"athugasemd\" title=\"Str\u00ed\u00f0 \u00ed m\u00f3ti J\u00f3safat\">[<\/span> Og einn ma\u00f0ur kom og kunngj\u00f6r\u00f0i \u00feetta J\u00f3safat og sag\u00f0i: &#8222;Einn \u00f3v\u00edgur her er kominn \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r af Syria hinumegin hafsins og sj\u00e1, \u00feeir eru \u00ed Haseson Tamar, \u00fea\u00f0 er Engadd\u00ed.&#8220; En J\u00f3safat var\u00f0 \u00f3ttasleginn og skikka\u00f0i sitt andlit til a\u00f0 leita Drottins og hann l\u00e9t bj\u00f3\u00f0a eina f\u00f6stu yfir allan J\u00fada. Og menn J\u00fada komu til samans a\u00f0 leita Drottins og \u00feeir komu af \u00f6llum st\u00f6\u00f0um J\u00fada a\u00f0 leita Drottins. Og J\u00f3safat gekk \u00e1 millum mannsafna\u00f0arins J\u00fada og Jer\u00fasalem \u00ed h\u00fasi Drottins fyrir \u00feeim n\u00fdja gar\u00f0i og sag\u00f0i: <\/p>\n<p>\t&#8222;Drottinn vorra fe\u00f0ra Gu\u00f0, ert \u00fe\u00fa ekki Gu\u00f0 \u00ed himninum og Drottinn \u00ed \u00f6llum hei\u00f0ingja k\u00f3ngar\u00edkjum? <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3safats b\u00e6n\">[<\/span> Og \u00ed \u00feinni hendi er magtin og styrkleikinn og \u00fear er enginn sem kann a\u00f0 standa \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r. Hefur \u00fe\u00fa eigi, vor Gu\u00f0, \u00fatreki\u00f0 \u00feessa lands innbyggjara fyrir \u00fe\u00ednu f\u00f3lki \u00cdsrael og hefur gefi\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e6\u00f0i Abrahams vinar \u00fe\u00edns \u00e6vinlega a\u00f0 \u00feeir skyldu b\u00faa \u00fear inni og \u00feeir hafa og byggt \u00fe\u00e9r \u00fear inni einn helgid\u00f3m \u00fe\u00ednu nafni og svo sagt: N\u00e6r a\u00f0 nokkur \u00f3lukka, sver\u00f0, refsing, dreps\u00f3tt e\u00f0ur hall\u00e6ri kemur yfir oss \u00fe\u00e1 skulum v\u00e9r standa \u00ed \u00feessu h\u00fasi fyrir \u00fe\u00e9r (\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feitt nafn er \u00ed \u00feessu h\u00fasi) og kalla til \u00fe\u00edn \u00ed vorri ney\u00f0, \u00fe\u00e1 viljir \u00fe\u00fa b\u00e6nheyra og hj\u00e1lpa oss?<\/p>\n<p>\tSj\u00e1, n\u00fa eru synir Amm\u00f3n og M\u00f3ab og \u00feeir af fjallinu Se\u00edr, yfir hverja \u00fe\u00fa l\u00e9st \u00cdsraelssyni ekki draga \u00fe\u00e1 \u00feeir fer\u00f0u\u00f0ust af Egyptalandi heldur ur\u00f0u \u00feeir a\u00f0 v\u00edkja fr\u00e1 \u00feeim og ekki ey\u00f0ileggja \u00fe\u00e1, og sj\u00e1, n\u00fa l\u00e1ta \u00feeir oss gjalda \u00feess og koma a\u00f0 \u00fatsk\u00fafa oss af \u00feinni erf\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur gefi\u00f0 oss. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 3 \/ Til Gu\u00f0s a\u00f0 fl\u00fdja \u00ed ney\u00f0inni\">[<\/span> Vor Gu\u00f0, vilt \u00fe\u00fa ekki d\u00e6ma \u00fe\u00e1? \u00dev\u00ed a\u00f0 enginn kraftur er me\u00f0 oss \u00e1 m\u00f3ti svo st\u00f3rum mannfj\u00f6lda sem n\u00fa kemur \u00ed m\u00f3ti oss. V\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 v\u00e9r skulum gj\u00f6ra heldur rennum v\u00e9r vorum augum til \u00fe\u00edn.&#8220; Og allur J\u00fada st\u00f3\u00f0 fyri Drottni me\u00f0 \u00feeirra sonum, kvinnum og b\u00f6rnum.<\/p>\n<p>\tOg Drottins andi kom yfir Jesah\u00edel son Sakar\u00eda, sonar Benaja, sonar Je\u00edel, sonar Matanja Lev\u00edta af sonum Assaf, mitt \u00e1 millum alm\u00fagans, og sag\u00f0i: &#8222;Huglei\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r allir af J\u00fada og \u00fe\u00e9r innbyggjarar \u00ed Jer\u00fasalem og svo J\u00f3safat k\u00f3ngur: Svo segir Drottinn til y\u00f0ar: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki hr\u00e6\u00f0ast n\u00e9 \u00f3ttast \u00feennan mikla mannfj\u00f6lda \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r berjist ekki heldur Drottinn. \u00c1 morgun skulu \u00fe\u00e9r fara ofan til \u00feeirra og sj\u00e1, a\u00f0 \u00feeir draga upp hj\u00e1 S\u00eds og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 m\u00e6ta \u00feeim hj\u00e1 reyrnum \u00ed l\u00e6knum \u00fevert yfir fr\u00e1 ey\u00f0im\u00f6rku Jer\u00fael. \u00dev\u00ed a\u00f0 eigi munu \u00fe\u00e9r neina orostu heyja. Fari\u00f0 a\u00f0eins \u00feanga\u00f0, standi\u00f0 og munu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 Gu\u00f0s hj\u00e1lpr\u00e1\u00f0 sem koma mun yfir y\u00f0ur. J\u00fada og Jer\u00fasalem, \u00f3ttast ekki og veri\u00f0 ekki hr\u00e6ddir. Fari\u00f0 \u00e1 morgun \u00fat \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim og mun Drottinn vera me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 f\u00e9ll J\u00f3safat allur til jar\u00f0ar \u00e1 sitt andlit og allur J\u00fada og innbyggjarar \u00ed Jer\u00fasalem fyrir Drottin og tilb\u00e1\u00f0u Drottin. Og Lev\u00edtarnir af sonum Kahathiter og af sonum Korither h\u00f3fu upp a\u00f0 lofa Drottin \u00cdsraels Gu\u00f0 me\u00f0 h\u00e1rri raustu \u00ed himininn.<\/p>\n<p>\tOg snemma morguns t\u00f3ku \u00feeir sig upp og dr\u00f3gu \u00fat til Tek\u00f3aau\u00f0nu. Og sem \u00feeir fer\u00f0u\u00f0ust \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 J\u00f3safat og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Tr\u00faarinnar \u00e1minning\">[<\/span> &#8222;Heyri\u00f0 mig, \u00fe\u00e9r af J\u00fada og \u00fe\u00e9r innbyggjarar af Jer\u00fasalem: Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Drottin y\u00f0arn Gu\u00f0, svo megi \u00fe\u00e9r vera \u00f3hr\u00e6ddir, og tr\u00fai\u00f0 hans sp\u00e1m\u00f6nnum, \u00fe\u00e1 skal y\u00f0ur allt vel lukkast.&#8220; Og hann undirv\u00edsa\u00f0i f\u00f3lkinu og setti s\u00f6ngvarana fyrir Drottni a\u00f0 \u00feeir lofu\u00f0u hann me\u00f0 heilagri pr\u00fd\u00f0i a\u00f0 \u00feeir f\u00e6ri undan fylkingunum og seg\u00f0i: &#8222;\u00deakki\u00f0 Drottni \u00fev\u00ed a\u00f0 hans miskunnsemi varir eil\u00edflega.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg sem \u00feeir upph\u00f3fu lof og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0 \u00fe\u00e1 l\u00e9t Drottinn \u00feau launs\u00e1tur sem komin voru \u00ed m\u00f3t J\u00fada falla yfir sonu Amm\u00f3n og M\u00f3ab og yfir \u00fe\u00e1 af fjallinu Se\u00edr og sl\u00f3gu \u00fe\u00e1. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sigur fyrir utan vopnaslag\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 synir Amm\u00f3n og M\u00f3ab risu upp m\u00f3t \u00feeim af fjallinu Se\u00edr og dr\u00e1pu \u00fe\u00e1 og afm\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1. Og sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u eytt \u00feeim af fjallinu Se\u00edr \u00fe\u00e1 snerust \u00feeir \u00e1 sj\u00e1lfs s\u00edns vopn innbyr\u00f0is og dr\u00e1pust ni\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tEn sem J\u00fada kom til Mispe a\u00f0 ey\u00f0im\u00f6rkinni \u00fe\u00e1 sneri hann s\u00e9r \u00ed m\u00f3ti hernum og sj\u00e1, a\u00f0 \u00fear l\u00e1 alt fullt af dau\u00f0ra manna l\u00edk\u00f6mum so a\u00f0 enginn haf\u00f0i undan komist. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lofsdalur\">[<\/span> Og J\u00f3safat kom me\u00f0 s\u00ednu f\u00f3lki og skipti \u00feeirr herfangi og \u00feeir fengu \u00fear \u00f3grynni au\u00f0\u00e6fa, kl\u00e6\u00f0i og kostulegar gersemar, svo \u00feeir g\u00e1tu ei allt burt bori\u00f0 og svo var \u00feetta herfang miki\u00f0 a\u00f0 \u00ed \u00ferj\u00e1 daga g\u00e1tu \u00feeir ekki \u00fatskipt \u00fev\u00ed. \u00deann fj\u00f3r\u00f0a dag komu \u00feeir til samans \u00ed \u00feeim dal Bereka \u00fev\u00ed \u00feeir lofu\u00f0u \u00fear Drottin. \u00dear fyrir heitir s\u00e1 dalur Lofsdalur allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta sneri hver ma\u00f0ur af J\u00fada og Jer\u00fasalem heim aftur og J\u00f3safat fyrstur og komu til Jer\u00fasalem me\u00f0 fagna\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00feeim eina gle\u00f0i yfir s\u00ednum \u00f3vinum. Og \u00feeir komu inn \u00ed Jer\u00fasalem me\u00f0 psalterium, h\u00f6rpum og hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rum til Drottins h\u00fass. Og Drottins \u00f3tti kom yfir \u00f6ll k\u00f3ngar\u00edki \u00ed l\u00f6ndunum \u00fe\u00e1 \u00feeir heyr\u00f0u a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i barist \u00ed m\u00f3t Israelis \u00f3vinum. So stilltist r\u00edki J\u00f3safat og Gu\u00f0 gaf honum fri\u00f0 allt umhverfis.<\/p>\n<p>\tOg J\u00f3safat r\u00edkti yfir J\u00fada og hann var fimmt\u00e1n \u00e1ra og tuttugu a\u00f0 aldri \u00fe\u00e1 hann t\u00f3k k\u00f3ngd\u00f3m en hann r\u00edkti fimm og tuttugu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3safat 25 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed Jer\u00fasalem \/ 3. Reg. 22\">[<\/span> Hans m\u00f3tir h\u00e9t As\u00faba d\u00f3ttir S\u00edlh\u00ed. Og hann f\u00f3r allan feril s\u00edns f\u00f6\u00f0urs Assa og l\u00e9t ekki af a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem Drottni l\u00edka\u00f0i vel. Utan \u00fe\u00e6r h\u00e6\u00f0ir voru ekki burt teknar s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i enn ekki sn\u00fai\u00f0 s\u00ednu hjarta til Drottins \u00feeirra fe\u00f0ra Gu\u00f0s. En \u00fea\u00f0 sem meira er a\u00f0 segja um J\u00f3safat, b\u00e6\u00f0i \u00fea\u00f0 i\u00f0 fyrsta og s\u00ed\u00f0asta, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed Gj\u00f6rningab\u00f3k Jeh\u00fa sonar Hanan\u00ed sem hann hefur skrifa\u00f0 \u00ed Israelisk\u00f3nga b\u00f3k.<\/p>\n<p>\tEftir \u00fea\u00f0 forl\u00edktust \u00feeir J\u00f3safat J\u00fadak\u00f3ngur og Ahas\u00eda Israelisk\u00f3ngur hver e\u00f0 var \u00f3gu\u00f0legur \u00ed s\u00ednum gj\u00f6rningum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ahas\u00eda\">[<\/span> Og \u00feeir samt\u00f3ku a\u00f0 gj\u00f6ra skip sem skyldi fara \u00e1 sj\u00f3inn og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u skipin \u00ed Ese\u00f3n Gaber. En El\u00edeser son D\u00f3dana af Maresa sp\u00e1\u00f0i m\u00f3t J\u00f3safat og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"El\u00edeser\">[<\/span> &#8222;S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa bast s\u00e1ttm\u00e1l vi\u00f0 Ahas\u00eda \u00fe\u00e1 hefur Drottinn \u00ed sundurslegi\u00f0 \u00feinn gj\u00f6rning.&#8220; Og skipin brotnu\u00f0u \u00ed sundur so \u00feau m\u00e1ttu ekki \u00e1 sj\u00f3 fara.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XX. Eftir \u00feetta t\u00f3ku sig saman synir M\u00f3abs og synir Amm\u00f3n og \u00feeir af Amm\u00fan\u00edm me\u00f0 \u00feeim til a\u00f0 str\u00ed\u00f0a \u00ed m\u00f3t J\u00f3safat. [ Og einn ma\u00f0ur kom og kunngj\u00f6r\u00f0i \u00feetta J\u00f3safat og sag\u00f0i: &#8222;Einn \u00f3v\u00edgur her er kominn \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r af Syria hinumegin hafsins og sj\u00e1, \u00feeir eru \u00ed Haseson Tamar, \u00fea\u00f0 er Engadd\u00ed.&#8220; En J\u00f3safat var\u00f0 \u00f3ttasleginn og skikka\u00f0i sitt andlit til a\u00f0 leita Drottins og hann l\u00e9t bj\u00f3\u00f0a eina f\u00f6stu yfir allan J\u00fada. Og menn J\u00fada komu til samans a\u00f0 leita Drottins og \u00feeir komu af \u00f6llum st\u00f6\u00f0um J\u00fada a\u00f0 leita Drottins. Og J\u00f3safat gekk \u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3080","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3080","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3080"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3080\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3080"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}