{"id":3078,"date":"2017-12-18T18:32:36","date_gmt":"2017-12-18T18:32:36","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-18-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:36","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:36","slug":"sidari-kronikubok-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-18-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 18. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVIII.<\/p>\n<p>Og J\u00f3safat haf\u00f0i mikinn r\u00edkd\u00f3m og mikla d\u00fdr\u00f0 og hann tengdist me\u00f0 m\u00e6g\u00f0um vi\u00f0 Akab. <span class=\"athugasemd\" title=\"Akab \/ 3. Reg. 22\">[<\/span> Og a\u00f0 tveimur \u00e1rum li\u00f0num f\u00f3r hann ofan til Akab \u00ed Samar\u00eda. Og Akab k\u00f3ngur l\u00e9t sl\u00e1tra til hans og til \u00feess f\u00f3lks sem me\u00f0 honum var fj\u00f6lda fj\u00e1r og uxa. Og hann r\u00e1\u00f0lag\u00f0i honum a\u00f0 fer\u00f0ast upp til Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0. Og Akab Israelis k\u00f3ngur sag\u00f0i til J\u00f3safat J\u00fadak\u00f3ngs: &#8222;Far \u00fe\u00fa me\u00f0 m\u00e9r til Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Eg er so sem \u00fe\u00fa og mitt f\u00f3lk so sem \u00feitt f\u00f3lk, v\u00e9r viljum fara me\u00f0 \u00fe\u00e9r til bardaga.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn J\u00f3safat sag\u00f0i til \u00cdsraelsk\u00f3ngs: &#8222;Leita \u00fe\u00fa til or\u00f0a Drottins um r\u00e1\u00f0 \u00ed dag.&#8220; Og Israelisk\u00f3ngur samansafna\u00f0i sp\u00e1m\u00f6nnum, fj\u00f3rum hundru\u00f0um a\u00f0 t\u00f6lu, og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Skulum v\u00e9r fer\u00f0ast til bardaga \u00ed Ram\u00f3t G\u00edlea\u00f0 e\u00f0a skal eg l\u00e1ta svo b\u00fai\u00f0 standa?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Far \u00fe\u00fa upp \u00feanga\u00f0, Drottinn skal gefa hana \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6nd.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3safat: &#8222;Er h\u00e9r ekki neinn af Drottins sp\u00e1m\u00f6nnum so v\u00e9r megum spyrja hann a\u00f0?&#8220; \u00cdsraelsk\u00f3ngur sag\u00f0i til J\u00f3safat: &#8222;Er h\u00e9r einn ma\u00f0ur fyrir hvern a\u00f0 v\u00e9r m\u00e6ttum spyrja Drottin. En m\u00e9r er illa vi\u00f0 hann \u00fev\u00ed a\u00f0 hann sp\u00e1ir m\u00e9r einskis g\u00f3\u00f0s heldur jafnan ills og \u00fea\u00f0 er M\u00edkeas son Jemla.&#8220; J\u00f3safat svara\u00f0i: &#8222;K\u00f3ngurinn tali ekki svo.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00cdsraelsk\u00f3ngur kalla\u00f0i einn sinn herbergjasvein og sag\u00f0i: &#8222;Far sem skj\u00f3tast og kalla \u00e1 M\u00edkeam son Jemla.&#8220; Og Israelisk\u00f3ngur og J\u00f3safat k\u00f3ngur J\u00fada s\u00e1tu b\u00e1\u00f0ir saman, hver \u00e1 s\u00ednum st\u00f3l, skr\u00fdddir konunglegum skr\u00fa\u00f0a, \u00e1 fl\u00f6t nokkrum fyrir portdyrum Samaria og allir sp\u00e1menn sp\u00e1\u00f0u fyrir \u00feeim. Og Sedek\u00eda son Knaena gj\u00f6r\u00f0i s\u00e9r j\u00e1rnhorn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Sedek\u00eda\">[<\/span>  &#8222;Svo segir Drottinn: Me\u00f0 \u00feessu skalt \u00fe\u00fa steyta \u00fe\u00e1 Syros \u00fear til \u00fe\u00fa ey\u00f0ileggur \u00fe\u00e1.&#8220; Og allir sp\u00e1mennirnir sp\u00e1\u00f0u me\u00f0 sama h\u00e6tti og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Far upp \u00feanga\u00f0, \u00fea\u00f0 skal lukkast vel, Drottinn skal gefa \u00fe\u00e1 \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6nd.&#8220; <\/p>\n<p>\tOg sendima\u00f0urinn sem var \u00ed burt genginn a\u00f0 kalla \u00e1 M\u00edkeam kom til hans, tala\u00f0i vi\u00f0 hann og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00edkeas\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1, sp\u00e1menn segja allir k\u00f3ngi fyrir me\u00f0 einum munni fars\u00e6llega hluti. Eg bi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa l\u00e1tir \u00fe\u00edn or\u00f0 og vera samhlj\u00f3\u00f0a \u00feeim og tala \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 sem gott er.&#8220; M\u00edkeas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;So sannarlega sem a\u00f0 Drottinn lifir: Hva\u00f0 minn Gu\u00f0 segir m\u00e9r, \u00fea\u00f0 skal eg tala.&#8220; Og sem hann kom til k\u00f3ngsins segir k\u00f3ngurinn til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 6 \/ 3. Reg. 22\">[<\/span> &#8222;M\u00edkea, skulu v\u00e9r fara a\u00f0 berjast \u00ed Ram\u00f3t G\u00edlea\u00f0 e\u00f0a skal eg hvergi fara?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;J\u00e1, far upp \u00feanga\u00f0 og skal \u00fe\u00e9r a\u00f0 g\u00f3\u00f0u ver\u00f0a, \u00fea\u00f0 skal gefast \u00ed \u00fe\u00ednar hendur.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i k\u00f3ngurinn honum: &#8222;Eg s\u00e6ri \u00feig enn einu sinni a\u00f0 \u00fe\u00fa segir m\u00e9r ekki anna\u00f0 en hva\u00f0 satt er \u00ed nafni Drottins.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann: &#8222;Eg s\u00e1 allan \u00cdsrael \u00ed sundurtv\u00edstrast \u00e1 fj\u00f6llum uppi l\u00edka sem sau\u00f0ir \u00feeir sem \u00f6ngvan hir\u00f0ir hafa. Og Drottinn sag\u00f0i: Hafa \u00feessir \u00f6ngvan herra? Sn\u00fai hv\u00f6r og einn aftur me\u00f0 fri\u00f0i.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00cdsraelsk\u00f3ngur til J\u00f3safats: &#8222;Sag\u00f0a eg \u00fe\u00e9r ekki a\u00f0 hann sp\u00e1ir m\u00e9r einskis g\u00f3\u00f0s heldur ills?&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i: &#8222;\u00dear fyrir heyri \u00fe\u00e9r or\u00f0 Drottins: Eg s\u00e1 Drottinn sitja \u00e1 hans tignarst\u00f3li og allur himinsins her st\u00f3\u00f0 til hans h\u00e6gri og vinstri handar. Og Drottinn sag\u00f0i: Hver vill r\u00e1\u00f0leggja Akab \u00cdsraelsk\u00f3ngi \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann fari upp og falli \u00ed Ram\u00f3t G\u00edlea\u00f0? En sem einn sag\u00f0i \u00feetta en annar \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 kom \u00fear einn andi fram og gekk fyrir Drottin og sag\u00f0i: Eg vil koma honum til \u00feess. Og Drottinn sag\u00f0i til hans: Me\u00f0 hverju m\u00f3ti? Hann svara\u00f0i: Eg vil fara \u00fat og vera einn lygiandi \u00ed allra hans sp\u00e1manna munnum. Og Drottinn sag\u00f0i: \u00de\u00fa munt koma honum \u00fear til og \u00fe\u00fa munt koma \u00fev\u00ed til lei\u00f0ar. Far burt og gj\u00f6r so. Sj\u00e1 n\u00fa, Drottinn hefur gefi\u00f0 einn lygianda \u00ed mun \u00feessara \u00feinna sp\u00e1manna og Drottinn hefur tala\u00f0 illt \u00ed gegn \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gekk Sedek\u00eda son Knaena fram og sl\u00f3 M\u00edkeam p\u00fastur og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Sedek\u00eda sl\u00e6r M\u00edkeam\">[<\/span> &#8222;Um hvern veg er andi Drottins genginn fr\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 hann talar vi\u00f0 \u00feig?&#8220; M\u00edkeas sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, \u00fe\u00fa munt sj\u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00feeim degi n\u00e6r \u00fe\u00fa fer h\u00fas af h\u00fasi a\u00f0 fela \u00feig.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00cdsraelsk\u00f3ngur: &#8222;Taki\u00f0 M\u00edkeam og l\u00e1ti\u00f0 hann vera hj\u00e1 Ammon sta\u00f0arins f\u00f3vita og hj\u00e1 J\u00f3as k\u00f3ngssyni og segi\u00f0: Svo segir k\u00f3ngurinn: Leggi\u00f0 \u00feennan \u00ed myrkvastofu og f\u00e6\u00f0i\u00f0 hann me\u00f0 sorgarbrau\u00f0i og hrygg\u00f0arvatni \u00fear til a\u00f0 eg kem aftur me\u00f0 fri\u00f0i.&#8220; M\u00edkeas sag\u00f0i: &#8222;Ef \u00fe\u00fa kemur me\u00f0 fri\u00f0i aftur \u00fe\u00e1 hefur Drottinn eigi tala\u00f0 fyrir mig.&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;Heyri \u00fea\u00f0 allur l\u00fd\u00f0ur.&#8220; <\/p>\n<p>\tK\u00f3ng \u00cdsrael og J\u00f3safat k\u00f3ngur J\u00fada f\u00f3ru n\u00fa upp til Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0. Og \u00cdsraelsk\u00f3ngur sag\u00f0i til J\u00f3safat: &#8222;Eg vil breyta kl\u00e6\u00f0ab\u00fana\u00f0i m\u00ednum og fara svo til bardaga en haf \u00fe\u00fa \u00fe\u00edn eigin kl\u00e6\u00f0i.&#8220; Og \u00cdsraelsk\u00f3ngur torkenndi sig og f\u00f3r so \u00ed bardagannn. En Syriak\u00f3ngur bau\u00f0 s\u00ednum yppurstum ridd\u00f6rum segjandi: &#8222;\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki berjast, hverki \u00ed m\u00f3t einum n\u00e9 \u00f6\u00f0rum, sm\u00e1m e\u00f0a st\u00f3rum, utan alleinasta \u00ed m\u00f3t \u00cdsraelsk\u00f3ngi.&#8220;<\/p>\n<p>\tN\u00fa sem \u00feeir yppustu riddarar s\u00e1u J\u00f3safat \u00fe\u00e1 \u00e6tlu\u00f0u \u00feeir a\u00f0 \u00cdsraelsk\u00f3ngur mundi \u00fea\u00f0 vera og \u00feeir sl\u00f3gu hring um hann og veittu honum har\u00f0a a\u00f0s\u00f3kn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0 hj\u00e1lpar J\u00f3safat\">[<\/span> En J\u00f3safat kalla\u00f0i upp og Drottinn hj\u00e1lpa\u00f0i honum og Gu\u00f0 sneri \u00feeim fr\u00e1 honum. \u00dev\u00ed \u00fe\u00e1 \u00feeir yppustu af riddarali\u00f0inu s\u00e1u a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki \u00cdsraelsk\u00f3ngur \u00fe\u00e1 sneru \u00feeir fr\u00e1 honum. So bar til a\u00f0 einn mann spanna\u00f0i sinn boga, \u00f3vitandi \u00e1 hvern hann stefndi, og skaut \u00cdsraelsk\u00f3ng millum brynjunnar og sver\u00f0reimarinnar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Akab skotinn til dau\u00f0s\">[<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til s\u00edns vagnmanns: &#8222;Sn\u00fa \u00feinni hendi og flyt mig \u00far bardaganum \u00fev\u00ed eg er s\u00e1r or\u00f0inn.&#8220; Og \u00fea\u00f0 var\u00f0 h\u00f6r\u00f0 orrosta \u00e1 \u00feeim sama degi og \u00cdsraelsk\u00f3ngur st\u00f3\u00f0 \u00ed s\u00ednum vagni \u00e1 m\u00f3t \u00feeim Syris allt til kvelds og anda\u00f0ist um s\u00f3larsetur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVIII. Og J\u00f3safat haf\u00f0i mikinn r\u00edkd\u00f3m og mikla d\u00fdr\u00f0 og hann tengdist me\u00f0 m\u00e6g\u00f0um vi\u00f0 Akab. [ Og a\u00f0 tveimur \u00e1rum li\u00f0num f\u00f3r hann ofan til Akab \u00ed Samar\u00eda. Og Akab k\u00f3ngur l\u00e9t sl\u00e1tra til hans og til \u00feess f\u00f3lks sem me\u00f0 honum var fj\u00f6lda fj\u00e1r og uxa. Og hann r\u00e1\u00f0lag\u00f0i honum a\u00f0 fer\u00f0ast upp til Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0. Og Akab Israelis k\u00f3ngur sag\u00f0i til J\u00f3safat J\u00fadak\u00f3ngs: &#8222;Far \u00fe\u00fa me\u00f0 m\u00e9r til Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0.&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Eg er so sem \u00fe\u00fa og mitt f\u00f3lk so sem \u00feitt f\u00f3lk, v\u00e9r viljum fara me\u00f0 \u00fe\u00e9r til bardaga.&#8220; En J\u00f3safat sag\u00f0i til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3078","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3078","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3078"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3078\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3078"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}