{"id":3069,"date":"2017-12-18T18:32:32","date_gmt":"2017-12-18T18:32:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:32","slug":"sidari-kronikubok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-9-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IX.<\/p>\n<p>En \u00feegar drottningin af r\u00edki Arabia heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 rykti Salomonis \u00fe\u00e1 kom h\u00fan me\u00f0 miklu f\u00f6runeyti til Jer\u00fasalem, me\u00f0 \u00falf\u00f6ldum sem b\u00e1ru jurtir, gull og mikinn fj\u00f6lda gimsteina, til a\u00f0 reyna Sal\u00f3mon me\u00f0 dj\u00fapum spurningum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Drottningin af Arabiar\u00edki \/ 3. Reg. 10 \/ Math. 12 \/ Luc. 11\">[<\/span> En sem h\u00fan kom til Sal\u00f3mon tala\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 hann allt \u00fea\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 s\u00e9r. Og k\u00f3ngurinn sag\u00f0i henni allt \u00fea\u00f0 h\u00fan spur\u00f0i a\u00f0 og \u00fear var ekkert huli\u00f0 fyrir Sal\u00f3moni a\u00f0 hann seg\u00f0i henni \u00fea\u00f0 eigi.<\/p>\n<p>\tOg sem drottningin af Arabiar\u00edki s\u00e1 speki Salomonis og \u00fea\u00f0 h\u00fas sem hann haf\u00f0i byggt og vistir til hans bor\u00f0s og herbergi hans sveina, hans \u00fej\u00f3nustumanna skipanir og \u00feeirra kl\u00e6\u00f0na\u00f0, hans skenkjara og \u00feeirra kl\u00e6\u00f0na\u00f0 og hans sal \u00fear sem upp var gengi\u00f0 til Drottins h\u00fass, \u00fe\u00e1 gat h\u00fan ekki lengur haldi\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tOg h\u00fan sag\u00f0i til k\u00f3ngsins: &#8222;Allt er \u00fea\u00f0 satt sem eg hefi heyrt \u00ed m\u00ednu landi um \u00feitt framfer\u00f0i og um \u00feinn v\u00edsd\u00f3m. En eg vilda ekki tr\u00faa \u00feeirra or\u00f0um fyrr en n\u00fa a\u00f0 eg kom og hefi sj\u00e1lf s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 m\u00ednum augum. Og sj\u00e1, m\u00e9r hefur ekki veri\u00f0 helmingur sag\u00f0ur af \u00fe\u00ednum mikla v\u00edsd\u00f3mi. Hann er meiri me\u00f0 \u00fe\u00e9r heldur en \u00fea\u00f0 rykti sem eg hefi heyrt. S\u00e6lir eru \u00fe\u00ednir menn og s\u00e6lir eru \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar sem \u00e6t\u00ed\u00f0 standa frammi fyrir \u00fe\u00e9r og heyra \u00feinn v\u00edsd\u00f3m. Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 s\u00e9 lofa\u00f0ur hver a\u00f0 elska\u00f0i \u00feig og hefur sett \u00feig \u00ed sitt h\u00e1s\u00e6ti til k\u00f3ngs Drottins \u00fe\u00edns Gu\u00f0s. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feinn Gu\u00f0 elskar \u00cdsrael a\u00f0 hann upphefji hann \u00e6vinlega, \u00fear fyrir setti hann \u00feig til k\u00f3ngs yfir \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt fremja d\u00f3m og r\u00e9ttindi.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg h\u00fan gaf k\u00f3nginum hundra\u00f0 og tuttugu centener gulls og mj\u00f6g miklar kostulegar jurtir og d\u00fdrm\u00e6ta steina. <span class=\"athugasemd\" title=\"G\u00e1fur drottningar af Arabia\">[<\/span> \u00dear voru \u00f6ngvar jurtir \u00fev\u00edl\u00edkar sem \u00feessar hverjar drottningin af r\u00edki Arabia gaf Sal\u00f3moni k\u00f3ngi. So og \u00fe\u00e9narar H\u00edram og \u00feeir sveinar Salomonis, \u00feeir fluttu gull af \u00d3f\u00edr, \u00feeir fluttu og svo hebentr\u00e9 og d\u00fdrm\u00e6ta gimsteina. Og Sal\u00f3mon l\u00e9t gj\u00f6ra gr\u00e1\u00f0ur af \u00feessu hebentr\u00e9 \u00ed h\u00fasi Drottins og \u00ed k\u00f3ngsins h\u00fasi, svo og h\u00f6rpur og psalteria til s\u00f6ngvaranna. Svoddan vi\u00f0ur haf\u00f0i ekki fyrr s\u00e9n veri\u00f0 \u00ed landinu J\u00fada. Og Sal\u00f3mon k\u00f3ngur gaf drottningunni af r\u00edki Arabia allt \u00fea\u00f0 hana girnti og h\u00fan ba\u00f0st eftir fyrir utan \u00fea\u00f0 sem h\u00fan haf\u00f0i f\u00e6rt k\u00f3nginum. Og h\u00fan sneri aftur og f\u00f3r heim \u00ed sitt land me\u00f0 s\u00ednum \u00fe\u00e9n\u00f6rum.<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 gull sem Sal\u00f3moni var f\u00e6rt \u00e1rlega var sex hundru\u00f0 sext\u00edgi og sex centener. <span class=\"athugasemd\" title=\"Summa \u00e1rlegrar inntektar Sal\u00f3mon k\u00f3ngs\">[<\/span> \u00dear a\u00f0 auk sem kramarar og kaupmenn f\u00e6r\u00f0u honum. Og allir k\u00f3ngar af Arabia og herrar og h\u00f6f\u00f0ingjar \u00ed l\u00f6ndunum f\u00e6r\u00f0u b\u00e6\u00f0i gull og silfur til Sal\u00f3mon. Af hverju a\u00f0 k\u00f3ng Sal\u00f3mon gj\u00f6r\u00f0i tv\u00f6 hundru\u00f0 skj\u00f6ldu af \u00fev\u00ed besta gulli, en sex hundru\u00f0 gyllini f\u00f3ru til hvers skjaldar, og \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 buklara af \u00fev\u00ed besta gulli, og \u00e1 hvern einn buklara f\u00f3ru \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 gyllini. Og k\u00f3ngurinn l\u00e9t \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00fas Libanussk\u00f3gs.<\/p>\n<p>\tOg k\u00f3ngurinn l\u00e9t gj\u00f6ra miki\u00f0 h\u00e1s\u00e6ti af f\u00edlabeinum og bj\u00f3 \u00fea\u00f0 allt utan me\u00f0 kl\u00e1rt gull. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00e1s\u00e6ti af f\u00edlabeinum \/ 3. Reg. 10\">[<\/span> Og h\u00e1s\u00e6ti\u00f0 haf\u00f0i sex gr\u00e1\u00f0ur og einn f\u00f3tstallur af gulli upp vi\u00f0 h\u00e1s\u00e6ti\u00f0. Og h\u00e1s\u00e6ti\u00f0 haf\u00f0i tv\u00e6r <span class=\"athugasemd\" title=\"sword St\u00f3lbr\u00fa\u00f0ur\">[<\/span> br\u00edkur, s\u00edna til hverrar handar, tveim megin h\u00e1s\u00e6tisins, og \u00e1 br\u00edkunum st\u00f3\u00f0u tv\u00f6 le\u00f3n. Og t\u00f3lf le\u00f3n st\u00f3\u00f0u \u00e1 \u00feeim sex gr\u00e1\u00f0um \u00e1 b\u00e1\u00f0ar s\u00ed\u00f0ur. \u00devl\u00edkt sm\u00ed\u00f0i var aldrei gj\u00f6rt \u00ed nokkru k\u00f3ngar\u00edki.<\/p>\n<p>\tOg \u00f6ll Sal\u00f3mons k\u00f3ngs drykkjarker voru af gulli og \u00f6ll \u00f6nnur ker Libanussk\u00f3gsh\u00fass voru af kl\u00e1ru gulli. \u00dev\u00ed a\u00f0 ei \u00fe\u00f3tti silfur nokkurs vert \u00e1 d\u00f6gum Salomonis. \u00dev\u00ed a\u00f0 k\u00f3ngsins skip sigldu yfir hafi\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9nurum H\u00edram og komu eitt sinn \u00ed \u00ferimur \u00e1rum og fluttu gull, silfur, f\u00edlsbein, apynjur og p\u00e1fugla. <\/p>\n<p>\tSvo var n\u00fa Sal\u00f3mon k\u00f3ngur megtugri en allir a\u00f0rir k\u00f3ngar \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni af au\u00f0\u00e6fum og speki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mons d\u00fdr\u00f0 og r\u00edkid\u00e6mi\">[<\/span> Og allir k\u00f3ngar \u00e1 j\u00f6r\u00f0u girntust a\u00f0 sj\u00e1 Sal\u00f3mons andlit og a\u00f0 heyra hans speki hverja Gu\u00f0 haf\u00f0i honum gefi\u00f0 \u00ed hans hjarta. Og s\u00e9rhver \u00feeirra f\u00e6r\u00f0i honum skenkingar, silfurker og gullker, kl\u00e6\u00f0i, brynjur, jurtir, hesta og m\u00fala \u00e1rlega. <\/p>\n<p>\tOg Sal\u00f3mon haf\u00f0i fj\u00f6gur \u00fe\u00fasund vagnhesta og t\u00f3lf \u00fe\u00fasund riddara og \u00fe\u00e1 setti hann \u00ed vagnborgirnar og hj\u00e1 k\u00f3nginum \u00ed Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mons vagnar og riddarar\">[<\/span> Og hann var einn herra yfir \u00f6llum k\u00f3ngum, fr\u00e1 Vatninu og allt til Philisteilands og inn til egypskra landamerkja. Og svo var mikil gn\u00f3tt \u00e1 silfri \u00ed Jer\u00fasalem sem \u00e1 grj\u00f3ti og svo mikill sedrusvi\u00f0ur sem m\u00f3rbertr\u00e9 \u00e1 m\u00f6rkum. Og honum fluttust hestar af Egyptalandi og af \u00f6llum l\u00f6ndum. <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 11\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 sem meira er a\u00f0 segja um Sal\u00f3mon, b\u00e6\u00f0i hans i\u00f0 fyrsta og hi\u00f0 s\u00ed\u00f0asta, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed Natan sp\u00e1manns kron\u00edku og \u00ed Sp\u00e1d\u00f3mi Ah\u00eda af S\u00edl\u00f3 og \u00ed Sj\u00f3num Jedd\u00ed \u00feess sj\u00e1anda m\u00f3t Jer\u00f3b\u00f3am syni Nebat. Og Sal\u00f3mon r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem yfir allan \u00cdsrael \u00ed fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mon 40 \u00e1r k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael\">[<\/span> Og Sal\u00f3mon sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og \u00feeir j\u00f6r\u00f0u\u00f0u hann \u00ed borg Dav\u00ed\u00f0s s\u00edns f\u00f6\u00f0urs. Og R\u00f3b\u00f3am hans son t\u00f3k k\u00f3ngd\u00f3m eftir hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IX. En \u00feegar drottningin af r\u00edki Arabia heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 rykti Salomonis \u00fe\u00e1 kom h\u00fan me\u00f0 miklu f\u00f6runeyti til Jer\u00fasalem, me\u00f0 \u00falf\u00f6ldum sem b\u00e1ru jurtir, gull og mikinn fj\u00f6lda gimsteina, til a\u00f0 reyna Sal\u00f3mon me\u00f0 dj\u00fapum spurningum. [ En sem h\u00fan kom til Sal\u00f3mon tala\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 hann allt \u00fea\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 s\u00e9r. Og k\u00f3ngurinn sag\u00f0i henni allt \u00fea\u00f0 h\u00fan spur\u00f0i a\u00f0 og \u00fear var ekkert huli\u00f0 fyrir Sal\u00f3moni a\u00f0 hann seg\u00f0i henni \u00fea\u00f0 eigi. Og sem drottningin af Arabiar\u00edki s\u00e1 speki Salomonis og \u00fea\u00f0 h\u00fas sem hann haf\u00f0i byggt og vistir til hans bor\u00f0s og herbergi hans sveina, hans <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3069","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3069","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3069"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3069\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3069"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}