{"id":3068,"date":"2017-12-18T18:32:32","date_gmt":"2017-12-18T18:32:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:32","slug":"sidari-kronikubok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-8-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Og a\u00f0 tuttugu \u00e1rum li\u00f0num \u00e1 hverjum Sal\u00f3mon bygg\u00f0i Drottins h\u00fas og sitt h\u00fas, \u00fear eftir bygg\u00f0i hann \u00fe\u00e6r borgir sem H\u00edram gaf Sal\u00f3moni og l\u00e9t Israelissonu b\u00faa \u00ed \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 9 \/ 2. Para. 11\">[<\/span> Og Sal\u00f3mon f\u00f3r til borgar Hemat S\u00f3ba og efldi hana. Og hann bygg\u00f0i Tadmor \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni og alla kornsta\u00f0ina sem hann bygg\u00f0i \u00ed Hemat. Hann bygg\u00f0i \u00fe\u00e1 hina Efri og Ne\u00f0ri Bet H\u00f3ron a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru sterkar borgir me\u00f0 m\u00farveggjum, portum og grindum. Og Baelat og alla kornsta\u00f0i sem hann haf\u00f0i og alla vagnasta\u00f0i og \u00fe\u00e1 riddarasta\u00f0i og allt \u00fea\u00f0 sem Sal\u00f3mon haf\u00f0i lyst til a\u00f0 byggja, b\u00e6\u00f0i \u00ed Jer\u00fasalem og upp \u00e1 L\u00edbanon og \u00ed \u00f6llu s\u00ednu r\u00edki.<\/p>\n<p>\tAllt \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem eftir var or\u00f0i\u00f0 af \u00feeim Hethiter, Amoriter, Pheresiter, Heviter og Jebusiter, sem ekki var af \u00cdsraelssonum og \u00feeirra synir sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 eftir sig \u00ed landinu hverja Israelissynir h\u00f6f\u00f0u ekki ey\u00f0ilagt, \u00feessa gj\u00f6r\u00f0i Sal\u00f3mon s\u00e9r skattgilda inn til \u00feessa dags. En Sal\u00f3mon l\u00e9t \u00f6ngvan af Israelis\u00fej\u00f3num \u00fej\u00f3na til hans arfi\u00f0is heldur l\u00e9t hann \u00fe\u00e1 vera str\u00ed\u00f0smenn og h\u00f6f\u00f0ingja yfir s\u00edna vagna og riddara. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mons yppustu emb\u00e6ttismenn ccl\">[<\/span> Og \u00feeir yppustu h\u00f6f\u00f0ingjar Sal\u00f3mons k\u00f3ngs sem stj\u00f3rnu\u00f0u yfir f\u00f3lki\u00f0 voru a\u00f0 t\u00f6lu tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmt\u00edgi.<\/p>\n<p>\tOg Sal\u00f3mon l\u00e9t flytja d\u00f3ttir pharaonis fr\u00e1 Dav\u00ed\u00f0sborg \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00fas sem hann haf\u00f0i byggt henni. \u00dev\u00ed hann sag\u00f0i: &#8222;M\u00edn kvinna skal ekki b\u00faa \u00ed Dav\u00ed\u00f0s \u00cdsraels k\u00f3ngs h\u00fasi \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er helga\u00f0 fyrst a\u00f0 \u00f6rk Drottins hefur \u00fear inn komi\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tEftir \u00fea\u00f0 offra\u00f0i Sal\u00f3mon Drottni brennif\u00f3rnum yfir Drottins altari \u00fea\u00f0 hann haf\u00f0i byggt fyrir framan forh\u00fasi\u00f0 svo a\u00f0 yfir \u00fev\u00ed skyldi f\u00f3rnir f\u00e6rast daglega eftir M\u00f3ses bo\u00f0i, \u00e1 \u00fevottd\u00f6gum, \u00e1 n\u00fdm\u00e1nu\u00f0um og \u00e1 tilsettum h\u00e1t\u00ed\u00f0um, \u00ferj\u00e1r reisur um \u00e1ri\u00f0, sem var \u00e1 s\u00e6tubrau\u00f0sh\u00e1t\u00ed\u00f0inni, \u00e1 vikuh\u00e1t\u00ed\u00f0inni og \u00e1 laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0inni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 28\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg hann skikka\u00f0i prestana \u00ed \u00feeirra skipan til \u00feeirra emb\u00e6ttis svo sem hans fa\u00f0ir Dav\u00ed\u00f0 haf\u00f0i tilsett og Lev\u00edtana \u00ed \u00feeirra skipan a\u00f0 lofa og \u00fej\u00f3na fyrir kennim\u00f6nnunum, hverjir \u00e1 s\u00ednum degi, og dyraver\u00f0ina \u00ed sinni skipan, hvern \u00ed s\u00ednum dyrum, \u00fev\u00ed Dav\u00ed\u00f0 gu\u00f0sma\u00f0ur haf\u00f0i so b\u00edfala\u00f0. Og \u00feeir gleymdu \u00f6ngvu bo\u00f0i k\u00f3ngsins um prestana, Lev\u00edtana og um alla hluti og um f\u00e9sj\u00f3\u00f0una. So haf\u00f0i Sal\u00f3mon allan kostna\u00f0inn tilb\u00fainn fr\u00e1 \u00feeim degi sem grundv\u00f6llurinn var lag\u00f0ur til Drottins h\u00fass og \u00fear til hann haf\u00f0i fullkomna\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 Drottins h\u00fas var me\u00f0 \u00f6llu b\u00fai\u00f0.<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an f\u00f3r Sal\u00f3mon til Eseon Geber og til El\u00f3t hver e\u00f0 liggur vi\u00f0 hafi\u00f0 rau\u00f0a \u00ed landinu Idumea. <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 9\">[<\/span> Og H\u00edram sendi honum skip me\u00f0 s\u00ednum \u00fe\u00e9nurum hverjir e\u00f0 voru farmenn miklir. Og \u00feeir f\u00f3ru me\u00f0 Sal\u00f3mons \u00fe\u00e9nurum til \u00d3f\u00edr og fluttu \u00fea\u00f0an fj\u00f6gur hundru\u00f0 og fimmt\u00edgi centener gulls og f\u00e6r\u00f0u \u00fea\u00f0 til Sal\u00f3mons k\u00f3ngs.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Og a\u00f0 tuttugu \u00e1rum li\u00f0num \u00e1 hverjum Sal\u00f3mon bygg\u00f0i Drottins h\u00fas og sitt h\u00fas, \u00fear eftir bygg\u00f0i hann \u00fe\u00e6r borgir sem H\u00edram gaf Sal\u00f3moni og l\u00e9t Israelissonu b\u00faa \u00ed \u00feeim. [ Og Sal\u00f3mon f\u00f3r til borgar Hemat S\u00f3ba og efldi hana. Og hann bygg\u00f0i Tadmor \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni og alla kornsta\u00f0ina sem hann bygg\u00f0i \u00ed Hemat. Hann bygg\u00f0i \u00fe\u00e1 hina Efri og Ne\u00f0ri Bet H\u00f3ron a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru sterkar borgir me\u00f0 m\u00farveggjum, portum og grindum. Og Baelat og alla kornsta\u00f0i sem hann haf\u00f0i og alla vagnasta\u00f0i og \u00fe\u00e1 riddarasta\u00f0i og allt \u00fea\u00f0 sem Sal\u00f3mon haf\u00f0i lyst til a\u00f0 byggja, b\u00e6\u00f0i <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3068","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3068","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3068"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3068\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3068"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}