{"id":3062,"date":"2017-12-18T18:32:32","date_gmt":"2017-12-18T18:32:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:32","slug":"sidari-kronikubok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-2-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>Og Sal\u00f3mon \u00e1setti s\u00e9r a\u00f0 byggja Drottins nafni eitt h\u00fas og s\u00ednu k\u00f3ngsr\u00edki eitt h\u00fas. <span class=\"athugasemd\" title=\"Musterisins uppbygging \/ 3. Reg. 5\">[<\/span> Og hann aftaldi sj\u00f6t\u00edgi \u00fe\u00fasund manna til a\u00f0 bera byr\u00f0ar og \u00e1ttat\u00edgi \u00fe\u00fasund steinh\u00f6ggvara \u00e1 fjallinu og \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund og sex hundru\u00f0 verkstj\u00f3ra (sem settir voru) yfir \u00fe\u00e1. <\/p>\n<p>\tOg Sal\u00f3mon sendi til H\u00edram k\u00f3ngsins \u00ed Tyro og l\u00e9t segja honum: <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00edram\">[<\/span> &#8222;L\u00edka sem \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir vi\u00f0 minn f\u00f6\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0 og \u00fe\u00fa sendir honum sedrusvi\u00f0u a\u00f0 byggja s\u00e9r sj\u00e1lfum eitt h\u00fas \u00ed hverju hann bj\u00f3, svo gj\u00f6r \u00fe\u00fa m\u00e9r. Sj\u00e1, eg vil byggja Drottins m\u00edns Gu\u00f0s nafni eitt h\u00fas hvert e\u00f0 honum skal helga\u00f0 ver\u00f0a a\u00f0 brenna fyrir honum s\u00e6tan reykelsisilm og \u00feau sko\u00f0unarbrau\u00f0in til a\u00f0 rei\u00f0a og brennioffur \u00e1 morna og kveld, \u00e1 sabbatsd\u00f6gum, \u00e1 tunglkomuh\u00e1t\u00ed\u00f0um og \u00e1 Drottins vors Gu\u00f0s h\u00e1t\u00ed\u00f0um. Og \u00fea\u00f0 h\u00fas sem eg vil byggja skal vera st\u00f3rt \u00fev\u00ed a\u00f0 vor Gu\u00f0 er st\u00e6rri en allir a\u00f0rir gu\u00f0ir. En hver mun \u00fea\u00f0 megna a\u00f0 byggja honum h\u00fas? \u00dev\u00ed a\u00f0 himinninn og allir himnanna himnar taka hann ekki. Hver em eg \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg muni honum h\u00fas byggja? Heldur eins kostar til \u00feess a\u00f0 brenna fyrir honum reykelsi. <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 8\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir send m\u00e9r n\u00fa einn hagleiksmann \u00e1 allra handa arfi\u00f0i, \u00e1 gull, silfur, kopar, j\u00e1rn, skarlat, purpura, gult silki og s\u00e1 sem kann a\u00f0 \u00fatgrafa me\u00f0 \u00feeim h\u00f6gum m\u00f6nnum sem h\u00e9r eru hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem hverja minn fa\u00f0ir Dav\u00ed\u00f0 hefur tilfengi\u00f0. Og send m\u00e9r n\u00fa sedrustr\u00e9, grenivi\u00f0 og <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ Hebentr\u00e9 \/ er einn s\u00e9rlegur vi\u00f0ur \u00ed India\">[<\/span> hebentr\u00e9 af L\u00edbanon. \u00dev\u00ed eg veit a\u00f0 \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar eru vel hagir \u00e1 tr\u00e9. Og sj\u00e1, m\u00ednir \u00fe\u00e9narar skulu vera me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fej\u00f3num so \u00feeir h\u00f6ggvi m\u00e9r vi\u00f0u sem mesta \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 h\u00fasi\u00f0 sem eg vil byggja skal vera miki\u00f0 og veglegt. Og sj\u00e1, eg vil gefa smi\u00f0unum, \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nurum, sem a\u00f0 tr\u00e9n h\u00f6ggva tuttugu \u00fe\u00fasund coros hveiti og tuttugu \u00fe\u00fasund coros byggs og tuttugu \u00fe\u00fasund batha v\u00edn og tuttugu \u00fe\u00fasund batha af vi\u00f0smj\u00f6ri.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i H\u00edram k\u00f3ngur fyrir skrift og sendi til Sal\u00f3mon: &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn elskar sitt f\u00f3lk \u00fe\u00e1 hefur hann sett \u00feig til k\u00f3ngs yfir \u00fea\u00f0.&#8220; Og H\u00edram sag\u00f0i enn framar: &#8222;Lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn Israelis Gu\u00f0 hver e\u00f0 skapa\u00f0 hefur himin og j\u00f6r\u00f0 a\u00f0 hann gaf Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngi einn v\u00edsan, hygginn og forstandigan son hver e\u00f0 byggja skal Drottni eitt h\u00fas og s\u00ednu k\u00f3ngsr\u00edki einn sal. Svo sendi eg n\u00fa \u00fe\u00e9r einn v\u00edsan mann hver a\u00f0 hefur gott forstand, <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ Sumar b\u00e6kur hafa H\u00faram Ab\u00ed\">[<\/span> H\u00edram Ab\u00edf, hver a\u00f0 er einnrar kvinnu son af d\u00e6trum Dan og hans fa\u00f0ir var af Tyro. Hann kann sm\u00ed\u00f0a gull, silfur, kopar, j\u00e1rn, stein, tr\u00e9, skarlat, gult silki, l\u00edn, purpura og a\u00f0 \u00fatgrafa allra handa gr\u00f6ft, hva\u00f0 sem mann setur honum fyrir me\u00f0 \u00fe\u00ednum smi\u00f0um og me\u00f0 k\u00f3ng Dav\u00ed\u00f0s m\u00edns herra, \u00fe\u00edns f\u00f6\u00f0urs, hagleiksm\u00f6nnum. \u00dev\u00ed bi\u00f0 eg n\u00fa a\u00f0 minn herra sendi hveiti, bygg, vi\u00f0smj\u00f6r og v\u00edn til sinna \u00fe\u00e9nara svo sem hann hefur lofa\u00f0, svo viljum v\u00e9r h\u00f6ggva tr\u00e9 \u00e1 L\u00edbanon, svo mj\u00f6g sem \u00feaurf gj\u00f6rist og v\u00e9r viljum f\u00e6ra \u00feau til sj\u00e1var \u00ed flota til Joppen. En \u00fear fr\u00e1 m\u00e1ttu flytja \u00feau til Jer\u00fasalem.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Sal\u00f3mon taldi alla framandi menn \u00ed \u00cdsraelslandi eftir \u00fea\u00f0 a\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 hans fa\u00f0ir haf\u00f0i tali\u00f0 \u00fe\u00e1. Og \u00fear fundust hundra\u00f0 og fimmt\u00edgi \u00fe\u00fasundir \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund og sex hundru\u00f0. Og hann skikka\u00f0i sj\u00f6t\u00edgi \u00fe\u00fasund af \u00feeim til a\u00f0 bera byr\u00f0ar og \u00e1ttat\u00edgi \u00fe\u00fasund til a\u00f0 h\u00f6ggva steina \u00e1 fj\u00f6llum og \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir og sex hundru\u00f0 setti hann til verkstj\u00f3ra a\u00f0 halda f\u00f3lkinu til \u00fej\u00f3nustu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. Og Sal\u00f3mon \u00e1setti s\u00e9r a\u00f0 byggja Drottins nafni eitt h\u00fas og s\u00ednu k\u00f3ngsr\u00edki eitt h\u00fas. [ Og hann aftaldi sj\u00f6t\u00edgi \u00fe\u00fasund manna til a\u00f0 bera byr\u00f0ar og \u00e1ttat\u00edgi \u00fe\u00fasund steinh\u00f6ggvara \u00e1 fjallinu og \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund og sex hundru\u00f0 verkstj\u00f3ra (sem settir voru) yfir \u00fe\u00e1. Og Sal\u00f3mon sendi til H\u00edram k\u00f3ngsins \u00ed Tyro og l\u00e9t segja honum: [ &#8222;L\u00edka sem \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir vi\u00f0 minn f\u00f6\u00f0ur Dav\u00ed\u00f0 og \u00fe\u00fa sendir honum sedrusvi\u00f0u a\u00f0 byggja s\u00e9r sj\u00e1lfum eitt h\u00fas \u00ed hverju hann bj\u00f3, svo gj\u00f6r \u00fe\u00fa m\u00e9r. Sj\u00e1, eg vil byggja Drottins m\u00edns Gu\u00f0s nafni eitt h\u00fas hvert e\u00f0 honum skal helga\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-kronikubok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3062","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3062","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3062"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3062\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3062"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}