{"id":3060,"date":"2017-12-18T18:32:32","date_gmt":"2017-12-18T18:32:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-30-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:32","slug":"fyrri-kronikubok-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-30-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri kron\u00edkub\u00f3k 30. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXX.<\/p>\n<p>Og Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur sag\u00f0i til alls safna\u00f0arins: <span class=\"athugasemd\" title=\"Allur kostna\u00f0ur til musterisuppbyggingar af Dav\u00ed\u00f0 fyrirhuga\u00f0ur\">[<\/span> &#8222;Gu\u00f0 hefur \u00fatvali\u00f0 Sal\u00f3mon, einn af m\u00ednum sonum, sem enn n\u00fa er b\u00e6\u00f0i ungur og l\u00edtill. En gj\u00f6rningurinn er st\u00f3r. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er ekki eins manns heimili heldur Gu\u00f0s Drottins. En eg hefi af \u00f6llu megni til lagt allan kostna\u00f0 til \u00feessa Gu\u00f0s h\u00fass sm\u00ed\u00f0is: Gull til gulllegra kera, silfur til silfurkera, kopar til koparkera, j\u00e1rn til j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0is, tr\u00e9 til tr\u00e9sm\u00ed\u00f0is, onixsteina, greypta gimsteina og mislita steina og allra handa d\u00fdrm\u00e6ta steina og mikla gn\u00f3tt marmarasteina. A\u00f0 auk \u00feessa hefi eg gefi\u00f0 af m\u00ednu eigin g\u00f3ssi til m\u00edns Gu\u00f0s h\u00fass af m\u00ednum frj\u00e1lsa vilja gull og silfur, \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund centener gulls af \u00d3f\u00edr og sj\u00f6 \u00fe\u00fasund centener kl\u00e1rt silfur. \u00dea\u00f0 gef eg til Gu\u00f0s heilaga h\u00fass, auk alls \u00feess sem eg hefi skikka\u00f0 til a\u00f0 b\u00faa me\u00f0 h\u00fassins veggi so a\u00f0 \u00fear s\u00e9 gull sem gull skal vera, \u00fear silfur sem silfur skal vera og til allsh\u00e1tta\u00f0s sm\u00ed\u00f0isgj\u00f6rnings fyrir smi\u00f0anna hendur. Og hver er n\u00fa sj\u00e1lfviljugur til a\u00f0 fylla s\u00edna h\u00f6nd \u00ed dag fyrir Drottni?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 voru fe\u00f0ranna h\u00f6f\u00f0ingjar og \u00cdsraels \u00e6ttar h\u00f6f\u00f0ingjar og h\u00f6f\u00f0ingjar yfir \u00fe\u00fasund og yfir hundra\u00f0 og so h\u00f6f\u00f0ingjar yfir k\u00f3ngsins eignum vel viljugir og g\u00e1fu til emb\u00e6ttanna \u00ed Gu\u00f0s h\u00fasi fimm \u00fe\u00fasund centener gulls og t\u00edu \u00fe\u00fasund gyllini og t\u00edu \u00fe\u00fasund centener silfurs, \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasund centener kopars og hundra\u00f0 \u00fe\u00fasund centener j\u00e1rns og hj\u00e1 hverjum helst sem steinar ur\u00f0u fundnir \u00fe\u00e1 g\u00e1fu \u00feeir \u00fe\u00e1 til Gu\u00f0s h\u00fass fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0a undir Jeh\u00edel Gersoniters h\u00f6nd. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sj\u00e1lfkrafa g\u00e1fur h\u00f6f\u00f0ingjanna og f\u00f3lksins\">[<\/span> Og f\u00f3lki\u00f0 var fagnandi a\u00f0 \u00feeir voru so sj\u00e1lfviljugir \u00fev\u00ed \u00feeir g\u00e1fu Drottni af \u00f6llu hjarta sj\u00e1lfviljugir.<\/p>\n<p>\tOg Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur gladdi sig mikillega og lofa\u00f0i Gu\u00f0 og sag\u00f0i fyrir \u00f6llum alm\u00faganum: <span class=\"athugasemd\" title=\"Dav\u00ed\u00f0s b\u00e6n og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0\">[<\/span> &#8222;Lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn \u00cdsrael vorra fe\u00f0ra Gu\u00f0 \u00e6vinlega. \u00de\u00e9r ber veldi\u00f0 og maktin, d\u00fdr\u00f0in, sigur og \u00feakkargj\u00f6r\u00f0. \u00dev\u00ed allt \u00fea\u00f0 sem er \u00e1 himni og j\u00f6r\u00f0u, \u00fea\u00f0 er \u00feitt. R\u00edki\u00f0 er \u00feitt og \u00fe\u00fa ert upphafinn yfir alla h\u00f6f\u00f0ingja. \u00de\u00edn eru au\u00f0\u00e6vin, \u00fe\u00edn er d\u00fdr\u00f0in. \u00de\u00fa stj\u00f3rnar yfir alla hluti, magt og styrkur er \u00ed \u00feinni hendi og \u00fea\u00f0 stendur \u00ed \u00feinni hendi a\u00f0 gj\u00f6ra manninn st\u00f3ran og sterkan.<\/p>\n<p>\tN\u00fa vor Gu\u00f0, v\u00e9r \u00fe\u00f6kkum \u00fe\u00e9r og g\u00f6fgum \u00feitt hi\u00f0 d\u00fdr\u00f0arlega nafn. \u00dev\u00ed hva\u00f0 er eg, hva\u00f0 er mitt f\u00f3lk a\u00f0 v\u00e9r skyldum hafa magt til \u00fev\u00edl\u00edkt viljuglega a\u00f0 gefa sem n\u00fa sker? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er allt komi\u00f0 af \u00fe\u00e9r og af \u00feinni eigin hendi h\u00f6fum v\u00e9r \u00fea\u00f0 gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r erum gestir og framandi fyrir \u00fe\u00e9r, l\u00edka sem allir vorir forfe\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 39\">[<\/span> Vort l\u00edf \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni er l\u00edka sem skuggi og \u00fear er engin dv\u00f6l. Drottinn vor Gu\u00f0, \u00f6ll \u00feessi gn\u00f3tt sem v\u00e9r h\u00f6fum til b\u00fai\u00f0 a\u00f0 byggja \u00fe\u00e9r me\u00f0 eitt h\u00fas til \u00fe\u00edns heilaga nafns, \u00fea\u00f0 er komi\u00f0 af \u00feinni hendi og \u00fea\u00f0 er allt saman \u00feitt. <\/p>\n<p>\tMinn Gu\u00f0, eg veit a\u00f0 \u00fe\u00fa rannsakar hj\u00f6rtun og elskar einfaldleika. \u00dev\u00ed hefi eg af einu einf\u00f6ldu hjarta gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feetta viljuglega og me\u00f0 gle\u00f0i hefi eg n\u00fa s\u00e9\u00f0 \u00feitt f\u00f3lk \u00fea\u00f0 sem n\u00fa er h\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1lfviljuglega. Drottinn vorra fe\u00f0ra, Abrahams, \u00cdsaks og \u00cdsraels Gu\u00f0, var\u00f0veittu \u00e6vinlega soddan sinni \u00ed hjarta \u00fe\u00edns f\u00f3lks og tilrei\u00f0 \u00fe\u00fa \u00feeirra hj\u00f6rtu til \u00fe\u00edn. Og gef m\u00ednum syni Sal\u00f3moni eitt algj\u00f6rt hjarta a\u00f0 hann haldi \u00fe\u00edn bo\u00f0, \u00feinn vitnisbur\u00f0 og \u00fe\u00edn r\u00e9ttindi a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 allt saman og a\u00f0 byggja \u00feetta h\u00fas sem eg hefi tilsett.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Dav\u00ed\u00f0 sag\u00f0i til alls alm\u00fagans: &#8222;Lofi\u00f0 Drottin y\u00f0arn Gu\u00f0.&#8220; Og allur s\u00f6fnu\u00f0urinn lofa\u00f0i Drottin Gu\u00f0 sinna fe\u00f0ra, \u00feeir hneig\u00f0u sig og tilba\u00f0u Drottin og k\u00f3nginn. Og \u00feeir f\u00e6r\u00f0u Drottni f\u00f3rnir. Og a\u00f0 \u00f6\u00f0rum morni offru\u00f0u \u00feeir til brennif\u00f3rnar \u00fe\u00fasund uxum, \u00fe\u00fasund sau\u00f0um, \u00fe\u00fasund l\u00f6mbum, me\u00f0 \u00feeirra drykkjarf\u00f3rn. Og mannfj\u00f6ldinn af \u00cdsrael offra\u00f0i, \u00e1tu og drukku me\u00f0 st\u00f3rum fagna\u00f0i \u00feann sama dag fyrir Drottni. <\/p>\n<p>\tOg \u00feeir t\u00f3ku Sal\u00f3mon son Dav\u00ed\u00f0s til k\u00f3ngs \u00ed anna\u00f0 sinn og smur\u00f0u hann Drottni til eins h\u00f6f\u00f0ingja og Sad\u00f3k til kennimanns.<\/p>\n<p>\tSo sat Sal\u00f3mon \u00ed Drottins h\u00e1s\u00e6ti, einn k\u00f3ngur \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs sta\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s, og var\u00f0 lukkusamur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mon k\u00f3ngur \/ 3. Reg. 1; 2\">[<\/span> Og allur Israelis alm\u00fagi var honum hl\u00fd\u00f0inn. Og allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir og \u00feeir inu voldugustu og allir synir Dav\u00ed\u00f0s k\u00f3ngs ur\u00f0u undirgefnir Sal\u00f3mon k\u00f3ngi. Og Drottinn mikla\u00f0i Sal\u00f3mon mj\u00f6g fyrir \u00f6llum \u00cdsrael og gaf honum eitt lofsamlegt k\u00f3ngsr\u00edki, \u00fev\u00edl\u00edkt a\u00f0 enginn fyrir hann haf\u00f0i haft \u00ed \u00cdsrael. <\/p>\n<p>\tSvo var n\u00fa sonur Jesa\u00ed Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur yfir allan \u00cdsrael. En s\u00e1 t\u00edmi sem hann r\u00edkti yfir \u00cdsrael eru fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r. Hann r\u00edkti sj\u00f6 \u00e1r \u00ed Hebron, \u00ferett\u00e1n \u00e1r og tuttugu \u00ed Jer\u00fasalem og anda\u00f0ist \u00ed g\u00f3\u00f0ri elli, saddur af d\u00f6gum, r\u00edkd\u00f3mi og \u00e6ru. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dav\u00ed\u00f0 40 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed \u00cdsrael \/ 2. Reg. 3; 6 \/ Supra 27\">[<\/span> Og Sal\u00f3mon hans son var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0. En Dav\u00ed\u00f0s k\u00f3ngs gj\u00f6rningar, b\u00e6\u00f0i \u00feeir fyrstu og s\u00ed\u00f0ustu, sj\u00e1, \u00feeir eru skrifa\u00f0ir \u00ed Gj\u00f6rningab\u00f3k Sam\u00faels sj\u00e1anda og \u00e1 me\u00f0al Gj\u00f6rninga Natan sp\u00e1manns og \u00e1 B\u00f3k Ga\u00f0 \u00feess sj\u00e1anda og allt hans k\u00f3ngsr\u00edki, magt og t\u00edmi, hva\u00f0 fram er li\u00f0i\u00f0 \u00e1 hans d\u00f6gum, b\u00e6\u00f0i \u00ed \u00cdsrael og \u00ed \u00f6llum \u00f6\u00f0rum k\u00f3ngar\u00edkjum \u00ed landinu.<\/p>\n<p>Endir \u00e1 \u00feeirri Fyrri Kron\u00edkub\u00f3kinni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXX. Og Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur sag\u00f0i til alls safna\u00f0arins: [ &#8222;Gu\u00f0 hefur \u00fatvali\u00f0 Sal\u00f3mon, einn af m\u00ednum sonum, sem enn n\u00fa er b\u00e6\u00f0i ungur og l\u00edtill. En gj\u00f6rningurinn er st\u00f3r. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er ekki eins manns heimili heldur Gu\u00f0s Drottins. En eg hefi af \u00f6llu megni til lagt allan kostna\u00f0 til \u00feessa Gu\u00f0s h\u00fass sm\u00ed\u00f0is: Gull til gulllegra kera, silfur til silfurkera, kopar til koparkera, j\u00e1rn til j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0is, tr\u00e9 til tr\u00e9sm\u00ed\u00f0is, onixsteina, greypta gimsteina og mislita steina og allra handa d\u00fdrm\u00e6ta steina og mikla gn\u00f3tt marmarasteina. A\u00f0 auk \u00feessa hefi eg gefi\u00f0 af m\u00ednu eigin g\u00f3ssi til m\u00edns Gu\u00f0s h\u00fass <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3060","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3060","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3060"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3060\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3060"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}