{"id":3048,"date":"2017-12-18T18:32:28","date_gmt":"2017-12-18T18:32:28","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-18-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:28","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:28","slug":"fyrri-kronikubok-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-18-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri kron\u00edkub\u00f3k 18. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVIII.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ske\u00f0i \u00fe\u00e1 Dav\u00ed\u00f0 bj\u00f3 \u00ed s\u00ednu h\u00fasi a\u00f0 hann sag\u00f0i til Natan sp\u00e1manns: <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 7 \/ Natan\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1, eg b\u00fd \u00ed einu sedrusvi\u00f0arh\u00fasi en Drottins s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk er undir tjald\u00feaki.&#8220; Natan svara\u00f0i Dav\u00ed\u00f0: &#8222;Allt hva\u00f0 \u00fe\u00e9r b\u00fdr \u00ed hjarta, \u00fea\u00f0 gj\u00f6r \u00fe\u00fa \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er me\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00feeirri n\u00f3tt kom or\u00f0 Drottins til Natan og sag\u00f0i: &#8222;Far og seg til m\u00edns \u00fe\u00e9nara Dav\u00ed\u00f0s: Svo segir Drottinn: Ekki skaltu m\u00e9r h\u00fas til \u00edb\u00fa\u00f0ar byggja. \u00dev\u00ed eg hefi ekki b\u00fai\u00f0 \u00ed nokkru h\u00fasi fr\u00e1 \u00feeim degi a\u00f0 eg \u00fatleidda \u00cdsraelssyni allt til \u00feessa dags heldur var eg \u00fear sem tjaldb\u00fa\u00f0in var og landtjaldi\u00f0 hvar sem eg hefi gengi\u00f0 \u00e1 me\u00f0al alls \u00cdsraels. Hefi eg og nokkurn t\u00edma tala\u00f0 til nokkurs d\u00f3mara \u00ed \u00cdsrael hverjum eg bau\u00f0 a\u00f0 f\u00e6\u00f0a mitt f\u00f3lk og sagt: \u00dev\u00ed byggi \u00fe\u00e9r m\u00e9r ekki eitt h\u00fas af sedrusvi\u00f0i? \u00dear fyrir seg n\u00fa til m\u00edns \u00fe\u00e9nara Dav\u00ed\u00f0s: Svo segir Drottinn Seba\u00f3t: Eg t\u00f3k \u00feig \u00far haganum \u00fear \u00fe\u00fa eftirfylgdir hj\u00f6r\u00f0inni a\u00f0 \u00fe\u00fa skyldir vera einn h\u00f6f\u00f0ingi yfir mitt f\u00f3lk \u00cdsrael. Og eg hefi veri\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r hvert sem \u00fe\u00fa hefur fari\u00f0 og \u00fe\u00edna \u00f3vini hefi eg uppr\u00e6tt fyrir \u00fe\u00e9r og eg hefi gj\u00f6rt \u00fe\u00e9r eitt nafn svo sem a\u00f0 \u00feeir inu st\u00f3ru \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni hafa. Og eg vil gefa sta\u00f0 m\u00ednu f\u00f3lki \u00cdsrael og eg vil planta \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 b\u00fai \u00fear svo \u00fea\u00f0 hr\u00e6rist ekki framar meir. Og \u00fea\u00f0 vonda f\u00f3lk skal ekki meir \u00ferykkja \u00fea\u00f0 undir so sem \u00e1\u00f0ur fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma sem eg bau\u00f0 a\u00f0 \u00fear skyldu vera d\u00f3mendur yfir mitt f\u00f3lk \u00cdsrael. Og eg vil ni\u00f0ur\u00ferykkja alla \u00fe\u00edna \u00f3vini og segja \u00fe\u00e9r a\u00f0 Drottinn vill upp byggja \u00fe\u00e9r eitt h\u00fas.<\/p>\n<p>\tEn \u00feegar \u00fe\u00ednir dagar eru \u00fati a\u00f0 \u00fe\u00fa fer h\u00e9\u00f0an til \u00feinna fe\u00f0ra \u00fe\u00e1 vil eg upp vekja \u00feitt s\u00e6\u00f0i eftir \u00feig sem a\u00f0 vera skal einn af \u00fe\u00ednum sonum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Christus Dav\u00ed\u00f0 fyrirheitinn \/ 2. Reg. 7 \/ Psal. 123 \/ 1. Para. 29\">[<\/span> Hans r\u00edki vil eg sta\u00f0festa. Hann skal byggja m\u00e9r eitt h\u00fas og eg vil sta\u00f0festa hans st\u00f3l eil\u00edflega. Eg vil vera hans fa\u00f0ir og hann skal vera minn son. Og minni miskunnsemi vil eg ei svipta fr\u00e1 honum so sem eg t\u00f3k hana fr\u00e1 \u00feeim sem e\u00f0 var fyrir \u00feig heldur vil eg setja hann \u00ed mitt h\u00fas og \u00ed mitt r\u00edki eil\u00edflega og hans st\u00f3ll skal eil\u00edflega st\u00f6\u00f0ugur standa.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 Natan haf\u00f0i tala\u00f0 eftir \u00f6llum \u00feessum or\u00f0um og \u00feessari s\u00fdn vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 \u00fe\u00e1 kom Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur og var fyrir Drottni og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Dav\u00ed\u00f0 fur\u00f0ar \u00fe\u00e1 st\u00f3ru Gu\u00f0s g\u00e6sku, pr\u00edsar Gu\u00f0 og gj\u00f6rir honum \u00feakkir\">[<\/span> &#8222;Hver em eg, Drottinn Gu\u00f0, og hva\u00f0 er mitt h\u00fas \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hefur veitt m\u00e9r sl\u00edkt? Og \u00fea\u00f0 hefur \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3tt vera of l\u00edti\u00f0, Gu\u00f0, heldur hefur \u00fe\u00fa tala\u00f0 um \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara h\u00fas \u00ed framt\u00ed\u00f0inni. Og \u00fe\u00fa hefur \u00e1liti\u00f0 mig svo sem \u00ed eins manns mynd hver a\u00f0 er \u00ed h\u00e6\u00f0inni Gu\u00f0 Drottinn. Hva\u00f0 skal Dav\u00ed\u00f0 n\u00fa meir segja til \u00fe\u00edn a\u00f0 \u00fe\u00fa vegsamir \u00feinn \u00fe\u00e9nara? \u00de\u00fa \u00feekkir \u00feinn \u00fej\u00f3n. Drottinn, vegna \u00fe\u00edns \u00fej\u00f3ns, eftir \u00fe\u00ednu hjarta hefur \u00fe\u00fa gj\u00f6rt alla \u00feessa mikla hluti a\u00f0 opinber yr\u00f0i \u00f6ll \u00feessi st\u00f3rmerki. Drottinn, enginn er \u00feinn l\u00edki og enginn er Gu\u00f0 utan \u00fe\u00fa um hvern v\u00e9r h\u00f6fum heyrt me\u00f0 vorum eyrum. Og hvar er nokku\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni sl\u00edkt sem \u00feitt f\u00f3lk \u00cdsrael a\u00f0 Gu\u00f0 sj\u00e1lfur er farinn til a\u00f0 endurleysa s\u00e9r eitt f\u00f3lk og a\u00f0 gj\u00f6ra s\u00e9r sj\u00e1lfum eitt nafn af miklum og hr\u00e6\u00f0ilegum gj\u00f6rningum, a\u00f0 burtdr\u00edfa hei\u00f0ingjana fr\u00e1 \u00fe\u00ednu f\u00f3lki hvert \u00fe\u00fa frelsa\u00f0ir af Egyptalandi? Og gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00e9r \u00feitt f\u00f3lk \u00cdsrael til eins f\u00f3lks a\u00f0 eil\u00edfu og \u00fe\u00fa, Drottinn, ert or\u00f0inn \u00feeirra Gu\u00f0.<\/p>\n<p>\tN\u00fa Drottinn, \u00fea\u00f0 or\u00f0 sem \u00fe\u00fa tala\u00f0ir um \u00feinn \u00fe\u00e9nara og um hans h\u00fas, s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00e6vinlega satt og gj\u00f6r sem \u00fe\u00fa hefur sagt og a\u00f0 \u00feitt nafn s\u00e9 satt og \u00e6vinlega st\u00f3rt so menn megi segja: Drottinn Seba\u00f3t er \u00cdsraels Gu\u00f0, hann er Gu\u00f0 \u00ed \u00cdsrael, og h\u00fas \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara Dav\u00ed\u00f0s ver\u00f0i sta\u00f0fest fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa, Drottinn, hefur upploki\u00f0 eyrum \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir byggja honum eitt h\u00fas. \u00dear fyrir hefur \u00feinn \u00fe\u00e9nari fundi\u00f0 \u00fea\u00f0 traust a\u00f0 hann bi\u00f0ur \u00feig. Tak n\u00fa til a\u00f0 blessa h\u00fas \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e6vinlega fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed a\u00f0 hva\u00f0 \u00fe\u00fa blessar, Drottinn, \u00fea\u00f0 er blessa\u00f0 eil\u00edflega.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVIII. \u00dea\u00f0 ske\u00f0i \u00fe\u00e1 Dav\u00ed\u00f0 bj\u00f3 \u00ed s\u00ednu h\u00fasi a\u00f0 hann sag\u00f0i til Natan sp\u00e1manns: [ &#8222;Sj\u00e1, eg b\u00fd \u00ed einu sedrusvi\u00f0arh\u00fasi en Drottins s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk er undir tjald\u00feaki.&#8220; Natan svara\u00f0i Dav\u00ed\u00f0: &#8222;Allt hva\u00f0 \u00fe\u00e9r b\u00fdr \u00ed hjarta, \u00fea\u00f0 gj\u00f6r \u00fe\u00fa \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er me\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220; En \u00e1 \u00feeirri n\u00f3tt kom or\u00f0 Drottins til Natan og sag\u00f0i: &#8222;Far og seg til m\u00edns \u00fe\u00e9nara Dav\u00ed\u00f0s: Svo segir Drottinn: Ekki skaltu m\u00e9r h\u00fas til \u00edb\u00fa\u00f0ar byggja. \u00dev\u00ed eg hefi ekki b\u00fai\u00f0 \u00ed nokkru h\u00fasi fr\u00e1 \u00feeim degi a\u00f0 eg \u00fatleidda \u00cdsraelssyni allt til \u00feessa dags heldur var eg \u00fear sem tjaldb\u00fa\u00f0in var <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-kronikubok-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3048","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3048","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3048"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3048\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3048"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}