{"id":3030,"date":"2017-12-18T18:32:25","date_gmt":"2017-12-18T18:32:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-25-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:25","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:25","slug":"sidari-konungabok-25-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-25-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 25. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXV.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 n\u00edunda \u00e1ri hans r\u00edkis, \u00e1 \u00feeim t\u00edunda m\u00e1nu\u00f0i og \u00feann t\u00edunda dag, \u00fe\u00e1 kom Nabogodonosor k\u00f3ngur af Bab\u00fdlon me\u00f0 allri sinni magt og dr\u00f3 fyrir Jer\u00fasalem og settist um borgina og reisti v\u00edgv\u00e9lar \u00ed kringum hana. <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Par. 36 \/ Jere. 39\">[<\/span> Og \u00feeir s\u00e1tu um borgina allt til ellefta \u00e1rs k\u00f3ngsins Sedek\u00eda. En \u00ed \u00feeim n\u00edunda m\u00e1na\u00f0i var\u00f0 eitt megnt hungur \u00ed borginni svo a\u00f0 landsins alm\u00fagi haf\u00f0i ekkert a\u00f0 eta.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 brutust \u00feeir inn \u00ed sta\u00f0inn og allir str\u00ed\u00f0smenn fl\u00fd\u00f0u um n\u00f3tt a\u00f0 \u00feeim vegi sem l\u00e1 \u00ed millum \u00feeirra tveggja m\u00fara, \u00fat um porti\u00f0 hj\u00e1 k\u00f3ngsins grasgar\u00f0i. En \u00feeir Chaldei l\u00e1gu um sta\u00f0inn. Og Sedek\u00edas fl\u00fd\u00f0i \u00e1 \u00feann veg sem liggur til ey\u00f0imerkur. En her \u00feeirra Chaldeis s\u00f3ttu eftir k\u00f3nginum og g\u00e1tu gripi\u00f0 hann \u00e1 \u00fev\u00ed sl\u00e9ttlendi hj\u00e1 Jer\u00edk\u00f3 og allt \u00fea\u00f0 str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk sem var me\u00f0 honum \u00ed sundurdreif\u00f0ist fr\u00e1 honum. En \u00feeir gripu k\u00f3nginn og f\u00e6r\u00f0u hann \u00ed Riblat til k\u00f3ngsins af Bab\u00fdlon og \u00feeir felldu d\u00f3m yfir hann. Og \u00feeir dr\u00e1pu sonu Sedek\u00eda fyrir hans augum og \u00feeir blindu\u00f0u hann b\u00e1\u00f0um augum og bundu hann me\u00f0 j\u00e1rnvi\u00f0jum og fluttu hann til Bab\u00fdlon. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sedek\u00edas blinda\u00f0ur og fluttur til Bab\u00fdlon\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00c1 sj\u00f6unda degi \u00ed \u00feeim fimmta m\u00e1nu\u00f0i, \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 n\u00edtj\u00e1nda \u00e1r Nabogodonosor k\u00f3ngs af Bab\u00fdlon \u00fe\u00e1 kom Neb\u00fasaradan hersh\u00f6f\u00f0ingi, k\u00f3ngsins \u00fe\u00e9nari af Bab\u00fdlon, til Jer\u00fasalem. Og hann brenndi upp Drottins h\u00fas og k\u00f3ngsins h\u00fas og \u00f6ll h\u00fas \u00ed Jer\u00fasalem og \u00f6ll \u00feau st\u00e6rstu h\u00fas brenndi hann upp me\u00f0 eldi. Og allur her \u00feeirra Chaldeorum sem var me\u00f0 hersh\u00f6f\u00f0ingjanum braut ni\u00f0ur allan m\u00farinn \u00ed kringum Jer\u00fasalem. En \u00fea\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk sem eftir var or\u00f0i\u00f0 \u00ed sta\u00f0num og \u00feeir sem g\u00e1fu sig til k\u00f3ngsins af Bab\u00fdlon og \u00fea\u00f0 anna\u00f0 m\u00fagaf\u00f3lk flutti Neb\u00fasaradan <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Hersh\u00f6f\u00f0ingi\">[<\/span> hofmeistari \u00ed burtu en l\u00e9t eftir \u00ed landinu vera \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem minnsta h\u00e1ttar var, v\u00edngar\u00f0smenn og akurkalla. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00fada burt fluttur til Bab\u00fdlon\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg \u00feeir Chaldei sundurbrutu \u00fe\u00e1 koparst\u00f3lpa sem st\u00f3\u00f0u \u00ed Drottins h\u00fasi og s\u00f3lana og \u00fea\u00f0 koparhaf sem sett var hj\u00e1 Drottins h\u00fasi og f\u00e6r\u00f0u koparinn \u00ed Bab\u00fdlon og eldg\u00f6gnin, sleifarnar, kn\u00edfana, skei\u00f0irnar og \u00f6ll koparkerin sem til \u00fej\u00f3nustunnar voru h\u00f6f\u00f0u t\u00f3ku \u00feeir burt. <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 9\">[<\/span> So og t\u00f3k hofmeistarinn \u00feau gl\u00f3\u00f0arker og munnlaugar sem sm\u00ed\u00f0a\u00f0ar voru af gulli og silfri, tvo st\u00f3lpa, eitt haf og \u00fe\u00e1 st\u00f3la sem Sal\u00f3mon haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00ed Drottins h\u00fasi. En koparinn var\u00f0 ekki veginn af \u00f6llum \u00feessum kerum. Hver st\u00f3lpi var \u00e1tj\u00e1n \u00e1lna h\u00e1r og hans hnappar \u00fear ofan \u00e1 voru af kopar, \u00feriggja \u00e1lna h\u00e1ir, og laufavi\u00f0urinn og granateplin r\u00e9tt um kring hnappana, \u00fea\u00f0 var allt af kopar. Eins var s\u00e1 annar st\u00f3lpinn me\u00f0 s\u00ednum laufavi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg hofmeistarinn t\u00f3k \u00feann fyrsta kennimann Seraja og Sefanja \u00feann annan kennimann og \u00ferj\u00e1 dyravar\u00f0veislumenn og einn gelding af borginni sem var settur yfir str\u00ed\u00f0smennina og \u00fe\u00e1 fimm menn sem allt\u00ed\u00f0 st\u00f3\u00f0u fyrir k\u00f3nginum og fundnir voru \u00ed sta\u00f0num og S\u00f3fer str\u00ed\u00f0sh\u00f6fu\u00f0smann sem l\u00e6r\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu a\u00f0 berjast og a\u00f0 auk sext\u00edgi menn af landsins f\u00f3lki sem fundust \u00ed sta\u00f0num. \u00deetta t\u00f3k hofmeistarinn Neb\u00fasaradan og f\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00e1 til k\u00f3ngsins af Bab\u00fdlon til Riblat. Og Bab\u00fdlonsk\u00f3ngur l\u00e9t sl\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00fear \u00ed hel \u00ed landi Hemat. So var\u00f0 J\u00fada burt fluttur af s\u00ednu landi.<\/p>\n<p>\tEn Nabogodonosor k\u00f3ngur af Bab\u00fdlon setti Gedal\u00eda son Ah\u00edkam, sonar Safan, yfir \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem hann l\u00e9t eftir vera \u00ed landi J\u00fada. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gedal\u00eda \/ Jere. 40\">[<\/span> En sem allt str\u00ed\u00f0sf\u00f3lki\u00f0, h\u00f6fu\u00f0smennirnir og allir a\u00f0rir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 k\u00f3ngurinn haf\u00f0i sett Gedaliam \u00fe\u00e1 komu \u00feeir til Gedal\u00eda til Mispa, sem var \u00cdsmael son Netanja og J\u00f3hanan son Karea og Seraja sonur Tanh\u00famet Nethophathiter og Jaesanja son Maechati, me\u00f0 s\u00edna menn. Og Gedal\u00eda s\u00f3r \u00feeim og \u00feeirra m\u00f6nnum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00d3ttist ekki \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e9r gefi\u00f0 y\u00f0ur undir \u00fe\u00e1 Chaldeos. Veri\u00f0 \u00ed landinu og veri\u00f0 \u00fear me\u00f0 Bab\u00fdlonsk\u00f3ngi undirgefnir. \u00de\u00e1 skal \u00fea\u00f0 ganga y\u00f0ur vel.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda m\u00e1na\u00f0i kom \u00cdsmael son Netanja, sonar El\u00edsama, af konunglegri \u00e6tt, og t\u00edu menn me\u00f0 honum og sl\u00f3gu Gedal\u00eda \u00ed hel og \u00fear til \u00fe\u00e1 Gy\u00f0inga og Chaldeos sem voru hj\u00e1 honum \u00ed Mispa. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsmael\">[<\/span> \u00de\u00e1 t\u00f3k sig upp allt f\u00f3lki\u00f0, b\u00e6\u00f0i sm\u00e1ir og st\u00f3rir og \u00feeir yppustu sem voru fyrir str\u00ed\u00f0sf\u00f3lkinu, og komu \u00ed Egyptaland \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust \u00fe\u00e1 Chaldeos. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. 40; 41; 42; 43\">[<\/span>  <\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00fev\u00ed seytj\u00e1nda og tuttugasta \u00e1ri eftir \u00fea\u00f0 a\u00f0 J\u00f3jak\u00edn k\u00f3ngur af J\u00fada var \u00ed burt fluttur, \u00feann sj\u00f6unda og tuttugasta dag \u00e1 \u00feeim t\u00f3lfta m\u00e1nu\u00f0i \u00fe\u00e1 upph\u00f3f Ev\u00edl Mer\u00f3dak k\u00f3ngur af Bab\u00fdlon \u00e1 fyrsta \u00e1ri s\u00edns r\u00edkis h\u00f6fu\u00f0 J\u00f3jak\u00edn J\u00fadak\u00f3ngs af myrkvastofu og tala\u00f0i vingjarnlega vi\u00f0 hann og setti hans st\u00f3l yfir allra \u00feeirra k\u00f3ngast\u00f3la sem voru hj\u00e1 honum \u00ed Bab\u00fdlon. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3jak\u00edn upp tekinn af myrkvastofu\">[<\/span> Og hann umskipti hans fangelsiskl\u00e6\u00f0um. Og hann \u00e1t brau\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 hj\u00e1 honum alla s\u00edna l\u00edfsdaga. Og hann skipa\u00f0i hans kost sem honum var jafnlega gefinn af k\u00f3nginum daglega dags alla hans l\u00edfst\u00ed\u00f0. <\/p>\n<p>Endir \u00e1 Fj\u00f3r\u00f0u k\u00f3ngab\u00f3kinni<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXV. En \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 n\u00edunda \u00e1ri hans r\u00edkis, \u00e1 \u00feeim t\u00edunda m\u00e1nu\u00f0i og \u00feann t\u00edunda dag, \u00fe\u00e1 kom Nabogodonosor k\u00f3ngur af Bab\u00fdlon me\u00f0 allri sinni magt og dr\u00f3 fyrir Jer\u00fasalem og settist um borgina og reisti v\u00edgv\u00e9lar \u00ed kringum hana. [ Og \u00feeir s\u00e1tu um borgina allt til ellefta \u00e1rs k\u00f3ngsins Sedek\u00eda. En \u00ed \u00feeim n\u00edunda m\u00e1na\u00f0i var\u00f0 eitt megnt hungur \u00ed borginni svo a\u00f0 landsins alm\u00fagi haf\u00f0i ekkert a\u00f0 eta. \u00de\u00e1 brutust \u00feeir inn \u00ed sta\u00f0inn og allir str\u00ed\u00f0smenn fl\u00fd\u00f0u um n\u00f3tt a\u00f0 \u00feeim vegi sem l\u00e1 \u00ed millum \u00feeirra tveggja m\u00fara, \u00fat um porti\u00f0 hj\u00e1 k\u00f3ngsins <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-25-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3030","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3030","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3030"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3030\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3030"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}