{"id":3024,"date":"2017-12-18T18:32:25","date_gmt":"2017-12-18T18:32:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:25","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:25","slug":"sidari-konungabok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-19-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIX.<\/p>\n<p>En sem Ezechias k\u00f3ngur heyr\u00f0i \u00feetta \u00fe\u00e1 reif hann s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og f\u00e6r\u00f0i sig \u00ed einn sekk og gekk \u00ed h\u00fas Drottins. Og hann sendi Eljak\u00edm hofmeistara og Sebna ritara me\u00f0 \u00feeim elstu kennim\u00f6nnum, kl\u00e6dda sekkjum, til sp\u00e1mannsins Esaiam sonar Amos. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 27\">[<\/span> Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;So segir Ezechias: \u00deetta er hrygg\u00f0arinnar str\u00f6ffunar og gu\u00f0l\u00f6stunar dagur. B\u00f6rnin eru komin a\u00f0 f\u00e6\u00f0ingu en \u00fear er enginn m\u00e1ttur til a\u00f0 f\u00e6\u00f0a. Ef a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 vildi heyra \u00f6ll or\u00f0 \u00feessa ypparsta skenkjara hvern hans herra k\u00f3ngurinn af Assyria sendi hinga\u00f0 a\u00f0 tala svo h\u00e1\u00f0uglega um \u00feann lifanda Gu\u00f0 og \u00e1saka hann me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um sem Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 hefur heyrt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ezechias sendir til Esaiam\">[<\/span> So bi\u00f0 \u00fe\u00fa n\u00fa fyrir \u00feeim sem eftir eru or\u00f0nir og enn eru til.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem Ezechia k\u00f3ngs \u00fe\u00e9narar komu til Esaiam \u00fe\u00e1 sag\u00f0i Esaias til \u00feeirra: &#8222;Segi\u00f0 y\u00f0rum herra svo: Svo segir Drottinn: Egii skalt \u00fe\u00fa hr\u00e6\u00f0ast \u00feau or\u00f0 sem \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir me\u00f0 hverjum k\u00f3ngsins sveinar af Assyria gu\u00f0l\u00f6stu\u00f0u mig. Sj\u00e1, eg vil gefa honum einn anda a\u00f0 hann skal heyra t\u00ed\u00f0indi og draga heim aftur \u00ed sitt land og eg vil fella hann me\u00f0 sver\u00f0i \u00ed s\u00ednu landi.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem Rabsaces kom aftur fann hann k\u00f3nginn af Assyria. <span class=\"athugasemd\" title=\"T\u00edrhaka Bl\u00e1landsk\u00f3ngur\">[<\/span> Hann bar\u00f0ist \u00e1 L\u00edbna \u00fev\u00ed hann heyr\u00f0i a\u00f0 hann var dreginn fr\u00e1 Lak\u00eds. Og \u00fe\u00e1 hann fr\u00e9tti af T\u00edrhaka Bl\u00e1landsk\u00f3ngi: &#8222;Sj\u00e1, hann er \u00fatkominn a\u00f0 berjast vi\u00f0 \u00feig&#8220; \u00fe\u00e1 sneri hann aftur. Og hann sendi bo\u00f0 til Ezechiam og l\u00e9t segja honum: &#8222;Segi\u00f0 so Ezechia J\u00fadak\u00f3ngi: L\u00e1t \u00fe\u00fa ekki \u00feinn Gu\u00f0 sv\u00edkja \u00feig \u00e1 hvern \u00fe\u00fa treystir og segir: Jer\u00fasalem skal ekki gefast \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6nd af Assyria. Sj\u00e1, \u00fe\u00fa hefur heyrt hva\u00f0 Assyriak\u00f3ngar hafa gj\u00f6rt \u00f6llum l\u00f6ndum og foreytt \u00feeim. Skyldir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 einn frelsast? <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0lastan Assyrisk\u00f3ngs\">[<\/span> Hafa nokku\u00f0 hei\u00f0ingjanna gu\u00f0ir frelsa\u00f0 \u00fe\u00e1 sem m\u00ednir forfe\u00f0ur fordj\u00f6rfu\u00f0u: G\u00f3san, Haran, Resef og sonu Eden sem voru \u00ed Telassar? Hvar er k\u00f3ngurinn af Hemat, k\u00f3ngurinn af Arpad og k\u00f3ngurinn af sta\u00f0num Sefarva\u00edm, Hena og \u00cdva?&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem Ezechias haf\u00f0i me\u00f0teki\u00f0 br\u00e9fin af sendibo\u00f0unum og lesi\u00f0 \u00feau \u00fe\u00e1 gekk hann upp til Drottins h\u00fass og \u00fatbreiddi \u00feau fyrir Drottni. Og hann ba\u00f0 til Drottins og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn Gu\u00f0 \u00cdsraels hver a\u00f0 situr yfir ker\u00fab\u00edm, \u00fe\u00fa ert einn Gu\u00f0 yfir \u00f6llum k\u00f3ngar\u00edkjum \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, \u00fe\u00fa skapa\u00f0ir himin og j\u00f6r\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ezsechie b\u00e6n\">[<\/span> Drottinn, hneig \u00fe\u00fa \u00fe\u00edn augu og heyr, l\u00e1t upp \u00fe\u00edn eyru og sj\u00e1 og heyr Senaker\u00edbs or\u00f0 sem hann sendi hinga\u00f0 a\u00f0 h\u00e6\u00f0a \u00feann lifanda Gu\u00f0. En satt er \u00fea\u00f0, Drottinn: Assyriak\u00f3ngar hafa drepi\u00f0 hei\u00f0ingjana me\u00f0 sver\u00f0i og \u00feeirra l\u00f6nd, hafa og kasta\u00f0 \u00feeirra gu\u00f0um \u00ed eld. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 voru ekki gu\u00f0ir heldur handaverk manna, stokkar og steinar, og \u00fev\u00ed hafa \u00feeir fyrirkomi\u00f0 \u00feeim. En n\u00fa, Drottinn vor Gu\u00f0, hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa oss fr\u00e1 hans hendi so a\u00f0 \u00f6ll k\u00f3ngar\u00edki \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni megi vita a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, ert Gu\u00f0 alleina.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sendi Esaias son Amos til Ezechiam og l\u00e9t honum so segja: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esaias styrkir Ezechiam\">[<\/span> &#8222;Svo segir Drottinn \u00cdsraels Gu\u00f0: Eg hefi heyrt hvers \u00fe\u00fa hefur be\u00f0i\u00f0 af m\u00e9r um Sennaker\u00edb Assyriak\u00f3ng. \u00deetta er \u00fea\u00f0 sem Drottinn hefur tala\u00f0 \u00ed m\u00f3ti honum: Jungfr\u00fain S\u00edonsd\u00f3ttir forsm\u00e1r \u00feig og h\u00e6\u00f0ir a\u00f0 \u00fe\u00e9r, d\u00f3ttir Jer\u00fasalem hristir sitt h\u00f6fu\u00f0 eftir \u00fe\u00e9r. Hverjum hefur \u00fe\u00fa br\u00edgsla\u00f0? Og hvern hefur \u00fe\u00fa gu\u00f0lasta\u00f0? Yfir hvern upph\u00f3fst \u00fe\u00fa \u00fe\u00edna r\u00f6dd? \u00de\u00fa h\u00f3fst \u00fe\u00edn augu \u00ed gegn \u00deeim heilaga \u00ed \u00cdsrael. \u00de\u00fa h\u00e6ddir Drottin me\u00f0 \u00fe\u00ednum sendim\u00f6nnum og sag\u00f0ir: Eg em uppfarinn \u00e1 h\u00e6\u00f0ir fjallanna fyrir margfj\u00f6lda minna vagna, h\u00e6st upp \u00e1 L\u00edbanon. Eg hefi afh\u00f6ggvi\u00f0 hans h\u00e1vu sedrustr\u00e9 og \u00fatvalin furutr\u00e9 og em kominn til Karmelssk\u00f3gs ystu herbergja. Eg hefi uppgrafi\u00f0 og \u00fatdrukki\u00f0 \u00feau annarlegu v\u00f6tn og eg hefi upp\u00feurrka\u00f0 \u00f6ll st\u00f6\u00f0uv\u00f6tn me\u00f0 s\u00f3lum minna f\u00f3ta.<\/p>\n<p>\tEn hefur \u00fe\u00fa ekki heyrt a\u00f0 fyrir l\u00f6ngu hefi eg \u00fevil\u00edkt gj\u00f6rt og af upphafinu hefi eg \u00feetta allt rei\u00f0ub\u00fai\u00f0? En n\u00fa hefi eg l\u00e1ti\u00f0 svo koma a\u00f0 \u00feeir f\u00f6stu sta\u00f0ir skyldu falla og ver\u00f0a a\u00f0 ey\u00f0igrj\u00f3thr\u00fagu og \u00feeir sem b\u00faa \u00fear \u00fati skyldu ver\u00f0a m\u00e1ttlausir og hr\u00e6ddir og skammast s\u00edn og ver\u00f0a sem gras \u00e1 akri og sem \u00fea\u00f0 gr\u00e6na hey \u00e1 \u00feakinu hver ta\u00f0 visnar \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0 er fullvaxi\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Psalm. 129 \/ Allir v\u00edkingar eru \u00ed Gu\u00f0s valdi\">[<\/span> Eg veit \u00feitt heimili, \u00feinn \u00fatgang og \u00feinn inngang og a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e6\u00f0ir \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r. En fyrst a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e6\u00f0ir svo \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r og \u00feinn ofmetna\u00f0ur er kominn upp fyrir m\u00edn eyru \u00fe\u00e1 vil eg leggja einn hring \u00ed \u00fe\u00ednar nasir og eitt beisl \u00ed \u00feinn munn og eg vil lei\u00f0a \u00feig \u00feann sama veg aftur sem \u00fe\u00fa komst hinga\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00feetta skal vera \u00fe\u00e9r til eins merkis a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt f\u00e6\u00f0ast \u00e1 \u00feessu \u00e1ri vi\u00f0 sl\u00edkt sem tilf\u00e6st en \u00e1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem sj\u00e1lft vex en \u00e1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri skulu \u00fe\u00e9r s\u00e1 og skera akra y\u00f0ra og y\u00f0ra v\u00edngar\u00f0a planta og neyta \u00feeira \u00e1vaxta. En \u00fea\u00f0 sem \u00e1 er eftir af h\u00fasi J\u00fada skal \u00fe\u00e1 gr\u00f3\u00f0ursetjast og bera \u00e1v\u00f6xt. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sem eftir bl\u00edfa skulu koma af Jer\u00fasalem og \u00feeir af S\u00edonsfjalli sem eru frelsa\u00f0ir. Vandl\u00e6ti Drottins Seba\u00f3t skal gj\u00f6ra \u00feetta.<\/p>\n<p>\tOg \u00fev\u00ed segir Drottinn svo um Assyriak\u00f3ng: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 37 \/ Eccl. 48 \/ 1 Mach. 7\">[<\/span> Eigi skal hann koma \u00ed \u00feessa borg og \u00f6ngri \u00f6ru skal hann skj\u00f3ta \u00fear inn og ei skal hann sl\u00e1 herskildi um hana og \u00f6ngvar v\u00edv\u00e9lar skal hann setja \u00fear um kring heldur skal hann fara \u00feann veg aftur sem hann hinga\u00f0 kom og ei skal hann koma \u00ed \u00feennan sta\u00f0 \u0096 Drottinn segir \u00fea\u00f0 \u0096 og eg vil hl\u00edfa \u00feessari borg og hj\u00e1lpa henni fyrir m\u00edna skuld og s\u00f6kum m\u00edns \u00fe\u00e9nara Dav\u00ed\u00f0s.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00feeirri s\u00f6mu n\u00f3tt f\u00f3r engill Drottins \u00fat og sl\u00f3 \u00ed hel hundra\u00f0 \u00fe\u00fasund og fimm og \u00e1ttat\u00edgi \u00fe\u00fasund manns \u00ed herb\u00fa\u00f0um \u00feeirra Assyris. <span class=\"athugasemd\" title=\"Serkjak\u00f3ngs her drepinn af englinum\">[<\/span> En sem \u00feeir st\u00f3\u00f0u \u00e1rla upp um morguninn, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 l\u00e1 \u00fear allt fullt me\u00f0 dau\u00f0ra manna l\u00edkami. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k Sennaker\u00edb Assyriak\u00f3ngur sig upp og f\u00f3r \u00ed burt og sneri til Niniven. En sem hann tilba\u00f0 \u00ed h\u00fasi N\u00edsrok s\u00edns gu\u00f0s \u00fe\u00e1 sl\u00f3gu hans synir Adramelek og Sareser hann \u00ed hel me\u00f0 sver\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sennaker\u00edb drepinn af s\u00ednum sonum\">[<\/span> Og \u00feeir fl\u00fa\u00f0u \u00ed landa Ararat. En hans son Asorhaddon var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIX. En sem Ezechias k\u00f3ngur heyr\u00f0i \u00feetta \u00fe\u00e1 reif hann s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og f\u00e6r\u00f0i sig \u00ed einn sekk og gekk \u00ed h\u00fas Drottins. Og hann sendi Eljak\u00edm hofmeistara og Sebna ritara me\u00f0 \u00feeim elstu kennim\u00f6nnum, kl\u00e6dda sekkjum, til sp\u00e1mannsins Esaiam sonar Amos. [ Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;So segir Ezechias: \u00deetta er hrygg\u00f0arinnar str\u00f6ffunar og gu\u00f0l\u00f6stunar dagur. B\u00f6rnin eru komin a\u00f0 f\u00e6\u00f0ingu en \u00fear er enginn m\u00e1ttur til a\u00f0 f\u00e6\u00f0a. Ef a\u00f0 Drottinn \u00feinn Gu\u00f0 vildi heyra \u00f6ll or\u00f0 \u00feessa ypparsta skenkjara hvern hans herra k\u00f3ngurinn af Assyria sendi hinga\u00f0 a\u00f0 tala svo h\u00e1\u00f0uglega um \u00feann lifanda Gu\u00f0 og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3024","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3024","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3024"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3024\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3024"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}